Morgunblaðið - 06.09.1981, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 06.09.1981, Qupperneq 8
56 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1981 Utilegumenn hinir nýju að Ijúka Hraun- eyjafossvirkjun Hrauneyjafoss í vesturátt og sam- einast Þjórsá fyrir ofan Búrfell. Við leitum frétta hjá Páli Ólafs- syni um það, hvernig framkvæmd- ir hafi gengið og hvar þær séu nú staddar. Vélarnar og rafbúnaður eru í hendi tveggja aðalverktaka. Sænska fyrirtækið ASEA er með vélarnar og rafbúnaðinn í stöðvar- húsi. Segir Páll að Svíarnir hafi staðið sig mjög vel, og samskiptin við þá verið mjög góð, Svíarnir röskir og liðlegir við að kippa í lag, ef eitthvað kemur upp á. I stöðvar- húsinu eru menn langt komnir með að setja upp fyrstu aflvélina, sem á að prufukeyra í október, og verið er að vinna við aðra vélina. Svíarnir hafa 60 manns við þessa vinnu, þar af 45 Islendinga sem eru á vegum fyrirtækisins Rafall vinnuna á staðnum. En Italirnir héldu áfram að ljúka öðrum af sínum verkefnum. Þeir hafa m.a. hitakerfið og loftræstikerfið og voru nú að ganga frá flóðgáttar- lokum, í.vikunni. Með þessu móti tókst að halda tímaáætlun. Aðalsteypuvinnan á staðnum hefur verið í höndum Fossvirkis, sem er samsteypa fyrirtækjanna ístaks, Miðfells, Loftorku, Svenska Sementsgjuteriet og Phil og Sön. 1978 var boðinn út gröft- urinn fyrir stöðvarhúsinu, í sam- ræmi við þá stefnu að hafa verkþætti smáa, síðan steypuvinn- an, sem líka kom á hlut Fossvirkis og einnig steypuvinna við inntaks- mannvirkin. En í húsið fara um 40 þúsund rúmmetrar af steypu, og má af því marka umfang verksins. Samkvæmt áætlun tókst að koma Farartækin verða stærri og öflugri með hverri virkjun. Þessir Caterpillar trukkar vega 70 tonn hlaðnir og dekkjaumgangurinn, sem á aö endast 2000 tíma, kostar 24 milljónir gkróna. Dekkjaslitiö á klukkutíma kostar 12—15 þús. gamlar kr. Þeir fá ekki að aka á vegum í byggö, en borga þungaskattinn sinn samt. Viö Hrauneyjafoss framleiöa 3 aflvélar jafnmikiö rafmagn og sex við Búrfell eða 210 megavött. I stövarhúsi er verið að ganga frá fyrstu tveimur vélunum af þremur. Spennarnir eru þyngstu tækin sem flutt hafa verið upp eftir, 72 tonn, hver. Þó komust þeir heilu og höndnu að Hrauneyjafossi og yfír Ölfusárbrú. Geir Pétursson stendur við einn spenninn. — Stálafl, sem hefur meginhlut- ann af vinnunni. Hinn hlutinn af vélum og rafbúnaði sem boðinn var út, kom í hlut ítalska fyrir- tækisins Magrini Galileo í borg- inni Padua, sem íslendingar þekkja líklega best úr Shake- speare fyrir tíma orkuvera. ítal- irnir sjá um þrýstivatnspípur og inntakslokur, sográsarlokur og ýmsan búnað í stöðvarhúsi. Þess má geta að þeir komu með með sér krana, sem lyftir 160 tonnum, enda þarf þeirra verk nokkuð sérhæfðan útbúnað. — Hjá Itölunum hafa verið seinkanir og tafir og ýmsir örðug- leikar, en samt hefur tekist að stýra verkinu svo að þessi verk- þáttur mun ekki tefja. íslenzkir undirverktakar, Landsmiðjan, hefur smíðað þrýstivatnspípurnar, þessa stóru hólka sem sést hafa á flutningavögnum á leið út úr Reykjavík. Þeir eru soðnir saman á staðnum og hafa verið 12—15 manns og upp í 20 við það verk á staðnum. ítalirnir hafa sjálfir sett upp lokur, og varð mikil seinkun á inntakslokunum í vor. Til að það tefði ekki næstu verk, tókust samningar við þá um að Lands- virkjun tæki sjálf að sér inntaks- lokurnar, sem þeir framleiða, og fékk Landsmiðjuna til að sjá um stöðvarhúsinu upp í fyrrahaust fyrir veturinn, svo að vinna við rafbúnað og vélar tafðist ekki. En það voru einmitt slíkar tafir, sem ollu mestum erfiðleikunum við Sigöldu. Stöðvarhúsið er ofanjarð- ar. Það er eins og hundrað metra langur kassi, 40 metrar á hæð. Innanhúss rafhúnaður — ekki útivirki______________ Sú nýjung er við búnaðinn við Hrauneyjafoss að þar er ekki útivirki, eins og við Sigöldu og Búrfell, þar sem sjá má þessi risastóru mannvirki utan