Morgunblaðið - 15.07.1981, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLI1981
Islenzka esperantosambandið:
Alþjóðleg menningar-
vika í Stykkishólmi
DAGANA 18.—24. júní nk.
verður efnt til alþjóðlegrar
menninKarviku í Stykkishólmi
á venum íslenska esperant<h
samhandsins. Verður þar fjall-
að um ýmis menninKarmálefni
<>K náttúra landsins skoðuð,
auk þess sem þátttakendur
munu þar æfa sig i notkun
alþjóðamálsins esperanto.
Munu umra>ður einKóngu fara
fram á þvi máli. enda verða
nokkrir erlendir esperantistar
meðal þátttakenda.
Margeir í
4.-11. sæti
1. ÍTT þekktur sænskur titillaus
skákmaóur kom mjoif á óvart á
alþjoólcKu móti i Hamborx. en
mótinu lauk um síóustu helKÍ.
Illaut Svíinn 9 vinninxa af 11
moKuleKum ok varó einn i efsta
sætinu. Schneider. alþjóðleKur
meistari. einnÍK frá SvíþjM. varó i
2. sæti með 8V2 vinninK ok stór-
mristarinn Radulov frá BúlKariu
varð í 3. sæti með 8 vinninKa.
Margeir Pétursson var meðal
þátttakenda á mótinu og varð hann í
4.—11. sæti með Vk vinning. Jafnir
honum voru meðal annars Kirov,
stórmeistari frá Búlgaríu, og Aake-
son, alþjóðlegur meistari frá Sví-
þjóð. Fjórir stórmeistarar tóku þátt
í móti þessu.
Fyrirfram var búist við, að Short
frá Englandi yrði í einu af efstu
sætunum og sannarlega var útlit
fyrir það eftir 5 umferðir, en Short
vann 5 fyrstu skákir sínar. Þá gerði
hann jafntefli og tapaði síðan þrem-
ur skákum í röð, þannig að mögu-
leikar hans voru orðnir næsta litlir.
Samtals fékk Short 6'k vinning á
móti þessu.
Ýmsit áhugaverðir fyrir-
lestrar verða á dagskrá. Má þar
nefna fyrirlestra um jarðfræði
og landafræði Snæfellsness og
um sögu þess og sögustaði, svo
og fyrirlestra um bókmennta-
leg efni. Einnig verður rætt um
fyrirhugaða útgáfu sýnisbóka
íslenskra bókmennta á esper-
anto. Þá verða fluttir fyrir-
lestrar um kínverska og jap-
anska menningu og esperanto-
hreyfinguna í þeim löndum.
Meðal fyrirlesara verða Hall-
grímur Sæmundsson yfirkenn-
ari, dr. Eysteinn Sigurðsson,
Árni Böðvarsson cand. mag., sr.
Hugh Martin, Ólafur S. Magn-
ússon kennari og Ragnar Bald-
ursson, sem nýlokið hefur námi
í Kína og Japan.
Einnig verður haldinn aðal-
fundur Islenska esperantosam-
bandsins á menningarvikunni,
þann 20. júlí.
(FrpttatilkynninK frá Islrnska rsprrantn —
samhandinu)
INTERNACIA
KULTURA
SEMAJNO
Ljósmynd Mbl. Guðjón
Nú er unnið að undirbúningi og jarðvegsskiptum vegna fyrirhugaðrar byggingar nýrra búningsklefa
ok baða við sundlaugina i Laugardal. Jarðvegsskiptum er að ljúka og uppsteypa hússins verður boðin
út innan skamms. Með nýju bað- og búningsklefunum mun öll aðstaða batna verulega og þar sem böð
<>k búningsklefar eru nú verða sett upp gufuböð <>k aðstaða til heilsuræktar. Þá verður i nýju
viðbygKÍngunni aðstaða til veitingasölu með smáu sniði og má því búast við að vel fari um þær
hundruðir þúsunda sundlaugarKesta, sem árlega lcKKÍa leið sina i LauKardalinn, þegar breytingunum
verður lokið.
Augnsýn,
ekki Augsýn
Einn stafur féll niður í nafn
nýrrar gleraugnaverzlunar
Hafnarfirði, sem skýrt var frá
blaðinu í gær. Verzlunin heitir
Augnsýn en ekki Augsýn.
Hækkanir ákveðnar á
sviði almannatrygginga
Stykkishólmur, Islando,
18-24 Julio 1981
AÐ UNDANFÖRNU hafa ýmsar
rcKluKerðir verið gefnar út í
heilhrigðis- ok tryKKÍngamála-
ráðuneytinu á sviði almanna-
tryKKÍnKa. segir í frétt frá heil-
brÍKðis- ok tryKKÍngamálaráðu-
neytinu.
