Morgunblaðið - 15.07.1981, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 15.07.1981, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ1981 13 Með hvaða gler- augum lest þú? eftir dr. Hinrik Frehen biskup Hinn 28. júní birtist í Morgun- blaðinu grein um Skálholt eftir Halldór Laxness. Hún var ekki fyrr komin fyrir almenningssjónir en blaðakona frá þessu sama blaði allt að því „réðst á mig“ og fór þess á leit að ég segði skoðun mína um greinina. Ég varð að játa að ég hefði aðeins lesið hana lauslega og spurði því, hvort ég fengi ekki ráðrúm í fáeina klukkutíma til að lesa hana betur og hugleiða efni hennar, svo að ég gæti því betur fjallað um hana. Því var þó ekki að heilsa, þar sem prenta átti athugasemd mína tafarlaust, og ég var beðinn að svara fyrirspurn- inni á stund og stað í símann. Ég svaraði þess vegna með fáeinum orðum, sem birtust dag- inn eftir í blaðinu, ásamt athuga- semdum Sigurbjörns biskups og Friðjóns Þórðarsonar, dóms- og kirkjumálaráðherra. Ég hef ekki þennan stutta inngang að máli mínu til þess að bera mig upp undan framkomu blaðakonunnar því að allir vita að slíkir starfshættir fylgja nú einu sinni hlutverki blaðamannsins, heldur til þess að benda á að sjálfur lít ég ekki á þessa túlkun hugsana minna sem algera og endanlega niðurstöðu mína varð- andi þetta mál. Umfram allt hefði ég viljað að niðurlag „athuga- semdar" minnar, sem átti að lýsa samkirkjulegri afstöðu minni, hefði verið orðað í viðtengingar- hætti, eins og hugsunin bak við hana var, eða eitthvað á þessa leið: „Ef um eitthvert vandamál væri að ræða (varðandi Skálholt), þá væri það auðleystara nú, á þessum tímum samkirkjulegs vilja," og þegar ég nefni „vandamál" á ég frekar við „viðfangsefni", að minnsta kosti eitthvað einfaldara og annars háttar en ritdeilur, ásakanir og getsakir. Menn munu því skilja að ég varð undrun lostinn, þegar ég sá í Morgunblaðinu 9. júlí hvað séra Heimir Steinsson hafði lesið í svari mínu, eða réttar sagt „út úr“ því. Hann sér í því „framhald" af því sem Halldór Laxness hafði sagt í grein sinni, „kröfu til Skálholts fyrir hönd rómversk- kaþólsku kirkjunnar". Ennfremur les hann út úr orðum mínum þá niðurstöðu að „hann (þ.e.a.s. und- irritaður) og lagsmenn hans byggju yfir þeim draumi að heimta Skálholt í eigin hendur". „Þessi hugsmíð", segir séra Heim- ir, „kemur nú á loft...“ Dr. Hinrik Frehen „Það sem séra Heimir les út úr orðum mín- um, geta menn því aðeins gert að þeir setji upp skökk gler- augu.“ Þegar ég las þetta og bar það saman við viðtalið í Morgunblað- inu, fór ég að halda að nú væru augun farin að bregðast mér. Ósjálfrátt flaug mér í hug hin kunna túlkunaraðferð guðleys- ingjans, sem vildi sýna fram á með tilvitnun í Biblíuna að hann hefði rétt fyrir sér. Þar stendur nefnilega svart á hvítu að enginn Guð sé til (sjá Sálm. 14,1 og 53,1). Þar þarf ekki annað en að slíta eina setningu úr samhengi við aðra. (Eins og gert var þegar yfirskriftin var sett á viðtalið við mig: „Ekki ríkiskirkjan sem ætti að vera þar“ sem er vitanlega ekki sett þar samkvæmt mínum vilja.) Það, sem séra Heimir les út úr orðum mínum, geta menn því aðeins gert að þeir setji upp skökk gleraugu. Hver sá, sem les þessar blaðaklausur á hlutlægan hátt, þ.e. gleraugnalaust, án fyrirfram- gerðra hleypidóma, hlýtur að við- urkenna með mér að nú hafi séra Nýr áætlunarbíll Stykkishólmi, 13. júli. NÝLEGA eignuðust hópferðir Helga Péturssonar nýjan áætlun- arbil. Hann er 44 manna, árgerð 1981, og mjög þægilegur og vel útbúinn til áætlunarferða. Undir- vagninn var byggður i Þýska- landi en húsið i Belgiu. Kom hann til landsins i tvennu lagi og settu eigendur hann sjálfir sam- an í verkstæðisbyggingu sinni sem þeir hafa komið sér upp i Kópavogi. Bíllinn kom í fyrsta sinn í Stykkishólm í dag í áætlunarferð og var Haukur Helgason með hann. Notaði fréttaritari Mbl. sér þá að taka af honum meðfylgjandi mynd. Hópferðir Helga Péturs- sonar veita Snæfellingum mikla og dýrmæta þjónustu og ekki versnar hún við tilkomu þessa ágæta farartækis. Fréttarttarl. Heimir tekið