Morgunblaðið - 15.07.1981, Síða 15

Morgunblaðið - 15.07.1981, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1981 15 Andófs- kona leidd fyrir rétt Moskvu. 14. júlfi. AP. SOVÉZKA andófskonan Irina Grivnina var í da>f leidd fyrir rétt í Moskvu, en hún hefur verið ásokuð um að dreifa óhróðri um Sovétríkin. Grivninu var stungið í fangelsi i september í fyrra, er látið var til skarar skríða gegn starfshópi er fjallaði um meinta misnotkun geðlækninga í fangelsum. Fimm- menningarnir er störfuðu í starfs- hópnum eru allir á bak við lás og slá. Grivnina á átta ára gamla dóttur. Andófskonan á yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsis- dóm eða eins árs vist í þrælkunar- búðum. Misheppn- að hjólrán Stokkhúlmi. 14. júll. AP. SEXTÁN ára stúlka neyddi fertugan hjólreiðamann til að nema staðar og krafðist þess að hann gæfi sér hjólhest sinn i Kristianstad i dag, að sögn lögreglu. Þegar hjólreiðamaðurinn neitaði að verða við kröfu stúlk- unnar, hótaði hún honum með stórum brauðhníf og hafði af honum gullfesti er hann bar um hálsinn. Stúlkan forðaði sér í burtu, en var síðan handsömuð. Veður víða um heim Akureyri 11 alskýjaó Amsterdam 19 heióskírt Aþena 31 heióskírt Barcelona 28 léttskýjað Berlín 21 skýjaö Brussel 21 skýjaó Chicago 31 heíóskírt Denpasar vantar Dublin 19 heiðskírt Feneyjar *26 léttskýjaó Frankfurt 21 rigning Færeyjar 13 skýjaö Genf 22 skýjaó Helsinki 21 skýjaó Hong Kong 31 heiðskírt Jerúsalem 20 heiöskírt Jóhannesarborg 20 heiðskírt Kairó 35 heióskírt Kaupmannahöfn 19 skýjað Las Palmas 24 léttskýjaó Lissabon 39 heióskírt London 21 heiöskírt Los Angeles 33 mistur Madrid 34 heiöskírt Malaga 28 heióskírt Mallorka 28 léttskýjað Mexicoborg 21 heióskírt Miami 30 skýjaö Moskva 28 heiðskírt Nýja Dehlí 34 rigníng New York 34 heiðskírt Osló 18 skýjaö París 21 skýjaó Perth vantar Reykjavík 12 úrkoma Ríó de Janeiro 30 skýjaó Rómaborg 30 skýjað San Francisco 24 heióskírt Stokkhólmur 23 skýjað Sydney 16 úrkoma Tel Aviv 30 heióskírt Tókýó 30 rigning Vancouver 16 rigning Vínarborg 20 skýjaö Lögregla efld vegna óeirða 1/ondon. 14. júlfi. AP. MARGRÉT Tatcher forsætisráð- herra tilkynnti í dag. að hrezku lögreglunni hefði verið veitt leyfi til að beita gúmmíkúlum. vatns- byssum búnum háþrýstibúnaði og táragasi til að bæla niður óeirðir í Englandi, Wales og Skotlandi. Hingað til hefur hrezka lögreglan ekki haft leyfi til að grípa til þessara „vopna“. Sex lögreglustjórar úr enskum borgum halda á morgum til Norður-írlands, þar sem þeir fá leiðbeiningar um hvernig fást skuli við uppreisnarseggi. Thatcher tilkynnti í þinginu, að mjög aökallandi væri að endur- skoða lög um meðferð óeirða- seggja og bönn við uppþotum. Varð Tatcher fyrir mikilli gagn- rýni þingmanna Verkamanna- flokksins, er sögðu óeirðirnar að undanförnu vera beina afleiðingu af stefnu stjórnar hennar. Til nýrra óeirða kom í dag í sex enskum borgum, en þær voru minniháttar, að því er segir í fréttaskeytum. Sterlingspundið lækkaði í verði á gjaldeyrismörkuðum í dag, og er rætur lækkunarinnar að rekja til óeirðanna á Bretlandseyjum síð- ustu 11 daga. Dollarinn hækkaði alls staðar í verði gagnvart helztu gjaldmiðlum. Þýzkir skipstjórar dæmdir í Bretlandi Stornoway. 