Tíminn - 14.07.1965, Page 2
2
TÍMINN
MIÐVIKUDAGUR 14. júlí 1965
NTB-Saigon.
Bandaríkjamenn héldu enn
í dag áfram miklum loftárás-
um á hernaðar mannvirki um
160 km. fyrir sunnan landa-
mæri Kína, jafnframt því að
samgöngulejðir umhverfis
Hanoi voru eyðilagðar. í árás-
unum í dag eyðilögðu átta her-
þotur herstöðina við Son la
gjörsamlega.
NTB-Washington.
Johnson, Bandaríkjaforseti
sagði á blaðamannafundi í
Washington í dag, að nú virt-
ist svo sem Sovétmenn væru
reiðubúnir til að taka upp að
nýju viðræður um afvopnun í
Genf og hefðu ráðstafanir ver-
ið gerðar til þess að kalla sam
an til 17-ríkjaráðstefnu þann
27. júlí n.k.
NTB-París.
Amintore ^ Fanfani, utanríkis
ráðherra Ítalíu átti í dag
þriggja stundarfjórðunga við-
ræður við Couve de Murville,
utanríkisráðherra Frakka.
Lagði Fanfani áherzlu á, að
þegar í stað yrði komið á við-
rsgður milli fulltrúa Efnahags-
bandalagslandanna til þess að
reyna að finna lausn á sjálfs-
heldu þeirri, sem bandalagið
er nú komið í vegna aðgerða
Frakka.
NTB-Lundúnum.
! Einn þingmanna brezka
Verkamannaflokksins, Joseph
Edward Fletscher fékk í dag
slæmt hjartakast, er hann var á
fundi i neðri deild brezka þings
ins. Var hann borinn brott á
börum,
Er þetta mikið áfall fyrir
flokkinn, því að nú er meiri-
hlutinn aðeins tvö þingsæti i
neðri deild.
NTB-Chicago
Mikill ótti hefur nú gripið um
sig meðal íbúa Chicago, eftir að
fimm miklar sprengingar hafa
orðið þar í borginni síðustu
fimm daga og óttast menn, að
einhver óður ,,sprengjumaður“
gangi laus í borginni.
NTB-Khartoum.
Meira en 70 manns hafa fall
ið í bardögum milli stjórnar-
hermanna og uppreisnarmanna
i suður-Súdan. Fréttir, sem
bárust til Khartoum í dag,
herma, að fjöldi útlendinga
hafi verið handtekinn i S-
Súdan, þar á meðal þrir brezk
ir borgara, sakaðir um njósnir
i landjnu.
NTB-Paris,
Á morgun er Bastilludagur-
inn, þjóðhátíðardagur Frakka.
Fer þá fram mikil hersýning,
sem ,d§ Gaulle, forseti verður
viðstaddur. Verða þar sýnd öll
nýjustu vopn franska hersins
þar á meðpl kjarnorkuvopn.
NTB-Korfu.
Friðrik, Danakonungur kom
í kvöld til Korfu til að heim-
sækja yngstu dóttur sina, Önnu
Maríu Grikklandsdrottningu og
fyrsta barnabarn sitt, Alexiu,
prinsessu, sem fæddist á laug-
ardag,
Myndir frá Marz tiljarSarínótt?
NTB-Pasadena, þriðjudag.
Bandaríska gervitunglið Mar
iner 4. nálgaðist Mars óðfiuga
í dag, með 16.000 km hraða á
klukkustund. Samkvæmt upp-
lýsingum vísindamanna í rann
sóknarstöðinni í Pasadena er
allt tilbúið þar til að taka á
móti myndum frá Marjner 4.,
en aðaltilgangur með sendingu
gervitunglsins var að ná mynd
MÓTTAKARI
MARINER IV.
um af Mars. Samkvæmt áætl
uninni eiga fyrstu myndirnar
að berast til jarðar í nótt.
í dag átti Mariner 4. aðeins
560.000 km. ófarna til Mars,
en þangað eru 520 milljónir
km. Gervitunglinu var skotið
á loft frá Kennedyhöfða 18.
nóvember í fyrra og hefur hald
ið beinni línu til Mars síðan.
Samband milli gervitungls-
ins og rannsóknarstöðva á
jörðu hefur verið gott allan
þennan tíma og í nótt verða
send merki, sem koma mynda
vélunum í Mariner 4. af stað.
Áætlað er, að gervitunglið
fari í 7.601 km. fjarl. fram hjá
Mars og taki um leið 21 mynd
og sendi til jarðar. Vona vís-
indamenn, að hægt verði að
birta opinberlega fyrstu mynd-
irnar strax á fimmtudag eða
föstudag. Myndatakan mun
taka 29 mínútur og vonast vís-
indamenn til, að margt, sem
áður hefur verið á huldu, skýr-
ist nú með myndunum frá Mar
iner 4. Síðast var haft samband
við Mariner 4. seint í júní og í
dag benti allt til, að mynda-
sendingar tækjust í nótt, eins
og ráð var fyrir gert. Á mynd-
inni sést, hvernig myndirnar
frá Mariner 4 berast til jarð-
ar og meöhöndlun þeirra þar.
