Morgunblaðið - 06.09.1981, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1981
51
Unnið við framkvæmdir hins nýja vöruafgreiðsluhúsnæðis Skipaútgerðar rikisins við Sprengisand.
Skipaútgerð rikisins:
Nýtt vöruafgreiðsluhús-
næði tilbúið i febrúar
HAFIN er bygging nýrrar vöru-
afgreiðslubyggingar fyrir Skipa-
útgerð rikisins við Sprengisand.
sem svo hefur verið nefndur, en
það er á uppfyllingunni fyrir
framan eldra athafnasva-ði
Skipaútgerðarinnar í Reykjavík-
urhöfn.
Guðmundur Einarsson, for-
stjóri Skipaútgerðar ríkisins,
sagði í samtali við Mbl., að gert
væri ráð fyrir að taka hið nýja
húsnæði í notkun í febrúar á
næsta ári og síðasta kostnaðar-
áætlun gerði ráð fyrir heildar-
kostnaði upp á 10 milljónir króna.
Hið nýja húsnæði Skipaútgerð-
arinnar verður 2400 fermetrar að
fleti og verður á einni hæð.
Guðmundur Einarsson sagði, að
það væri mjög svipað að stærð og
það húsnæði, sem fyrirtækið hefði
haft til umráða þegar bezt lét.
Hins vegar myndi þetta nýja
húsnæði nýtast mun betur.
Guðmundur sagði ennfremur,
að aðalhöfuðverkur þeirra væri,
hversu lítið útiathafnasvæðið
væri, því gámaflutningar færu
stöðugt vaxandi og þeir gerðu
kröfu um mikið athafnarými.
„Þegar þú þarft að kippa í gang hjá vini þinum"
SHELL SUPER PUJS
Olían,sem ereins og sniðin fyrir
íslenskar aðstæðurt
Nýja fjölþykktarolían frá Shell tekur langt
fram þeim kröfum, sem bifreiðaframleið-
endur hafa sett um gæði og endingu olíu
fyrir nýjustu gerðir bílvéla.
Shell Super Plus myndar níðsterka húð,
sem verndar slitfleti vélarinnar allan eðli-
legan notkunartíma olíunnar. Vél varin
með Super Plus endist lengur og þarfn-
ast síður viðhalds.
Eiginleikar Shell Super Plus hæfa tíðum
hitasveiflum íslenskrar veðráttu. Fjöl-
þykktareiginleikar Super Plus gera
gangsetningu auðvelda í kulda, og veita
hámarksvernd við mesta álag, t.d. þegar
kippa þarf í gang hjá kunningja.
Sérstök bætiefni Shell Super Plus gefa
olíunni styrk og þol til þess að standast
mikinn þrýsting og hita, sem myndast í
nýjustu bílvélum. Super Plus vinnur verk
sitt betur og lengur en nokkur önnur
Shell olía hefur áður gert.
©
Olíufélagið Skeljungur h.f.
Einkaumboð fyrir ,,SHELL“ vörur