Morgunblaðið - 06.09.1981, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 06.09.1981, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1981 59 • •í sumum þessara tímarita er talað um manndráp ' 'eins og þau væru til marks um ást á föðurlandinu^Q önnur líta á þau sem hverja aðra atvinnugrein ... 7 ✓ AUGLYSINGARl Þig vantar víst ekki ódýran tvifara? Hefurðu áhuga á að fá Woody Allen til að kynna fyrir þig tannkremið eða kannski Kather- ine Hepburn til að lífga pínulítið upp á söluna? Ef svo er skaltu bara gleyma því enda myndu þessar stórstjörnur áreiðanlega hlægja upp í opið geðið á þér og jafnvel draga í efa, að þú hefðir ráð á að borga þeim. Þú skalt þó ekki örvænta, því að fyrirtækið hans Ron Smiths, sem við getum kallað „Stórstjörnulíkið", getur boðið þér það „næstbesta" fyrir miklu viðráðanlegra verð. „Að vísu er bara til einn Burt Reynolds en við getum boðið upp á það, sem kemst næst honum. Allt, sem ein stjarna getur, það getum við og það fyrir skaplegt verð,“ segir Smith, sem segir, að starfið sé í því fólgið að selja „tálmynd af tálmynd". Smith hefur á skrá hjá sér 1200 húsmæður, lækna, leikara og ann- að fólk, sem á það sameiginlegt, að í útliti líkist það ákaflega ein- hverjum öðrum og hefur auk þess ekkert á móti því að þéna dálítið á því. Smith segir að tvífarinn fái eitt prósent af launum stórstjörn- unnar og geti jafnvel unnið sér inn 50.000 dali á ári ef vinsældir fyrirmyndarinnar eru miklar. Adolf Hitler, Anwar Sadat, Yasser Arafat og Ayatollah Khomeini eru allir á skrá hjá Smith og finna þeir félagarnir gjarna störf í heimildakvikmynd- um, en þar eru einnig Albert Einstein, Marlene Dietrich og hundurinn Lassie. Smith er alltaf með augun opin fyrir nýjum andlitum. Einu sinni, þegar hann var 'staddur í stór- verslun í New York, rakst hann á mann, sem var nauðalíkur leikar- anum George Segal, og Smith sveif umsvifalaust á hann og bauð honum samning með það sama. Því boði var þó hafnað enda var KINAl Afgreiddir snarlega yfir í eilífðina Glæpum hefur fjölgað mjög í Kína á undanförnum árum og af þeim sökum hafa landsfeðurnir nú hafið mikla herferð á hendur óþjóðalýðnum og er fyrst og fremst að því stefnt, að engin bið verði á því, að hinum brotlegu verði refsað þegar til þeirra næst. Talsmaður kínverska alþýðuþingsins heldur því t.d. fram, að þegar um sé að ræða alvarlega glæpi, þar sem málsatvik eru ljós, sé lítil sem engin hætta á mistökum og þess vegna eigi réttvísin að hafa sinn gang án nokkurra lögfræðilegra vífilengja. Fyrir tveimur árum samþykkti þingið, að dæma mætti menn til dauða án þess að hæstiréttur iandsins legði sérstaka blessun yfir það og nú nýlega benti það á, að svo margir dauðadómar hefðu verið kveðnir upp að undanförnu, að ógjörningur væri fyrir hæstarétt að anna þeim málum öllum. Leið- togar flokksins í Peking segja einnig, að ekkert lát sé á „viður- styggilegum glæpum" þar í borg og að það séu einkum flóttamenn úr Ælskan á glap- stigum: „Fjórmenningaklikunni" kennt um að vanda og svo „vestra-n- um áhrifum". fangelsum og endurhæfingarstöðv- um, sem þá fremji. I Dagblaði alþýðunnar segir, að flestir glæpamannanna séu ungir menn, gjörspilltir af völdum Fjór- menningaklíkunnar (sem ennþá er kennt um flest, sem aflaga fer í Kína) eða sýktir af hugsunarhætti útlendrar borgarastéttar. Að sögn flokksráðsins í