1. Ákveðið hefur verið að
hækka svokallað „frítekjumark",
en innan þess marks eru þær
tekjur sem lífeyrisþegar mega
hafa án þess að tekjutrygging
skerðist. Hækkunin var um 56%
og giidir hið nýja „frítekjumark"
frá 1. júlí sl. Upphæðin er kr.
10.800 á ári hjá einstaklingi en
15.200 kr. hjá hjónum.
2. Þá hefur verið gefin út reglu-
gerð um hækkun á svokölluðum
bensínstyrk, sem veittur er þeim
öryrkjum sem hreyfihamlaðir eru
svo mjög að þeir komast ekki
ferða sinna án bifreiðar. Hækkun-
in nam 50% og miðast við 1. júlí
sl. Verður bensínstyrkur þessi nú
1.500 kr. á ári. Alls nutu styrksins
um 130 manns á fyrrihluta þessa
árs.
3. Ákveðið hefur verið að
greiðslur samlagsmanna fyrir lyf
verði frá 1. júli sl. kr. 16.00 fyrir
innlend lyf, en kr. 42.00 fyrir
erlend lyf. Þá greiða aldraðir og
öryrkjar kr. 8.00 og kr. 21.00 fyrir
hverja afgreiðslu lyfja. Greiðslur
samlagsmanna fyrir sérfræði-
læknishjálp, rannsóknir og röntg-
engreiningu verða 42.00 kr. en elli-
og örorkulífeyrisþegar greiða
Heilbrigðisráð Hafnarfjarðar:
Frábiður sér að taka þátt í því marklausa starfi
sem felst í samþykkt bæjarstjórnar um hundahald
Á FUNDI í heilbrigðisráði
Hafnarfjarðar síðastliðinn
mánudag var samþykkt ein-
róma eftirfarandi ályktun varð-
andi samþykkt bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar um rýmkun
hundahalds í hænum:
Eftirfarandi var samþykkt á
fundi heilbrigðisráðs Hafnar-
fjarðar á fundi 13.7.1981, varð-
andi breyttar reglur um hunda-
hald, sem bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar hefur samþykkt, á fundi
sínum 30.6.1981.
Með vísan til samþykktar bæj-
arstjórnar Hafnarfjarðar frá
30.6.1981 er varðar hundahald í
Hafnarfirði vill heilbrigðisráð
taka eftirfarandi fram:
I fyrsta lagi harmar heilbrigð-
isráð samþykkt bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar um rýmkun
hundahalds í bænum, en ákvörð-
un þessi gengur þvert á sam-
þykkt heilbrigðisyfirvalda á
liðnum árum er mál þetta varðar
og því starfi sem heilbrigðisyf-
irvöld hafa haft í frammi til að
settum reglum sé fylgt.
Heilbrigðisráð telur að þau
ákvæði sem bæjarstjórn setur
sem skilyrði fyrir hundahaldi
séu marklaus í framkvæmd og
vísar til reynslu Garðabæjar í
því sambandi. Komið hefur í ljós
að mikið skortir á að settum
reglum sé framfylgt af eigendum
hunda þar í bæ og sá kostnaðar-
auki sem bæjarfélagið hefur
haft vegna þess, hefur lítið
skilað sér í reynd, hvað varðar
bætt ástand.
í öðru lagi telur heilbrigðis-
ráð, þó svo ekki hafi tekist að
framfylgja að öllu leyti, settum
reglum um hundahald í bæhum,
að þau ákvæði sem hafa verið í
gildi hafi í reynd spornað gegn
fjölgun hunda. Ljóst er að fjöl-
mörg vandamál hafa skapast í
skjóli ófullkominna reglna og
vegna virðingarleysis einstakra
aðila við settum reglum.
Með þeirri samþykkt sem bæj-
arstjórn hefur nú gert muni
hlutfallsleg fjölgun hunda í
bænum verða umtalsverð og
stórauka þann óþrifnað og slysa-
hættu, sem samfara er fjölgun
hunda.
í þriðja lagi lýsir heilbrigðis-
ráð yfir undrun sinni og van-
þóknun á að bæjarstjórn skuli
ekki leita eftir faglegri umsögn
þeirra aðila, sem ætlað er að sjá
um framkvæmd þessara mála og
í því sambandi má spyrja, hvaða
tilgang nefndir á vegum stjórn-
sýslu bæjarins hafi í ákvarðana-
töku á vegum bæjaryfirvalda.
Heilbrigðisráð vill þó benda bæj-
arstjórn á ákvæði laga nr. 12 frá
1969 um hollustuhætti og heil-
brigðiseftirlit, þar sem kveðið er
á um, að ef ágreiningur sé á milli
heilbrigðisyfirvalda og sveita-
stjórnar, sé hægt að skjóta þeim
ágreiningi til heilbrigðiseftirlits
ríkisins. Þar sem ljóst er að með
einhliða ákvörðun bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar er varðar hunda-
hald er slíkur ágreiningur fyrir
hendi og mun heilbrigðisráð
leggja þetta mál fyrir heilbrigð-
iseftirlit ríkisins.
