Tíminn - 14.07.1965, Qupperneq 16
K5. tbl. — Miðvikudagur 14. júlí 1965 — 49. árg.
TVÆR FASTAR FERDIR I
ÞÓRSMÖRK I VIKU HVERRI
MB-Eeykjavík, þriðjudag.
Austurleið h. f. hefur hafið áætl
unarferðir frá Hvolsvelli inn á
Samningafundir
TK-Reykjavík, þriðjudag.
Fulltrúar málmiðnaðarmanna
og atvinnurekenda sátu á samn
ingafundum í gær með sáttasemj
ara. Fundirnir voru árangurslaus-
ir. Fundur hófst að nýju í Alþing
ishúsrnu kl. 4 í dag. Á fimmtudag
hefja fulltrúar atvinnurekenda og
verkalýðsfélaga í Árnessýslu
samningaviðræður, en ósamið er
enn við verkamannafélögin í Ár-
nessýslu.
SAMIÐ
TK-Reykjavík, þriðjudag.
Samningar tókust í dag með full
trúrnn verkalýðsfélaga og atvinnu
rekenda á Vestfjörðum. Var sam
komulagið undirritað með fyrir
vara nm samþykki félagsfunda.
Samkomulagið er nær samhljóða
samningum verkamanna og verka
kvennafélaganna í Reykjavík og
Hafnarfirði. Samkomulag þetta
tekur til allra verkalýðsfélaga á
Vestfjörðum.
Nýtt viku-
blað hefur
Þórsmörk. Eru farnar tvær ferðir
fram og til baka í viku hverri og
eru þessar ferðir tengdar áætlunar
leið fyrirtækisins nrjlli Hvolsvall
ar og Reykjavílnu-.
Óskar Sigurjónsson hjá Austur
leið sagði blaðinu frá ferðum þess
um í dag. Til ferðanna er notuð
bifreið af Reo-Studebaker gerð og
fer hún frá Hvolsvelli klukkan eitt
á fimmtudögum og fjögur á laug
ardögum, en til baka úr Þórsmörk
klukkan hálf eitt á föstudögum og
klukkan þrjú á sunnudögum. Geta
farþegar úr Reykjavík farið með
áætlunarbíl Austurleiðar frá
Reykjavík að Hvolsvelli og hald
ið nær stanzlaust áfram inn á
Þórsmörk á áðumefndum dögum
og hið sama gildir um ferðimar
frá Þórsmörk, farþegar fá far í
bæinn frá Hvolsvelli strax. Austur
leið á skála inni á Þórsmörk og
þar geta þeir farþegar Austurleið
ar sem vilja fengið aðstöðu til
að elda mat. Nánari upplýsingar
um þessar ferðir era veittar í
B.S.I. í Reykjavík og veitingahús
inu Hvoli, Hvolsvelli.
BLÍÐA A
MIDUNUM
FB—Reykjavík, þriðjudag.
Jón Einarsson á síldarleitarskip
inu Hafþór sagði í símtali í 'kvöld,
að skipin væru að kasta um 50—80
mílur suðaustur af suðri frá
Wijfagt'j. \
ýjkfyh&v &**'#'«£*'*%'*?**'? ,
<•■>// X-'v' - "// ^ '••. <iff ty
v>' /&</ ✓>>' y y f/} 'í &//<&%
'' ".'&'/' ' > ' -w <&'.?./f4#' •>•».> ' \ \
"-'■'■'l ,■''?„ ■'//'■' * £■//•/ '>"f //> ¥>$ í**-
■ ■■ ■
■
Myndin hér að ofan er úr blaði, sem Sony-fyrlrtæklð gefur út, og sýnir Ráp-gláp-tækið og svo hlð
væntanlega armbandssjónvarp.
„RAP-GIAP" TÆKI ERU
KOMIN Á MARKAÐINN
FB-Reykjavík, mánudag.