Liaoning-héraði í Norðaustur-Kína eru afbrota- mennirnir langflestir úr hópi al- þýðufólks og yfirleitt ungir að árum. I kínverskum borgum er tíundi hver maður atvinnulaus, eða um 20 milljónir manna, en þrátt fyrir það mega yfirvöldin ekki heyra á það minnst, að atvinnuleysið eigi ein- hverja sök á ástandinu. Úr öllum afkimum Kínaveldis berast fréttir um aukin afbrot og glæpi og þá aðeins er þeim fréttum fagnað þegar það fylgir sögunni, að glæpa- mennirnir hafi þegar hlotið makleg málagjöld og verið teknir af lífi. I Dagblaði alþýðunnar segir, að taf- arlaus dauðarefsing „sýni mátt alræðis öreiganna, auki siðferðis- styrk alþýðunnar og skjóti glæpa- mönnunum skelk í bringu". Dagblaðið Wen Hui Bao í Shang- hai krafðist þess nýlega, að glæpa- lýðurinn yrði dæmdur og tekinn af lífi í augsýn almennings, því að „við megum ekki vera veiklunduð. Aðeins á þennan hátt getum við fengið illmennin til að óttast lög- hlýðna borgara". - JONATIIAN MIRSKY lega til ofbeldis og eru þess vegna stórhættuleg," segir Pete Shields, einn af forystumönnum samtaka, sem berjast fyrir meira eftirliti með byssueign í Bandaríkjunum. „Inntakið í þeim öllum er eins konar fegruð mynd af villta vestr- inu þar sem hver og einn er sjálfum sér næstur og það kann ekki góðri lukku að stýra fyrir þá þegna þessa lands, sem binda vonir sínar við löghlýðni og þjóð- félagslegan frið.“ Þessu svarar ritstjóri „Strandhöggsins" á þennan veg: „Flestir lesendur okkar eru hvítir menn úr lægri miðstétt, sem verða æ óánægðari eftir því sem efnahagsástandið versnar og alls konar minnihluta- hópar leggja undir sig störf, sem þeir hvítu töldu áður sín. Þessi tímarit veita þessum mönnum útrás á saklausan hátt,“ sagði hann, „og mér þætti gaman að vita upp á hverju þeir tækju ef við sæjum þeim ekki fyrir efnivið í draumórana." - ANDRES OPPENHEIMER KOMMUNISMll Tæp 2% eru í Flokknum Flokksbundnir félagar í kommún- istaflokkum um víða veröld éru nú taldir vera 76.714.546 talsins, að því er segir í niðurstöðum könnunar, sem Bandaríkjastjórn efndi til. Það þýðir m.ö.o., að tæp 2% mannkyns- ins eru félagar í „Flokknum". Frá þessari bandarísku könnun var sagt í síðasta hefti tímaritsins Vandamál kommúnismans, og er það Hoover-stofnunin, sem hana hefur gert. í könnuninni var hafður í huga fjöldi flokksbundinna félaga 98 kommúnistaflokka um heim allan og einkum þeirra, sem fylgja Kremlar- herrunum að málum. Félagafjölda annarra kommúnistaflokka er þó einnig getið en öðrum óskilgreindum vinstrihreyfingum sleppt. Kínverski kommúnistaflokkurinn er langfjölmennastur, eins og að líkum lætur, eða með 38 milljónir félaga, sá rússneski státar sig af 17 milljónum flokksmanna og leppríkin átta í Austur-Evrópu koma síðan í þriðja sæti með sínar 15. I Asíulöndum utan Kína eru fjórar millj. kommúnista, í Ameríku 706.000 og í Austurlöndum nær og Gervistjörnur verð. fyrir skaplegt þetta George Segal sjálfur, sem þarna var á ferð. Það var í samkvæmi, sem haldið var á allra heilagra messu árið 1976, að Smith fékk hugmyndina um fyrirtækið. I þessu samkvæmi gekkst hann fyrir dálítilli sam- keppni, sem var í því fólgin að veíja besta tvífara Gerald Fords forseta og Jimmy Carters, sem þá voru í framboði til forsetaembætt- isins. Þetta uppátæki vakti mikla hrifningu gestanna og sló allt annað út, sem á dagskránni var. Eftirspurnin eftir tvíförum vex með ári hverju, segir Smith, og „stjörnurnar" hans koma einnig fram í Evrópu, Afríku og Asíu. Tvífarar frægs fólks verða oft fyrir alls konar ónæði vegna líkingarinnar og.