við hús- in, þar sem raflínan fer af stað. Við Hrauneyjafoss er rafbúnaður innanhúss, sem er fært vegna þess að notað er SF-6 kerfi en það er nafnið á lofttegund, sem notuð er til að einangra og með því er hægt að hafa allan búnaðinn miklu umfangsminni. Stíflan við Fossöldu um hálfan annan kílómetra ofan við Hraun- eyjafoss er búin. Verkinu lauk í ágúst. Þetta er þriggja metra löng jarðvegsstífla, þétt með bólstra- bergi og jökulleir. Fyrirtækið Hraunvirki hf. hefur haft jarð- vinnslu og stíflugerðina og er nú að vinna við aðrennslisskurðinn, sem vatninu er síðan veitt í og munu ljúka um miðjan mánuð, í tæka tíð til að fá vatn til að prufukeyra vélar. Sáum við hvar var verið að vinna við að sprauta steypu í þennan stóra skurð. Hraunvirki tók einnig að sér frárennslisskurðinn, sem er ríf- lega kílómeterslangur og 30 m breiður, endar í Sporðöldukvísl, og er nú að ljúka því verki. Þeir hafa unnið á vöktum í sumar, verið með hátt í 200 manns í vinnu. En þarna hefur þurft að flytja til um 600 þúsund rúmmetra af efni. Þar sem allt þetta vatn úr frárennslisskurðinum kemur út í Sporðöskukvíslina, sem leiðir það út í Tungnaá, voru menn hræddir um að það mundi grafa sig niður og því er þarna gerður steyptur myndarlegur þröskuldur til að hafa hemil á því, og í hann fer um 250 rúmmetrar af steypu. Sérstakar þéttingarholur Þetta leiðir talið að þéttingar- vandanum, sem hefur orðið meiri en búist var við í Sigöldulóni. Páll segir að stíflan standi á eftirísald- arhrauni, sem hafi ekki af eðli- legum ástæðum haft tíma til að þéttast og því sé lekáhætta. En við Hrauneyjafossstíflu hafa verið boraðar holur 20 m ofan í hraunið með 2 metra millibili og dælt í þær sementseðju. Þetta var að vísu gert líka í Sigöldu, en ekki svona djúpt, þar sem gamall vatnsbotn Króksvatns var talinn nokkuð þéttur. Þetta verk er mjög sérhæft og var boðið út meðal sex forvalinna fyrirtækja og varð þýzka fyrirtækið GNK Keller með lægsta boð og tók verkið að sér. Þetta fyrirtæki vann sem undir- verktaki hjá Júgóslövum í Sigöldu, en er nú sjálfstæður aðili sem vinnur fyrir Landsvirkjun. Til verksins þarf sérhæfðan tækja- búnað og sérhæft starfslið. Þjóð- verjarnir hafa verið með 10—20 manns í vinnu og voru að ljúka verkinu. Annars er lekahættan minni í lóninu við Hrauneyjafoss, því það er grynnra, 9 ferkm. með 30 gígalítra vatnsforða og því mun minni vatnsþunga. Stíflan hér er 15 m á hæð, en 43 m við Sigöldu. Ekki er gert ráð fyrir öðrum þéttingaraðgerðum að sinni. Vatn- ið látið um að finna lekastaðina síðar, og þá þétt þar jafnóðum. Einn enn erlendur aðili kemur við sögu. Aðalspennarnir voru upphaflega hluti af verkefni ASEA, en samið var við þá um að- þeir yrðu keyptir frá Portúgal. Það var gert til að greiða fyrir saltfisksölu þangað. Portúgalska fyrirtækið Efacec hefur því lagt til 3 aðalspenna. En það voru stærstu stykkin, sem flytja þurfti til virkjunarinnar, 72 tonn hver. Vegir hér eru varla byggðir fyrir slíkan þunga, ekki síst þar sem stykkin eru stutt og þurfti GG að smíða sérstakan vagn áður en flutningur var leyfður. Einkum voru menn hræddir við Ölfusár- brú. En tveir spennanna eru komnir í Hrauneyjafoss og standa nú við stöðvarhúsið. Sagði Páll að allt hafi staðið sem stafur á bók hjá Portúgölunum og viðskipti Landsvirkjunar við þá fyrr og nú verið einstaklega góð. í farvegi árinnar eru flóðgáttir með þremur geiralokum. En ís- lenzkt fyrirtæki Vatnsvirki, sem er samsteypa af Smið á Selfossi og Vörðufelli í Reykjavík tók að sér steypu flóðgáttanna. Þeir hófu verkið í maí á sl. ári og luku því í desember. Steyptu á þessum stutta tíma 12500 rúmmetra og gekk vel, en mjög miklu skipti að það tækist á þessum tíma, svo að hægt væri að veita ánni frá vinnustaðnum í vor. Nú liggur Tungnaá framhjá, þar sem henni var veitt meðan unnið var. Og brátt verða bráðabirgða-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.