Morgunblaðið - 15.07.1981, Side 28

Morgunblaðið - 15.07.1981, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1981 ást er... ... ad feröast sam- an. TM Rea U.S. Pat. Off.—all rights reserved © 198 f Los f 'getes Times Syndicate l»eir se»íja hér, art við krufninKU komi það alltaf i ljús hafi dánarorsókin verið hlásýra! I»aú tekur að vísu lenKri tíma, en það er miklu auðveldara. HOGNI HREKKVlSI „ b£7~r4 £~R A/ýj4 íSyA//t/oM/D /IA//S ki ***’ jj n JtS I wtm r n i EM.. jprrj ■ ii! íjf Martröð í Miöbænum Kæri Velvakandi. Föstudaginn 9. þ.m. átti ég erindi niður í gamla Miðbæ. Þá var skemmtilegt að koma í Austurstræti. Markaðir voru þar í fullum gangi og gatan iðandi af sóldýrkendum á öllum aldri. Veðrið var í einu orði sagt himneskt. Á slíkum dögum er gaman að vera til. Ég flýtti mér að skjótast inn í Landsbankann til að ljúka erindi mínu og komast sem fyrst út í sólina. Þegar ég hafði gengið nokkurn spöl á þessum sælustað verður mér litið upp í Bakarabrekkuna. Þar blasti við mér sjón sem ég mun seint gleyma. Það var nefnilega búið að eyðileggja tún- ið fyrir neðan Bernhöftsbakarí- ið. Ég er nú búin að vera hér í höfuðstaðnum í 67 ár. Kom hingað 3ja ára að aldri. Hefi lifað tvær heimsstyrjaldir ásamt þorskastríði, plús öll þau undur sem orðið hafa á þessari vorri vísindaöld. En hervirki sem þetta uppátæki er einhver hin mesta fjarstæða sem ég hefi mátt horfa upp á í vöku. Að vísu kemur það fyrir að mann dreym- ir svona hrikalega vitleysu og hlær þá gjarnan að morgni. Þá er viðkvæðið jafnan þetta: „Get- ið þið nú bara hvað mig var að dreyma í nótt.“ Hverjum hefði dottið í hug að á sama tíma og verið er að lagfæra húsakostinn á Bern- höftstorfu, skuli vera drifið í því að gjöreyðileggja lóðina? Fólkið sem hefur verið þarna viðloðandi í bænum hlýtur að hafa gengið með bundið fyrir augun. Það virðist ekki hafa séð hvernig verið var að rífa upp sjálfa Torfuna. Það er ekki fyrr en frú Rannveig Tryggvadóttir stingur niður penna til að benda okkur á, sem ekki höfum barið skaðann augum, hvað þarna er raunveru- lega að gerast, að fólk fer að taka við sér. Þökk sé þeirri ágætu konu. Siðastliðinn laugardag kl. 2 e.h. var fundur haldinn á Torf- unni. Honum stýrði Þorsteinn Ö. Stephensen, leiklistarstjóri. Ræðumenn voru Sigurður A. Magnússon rithöfundur og Edda Þórarinsdóttir leikkona. Þar var skorað á borgarbúa að mótmæla þessu fáránlega hermdarverki, og mótmælaseðlum útbýtt til fundarmanna, eins og komið hefur fram í Ríkisútvarpinu. Fari nú svo að andófsmönnum verði ekki sinnt, ætti það að vera verðugt verkefni öllum gömlum Reykvíkingum, sem fótavist hafa, að standa vörð í Bernhöfts- gryfjunni og hindra frekari að- gerðir, uns skarð þetta hefur verið fyllt á ný og blettinum komið undir græna torfu í bók- staflegum skilningi. Gamall Reykvíkingur. Hvar er lögreglan í Reykjavík? Kæri Velvakandi. Miðbærinn hefur oft verið fullur af léttklæddu og ánægðu fólki í góða veðrinu undanfarið, og mikill fjöldi erlendra ferðamanna setur skemmtilegan svip á bæjarlíf- ið. En samt hvílir mikill skuggi yfir — fyllibyttur og dópistar hanga við Útvegs- bankann en eldra fólk eða þreyttir ferðalangar, sem gjarnan vildu tylla sér á bekki þá sem eru meðfram veggjum bankans, geta það ekki því þeir eru yfirleitt uppteknir af drykkjulýð eða dópistum. Og væri eldri maður eða ferða- langur svo heppinn að fá sæti þarna er honum varla vært þar. Laugardaginn 11. júlí bar mest á erlendum ferðamönn- um í miðbænum en þar var einnig allmikið af drykkjulýð, sem var að abbast upp á vesalings ferðamennina. Það er glæsileg mynd sem þeir munu minnast héðan frá Reykjavík. En aldrei sér maður lög- reglu í miðbænum — ef lög- reglan léti sjá sig öðru hverju og ræki lýðinn á brott, væri bæjarlífið öllu skemmtilegra. Þessir hringdu . . . Bílastæðaskortur í miðbænum Skrifstofumaður hringdi og kvartaði undan skorti á biiastæð- Þeir sem áður héldu til á Arnarhólstúni hafa nú lagt undir sig bekkina við Útvegs- bankann. Ég spyr, á þetta að líðast? Hvar er blessuð lög- reglan sem á að vernda borg- arana? Ég skora á lögregluyf- irvöld að taka í taumana, áður en það verður um seinan. V.S. um í miðbænum. „Þetta er alls ekki nýtt vandamál en ég held að ástandið sé sífellt að versna. Ég hef unnið á skrifstofu í miðbænum í tæplega 10 ár og keyri í vinnuna ofan úr Breiðholti. Yfirleitt hefur mér tekist, með útsjónarsemi og frekju, að leggja bílnum mínum einhversstaðar í grennd við vinnu- staðinn en nú er mjög farið að harðna á dalnum í því efni. Morgun eftir morgun kemur mað- ur að öllum bílastæðum yfirfull- um — stundum hef ég neyðst til að leggja úti í Tjarnargötu og einu sinni úti við Háskóla. Þá er orðinn þó nokkur spölur fyrir mig að ganga í vinnuna. Nýlega fékk ég

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.