Morgunblaðið - 06.09.1981, Page 9

Morgunblaðið - 06.09.1981, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1981 57 stíflur fjarlægðar, flóðgáttum lok- að og þá hækkar í lóninu. Byrjað verður að prufukeyra í október til að setja fyrstu vél í gang 1. nóvember. Búið er að leggja há- spennulínu til að taka við raf- magninu upp í Sigöldu. En aðal- línan um 140 km leið sunnan Langjökuls verður að bíða til næsta sumars. — Mér finnst framkvæmdirnar hér hafa tekist mjög vel, segir Páll Ólafsson, staðarverkfræðingur. Við höfum getað haft þá stjórn á verkinu að tafir hafa ekki orðið. Við ræðum nánar um þá miklu þróun og framfarir, sem orðið hafa við virkjunarframkvæmdir á íslandi með þremur stórvirkjun- um í röð, og sem orðið hefur að taka skref fyrir skref. — Meðan við fengum lánafyrirgreiðslu hjá Alþóðabankanúm urðum við að bjóða verkin út á alþjóðavett- vangi, segir Páll. Nú við Hraun- eyjafossvirkjun gátum við boðið út á frjálsum markaði, þar sem við vorum ekki bundnir neinum skilyrðum. Þar sem fyrirtækin í landinu eru fá og smá, þurfti að brytja verkefnið niður í smærri verk. Ennfremur hefur Lands- virkjun lagt til steypustöð og byggingarkrana í stöðvarhús, sem Fossvirki nýtir. Þá voru keyptar stórvirkar Caterpillar vinnuvélar, sem Hraunvirki hefur leigt en hefur kauprétt á. Þetta er nauðsynlegt til að tryggja nægilega stórvirk tæki í verkið. En þau nýtast illa í önnur verk. Og ekki veitti af að hafa svo stórvirk tæki, bætir Páll við. Þá höfum við lagt til allt steypustyrktarstál og sement. Þetta hefur allt létt verktökunum róðurinn. Og verktakarnir fá vinnubúðir og mötuneyti, sem Landsvirkjun sá um að reisa handa öllum. Þannig gat hver aðili hafið verkið um leið og verksamn- ingur var við hann gerður, en tafðist ekki af undirbúningi. Framlciðnin hefur aukist gífurleKa — Það er búið að vera geysilegt framfaraskeið í þessari verktækni frá þvi við hófumst handa um virkjanir við Búrfell, og þar til virkjun er að ljúka viö Hrauneyja- foss. Framleiðnin hefur aukist gífurlega. Við Búrfell fóru 2065 mannár í fyrsta áfanga virkjunar- innar, sem var 105 megavött, við Sigöldu 1620 mannár í 150 mega- vatta virkjun, en ekki nema 1000 mannár í að byggja Hrauneyja- fossvirkjun upp í 210 megavatta orkuver. Með þessum virkjunum hefur Landsvirkjun tekist að auka af- köstin gífurlega og flytja inn í landið. Þetta hefur þróast skref fyrir skref. Við Búrfell var erlend- ur ráðgjafi Harza, en næstu tvær virkjanir Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen að hálfu. Verkfræði- skrifstofurnar hafa komið upp þjálfuðu og reyndu verkfræðinga- liði til að vinna verkið og hafa afkastagetu til að takast á við það. Og verktakar hafa komið sér upp öflugum tækjakosti og mannskap, auk þess sem öll stjórnun hefur stórbatnað, en stjórnunarþættir töfðu oft mikið fyrstu árin. Þessi mikla framleiðniaukning og fækk- un mannára þýðir að vísu ekki að verkið verði miklu ódýrara, því á móti kemur mikill vélakostur. En það endurspeglar reynslu starfs- manna og stjórnenda. Áður en við kveðjum virkjunar- staðinn við Hrauneyjafoss veltum við fyrir okkur: Hvað næst? Verð- ur framhald og samhangandi þró- un? Brátt stendur allur þessi aðbúnaður og öll þessi tæki þarna eftir að virkjun er lokið. Vitað er að í haust verður byrjað á stíflu við Stultartanga, sem er liður í að styrkja orkuöflun Landsvirkjunar. Það er jarðvinna, sem lýkur á tveimur árum. En hvað svo? E.Pá. Allt á að seljast uppí 6BIFTU TÆKIEÆRIÐ Þú getur gert ótrúlega góð kaup: DÆMI: Föt frá kr. 200 Jakkar frá - 100 Buxur frá - 70 Skyrtur frá - 50 Peysur frá - 90 Vesti frá - 70 BÚTASALA! Mikið magn af GALLABUXUM úr denim og flaueli! Aðallega stærðir 27 - 34. QPIÐ: mánudag frá 9-6. þriðjudag og miðvikudag frá 1-6. ^ Ath. útsalan er að SKULAGÖTU30 (áður hús J. Þorláksson & Norðmann) Texti: Elín Pálmadóttir Myndir: Kristján Einarsson 7 154

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.