Alþýðublaðið - 29.05.1931, Side 3
A&Þ3ÐUBLAÐ1&
8
Ódýr fatnaður.
Kailra.sumarföt frá 45*—, ungl.föt frá 29.—, biá cheviot-
föt, alullar frá 75*—, sportföt nrargar teg. frá 52.—,
reiðbuxur, pokabuxur, vinnubuxur prælsterkar frá 6,75,
regn- og ryk-frakkar frá 39.—, taubuxur frá 7,50,
sumarnærföt, settið frá 4,50, axlabönd ágæt frá 1,50,
sportskyrtur frá 4,50, milliskyrtur frá 4,25, álls konar
starfsfatnaður, svo sem: Málarasloppar 7.—, hvítir
sloppar 10.75, brúnir sl. 10.50, maiarajakkar 6.—,
biúnir jakkar 7.—, hvítir jakkar 7.S5, brúnar buxur
6.50, bakara- og kokka-buxur 8.75, málarahúfur 75
aura, bakara- og kokka-húfur 1,50, alsk. verkamanna-
fatnaður, ávalt ódýrast í
irauns - verzlnn.
^8a8S8B8S8S8S8S8S8S8S8E385858S8S8S8S8SSS8S»8S8f3
Bezta Cigarettan i 20 stk. pðlknm,
sem ksta 1 krdnu, er:
Commander
H lestmiuster,
I
¥irginia,
Fást í ðllum verzíunum.
I hverjm pakka er gnllfalleg islenask
mynd, og fær hver sá, er safnað hefir 50
œ jndm, eina stækkaða mynd.
Tilboð óskast
í vélbát f>ann, er flugfélagið hefir
notað síðastliðið ár, í því ástandi,
sem hann nú er í. Báturinn iiggur
fyrir framan Sænskafrystihúsið við
Ingólfsstræti. Tilboðið sendist til
Landssmiðju íslands.
50%
Flutnings
útsalan.
50%
Siðasti dagur á morgun.
Góðar plötur, fónar, harm-
onikur munnhörpur, grammó-
fónverk, nálar, album, fiðlur,
fiðlukassar, pokar, guitar og
mandolinpokar, fiðlustativ,
plötutöskur, burstar, og fl. af
músikvörum.Leðurvörur 10—-
20% á öllu sem á útsöiunn er.
Hijjóðfærahúsið.
Báfiig til visindaiegra rann-
Augsburg, 28. maí. U. P. FB.
Auguste Piccard prófessor og að-
stoðarmaður hans, Kipfer að
nafni, lögðu af stað í loftferð í
loftbelgsfari kl. 3 og 57 mín. að-
faranótt i miðvikudagsins. Voru
þieir útbúnir ýmsum tækjum og
áböldum í athugana skyni og
gerðu sér vonir um að
komast upp í „strato'-hvolfið
og gera þar mikilvægar at-
huganir. Þei r lentu aftur kl. 10
um kvöldið á GUrlechnerjökli í
Ölpunum. Komust þeir í 16 þús-
und metra hæð. Loftfarið og á-
höldin voru óskemd. Piccard lét
í ljós mikla hrifni yfir loftför-
inni og kvaðst hafa gert mikii-
vægar vísindalegar athuganir.
Piccard og Kipfer komu til Gu-
argl(?) seinni h'luta dags í dag.
Atvfnnnlansir stúdentar.
Washington í maí. U. P. FB.
Miiljón stúdenta bætist við tölu
atvinnulieysingjanna þegar há-
skólaárið endar í næsta mánuði.
Fjöldi stúdenta fær að vísu
bráðabirgðaatvinnu um sumar-
tímann við heyskap, kornskurð
o. s. frv., en alt að því milljón
nemenda á það á (hættu að fá
enga atvinnu, frekar en þeir, sem
komnir eru í atvinnuleysingja-
hópinn, 5 millj. að tölu. Einnig
eru 120 000 próftakar, menn, sem
nú hafa lokið fullnaðarprófi við
háskóla, er leita sér fastrar at-
vinnu. Loks er fjöldi háskóla-
stúdenta, sem verða að leita sér
fastrar atvinnu af því þeir sjá
engin tök á því að halda áfram
námi. Á meðal stúdentanna eru
9 þúsund, sem fæddir eru í öðr-
um löndum og þurfa atvinnu
með unz næsta háskólaár byrjar.
