Morgunblaðið - 06.09.1981, Side 4

Morgunblaðið - 06.09.1981, Side 4
52 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1981 Ráðstefna SÞ um orkulindir: Mestar vonir bundnar við sólarorku RÁÐSTEFNU Sameinuðu þjúA- anna um nýjar ok ondurnýjan- loKar orkulindir. som haldin var i Nairobi í Kenya. lauk fyrir tíu dóKum ok saKði iúnaúarráú- horra. Iljorleifur Guttormsson, frá áranKrinum af honum á hlaúamannafundi. Iljorloifur saKúi meúal annars. aú veKna olíuha'kkana ok dvínandi oliu- íorúa hafi þjoúir hoims boint athyKlinni i vaxandi mali aú þorfinni á aú loita nýrra loiúa til orkuoflunar. okki sist þoim orkulindum. som eru endurnýj- anloKar oúa varanleKar, ok hofúi því voriú ákveúiú aú halda þossa ráðstefnu. Sérstök áhersla var lögð á orkuvanda þróunarlanda. Um þrjú þrúsund fulltrúar 125 landa tóku þátt í ráðstefnunni sjálfri en undirbúningsnefndir höfðu starf- að síðan 1979. Eitt af brýnustu vandamálum á þessu sviði er eldiviðarskortur þróunarlanda og voru þau mál ofarlega á baugi á ráðstefnunni. Giskað er á að um 100 milljónir manna líði sáran skort á eldiviði og víða er ástandið mjög slæmt. Vegna fjárskorts í þróunarlönd- unum er ekki plantað sem skyldi á þeim svæðum sem höggvin eru og talið er að skóglendi jarðar minnki um 1—2% á ári. Undirbúningur ráðstefnunnar hófst á árinu 1979. Meðal þeirra orkulinda, sem ákveðið var að fjalla um, voru sólarorka, vatns- afl, jarðhiti, vindorka, eldiviður og viðarkol, eldsneyti úr lífræn- um efnum, orka sjávarfalla, mór, dráttardýr o.fl. Sérfræðinga- nefndir gerðu úttekt á stöðu og horfum varðandi ofangreindar orkulindir. Aðrar nefndir fjöll- uðu um fjármögnun fram- kvæmda, upplýsingastreymi, rannsóknir og þróun, tækniþjálf- un, undirbúningur o.fl. Á grund- velli skýrslna þessara sérfræð- inganefnda voru síðan samin drög að framkvæmdaáætlun sem lögð voru fyrir ráðstefnuna í Nairobi. Samþykkt slíkrar áætl- unar, sem einnig fæli í sér fjármögnun, myndi hafa í för með sér mjög aukna tækniaðstoð á þessu sviði til þróunarland- anna. Á ráðstefnunni var ágreiningur um fjármálalega og skipulagslega hlið framkvæmdaáætlunarinnar. Vildu þróunarlöndin að ríkari þjóðir ykju aðstoð sína við þróun- arlöndin en iðnríki austurs og vestur, voru ekki reiðubúin til þess að skuldbinda sig til veru- lega aukinnar þróunaraðstoðar. Samstaða var um tæknilega hlið framkvæmdaáætlunar. Samþykkt var málamiðlunar- framkvæmdaáætlun og gerir hún meðal annars ráð fyrir að sérstök nefnd fjalli um ágreiningsefnin á næsta ári og skili tillögum til Efnahags- og framfararáðs Sam- einuðu þjóðanna, er leggi þær fyrir Allsherjarþingið 1982—’83. Sólarorkan er meðal þeirra orkulinda, sem mestar vonir eru bundnar við. Sú tækni, sem þróuð hefur verið til þess að knýja geimför, er nú í vaxandi mæli að komast inn á svið iðnaðar og segjast Bandaríkjamenn jafnvel munu geta séð fyrir fjórðungi orkuþarfar sinnar með sólhlöðum um aldamótin og þeir bjartsýn- ustu telja að sólarorkan verði orðin samkeppnisfær við olíu á síðari hluta þessa áratugs. Meðal framlags Islendinga til undirbúnings ráðstefnunnar var yfirlit um nýtingu lághitajarð- varma í heiminum, sem tekið var saman hjá Orkustofnun að beiðni undirbúningsnefndar þeirrar, sem fjallaði um jarðhita. Þá sá Orkustofnun einnig um sýningu á Ijósmyndum af margþættri nýt- ingu jarðhita á Islandi, sem sett var upp í ráðstefnubyggingunni. I ræðu iðnaðarráðherra, Hjör- leifs Guttormssonar, á ráðstefn- unni ræddi hann m.a. um þýðingu vatnsafls og jarðhita í íslenskum orkubúskap og að tekist hefði á sl. 10 árum að minnka hlut innfluttrar olíu hlutfallslega úr 60% niður í 40% af orkunotkun þjóðarinnar. Þá ræddi hann um framlag