Morgunblaðið - 06.09.1981, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1981
63
Pottarím
Umsjón: SIGRUN
DAVÍÐSDÓTTIR
í ár er slíkt bláberjaár um
allt land, að vísast eru þeir
margir sem tína vcl af berjun-
um. Það er ekki úr vegi að huga
að þessu góðgæti og hvað hægt
er að gera gott úr því.
bað eru ekki aðeins íslend-
ingar sem kunna vel að meta
bláber, því þau vaxa víðar. Á
Norðurlöndunum og Bretlands-
eyjum eru þau í miklum met-
um. Á írlandi var sums staðar
haldin hátíð síðustu helgina i
júlí. eða fyrstu helgina í ágúst.
Ilátíðin markaði sumarlok og
uppskcrubyrjun. Þessir sunnu-
dagar kölluðust stundum blá-
berjasunnudagar og þeim
tengdust ýmsar siðvenjur. M.a.
var safnast saman í bláberja-
lautum og fléttaðar körfur sem
berin voru tínd í. Það var
dansað og spilað á fiðlur. Eins
og vera ber voru það ekki ófáir
ungir menn sem hittu þarna
konuefni sín.
Þó við höfum ckki fiðluspil
og dans í bláhcrjalautum. er
skemmtilegt að tina ber, bæði
notalegt að vera úti i skaplegu
veðri og gaman að hugsa til
góðgætisins sem í vændum er,
þegar uppskeran er komin í
hús...
Góða skemmtun!
Bláber
Það er góð og hollustusamleg
búbót að frysta bláber til vetrar-
ins. Þið hreinsið þá berin og
skolið, látið vatnið renna vel af
þeim, skiptið þeim niður í ílát og
trystið. Ef þau eru sæmilega
þurr, ætti ekki að vera ástæða til
að lausfrysta þau, heldur er
hægt að setja þau beint í ílát og
frysta. Oftast er settur sykur
með, um 'k dl í hvern lítra er
hæfilegt.
Bezt er að nota stíf ílát, svo
berin kremjist ekki. Það má víða
fá ýmiss konar plastbox með
góðum lokum, sérstaklega ætluð
undir frystan mat. Einnig hafa
víða fengist pappakassar undir
frystan mat.
Auk þess að frysta berin heil
er ljómandi að setja þau í kvörn
ásamt svolitlu af sykri, hakka
þau og frysta blámerjamaukið.
Þannig tekur það mjög lítið
pláss. Það er nokkuð hæfilegt að
frysta maukið í um 2lA dl
umbúðum. Það nægir t.d. í flesta
eftirrétti handa fjórum. Ef þið
eruð með smábörn á ykkar
snærum, þ.e. innan við og rétt
yfir 1 árs, er skynsamlegt að
frysta ósykrað bláberjamauk í
ísmolabökkum, losa svo molana i
poka og gæða smáfólkinu á í
vetur. Berin eru auðug af c
vítamíni, svo eitthvað sé nefnt.
Þið getið t.d. hrært þíddu mauk-
inu saman við svolítið af súr-
mjólk, mjólk eða kotasælu og
gefið þeim. Það verður örugg-
lega vinsæll matur ...
Hér á eftir fer listi yfir þá
rétti, sem hægt er að nota fryst,
heil ber í:
í mjólkurmat. það þarf víst
varla að taka það fram að berin
eru frábær í skál með rjóma eða
rjómablandi. En þeyttur rjómi
ásamt súrmjólk eða sýrðum
rjóma er einnig fyrirtak með
bláberjum. Þá er hæfilegt að
nota um 2 dl af súrmjólk eða
Bláber
sýrðum rjóma í 1 pela af þeytt-
um rjóma. Skyrkrem, eins og ég
hef áður verið með uppskrift að,
er frábært með nýjum eða fryst-
um berjum. í það er notað
50—100 gr. af óhrærðu pakka-
skyri, peli af þeyttum rjóma,
1—2 dósir af sýrðum rjóma og
hunang eða sykur eftir smekk.
Kremið er látið standa í kæli í 1
klst. eða lengur, þá stífnar það.
Þið getið blandað berjunum
strax í kremið eða látið berin
ofan á, hvort sem þið viljið.
í pæa og tertur. Pæaskel fyllt
með bláberjum, borin fram með
þeyttum rjóma er herra-
mannsmatur. Einnig getið þið
blandað berjunum í rjómann og
borið þannig fram. Skyrkrem er
hér einnig tilvalið með, eða í
pæaskelina. Varla þarf að minna
á rjómatertur með bláberjum og
rjóma. Einnig hér er skyrkremið
fyrirtak.
í pönnukökur. Volgar eða
kældar pönnukökur fylltar með
bláberjum, bornar fram með
rjóma, eða rjómanum blandað í
berin, er glæsilegur eftirréttur,
eða með kaffi. Norðmenn hafa
þann háttinn á að blanda berjum
í venjulegt pönnukökudeig, sem
er þá heldur þykkara en venju-
lega. Síðan baka þeir pönnukök-
ur rétt eins og venjulega, strá
sykri á þær, stafla þeim upp og
skera í gegnum staflann eins og
kökur. Þeyttur rjómi Sómir sér
vel með.