Hins vegar fer þeim stúdientum
nú mjög fækkandi, sem koma til
náms við ameríska háskóla frá
öðrum löndum. Eru þeir að með-
al'tali að eins 40—50 á mánuði
nú undanfarið, og bendir það til
þess, að langtum færri komi í
ár en í fyrra. Sérstök nefnd í
Washington h-efir tekið til með-
ferðar atvinnuiieysi meðal verk-
fræðinga, kennara, hjúkrunar-
kvenna og annara, sem nám
stunda við ameríska háskóia.
Útvarpið í dag: Búnaðarmála-
erindi kl. 18,30 (Þorv. Árnason
ullarmatsm.) og kl. 19 (Metúsal-
em Stefánsson ráðunautur). Kl.
19,30: Veðurfregnir. Kl. 19,35:
Upplestur (Sig. Skúlason meist-
ari). Kl. 19,55: Hljómleikar (söng-
vél). Kl. 20: Enskukenslá (A. Bj.).
Ki. 20,20: Hljómleikar (Þ. G., Þ.
A., E. Th.). Kl. 20,30: Erindi: Um
tóhlistarhætti II. (Emil Thorodd-
sen). Kl. 21: Fréttir. Kl. 21,20:
Hljómtókar (söngvél).
Til Verhlýðsblaðsins.
1 Aiþýðublaðinu 15. maí sl. er
birt viðtal við mig um nokkra
kosningafundi, er tíðindamaður
blaðsins hafði spurt mig frétta
af, og er þar komist svo að orði
m. a.: „Enn fremur talaði, Gísli
nokkur Indriðason tollheimtu-
anáður fyrir bolsivíka á 'tveim
fundum og reifaði hann aðallega
heimspólitik stórveldanna. —
Enginn talaði við hann:“ Er síð-
ast:a setningin ónákvæmlega höfð
eftir mér, því ^að ég sagði:
„. . . enginn talaði við hann í
Borgarnesi, en á Akranesi átti
ég í nokkru orðakasti við hann,
en aðrir ekki.“
Frá þesisu skýröi ég Gísla, en
hafi hann haft eftir mér að ég
hafi átt viðtalið við ólaf Frið-
riksson, þá er það rangt, því að
tíðindamaður blaðsins var Vil-
hjálmur S. Vilhjálmsson.
Annars virðist ekki mikið efni
fyrirliggjandi fyrir Verklýðsblað-
ið er aðrir eins smámunir eru
gerðir að blaðamáli.
Héðinn Valdimarsson.
Ussfi íÉa§fÍM» ®® weiilsaœ®
Verkahvennafélagið ,Framsókn‘
heldur almennan alþýðu-
kvennafund annað kvöld kl. 8i/2
í alþýðuhúsinu Iðnó niðri.
Luðrasveit Reykjavíknr
fer skemitiferð að Akranesi á
sunnudaginn kemur með „Suður-
landi“. Þykja skemtiferðir Lúðra-
sveitarinnar jafnan hinar ánægju-
legustu, og Akranes, sean nú er í
mdklum uppgangi, er valinn stað-
ur til skemtiferðar nú i sumar-
blíðunni. Má því búast við að
færri fái far en vilja.
Á kjósendafundunum
sem augiýstir eru í blaðinu í
dag, eiga allir flokkar að hafa
jafnan ræðutíma og verður dreg-
ið um hvaða flokkur eigi að
byrja. Fær fyrsti ræðnmaður
St. Æskan nr. 1.
SKEMTIFÖR að Reykjanesi er
ákveðin næstkomandi snnnudag,
ef veður leyfir. Farið verður i bil-
um að Stað í Grindavík og gengið
að Reykjanesvita. Ekki er ætlast
lil að yngri en 12 ára félagar taki
þátt í för þessari.
Farseðlar á 3 krónur fyrir uag-
linga og 4 kr. fyrir fullorðna,
verða seldir í G.-T.-húsinu kl. 6—
8 í kvöld og kl. 4—5 á morgun
ef eitthvað verður óselt.
ÖBVAL AV SÚT-
DBDM fiÆRDM,
hvitnm og mSslit-
UW) fást i
GEFJÐN,
Sími 538. Langavegi 33.
VeitSð atbygli!
50 Vor- og sumar-káptiF
verða næstu daga seidar
með sérstöku tækifæris-
verði.
Verzhm
Ámtmda Árnasonar
Nýr hænsnakofi
með 25 ágætis varphænum er
til sölu. Enn fremur er til sölu
á sama stað skápgrammófónn
með 25 plöíum og ljósakróna
alt með tækifærisverði. Upplýs-
ingar eftir kl. 7 í kvöid og næstu
kvöld á Freyjugötu 26, efstu hæð.
Togararnir. „Tryggvi gamti“
kom af veiðum i gær, vel fisk-
aður.