Morgunblaðið - 15.07.1981, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ1981
29
Hjólreiðastíga umfram allt
Iljólreiðamaður skrifar:
Það hefur vakið athygli
hversu mikil aukning hefur orð-
ið á innflutningi reiðhjóla síð-
asta árið og einhverstaðar las ég
nýlega að reiðhjól yrðu flutt inn
tugþúsundum saman það sem
eftir er þessa árs. Hingað til
hefur reiðhjólið varla verið við-
urkennt sem farartæki, eigin-
lega verið litið á það sem
leikfang og ekkert tillit tekið til
þess við skipulagningu umferð-
ar.
Sú hugmynd að leyfa hjólreið-
ar á gangstéttum hefur mætt
nokkurri andstöðu hjá „göngu-
mönnum“ og þó að mér finnist
gæta dálítillar móðursýki þegar
talað er um að gangandi stafi
bráð hætta af hjólreiða-
mönnum, þá get ég skilið þetta
sjónarmið. Það liggur í augum
uppi að gangandi umferð og
hjólandi fer ekki saman svo vel
sé — rétt eins og ekki fer vel á
þvi að bílar og hjól séu saman í
umferðinni.
Allir held ég að séu sammála
um að sérstakir hjólreiðastígar
séu bezta lausnin en þeir þekkj-
ast vart hér í borg. Þrátt fyrir
þá miklu skipulagsvinnu sem í
gangi hefur verið um áratugi
varðandi borgina og alltaf er
verið að rífast um, hefur alveg
gleymst að gera ráð fyrir hjól-
reiðastígum. Sést á þessu að
hinir vísu skipuleggjendur eru
síður en svo miklir spámenn,
hvorki í sínu eigin föðurlandi
eða annarstaðar. En nú er auð-
vitað í flestum greinum of seint
í rassinn gripið, að koma reið-
hjólinu inn í umferðarskipulag,
og súpum við hjólreiðamenn
seyðið af því. Því fer þó fjarri að
öll sund séu lokuð — það má
mikið gera til úrbóta með því að
hagnýta þá kosti sem fyrir
hendi eru.
En þetta hefur alls ekki verið
gert. Það finnst mér t.d. líði-
legur slóðaskapur að ekki hefur
verið lappað uppá hjólreiðastíg-
inn sem liggur yfir Öskjuhlíð
þrátt fyrir þá miklu hjólreiða-
öldu sem gengin er yfir. Víða
mætti leggja hjólreiðastíga með
litlum tilkostnaði en borgaryfir-
völd virðast halda að sér hönd-
um hvað varðar slíkar fram-
kvæmdir þó að ekki skorti fram-
takið við það er siður skyldi, s.s.
að röta upp grænum svæðum í
miðborginni.
Svo eru sumir sem halda því
fram að hjólreiðar séu ekki
annað en bóla og verði þar með
úr sögunni aftur innan skamms.
Ég held hins vegar að reiðhjólið
muni stöðugt sækja á — vegna
þess að það er hagkvæmt frá
orkusjónarmiði, hjólreiðar eru
hin mesta heilsubót og auk þess
gætu þær orðið alveg slysalaus
ferðamáti ef málum yrði þannig
háttað að ekki þyrfti að hjóla í
umferð. Af þessum ástæðum
held ég að reiðhjólið gæti orðið
ofaná sem samgöngutæki á
styttri leiðum. Ég læt fylgja
með þessu bréfi uppdrátt af
hugsanlegu aðalhjólreiðakerfi
fyrir höfuðborgarsvæðið en
hann birtist í ritinu Skipu-
lagsmál (2/80) og sýna svörtu
strikin aðalhjólreiðastíga. Þetta
er athyglisverð hugmynd og ef
hún kæmist til framkvæmda
væru málefni hjólreiðamanna
hér í borg vissulega í höfn.
F.S.
Alf 'nc s
IIEYKJAVIK
•5
** Kjó«»»lU»
SoAdhlJ '
■« ik> ;
I |olins!n-;tin
Ml>V urKiaUi
Jlrlfiuxhra U'i
’Bwh.u
MJ)toff.vX
l^a}itaxnoUA>^,,
* 1.FiflI«l !v*/* A7»/JrJ
.^
yjk
K o 1 J a fj ö 1' H u i'
.r»r|riiiiiti Mfbhrt
'eltjarnar'nes
w s \ # “V-* \
' _______J1.':v- '/v-.-y.—
... ........ ■;'.V "SJ' \ I I* / | 1 ' 1 r I ' il i I 111
v. fV y jpA,;.,,. ..—-«* KM ■
Z..J' ■ J -tt-'Z . .. .
Ilugmynd
að aðal-
hjólreiða-
stígakerfi
fyrir höf-
uðborgar-
svæðið.
LIBERO
er nýjasta bleian frá MÖLNLYCKE
í LIBERO-bleiunni er allt, — plast aö neöan,
T-lögun, límfesting á hliöum, — buxur eru
óþarfar.
mmJtm
Reyniö pakka af Libero-bleium á barniö.
Fást í þremur mismunandi stæröum.
TRÉKÓ
eldhús
TRÉKÓ
baðinnréttingar
TRÉKÓ
fataskápar
Trékó
TRÉSMIÐJA KÓPAVOGS HF
AUÐBREKKU 32 KÓFAVOGI SlMI 40299
háa sekt, 110 kr., fyrir að leggja
ólöglega — þá hafði ég lagt
bílnum þar sem reyndar var ekki
bílastæði en hann var þó alls ekki
fyrir — en þetta ástand neyðir
mann hreinlega út í lögbrot og það
þykir mér hart.
Ég veit ekki hvað á að gera í
þessu en það blasir við að eitthvað
verður að gera til að fjölga
bílastæðum hér í miðbænum.
Astandið eins og það er getur ekki
gengið til lengdar. Maður eyðir
nógu miklu af frítíma sínum í að
keyra í vinnuna þó maður þurfi
svo ekki þar á ofan að ganga
langar leiðir til að geta lagt
bílnum sínum.“
S\GÓA V/QGA g 'ÚLVEftAU