íslendinga á alþjóða- vettvangi og gat þess, að íslenskir vísindamenn og verkfræðingar hefðu unnið að jarðhitaverkefn- um víða um heim, bæði tækni- aðstoð á vegum Sameinuðu þjóð- anna, t.d. í Mið-Ameríku, og borunum og verkfræðilegri hönn- un, t.d. í Kenya. Framlag Islendinga til þróun- armála er þó enn aðeins 0,05% af þjóðartekjum, en Sameinuðu þjóðirnar hafa sett sér þá viðmið- un, að velmegunarþjóðir úthluti 0,7% þjóðartekna til þróunar- landa með ýmiskonar aðstoð. Hjörleifur sagðist vonast til að gert yrði verulegt átak í þessum málum hér og að íslendingar yrðu búnir að ná þessu marki eftir áratug. Orkuráðherrar Norðurlanda höfðu náið samstarf á ráðstefn- Afmæli: Jón Sigurðsson Skollagróf I dag, 6. september, er sóma- maðurinn, stóðbóndinn og hagyrð- ingurinn Jón Sigurðsson í Skolla- gróf sextugur. Maðurinn er svo þekktur, eða réttara sagt frægur, a.m.k. meðal hestamanna, að eng- in þörf er á að kynna hann, enda ekki tilgangurinn með þessum línum, heldur sá (vegna fjarveru) að nota uppáhaldsblaðið hans til að senda honum kveðju mína og minna með þökkum fyrir margar ógleymanlegar stundir, en þær eru orðnar margar á liðnum árum, og má alveg dæmalaust teljast hvað safaríkur Jón er af húmor og skemmtiiegheitum, jafn fjandi skraufþurr og hann er. En það er von mín og ósk að framundan séu mörg hesta- og gæfurík ár og vinir þínir geti haldið áfram að sækja til þín gæðinga gráa og rauða. Lifðu heill. h.h. Frá hlaðamannafundi í Iðnaðarráðuneytinu: F.v. Sveinn Björnsson, sendiráðunautur, frá Utanríkisráðu- neytinu, Andrés Svanbjörnsson, framkvæmdastjóri Virkis hf., Dr. Guðmundur Pálmason, forstöðumaður jarðhitadeildar Orkustofnunar, og Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra. unni og verður rætt um niður- stöður ráðstefnunnar á næsta fundi orkuráðherra Norðurlanda í Noregi 4. september næstkom- andi. Á meðan á ráðstefnunni stóð gafst íslensku sendinefndinni kostur á að skoða nýja jarðgufu- rafstöð í Olkaria um 100 km frá Nairobi, sem reist er af „Lands- virkjun" í Kenya (Kenya Power Co.). Fyrsti hluti stöðvarinnar, 15 MW, var tekinn í notkun í júní sl., en fyrirhuguð er stækkun í 30 MW og síðar í 45 MW. íslenskir sérfræðingar hafa komið talsvert við sögu þessarar virkjunar, bæði á vegum tækniaðstoðar Samein- uðu þjóðanna, og síðar sem ráð- gjafar Kenya Power Co. Síðustu árin hefur ráðgjafafyrirtækið Virkir hf. haft með höndum rannsóknir og verkfræðilega hönnun varðandi gufuöflunar- hluta Olkaria-jarðgufustöðvar- innar. Þess má að lokum geta, að meðal þeirra, sem komu að máli við- íslensku sendinefndina á ráðstefnunni, var orkuráðherra Burundi, sem óskaði eftir aðstoð Islendinga við að meta möguleika á hagnýtingu í jarðvarma þar- lendis. Er erindi hans nú til athugunar hjá iðnaðarráðuneyti og Orkustofnun, en sérstaklega á sviði jarðhitamála eigum við að geta miðlað öðrum þjóðum. Formaður íslensku sendinefnd- arinnar á ráðstefnunni var Hjör- leifur Guttormsson iðnaðarráð- herra og var hann kjörinn einn af varaforsetum ráðstefnunnar. Varaformaður íslensku nefndar- innar var Tómas Á. Tómasson sendiherra, fastafulltrúi hjá SÞ, og aðrir í nefndinni Jakob Björnsson orkumálastjóri, dr. Guðmundur Pálmason forstöðu- maður jarðhitadeildar Orku- stofnunar, og Andrés Svanbjörnsson framkvæmda- stjóri Virkis hf., sem var ráðu- nautur nefndarinnar. THCfáll A’ l’SLANDI DETTUR U !■■■ a’i EL ‘HfJffl RG 'BÖRG iS MIÐVD9.SEPT. FIMMTCUO.SEn: G-f {TÍ F B«ÐIES 1)1,11 LAUGARD.12 .seA A1B0 Gej-tj ~ RÆBBBLARNIR ÞEYR AI.DuWTAIC/IARK’Á BokblNNt THE FALL ER FARARHEILL FORSALA MIÐA i FÁLKANUM Víprá tok RuRRKuR PíLLNíKK kl: lb »o FÁLKINN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.