Morgunblaðið - 15.07.1981, Síða 2

Morgunblaðið - 15.07.1981, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1981 Heilbrigðisráð og lögreglu- yfirvöld í Hafnarfírði: Mótmæla nýjum reglum um hundahald í bænum Fjöldauppsagnir hjá hrað- frystihúsum á Suðurnesjum B/EJARSTJÓRN llafnarfjarðar samþykkti fyrir stuttu að leyfa hundahald í ba'num með ákveðn- um skilyrðum. Kins og áður hefur komið fram í fréttum Mbl felur samþykkt bæjarstjórnar- innar í sér tóluvcrða rýmkun á þcim rejílum sem áður voru í Kildi. en þá voru einungis veitt leyfi til hundahalds vegna Iök- Bætir fólki skemmda mjólk MIKIÐ hefur horið á því að mjólk í verslunum á höfuðhorif- arsva'ðinu hafi verið súr þeKar húr berst neytendum. I því samhandi sneri Mhl. sér til GunnlauKs Bjönjvinssonar ok saKði hann að Mjólkursamsalan teldi sjálfsaKt að h;eta fólki þann skaða sem það yrði fyrir veKna kaupa á skemmdri mjólk. „Við teljum alveK sjálfsagt að fólk fái óskemmda vöru fyrir skemmda. Í örfáum tilfellum hefur fólk farið fram á baetur ve^na þess að skemmd mjólk hafi eyðilaKt dýra rétti ok reyn- um við þá að koma til móts við þaer kröfur eftir bestu getu.“ gaslu og leitarstarfa og til leið- sagnar hlindum. Eftir breyting- una eru skilyrði til hundahalds með svipuðum hætti og annars staðar þar sem hundahald er leyft. Er hinar nýju reglur um hunda- hald voru afgreiddar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar sátu tveir vara- fulltrúar fundinn og greiddu báðir atkvæði með breytingunni. Heil- brigðisráð Hafnarfjarðar og lög- regluyfirvöld á staðnum telja að mjög óeðlilega hafi verið staðið að máli þessu, þar sem ekki hafi verið leitað eftir faglegri umsögn þeirra aðila, sem ætlað er að sjá um framkvæmd málsins. I samtali við Mbl. sagði Sigurður Þórðarson, formaður Heilbrigðisráðs Hafnar- fjarðar, að vitað væri að hefði bæjarstjórnarfundurinn, sem samþykkti að leyfa hundahald í bænum, verið setinn aðalfull- trúum eingöngu hefði málið ekki náð fram að ganga. Vegna þeirrar óeðlilegu afgreiðslu, sem málið hefði fengið í bæjarstjórn sagði Sigurður að Heilbrigðisráð hefði talið sér skylt að taka málið til umfjöllunar og á fundi sem hald- inn var í Heilbrigðisráði Hafnar- fjarðar á mánudag voru samþykkt harðorð mótmæli vegna sam- þykktar bæjarstjórnar um rýmk- un hundahalds í bænum. Sjá nánar á blaðsíðu 18. „Við hofum haft fréttir af því að 112 manns hafi verið sagt upp hjá Hraðfrystihús- inu Ileimi í Keflavík. og einnig hofum við haft af því spurnir að nær öllum starfs- mönnum Skipasmíðastöðvar- innar í Njarðvík. 10 til 20 mönnum, hafi verið sagt upp, svo útlitið er ekki gott,“ sagði Karl Steinar Guðnason for- maður Verkalýðs- og sjó- mannafélags Suðurnesja í samtali við Morgunblaðið í gær er hann var inntur frétta af atvinnuástandi þar syðra. Karl Steinar sagði einnig að áður hefði tæplega 100 manns verið sagt upp störfum hjá Hraðfrystihúsi Ólafs Lárussonar, og væri ekki talið að þar yrði opnað á ný. Þá sagði Karl Steinar að kunnugt væri að Hraðfrystihús Keflavíkur væri komið á heljar- þröm og ætti erfitt með að gera út togara sína vegna fjármagnsleys- is. Að sögn Karls er þó enginn á atvinnuleysisskrá á Suðurnesjum af þessum sökum enn sem komið er, enda væri talsverður hluti þeirra, sem sagt hefði verið upp skólafólk. Karl sagði því þó ekki að leyna að menn óttuðust atvinnuástandið Soyðisfirði. 14. júli. MIKIÐ hefur verið um að vera hér á Seyðisfirði í dag, því hér komu tvö skip með bíla og farþega frá Noregi, Færeyjum. Skotlandi og Danmörku. Ferjan Smyrill, sem kemur hingað viku- lcga, gat ekki annað öllum flutn- ingunum að þessu sinni, og þvi var tekið það ráð að láta syst- urskip Smyrils, Teistin, sigla hingað með Smyrli frá Færeyj- um. Alls komu hingað i dag milli þegar drægi fram á haustið og veturinn, þó enn væri of snemmt að vera með nokkra spádóma. Mikið færi eftir því hvort úr rættist hjá Hraðfrystihúsi Kefla- víkur, og einnig væri vonast til að Skipasmíðastöðin í Njarðvík fengi verkefni við nýsmíði fiskiskipa. 