Morgunblaðið - 15.07.1981, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1981
11
RAM
upplýsingaskyldan við blóð-
gjafa. Blóðgjafar þurfa að vita
hvernig blóð þeirra er nýtt,
hvaða rannsóknir fara fram,
hafa hugmyndir um blóð-
flokkategundir og svo fram-
vegis." Ólafur nefndi sem
dæmi að hver einasti blóðgjafi
fengi ákveðna þjónustu og eft-
irlit um leið og hann gæfi blóð.
Blóðþrýstingur og blóðpró-
senta væru mæld í hvert
skipti. Þá færu fram rann-
sóknir á blóðinu, athugað væri
um lifrarbólgubakteríur, sem
væru þó óalgengar hérlendis,
sýfilisprófun færi einnig fram,
svo eitthvað væri nefnt.
Tilgangi Blóðgjafafélagsins
er fyrirhugað að ná með því að
efla samvinnu og fræðslu að-
ila, sem látið hafa til sín taka í
blóðsöfnunarstarfi, bæði
skipulags- og hjálparstörfum.
Sagði Ólafur, að hér væri
sérstaklega átt við Rauða
kross íslands, einnig björgun-
arsveitir, slysavarnafélags-
deildir, starfsmannafélög,
kvenfélög, skátafélög og fleiri.
Þá sagði Ólafur að undir-
búningur að stofnun félagsins
hefði staðið yfir í nokkurn
tíma. Hann hefði fengið leyfi
til stofnunarinnar hjá opinber-
um yfirvöldum í marzmánuði
og hefðu blóðgjafar og starfs-
menn sýnt félagsstofnuninni
mikinn áhuga. Hann sagði
einnig að ætlunin væri að hafa
nána samvinnu við önnur ís-
lenzk stoðfélög í heilbrigðis-
kerfinu, til að mynda hvað
varðar útgáfumál og fleira.
Félög sem þetta eru starfandi
víða erlendis og sagði Ólafur
að hugmynd væri einnig um að
starfa í tengslum við þau og
hefðu félagar þeirra lýst áhuga
á slíku samstarfi.
„Fjölmargir hafa nú þegar
sjnt máli þessu mikinn áhuga.
Eg treysti á liðsinni blóðgjaf-
anna okkar fjölmörgu. Eins
verður félagið opið öllu
áhugafólki um heilbrigðismál.
Með fjölmennum stofnfundi og
stoð almennings getum við
gert félagið gildandi til bættr-
ar heilbrigðisþjónustu og
rannsóknastarfsemi á þessu
sviði," sagði Ólafur Jensson,
forstöðumaður Blóðbankans,
að lokum.
F.P.
Byggt við sjúkrahús
ið í Stykkishólmi
Stykkishólmi. 13. júli.
EINS og sjá má af þessari mynd
scm tckin er af byggingu við
sjúkrahúsið i Stykkishólmi. hefir
framkvicmdum þar miðað vei
áfram.
Nú er þegar búið að grafa það sem
þarf og verður nú reynt að koma
húsinu undir þak í sumar og haust
verði þess nokkur kostur. Þetta er
mikil viðbygging, og á hún að þjóna
læknishéraðinu og heilsugæslunni
hér við Breiðafjörð. Er ekki vafi á
að greiðara verður að fá lækna til
starfa þegar öll aðstaða hefir verið
bætt eins og hugmyndin er með
þessari viðbyggingu. Yfirlæknir
sjúkrahússins er nú Óli Kr. Guð-
mundsson, skurðlæknir, ágætur og
hefur hann þegar vakið mikið traust
þeirra sem til hans hafa leitað enda
farsæll í starfi. Fréttaritari.
Frá sýningu tillagna að skipulagi Sogamýrar i Réttarholtsskóla.
Teikning af skipulagi Sogamýrar eins og gert er ráð fyrir að það verði
samkvæmt verðlaunatillogu þeirra Ormars Þórs Guðmundssonar og
Örnólfs Ilall. Samstarfsmaður þeirra var Sigurður Einarsson.
Úrslit í samkeppni um skipulag Sogamýrar
Nýlega var tilkynnt um úrslit í
hugmyndasamkeppni um skipu
lag í Sogamýri, sem Reykjavíkur-
borg efndi til og hlaut tiilaga
númer 5, þeirra Ormars Þórs
Guðmundssonar og Örnólfs Hall,
fyrstu verðlaun. að upphicð 36
þúsund krónur.