RAFEINDAIIKILI
MYNDBRKYTIR
"zz m ■.r.—z^rr
. a i c= ,
Ul
ir
• - 9'líl • I a ‘v • o •n ’ • U^i UJL
□
r~i
mynd
ýju kauptaxtarnir
Hér fara á eftir aðaltaxtarnir
samkvæmt hinum nýju samningum
verkaiýðsfélaganna í Reykjavík og
Hafnarfirði. Tímakaup í dagvinnu
hækkar frá 13,1%"26%, mismun
andi eftiL flokkum og verður sem
hér segir: tn.: ’'■•■ '■■■
1. TAXTÍ. Almenn verkámanna-
vinnu. Fyrstu tvö árin kr.
39.64 Eftir tveggja ára vinnu:
kr. 41.62.
2. TAXTI. Fiskvinna o. fl. Fyrstu
tvö árin kr. 40.67 Eftir 2ja
ára starf kr. 42.70.
3. TAXTI. Bifreiðastjórn o. fl.
Fyrstu tvö árin kr. 42.19. Eftir
tveggja ára .starf kr. 44.30.
4. TAXTI. Hafnarvinna o. fl.
Fyrstu tvö ór kr. 42.88. Eftir
tveggja ára starf kr. 45.02.
5. TAXTI. Vinna í frystiklefum
og frystilestum o. fl. Fyrstu
tvö ár kr. 43.74. Eftir tveggja
ára starf kr. 45.93.
6. TAXTL Stjórn vörubifreiða,
7 tonna og stærri. Fyrstu tvö
ár kr. 44.66. Eftir tveggja ára
starf kr. 46.89.
7. TAXTI. Sementsvinna o. fl.
Fyrstu tvö ár kr. 46.26. Eftir
tveggja ára starf 48.57.
8. TAXTI. Stjórn þumgavinnuvéla
o.fl. Fyrstu tvö ár kr. 47.86.
Eftir tveggja ára starf kr.
50.25.
9. TAXTI. Boxa- og katlavinna
kr. 53.51.
TAXTAR VERKAKVENNAFÉ-
LAGANNA. — TÍMAKAUPIÐ.
í samningum verkakvennafélag-
anna er hæsti taxtinn kallaður 1.
taxti.
1. TAXTI. Fiskvinna, annað en
snyrting og pökkun í frystihús-
um o.fl. Fyrstu tvö ár. kr. 40.67
Eftir tveggja ára starf kr. 42.70
Þessi taxti er nú alveg sam-
hljóða 2. taxta verkamannafé-
laganna.
2. TAXTI. Hreingerning, slátur-
húsavinna o.fl. Fyrstu tvö ár
kr. 37.89. Eftir tveggja ára
starf kr. 39.72.
4. TAXTI. Pökkun, snyrting og
vigtun i frystihúsum. Fyrstu
tvö ár kr. 37.75. Eftir tveggja
ára starf kr. 39.64.
5. TAXTI. Almenn verkakveaina-1
vinna. Fyrstu tvö ár kr. 37.30.
Eftir tveggja ára starf kr.
39.17.
VESTFJARÐADEILD
VERNDAR
Stöfriuð hefur verífr^esájarða
deild félagsskaparins VÉRjNDÁR
og var stofnfundurinn haldinn fyr
ir skömmu . Jafnframt var til-
kynnt um höfðinglega gjöf hjón-
anna Þorbjargar Valdimarsdóttur
og Jóns Kristjánssonar byggjnga-
meistara á eignum i Hnífsdal og
Eyrarhreppi.
Fundurinn á ísafirði var fjöl-
sóttur, en til hans boðuðu Þóra
Einarsdóttir, formaður VERND-
AR, og Sigríður J. Magnússon,
sem á sæti í stjórn félagsins.
Fundarstjóri var Marías Þ. Guð-
mundsson framkvstj. í upphafi
fundarins flutti Þóra erindi um
stofnun, tilgang og starf VERND-
AR. Megintilgangur félagsins er
að liðsinna og aðstoða ýmsa þá
menn, sem gerzt hafa brotlegir við
lög og stuðla að því að þeir geti
á nýjan leik orðið góðir samborg-
arar. Lýsti Þóra því yfir, að til-
gangurinn með boðun þessa fund
ar væri að stofnsetja fyrstu deild
félagsins utan Reykjavíkur, yrði
irðí hieð að-
Áetiii ItMiPöiiBjr
Þá sagði hún frá gjöf,
sem VERND hefði nýlega hlotið
og kvað stjórn samtakanna hafa
samþykkt á fundi sínum í Reykja-
vík að afhenda þeirri Vestfjarða-
deild, sem nú ætti að stofna, þessa
gjöf til umráða og ráðstöfunar.