við hlutverki Don Quixotes og sé farinn að berjast við vindmyllur. En ég vil hér með lægja hafrótið í huga hans með því að taka þetta fram: Ég hef þegið hið vinsamlega boð Sigur- bjarnar biskups að koma í Skál- holt sunnudaginn 26. • júlí til þess að taka þátt í Skálholtshátiðinni með þeim kristnum mönnum, sem hana sækja, og þá kem ég ekki eins og nýr Jósúa, til þess að ganga kringum múrana með bás- únuþyt, þangað til þeir falla. Séra Heimir mun því geta haldið áfram blessunarríku starfi sínu, eftir þá heimsókn sem áður, og njóta til þess vinsamlegrar afstöðu minnar og virðingar fyrir hinu ágæta starfi hans. Allt það, sem eftir fylgir í grein séra Heimis og byggt er á framan- greindri staðhæfingu hans, er sett fram sem nánari skilgreining á svonefndri kröfu minni til Skál- holts, kröfu sem ég geri auk þess, samkvæmt orðum séra Heimis, „i umboði voldugustu kirkjudeildar veraldar". (Og sé um draum að ræða, er það þá ekki martraðar- draumur?) En þar sem hann er að berjast við vindmyllur, þarf ég ekki að beita hér samskonar brandi og hann bregður í hita stríðsins. En hafi flögrað að ein- hverjum, að eitthvert samband sé á milli mín og Halldórs Laxness, get ég hér með fullvissað þá um að Halldór skrifaði grein sína ekki samkvæmt ósk frá mér, enda vissi ég ekkert um að hennar væri von. Ég hlýt aðeins að bæta því við þessi orð mín, að mynd hins vel menntaða og vísindalega sinnaða guðfræðings, séra Heimis, sem ég hef fram að þessu talið til vina minna, og ég vona að ég megi telja hann það áfram, hefur orðið fyrir þó nokkru hnjaski. Þegar ég les enn einu sinni grein hans, get ég ekki annað gert en setja í hana spurningarmerki hér og þar við staðhæfingar hans. En allt það er óviðkomandi ummælum mínum. Ég vil aðeins endurtaka það, að frá mínum bæjardyrum séð hefur „Skálholts- málið“ tvær hliðar (eins og mörg önnur mál af sama tagi): Önnur hliðin er söguleg og hún er með allt öðrum hætti en hin réttar- farslega og réttarsögulega ... En ég ætla að spara mér og lesendum þann tíma, sem færi í að fjalla til hlítar um „röksemdir" séra Heim- is. Og svo ég bregði að lokum fyrir mig latnesku orðtæki (sem þó ber ekki að líta á sem „Punctum saliens"), þá vildi ég í allri vin- semd beina því til séra Heimis: „Si tacuisses, philosophus mansisses" — ef þú hefðir þagað, hefðir þú (að minni hyggju) haldið áfram að vera heimspekingur. Reykjavík, á hátíð heilags Benedikts, en líf hans og starf var hið mikilvægasta fyrir trúar- og menningarlíf íslendinga. Ilinrik biskup Frehen. Skip Sambandsins munu ferma til íslands á næstunni sem hér segir: ROTTERDAM: Arnarfell ....... 29/7 Arnarfell ....... 12/8 Arnarfell ....... 26/8 ANTWERPEN: Arnarfell ....... 17/7 Arnarfell ....... 30/7 Arnarfell ....... 13/8 Arnarfell ....... 27/8 GOOLE: Arnarfell ....... 27/7 Arnarfell ....... 10/8 Arnarfell ....... 24/8 LARVÍK: Helgafell ....... 30/7 Helgafell ....... 10/8 Helgafell ....... 24/8 GAUTABORG: Helgafell ....... 29/7 Helgafell ....... 11/8 Helgafell ....... 25/8 KAUPMANNAHÖFN: Helgafell ....... 28/7 Helgafell ....... 12/8 Helgafell .'..... 26/8 SVENDBORG: Hvassafell ...... 17/7 Helgafell ....... 27/7 Dísarfell ....... 29/7 Helgafell ....... 13/8 Helgafell ....... 27/8 HELSINKI: Dísarfell ....... 24/7 Dísarfell ....... 19/8 GLOUCESTER, MASS: Jökulfell ....... 31/7 HALIFAX, KANADA: Jökulfell .......... 3/8 6 SKIPADEILD SAMBANDSINS Sambandshúsinu Pósth. 180 121 Reykjavík Sími 28200 Telex 2101 i M Al lil.YSIV.ASIMIW ER: »*•« ^ ^=^=«=^12 Jtlorounblnbiö Þrýstimælar Allar stæröir og gerðir Jfe_LL ^Ö(U)P(l^öQJl®Q=0(r <§t Vesturgötu 16, sími 13280 Léttar, liprar, ödýrar 512 D. Stórt og greinilegt takkaborð. 12 stafir, innog út. 4ra takka minni. Vinnsluteljari. Strimill og Ijósaborð. Svart/rautt litaband. 112 D. Strimill og Ijósaborð. Lítil, handhæg. 4ra takka minni. Sjálfvirk prósenta. Vinnsluteljari. 12 stafir, inn og út. I....Jl (OMIC) 112 D SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. Hverfisgötu 33 Simi 20560 (OMIC) 512 D

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.