Hrafnkell Thorlacius, arkitekt,
formaður dómnefndarinnar, sagði
í ræðu þegar tillögurnar voru
sýndar almenningi í Réttar-
holtsskóla, að markmiðið með
keppninni hefði verið að kanna
byggingarmöguleika svæðisins, en
í aðalskipulagi frá 1965 er svæðið
ætlað sem útivistarsvæði. Alls
bárust 20 tillögur. Var í þeim
öllum gert ráð fyrir einhverri
nýrri byggð á svæðinu, og hjá
langflestum þeirra eru íbúðir
meginuppistaða þeirrar byggðar.
Fimm manna dómnefnd fjaílaði
um tillögurnar.
Nefndin mat niðurstöður keppn-
innar á þann veg að rök séu færð
fyrir því að nokkur byggð komi á
samkeppnissvæðið auk þess sem
það verði nýtt til útivistar.
I umsögn dómnefndar segir m.a.
að tillaga númer 5 falli mjög vel
að núverandi byggð hvað form og
mælikvarða varðar. Höfundar
gera ráðstafanir til hávaðavarna
við aðalumferðaræðar, auk þess
sem byggð er í talsverðri fjarlægð
frá þeim. „Hugmyndir höfunda
um stíga eru skemmtilegar, í
fjölbreyttu umhverfi og tengist
svæðið vel útivistarsvæðum í
Laugardal og Elliðaám."
Önnur til þriðju verðlaun hlaut
annarsvegar tillaga númer 20,
&1fökull hff.
Ármúla 36 Sími: 84366
eftir þá Finn Björgvinsson og
Hilmar Þór Björnsson og hinsveg-
ar tillaga númer 4, eftir Guðna
Pálsson og Halldór Guðmundsson.
I dómsúrskurði um tillögu 4 segir
m.a. að meginkostur þessarar
lausnar felist í góðri rýmismynd-
un jafnt í byggð sem á útivistar-
svæði. I umsögn um tillögu 4 segir
að meginkostir tillögunnar séu
sterkt heildaryfirbragð byggðar
og rýmismyndun innan hennar.
Hvor aðili hlaut 20 þúsund krónur
í verðlaun. Auk þessa voru nokkr-
ar tillögur keyptar af Reykjavík-
urborg.
í dómnefnd sátu þeir Haukur
Morthens, söngvari, Hilmar
Ólafsson, arkitekt, og Sigurður
Harðarson, arkitekt, skv. tilnefn-
ingu Reykjavíkurborgar og til-
nefndir af AI þeir Sturla Sig-
hvatsson, arkitekt, og Hrafnkell
Thorlacius, arkitekt, sem var
formaður nefndarinnar. Trúnað-
armaður var Ólafur Jensson,
frkvstj., og ritari nefndarinnar
Yngvi Þór Loftsson, landfræðing-
ur.
Líkön og teikningar af tillögun-
um verða til sýnis í Réttarhoits-
skóla næstu daga. Verður sýningin
opin frá kl. 4—8 virka daga og
2—6 um helgar.
Viö höfum fest kaup á örfáum DODGE RAMCHARGER jeppum 1979 á ótrúlega hagstæðu
jeppaveröi. Þetta eru glæsileg torfærutröll. Bílarnir eru deluxe útgáfur: tvílitir, með
sjálfskiptingu, vökvastýri, aflhemlum, læstu mismunadrifi, 8 cyl. vél og ýmsum öðrum
eftirsóttum aukabúnaði, sem enginn ætti án að vera.
Þeir sem þegar eru búnir að leggja inn gott orð hjá okkur eru beðnir að staðfesta pöntun sína
strax og hinir sem sváfu á verðinum eru beönir aö flýta sér, því á morgun getur það orðið of
seint.
DODGE RAMCHARGER á aldeilis ótrúlegu verði. Það verður erfitt að endurtaka þetta
jeppatilboð ársins — nú er annað hvort að duga eða drepast.
DODGE RAMCHARGER er bíllinn sem þolir, ef þú þorir.
Fyrstu tvær sendingarnar uppseldar.
Nokkrir bílar lausir úr þriöju og síöustu.