í gjafabréfi, er lýst yfir því, að
til minningar um hjónin Björgu
Jónsdóttur og Valdimar Þorvarð
arson útgerðarmann og kaup-
mann í Hnífsdal, hafi þau hjónin
Þorbjörg Valdimarsdóttir og Jón
Kristjánsson byggingameistari frá
Hnífsdal, sem nú eru búsett í
Reykjavík, ákveðið að gefa féiags-
skapnum VERND eftirtaldar eign
ir: Heimabæ II, húseign og jörð,
en þarna er um að ræða stærsta
húsið í Hnífsdal, þrílyft steinhús
með þremur. ibúðum. Einnig efri
hæð í húseigninni Heimabær V,
og loks jörðina Fremri-Hnífsdal í
Eyrarhreppi.
í gjafabréfinu er sett það skil-
HÉRADSMOTIN UM HELGINA
Oalasýsla:
Framsóknarmenn í Dalasýslu
efna til héraðsmóta að Tjarnar
lundi í Saurbæ laugardaginn 17.
júlí, og hefst Það klukkan 21.
Helgi Bergs ritari Framsóknar
flokksins og HaHdór E. Sigurðs-
son alþingismaður flytja ræður.
Röðlar ieika fyrir dansi.
Leikhúskvartettinn skemmtir.
Rangárvallasýsla:
Héraðsmót Framsóknarmanna í
Rangárvallasýslu verður haldið að
Hvoli laugardaginn 17. júli og
hefst það klukkan 21.
Prófessor Ólafur Jóhannesson
varaformaður Framsóknarflokks-
ins flytur ræðu, og Björn Fr.
Björnsson, sýslumaður, ávarp.
Savannatríóið og Jón Gunnlaugss-
son skemmta. Fyrir dansi leikur
hljómsveit Óskars Guðmundss.
Ik ■?. ''
Halldór
Helgl
Björn
Ólafur
yrði, að fasteignirnar verði nýttar
á vegum VERNDAR til hagsbóta
fyrir þau málefni, sem VERND
berst fyrir eða kann að berjast
fyrir hverju sinni. Þó skal VERND
heimilt að leigja eða lána fast-
eignirnar eða hluta úr þeim fyrjr
starfsemi á sviði annarra mannúð-
armála en þeirra, sem VERND
beinlfnis berst fyrlr, svo sem til
rekstrar unglingaheimilis, barna-
heimilis eða elliheimilis o.s.frv.
Þóra Einarsdóttir sagði, að með
þessari miklu gjöf opnuðust stór
’kostlegir möguleikar og lýsti
þeirri von sinni að gjöfin yrði
hvatning til átaka. Frú Sigríður
J. Magnússon talaði um starfsemi
VERNDAR á undanförnum árum
og umræður urðu um málin.
Síðan var Vestfjarðadeild
VERND stofnuð og höfðu 47
manns skráð sig sem stofnfélagar.
Var deildinni kosin stjórn og eiga
sæti í henni Rannveig Hermanns-
dóttir, Oktavía Gísladóttir, Haf-
steinn O. Hannesson, Marías Þ.
Guðmundsson, Kristján Jónsson,
Þórður Sigurðsson og Inga Ingi-
marsdóttir, en til vara Halldór
Pálsson, Jón Þórðarson og Dani-
ela Jóhannesdóttir. Stofnfund-
urinn sendf gefendunum þakkir
fyrir gjöfina.
Þing sunn-
lenzkra kvenna
37. ársfundur Sambands sunn-
lenzkra kvenna var haldinn að
Hvoli dagana 2—3. júní 1965. Auk
stjórnar sóttu fundinn fulltrúar
frá 24 félögum, en alls eru í sam
bandinu 26 félög. Einnig sátu
fundinn form. K. S. í., frú Helga
Magnúsdóttir og frú Hall-
dóra Guðmundsdóttir, Miðengi.
Kvenfélagið Eining í Hvols-
hreppi sá fundarkonum fyrir gist
ingu og annaðist fyrirgreiðslu á
ýmsan hátt.
Samþykkt var að gefa Sjúkra
húsi Suðurlands fósturkassa.
Veittur var styrkur til sumar
búðastarfs í Árnesprófastsdæmi.
Orlofsnefnd starfar á vegum
sambandsins og nutu 40 konur
orlofsdvalar, að Laugarvatni á
s. 1. hausti.
Garðyrkjunefnd er starfandi _ á
félagssvæðinu, og ferðaðist Óli
Valur Hansson um héraðið á s. 1.
vori og leiðbeindi um skipulagn
Framhald á bls. 14.