Tækninni fleygir fram, og
nú er svo komið, að menn eru
farnir að hugsa til þess tima,
þegar hægt verður að ganga
með sjónvarpstækin á hand-
leggnum, eins og myndin hér
að ofan sýnir. Það er reyndar
ekki hægt enn sem komið er,
en japanska fyrij-tækið §ony
boðar, að innan skamms muni
það hefja framleiðslu á þessum
tækjum, því Sony sé þekkt fyr
ir að taka stór tæki og smækka
þau!
Sony fyrirtækið er aftur á
móti farið að framleiða sjón-
varpstæki, sem kalla mætti
„Ráp-gláp“ tæki sbr. „Labb-
rabb“ sendistöðvarnar. Maður
inn til hægri hér að ofan er
roeð eitt slíkt. Það er litlu
stærra en myndavél og má láta
það hanga um hálsinn í ól.
Skermurinn er fjórir þumlung
ar á kant, og tækið er transistor
tæki. Enn sem komið er, er
einungis hægt að fá þetta litla
sjónvarpstæki lceypt í Banda-
ríkjunum og í Japan, en verð
ur áreiðanlega ekki langt þang
að til það fæst víðar. Hver
veit, nema fslendingar geti
horft á ísienzka sjónvarpið í
tæki sem þessu, þegar sjónvarp
ið hér tekur til starfa.
Aætlunarferðir að befjast
um Fjallabaksleið nyrðri
göngu sina
FB—Reykjavík, þriðjud.
Nýtt vikublað mun
hefja göngu sína hér í
næsta mánuði. Nefnist
það Nýr Stormur. Útgef-
andi verður Gunnar Hall
kaupmaður í Reykjavík,
sem rekur blaðið með
ótakmarkaðri ábyrgð, að
því er segir í auglýsingu
um tilkomu blaðsins í
Lögbirtingarblaðinu.
Við náðum tali af Gunnari
Hall í dag, og spurðum hann
um útkomudag þessa nýja
blaðs /)g sagðist hann gera
ráð fyrir, að það kæmi í
fyrsta sinn út einhvern
tíma upp úr miðjum ágúst-
mánuði. Blaðið verður svip
að að stærð og dagblöðin,
en síðufjöldí hefur enn ekki
verið ákveðinn endanlega.
Um efnið er það að segja,
að þarna eiga bæði að vera
fréttir, stjómmál og menn
ingarlegar greinar, og verð
ur reynt að hafa það sem
fjölbreyttast. Gunnar Hall
mun sjálfur verða ritstjóri
blaðsins.
Gerpi og fengju þar smávegis síld
sem hægt væri að láta í salt.
Kvaðst hann vona að veiði yrði
svipuð í kvöld og nótt og hún
varð síðustu nótt, en þá voru að
meðaltali um 1000 mál og tunnur
á bát. Skínandi blíða er á mið
unum, en leitarskipin hafa ekki
orðið vör við stórar torfur. Sagði
hann að sömu sögu væri að segja
frá Ægi, sem er við síldarleit fyr
ir norðan land.
Síldarfréttir þriðjudaginn 13. júlí
1965.
Blíðuveður var á síldarmiðunum
s.I. sólarhring og sæmíleg veiði
50—140 mílur SA og SAS frá
Gerpi.
Samtals 48 skip með 44.270 mál
og tunnur.
Framhald á bls. 14.
MB—Reykjavík, þriðjudag.
Horfur eru nú á þvi að brátt
opínst ný áætlunarleið hérlendis,
sem mörgum mun finnast forvitni
leg, enda hefur hún verið tiltölu
lega fáfarin til þessa. Ekki tengir
þessi leið nein áður einangruð
byggðarlög við umheiminn, heldur
er hér um ósvikna ferðamannaleið
að ræða. Þesesi nýja áætlunarleið
er Fjallabaksleið nyrðri.
