Morgunblaðið - 06.09.1981, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 06.09.1981, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1981 55 í stöðvarhúsinu er unniö að því að koma fyrir annarri aflvélinni, og ganga frá þeirri fyrstu, sem byrjar að mala rafmagn 1. nóvember. nýtast bændum til beitar. Og samvinnan er góð. Aðbúnaður starfsfólks hefur batnað með hverri virkjun. Það sáum við fréttamenn Morgun- blaðsins, sem heimsóttum virkj- unarstaðinn sl. þriðjudag. Stefnt er að því að allir geti verið í eins manns herbergi í framtíðinni, að því er Sigurður Þórðarson, aðstoð- arstaðarverkfræðingur tjáir okkur. Ennþá gera það aðeins þeir sem eru allt árið, hinir eru í gömlu tveggja manna skálunum. Lands- virkjun á skálana, sem eru norskir frá Moelen, og leggur til búðir fyrir alla. Elstu skálarnir hafa verið í notkun allt frá Búrfells- virkjun, notaðir þar, við Vatnsfell, Sigölduvirkjun og nú við Hraun- eyjafossvirkjun, auk þess sem stóra bragga var hægt að flytja frá Sigöldu í heilu lagi, því ekki eru göturnar þröngar á hálendinu eða staurar í veginum. Nýju skál- arnir eru grænir á lit og betri. Það eru einingar, sem hægt er að hlaða saman og tengja í röð, eins og í íbúðabúðunum, eða hlaða þeim hverjum ofan á annan eins og legokubbum, svo sem gert hefur verið í skrifstofuhúsnæðinu. Landsvirkjun er þannig búin að koma sér upp aðstöðu, og á búnað fyrir starfsfólk. Auk þess rekur Landsvirkjun mikla sameiginlega þjónustu. Sér t.d. um símakerfi og telexþjónustu fyrir alla, kvikmyndasýningar 1—2svar sinnum í viku, snjóruðn- ing á vetrum og vegaviðhald neðan frá Búrfelli, auk samræm- ingarverkefna fyrir alla þessa verktaka, sem er mun meira verkefni en áður var, þegar verk- takar voru fáir og stórir. Hafa þarna starfað hjá Landsvirkjun sjálfri 50—80 manns, og á þeirra vegum 3 mötuneyti nú. Þurfti í sumar að setja upp það þriðja í gestahúsinu. Það er varanleg bygging, sem notuð verður í fram- tíðinni fyrir vélstjóra og aðra sem þurfa að vinna tímabundið við virkjunina. Mötuneyti eru nú höfð færri og smærri, þar sem það þykir félagslega hollara, að því er talið er á Norðurlöndum. Og að sjálfsögðu eru Norðurlönd elt hér sem í öðru í þessu landi. Sama Tungnaár- vatnið virkjaö Landsvirkjunarmenn hafa eftir- lit og reka stíft á eftir hverjum verkþætti, svo hvergi tefji einn fyrir öðrum og framkvæmdir fari úr skorðum. Staðarverkfræðingur er Páll Ólafsson, sem hefur verið á hálendinu við allar stórvirkjanir allt frá Búrfelli, þá við Vatnsfell vegna Þórisvatnsmiðlunar, og staðarverkfræðingur við Sigöldu- virkjun og nú Hrauneyjafossvirkj- un. Virkjun Tungnaár við Hraun- eyjafoss er mikið stórvirki. Það sjáum við þegar við förum um svæðið nú, áður en vatnið hylur þessi geysilegu mannvirki og menn keppast við að loka flóðgátt- um, þétta aðveituskurðinn með steypulagi, loka haftinu við stífl- una, setja saman aflvélarnar tvær í stöðvarhúsinu, ganga frá tengi- virkjunum þar inni og ljúka þröskuldi til að hemja ána í frárennslisskurði. Við verkið hef- ur þurft að „víkja“ henni Tungnaá til og bylta fram og aftur, sem er ekkert smáviðfangsefni, vatns- massinn 100—150 rúmmletrar á sekúndu og getur farið upp í 500 rúmm. Því sjáum við nú mann- virkin, að hún er ekki þar komin aftur á sinn stað. Tungnaá er virkjuð um 5 km frá Sigöldu og mun lónið ná langleiðina þangað. Þetta er sama vatnið, sem virkjað er, og því nýtist Hrauneyjafoss- virkjun allt það sem búið er að gera við Sigöldu og þar fyrir ofan. Tungnaá er hér virkjuð þar sem hún rennur í norðurátt. Hún hefur áður komið ofan úr Vatnajökli, rekist á þröskuld á móts við Landmannalaugar og tekið vinkil- beygju, en hraunin frá Heklu haldið áfram að veita henni við- nám, þar til hún er komin svo norðarlega og heldur síðan eftir SJÁ NÆSTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.