í fjórða lagi frábiður heil-
brigðisráð sér að taka á ein-
hvern hátt þátt i marklausu
starfi, sem felst í samþykkt
bæjarstjórnar um hundahald og
telur eðlilegast m.a. þar sem
bæjarstjórn hefur ekki talið
nauðsynlegt að leita umsagnar
heilbrigðisyfirvalda í máli þessu,
að bæjarstjórn fari sjálf eða feli
öðrum aðila innan stjórnsýslu
bæjarins að hafa ábyrgð á fram-
kvæmd og afleiðingum þeirra
ákvarðana, sem hún hefur tekið í
máli þessu.
í fimmta lagi vill heilbrigðis-
ráð vekja athygli bæjarstjórnar
á því að mjög skiptar skoðanir
eru meðal bæjarbúa um mál
þetta og er það álit heilbrigðisyf-
irvalda að meirihluti íbúa í
Hafnarfirði sé mótfallinn
hundahaldi í bænum. Er það
skoðun heilbrigðisráðs að, þar
sem ljóst virðist að meirihluti
bæjarstjórnar telur mikilvægt
að leyfa hundahald í bænum,
eðlilegt og sjálfsagt væri að leita
eftir því við næstu alm. kosn-
ingar hver vilji bæjarbúa sé í
reynd í þessu máli. Minnt skal á
að bæjarstjórn Hafnarfjarðar
hefur leitað eftir slíkri umsögn í
máli, sem vitað var að skiptar
skoðanir væru um meðal bæjar-
búa.
I sjötta lagi skorar heilbrigð-
isráð á bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar að taka mál þetta til
endurskoðunar og að haldið
verði við þau ákvæði sem kynnt
voru í drögum að lögreglusam-
þykkt fyrir Hafnarfjörð og heil-
brigðisráð fjallaði um.
Heilbrigðisráð getur fyrir sitt
leyti fallist á tillögu sem fram
kom í bæjarstjórn þann 30. júní
sl. að eigendum sem hafa hunda
í leyfisleysi sé veittur frestur til
næstu áramóta til að fjarlægja
þá úr bænum.
21.00 kr. Greiðslur samlagsmanna
til heimilislækna eru frá 1. júlí kr.
10.00 fyrir viðtal á stofu en kr.
20.00 fyrir vitjun til sjúklings.
Kostnaður ríkisins vegna lyfja
verður á þessu ári um 90 millj. kr.
(9.000 millj. gkr.) og má ætla að
ríkið greiði alls um 60% af
lyfjakostnaði vegna þeirra sem
eru utan sjúkrahúsa.
4. Breytingar hafa verið
ákveðnar á reglum um þátttöku
ríkisins í kostnaði vegna tækja
fyrir heyrnarskerta, þannig að
reglurnar taki til bárna og ungl-
inga til loka skólaskyldualdurs.
Gjald fyrir heyrnarmælingar
Heyrnar- og talmeinastöðvar ís-
lands á vinnustöðum er nú kr.
42.00. Að öðru leyti er þjónusta
stöðvarinnar veitt án endurgjalds.
5. Gerðar hafa verið breytingar
á reglum um greiðslur almanna-
trygginga á lyfjakostnaði vegna
vefjaaukandi lyfja og takmarkast
greiðslan nú við sérþarfir sjúkl-
inga og útgáfu lyfjaskírteinis frá
trúnaðarlækni sjúkrasamlags.
Ástæðan fyrir þessari breytingu
er sú að talið er, að lyf þessi kunni
ella að vera misnotuð.
6. Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið og Trygginga-
stofnun ríkisins hafa gengið frá
sérstakri hækkun sk. „vasapen-
inga“ handa þeim sem eru lang-
dvölum á dvalarheimilum aldr-
aðra eða öryrkja en hafa engar
tekjur né lífeyri, er greiddur hefur
verið dvalarkostnaður í viðkom-
andi stofnun. Hér er um að ræða
alls um 1740 einstaklinga. Nemur
hækkunin 33,4% og er hún um-
fram aðrar hækkanir á þessu ári
vegna verðlagshækkana. Hækkun-
in tekur gildi frá 1. mars og verður
afgreidd til þeirra viðskipta-
manna trygginganna, sem rétt
eiga á „vasapeningunum" frá
næstu mánaðamótum. „Vasapen-
ingar" þessir voru kr. 314 á
mánuði en verða kr. 453 á mánuði
og er þá innifalin 8,1% vísitölu-
hækkun 1. júní 1981.
£>
INNLENT