þess vegna finnst þeim þeir fá nokkra uppbót fyrir það þegar þeir koma fram í gervi fólksins, auk þess sem þetta er ágæt leið út úr tilbreytingarleysi hversdagslífsins. „Mér líkar það hreint ekki þegar fólk tekur mig tali og fer að kvarta við mig um allt, sem aflaga fer í borginni," segir George Lead- er, sem er lifandi eftirmynd Edward I. Kochs borgarstjóra New York-borgar. Eileen Dillard gæti verið tví- burasystir Katherine Hepburn og hún virðist miklu sáttari við sjálfa sig þegar hún þykist vera kvik- myndastjarnan sjálf. „Ég er í eðli mínu mjög feirnin," segir hún, „en þegar ég er hún verð ég viss og örugg með mig. Það líkar mér vel enda er Katherine indæl kona, sem öllum geðjast að.“ - IIARRY DEDERICIIS VIGBUNAÐUR Sónialia — og ósprungin sending frá grónnunum í Eþíópíu. Þau vanþróuðu hamast við að hervæðast Sautján milljónir i Sovét Afríku aðeins 25.000. ítalski komm- únistaflokkurinn á bróðurpartinn af vestur-evrópskum kommúnistum, með 1,8 milljónir, þá kemur sá franski með 600.000 og síðan sá portúgalski, spánski, þýski, finnski, gríski og austurríski. Breski komm- únistaflokkurinn er sagður hafa 20.599 félaga, sem er um 0,4% af mannfjöldanum þar í landi. - MARTIN BAILEY í síðustu árbók Friðarrannsókn- arstofnunarinnar í Stokkhólmi kemur fram, að vopnakaup hinna vanþróuðu ríkja í þriðja heimin- um hafa næstum því tvöfaldast á síðasta áratug. Frá lokum síðari heimsstyrjaldar hafa 130 sinnum verið háðar meiriháttar styrjaldir og þar af um 50 á síðasta áratug. Næstum alltaf hafa þessi mannvíg farið fram í þriðja heiminum og undantekningalítið hafa vopnin komið úr vopnasmiðjum iðnríkj- anna. Þjóðirnar í Austurlöndum nær eru langstærsti vopnakaupandinn meðal ríkja þriðja heimsins og kaupa næstum jafn mikið og allar hinar til samans. í þessum heims- hluta er enda flest á hverfanda hveli, mikil óeining með þjóðunum sjálfum og stórveldin láta auk þess ekki sinn hlut eftir liggja vegna olíunnar og mikilvægrar legu landanna. Við upphaf síðasta áratugar nam hlutur þriðja heimsins 9% af vopnakaupum á heimsmarkaði en við lok hans var hann orðinn 16%. Að áliti Frið- arrannsóknarstofnunarinnar er þessi þróun vægast sagt „mjög ískyggileg". A síðasta ári náðu þjóðir heims í fyrsta sinn því marki að verja 500 milljörðum sterlingspunda til vopnakaupa en þrátt fyrir þennan gífurlega fjáraustur eru fæstar þjóðir öruggari um sinn hag en þær voru fyrir tíu árum. Þvert á móti vex öryggisleysið stöðugt. Þegar allt þetta er haft í huga er ekki óeðlilegt að líta svo á, að þetta gegndarlausa fjárbruðl sé „óréttlætanleg og skelfileg sóun á takmörkuðum auðlindum tnann- kynsins". Eins og líklegt er, eru það Atlantshafsbandalagið og Varsjárbandalagið, sem stórtæk- ust eru í þessum efnum og munu örugglega verða enn um hríð. í árbók Friðarrannsóknarstofnun- arinnar er á það minnst, að einkar dapurlegt sé til þess að hugsa, að mestu tækniafrek manna nú á dögum séu unnin í þágu hernaðar og drápstækni. Ef sama áhersla hefði verið lögð á heilsurækt og fæðuframleiðslu væri víst, að öðru vísi væri um að litast í heiminum ennúer. - IAN MATIIER

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.