14. júlfi. AP. TVEIR vestur-þýzkir skipstjórar voru i dag dæmdir fyrir meintar ólöglegar síldveiðar við Suðureyj- ar og var afli þeirra gerður upptækur. Skipstjórarnir hlutu hins vegar enga sekt. Togararnir tveir voru teknir við Suðureyjar um helgina, og færðir til hafnar. Skipstjórarnir, Man- fries Mehlich á Hanover og Wolf- gang Jewiese á Kiel, kváðust saklausir og báru því við, að Efnahagsbandalag Evrópu hefði aldrei viðurkennt fiskveiðilögsögu Breta. Þeir kváðust einnig hafa leyfi stjórnarinnar í Bonn til veiða á umræddu svæði. Alls var afli togaranna 102 smálestir af síld, og er aflaverð- mætið yfir 60.000 sterlingspund. Togararnir komast ekki að bryggju í Stornoway, sökum stærðar sinnar, og standa yfir viðræður um með hvaða hætti aflaupptakan skuli fara fram. Starfsmenn KGB reknir f rá Malaysíu Kuala I.umpur. Malaysíu. 13. júll. AP. ÞRIR starfsmenn sovézku utan- ríkisþjónustunnar voru reknir frá Malaysíu á mánudag fyrir njósnir. Helzti aðstoðarmaður forsætis- ráðherra Malaysíu var handtekinn um leið. Ghazali Shafie, innanrík- isráðherra, sagði, að „KGB-full- trúunum“ hefði tekizt að tala hann yfir á sitt band. Iðunn gefur út á annað hundrað bókatitla í haust NÝ BÓK eftir Þórarin Eldjárn er væntanleg frá Bókaútgáfunni Ið- unni í haust. að þvi er Valdimar Jóhannsson. forstjóri Iðunnar sagði í samtali við blaðamann Morgunblaðsins. Valdimar sagði að hér væri um að ræða safn smásagna eftir Þórarin. en áður er hann einkum kunnur fyrir ljóð sín og leikrit. leikrit meðal ann- ars í samvinnu við þá Davíð Oddsson og Ilrafn Gunnlaugsson undir höfundanafninu Þórður Breiðfjörð. Valdimar sagði að mikill fjöldi annarra bóka væri væntanlegur frá Iðunni í haust, og alls myndu titlarnir verða á annað hundrað. Þar sagði Valdimar að kenndi margvíslegra grasa. Nefna mætti myndarlega matreiðslubók, þýdda, viðtalsbók eftir Ingu Huld Hákonardóttur, þar sem hún ræddi við verkakonur, og þriðja bindi verksins Mánasilfur er væntanlegt. Þá koma út sagnir og sögur frá Jökuldal, Af Jökuldals- mönnum og fleira fólki, ný ungl- ingabók eftir Ármann Kr. Ein- arsson, bók eftir Magneu frá Kleifum og barnabók eftir Guð- rúnu Helgadóttur. Ýmislegt fleira sagði Valdimar vera í farvatninu, en þó ekki allt frágengið enn. Til dæmis væri óvíst hvort í haust kæmi út þriðja bindið af sögunni um Andra eftir Pétur Gunnarsson, og einnig væri ekki víst hvort ný skáldsaga eftir Magneu J. Matthíasdóttur kæmi út i haust. Ákveðið er á hinn bóginn að út komi enn ein bókin í bókaflokkn- um um „Aldirnar". Hér er á ferðinni Öldin sextánda, síðara bindið, en það fyrra kom út í fyrra. Höfundur er Jón Helgason, ritstjóri, sem er nýlátinn. Hafði hann gengið frá handriti sínu áður en hann lést fyrir fáum dögum. Valdimar sagðist ekki búast við að fleiri bindi kæmu út af Öldunum, ekki aftur í tímann, að minnsta kosti. Nú næðu bækurnar saman frá því um 1500 til vorra daga, og yrði varla farið lengra aftur í tímann. Enn sagði Valdimar að nefna mætti ljóðabók eftir Stefán Hörð Grímsson væri væntanleg frá Ið- unni í haust. Stefán Hörður er fyrir löngu þjóðkunnur fyrir ljóð sín, og ekki á hverju ári sem hann sendir frá sér nýja ljóðabók. Fyrir fjölbýlishús, þvottahús, hótel, sjúkrahús o.fl. Nýjar geröir þvottavéla frá 7 kg til 32 kg. Þurrkarar og þeytivindur. Þvottavél W-74, 7 kg. & Þeytivinda C-84, 8 kg. Þurrkari TT-310, 8—14 kg. Síðasta sending á mjög hagstæðu verði Leitið upplýsinga

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.