Það er Austurleíð h. f. á Hvols
velli, sem hefur í athugun að hefja
fastar áætlunarferðir um Fjalla
baksleið nyrðri og standa vonir
til að fyrstu áætlunárferðirnar
verði farnar seint í þessum mán
uði ,að því er Óskar Sigurjónsson
hjá Austurleíð tjáði blaðinu í dag.
Óskar kvað Austurleið hafa fyr
, ir skömmu fengið leyfi til þess
I að auglýsa áætlunarferðir á þess
! ari leið, en málið væri enn svo
! skammt á veg komið að ekki væri
unnt að segja mi'kið um það. Ráð
í gert væri að hver ferð tæki alls
þrjá daga. Á fyrsta degi yrði ekið
að Kirkjubæjarklaustrf, á öðrum
degi vestur í Landmannalaugar og
á þriðja degi til Reykjavíkur og
: stæðu vonir til að þá yrði unnt
; að koma við í Veiðivötnum. Gert
I er ráð fyrir að einnig sé unnt að
hefja förina á Kirkjubæjarklaustri
og borga þá fyrir þann hluta henn
ar sem farin er eftir fargjalda-
; skrá.
Unnt verður að fá svefnpoka
pláss til gistingar á Kirkjubæjar
klaustri ef gistihúsið er fullt en
NÓTNASAFNSINFÓNÍUNNAR
ER GJÖRSAMLEGA ÓNÝTT
MB-Reykjavík, þriðjudag.
Tjónið af völdum brunans í
nótnasafni Sinfóníuhljómsveitar
íslands og Ríkisútvarpsins hefur
við rannsókn reynzt meira en upp
haflega var talið. Hafa skoðunar
menn komizt að raun um, að safn
ið hafi eyðilagzt algerlega í eld-
inum.
Við rannsókn hefur komið í
. ljós, að nótnahandrit og bækur í
safninu era svo mikið skemmd að
ákaflega hæpið er að nokkuð af
Iþeim verði ’ nothæft, meira að
sgja til ljósprentunar Hafa skoð-
unarmenn Samvinnutrygginga, en
þar var nótnasafnið tryggt, fallizt
á að bæta tjónið að fullu.
Erfitt er að segja að svo komnu
máli um hve mikil verðmæti hafa
eyðilagzt í þessum eldsvoða, en
eins og áður hefur verið sagt frá í
blaðinu voru þarna ekki geymd
nótnahandrit sem ófáanleg eru
annars staðar, þannig að unnt á
að vera að bæta tjónið með tím
anum.
í Landmannalaugum verður að
tjalda og ferðafólkið þarf að út
búa sig með nesti fyrir þann hluta
leiðarinnar sem liggur um öræfin.
Á þssari leið er marga fagra
staði að sjá í óbyggðum, en lagt er
upp á Fjallabaksleið nyrðri úr
Skaftártungu og komið niður á
Land. Þekktustu staðirnir, sem
farið verður um í óbyggðum era
Eldgjá og Landmannalaugar, en
hvarvetna að fjallabakí er mjög
fallegt, ef skyggni er gott.
BRÆÐSLA HAFIN
Á DJÚPAV06I
ÞS-Djúpavogi, þriðjudag.
Hin nýja síldarbræðsla á Djúpa
vogi er nú komin í gang og geng
ur bræðslan ágætlega. Hún var
fyrst prófuð á laugardagskvöld, en
vinnsla hófst af krafti á sunnu-
dagskvöld. Síldarbræðslan er
eign Hraðfryistihússins Búlands-
tinds h. f. sem er ign staðarbúa,
kaupfélagsins o. fl. Þróarrými
verksmiðjunnar er 7000 mál en
dagsafköst 1000—1200 mál. Lýsis
geymir tekur um 400 tonn. Þegai
hafa borizt um 6000 mál til verk
smiðjunnar. Starfsmenn’era 16
Framkvæmdir við verksmiðjuna
hófust um mánaðamótin febrúar/
marz í vetur og hefur Vélsmiðjar
Héðinn séð um framkvæmdir.