140 til 150 bifreiðar, og um 500 farþegar. þar af 180 manns með Teistin, að því er lljálmar Niels- son afgreiðslumaður hjá Rikis- skip sagði í samtali við Morgun- blaðið. Hann sagði ekki alveg einsdæmi að Smyrill annaði ekki flutningunum. í siðustu viku hefði til dæmis orðið að fá minna skip með til að flytja fragt. — Skipin haida af stað aftur i dag, og mun Teistin taka vörur með til haka. Gott veður er nú á Seyðisfirði, logn og blíða, og hitinn um 16 stig nú klukkan 18. Flestir útlend- inganna sem koma með ferjunum halda þegar af stað á brott úr bænum, en alltaf eru þó nokkrir sem gista hér eina til tvær nætur. Er óhætt að segja að komur Smyrils og nú systurskips hans setji mikinn svip á bæjarlífið hér. — Sveinn Þyrla Gæslunnar: Sótti slasað barn vestur í Flatey LÍTIL stúlka slasaðist illa á hendi síðdegis í ga*r. er hún klemmdist milli skips ok bryKKju við flóa- hátinn Baldur í höfninni í Flatey á Breiðafirði. Var þyrla Gæslunn- ar, TF-Rán, send vestur til að sækja hana. Læknir af Borgarspítalanum fór með þyrlunni til Flateyjar, en á meðan þyrlunnar var beðið gerði þýskur læknir, sem var meðal ferðamanna í eynni, að meiðslum stúlkunnar til bráðabirgða. Flug þyrlunnar í gær gekk vel og tók hvor ferð um það bil 40 mínútur. Lenti þyrla Landhelgis- gæslunnar á þyrlupallinum við Borgarspítalann laust fyrir klukk- an hálfsjö í gærkvöldi, og var þegar gert að meiðslum stúlkunnar. Morgunblaðinu tókst ekki að afla upplýsinga um líðan hennar á Slysavarðstofunni í gærkvöldi. Staða forstjóra Landhelgisgæslunnar: Níu sækja um starfið UMSÓKNARFRESTUR er nú runninn út um forstjórastöðu hjá Landhelgisgæslunni. en Pétur Sigurðsson mun sem kunnugt er láta af störfum hinn 1. september na'stkomandi. Að sögn Baldurs Möllers, ráðuneytisstjóra í dómsmálaráðuneytinu, sóttu 9 menn um stöðuna, sem dómsmálaráðherra veitir. Flestir eru umsækjendur þjóðkunnir menn, en þeir eru eftirtaldir: Guðjón Ármann Eyjólfsson, kennari við Stýrimannaskólann og áður skólastjóri Stýrimannaskólans í Eyjum, Guðjón Petersen, fram- kvæmdastjóri Almannavarnaráðs, Gunnar Bergsteinsson, forstöðu- maður Sjómælinga, Hannes Þ. Haf- stein, framkvæmdastjóri Slysa- varnafélags Islands, Haraldur Henrysson, sakadómari, Helgi Hall- varðsson, skipherra, Jón Magnússon hrl., lögfræðingur Landhelgisgæsl- unnar, Sigurður Gizurarson, sýslu- maður á Húsavík, og Þorsteinn Þorsteinsson, flugvélaverkfræðing- ur, tæknistjóri flugrekstrar Land- helgisgæslunnar. Geir Hallgrímsson um súrálsmálið: Leggjum áherslu á að samningar séu haldnir Stefna sjálfstæðismanna að taka beri upp viðræður um stækkun álversins, aukna orkusölu og hækkun orkuverðs _í DESEMBER I vetur, þegar iðnaðarráðherra gerði opinherar áka-rur á hendur Alusuisse, gagnrýndu talsmenn sjálfstæðismanna málsmeðferð hans. sem fól í sér að dómur var felldur áður en fullnaðarrannsókn hafði farið fram. Við töldum að slík vinnuhrögð va*ru til þess fallin að veikja samningsstöðu okkar,“ sagði Geir Hallgrímsson. formaður Sjálfstæðisflokksins í viðtali við Mbl. í gær. en hann var spurður álits á umfjöllun og meðferð iðnaðarráðherra í svonefndu súrálsmáli ogskýrslu brezka endurskoðunarfyrirtækisins Coopers og Lybrand, en þingflokksformönnum og formönnum stjórnarandstöðuflokkanna voru i gærmorgun afhentar niðurstöður rannsókna fyrirtækisins. Geir sagði einnig: „Gagnrýnin á iðnaðrráðherra fólst og í því að málið væri tekið of seint upp þar sem hann hefði látið meira en tvö ár líða frá því hann settist í stól iðnaðarráðherra án þess að óska eftir athugun á reikningum ísals af hlutlausum endurskoðendum, eins og áskilinn er réttur til í samningi íslenzku ríkisstjórnar- innar við Alusuisse. Þrátt fyrir þessa gagnrýni buð- um við sjálfstæðismenn fram fulla samvinnu til þess að komast að hinu rétta og lögðum áherzlu á — og leggjum auðvitað enn áherzlu á, — að samningar séu haldnir og gengið sé úr skugga um það á fullnægjandi hátt. Þessu tilboði okkar sjálfstæð- ismanna um samvinnu við stjórn- völd í málinu hefur í engu verið sinnt og ekkert samráð verið haft við okkur varðandi rannsókn og meðferð málsins, fyrr en í morg- un að okkur voru afhentar þykk- ar skýrslur sem trúnaðarmál. Við getum því hvorki né megum tjá okkur um efnishlið málsins á þessu stigi. Það hefur verið stefna sjálf- stæðismanna að taka bæri upp viðræður við Alusuisse um stækkun álversins í Straumsvík, aukna orkusölu til þess og hækk- un orkuverðs með tilvísun til hækkaðs orkuverðs í heiminum. í þeim viðræðum er og sjálfsagt að fá fram þær lagfæringar í samn- ingunum við Alusuisse sem reynslan sýnir að sanngjarnar séu og eðlilegar." Geir Hallgrímsson sagði að lokum: „Ég er í engum vafa um að vegna þess hvernig gengið var frá samningunum við Alusuisse í upphafi geta aðilar verið fullviss- ir um að ná fram rétti sínum, ef þeir telja á sig hallað." 500 útlendingar komu til Seyðisf jarðar í gær

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.