Með ís. Það er varla hægt að
komast lengra í eftirréttalist-
inni en að búa til vanillurjómaís
og bera hann fram hæfilega
mjúkan með bláberjum. Ef þið
viljið gera frekari kúnstir eða
breyta til, eru berin afar góð heit
með ísnum. Frakkar eldsjóða
gjarnan ýmis ber og ávexti. Þá
er bræddur sykur á pönnu, vatni
bætt í og búið til þykkt síróp.
Berin eru sett þar í, hituð og
sterku áfengi bætt í. Það er látið
hitna örstutta stund og síðan er
eldur borinn að. Þá kviknar í
vínandanum, og blár logi stend-
ur upp af pönnunni. Þetta er
auðvitað tilkomumikil sjón,
enda ekki óalgengt að veitinga-
hús geri mikið úr þessu sjón-
arspili, sem á nú kannski ekki
mikið skylt við eldamennsku. En
heit ber með víni eru góð með ís,
það er víst áreiðanlegt...
í ís. Heil ber í rjómaís er
góður og þægilegur eftirréttur.
Það gildir auðvitað eins og með
annan ís að það þarf að láta
hann jafna sig í kæliskápnum,
gæta þess að bera hann ekki
fram stokkfreðinn. Góður ís loð-
ir saman, en er mjúkur. Það er
betra að hann sé farinn að
renna, en að hann sé of harður.
í eggjakökur. Frakkar eru
þekktir fyrir eggjakökur. Þær
geta einnig verið sætar og þá
hafðar í eftirrétti, með berjum
og ávöxtum, stundum með víni
sem er ýmist í þeim eða að því er
hellt yfir og jafnvel kveikt í, eins
og nefnt var að ofan með berin.
Svona eggjakökur borgar sig
varla að búa til handa fleiri en
fjórum, og þá tvær kökur sem
hvor er tveggja manna skammt-
ur. I hvora kökuna þeytið þið þá
um 2 rauður ásamt um 50 gr af
sykri, og bætið hvítunum stíf-
þeyttum í. Hellið þessu í heita
pönnu með nógu af smjöri og
látið bakast á hægum hita í 6—7
mín., gjarnan undir loki. Stráið
síðan berjum yfir og reynið að
brjóta kökuna saman. Eg skal
ekki lofa ykkur að það takist í
fyrsta skipti. Mér gengur þetta
ekki of vel. Rennið kökunni á fat,
eða skammtið á tvo diska og
berið kökuna fram, e.t.v. með
viðbótarskammti af berjum.
Bláborjamauk
Ég nefndi áðan að það væri
tilvalið að setja berin í kvörn og
geyma þannig í frysti, og að
maukið væri tilvalið sem barna-
matur. En það er ekki síðra fyrir
þá sem eru eldri.
Með eða í ís. Rétt eins og heil
ber er maukið tilvalið heitt eða
kalt með heimalöguðum rjómaís.
Einnig er það frábært í ís.
Sorbet, vatnsís eða ísfroða, úr
bláberjum er léttur og ljúffeng-
ur eftirréttur. Þið bætið þá
maukinu saman við soðið syk-
urvatn, frystið þetta saman,
hrærið í á meðan það er að
frjósa og berið svo fram þeytt.
Stundum er sett mjólk saman
við. Einnig þeytt eggjahvíta. Þið
getið notað hvaða ísfroðuupp-
skrift sem er, og notað bláber í
staðinn fyrir það sem nefnt er í
uppskriftinni.
Soufflé. Þetta er fisléttur
búðingur og í hann er t.d.
tilvalið að nota bláber. í 2'k dl af
berjamauki er hæfilegt að nota
um 4 hvítur. Þið getið notað 3,
en þá verður búðingurinn heldur
þungur, en 5 gera hann léttari.
Stífþeytið hvíturnar. Gætið þess
að engin fita komist i þær,
hvorki úr ílátum né af áhöldum,
né úr rauðunum. Þeytið þær
fyrst eintómar en bætið síðan
sykri í, 20 gr á hverja hvítu, en
25 gr ef berin eru alveg ósæt.
Hvíturnar mega ekki bíða, þegar
búið er að þeyta þær. Bætið
maukinu saman við. Bezt er að
nota sleikju. Hrærið ekki meira í
en svo, að enn séu hvítuhnoðrar í
blöndunni, því þá lyftir hún sér
betur. Þetta á almennt við þegar
stífþeyttum hvítum er blandað í
deig, sem á að bakast. Hellið
deiginu í vel smurða skál eða
form, sem þið getið borið búð-
inginn fram í. Látið hann bakast
við 200° í um 20 mín, eða þar til
hann hefur lyft sér vel og er
brúnn að ofan. Berið hann strax
fram. Hann má alls ekki bíða
utan ofnsins því þá fellur hann.
Berið ískaldan léttþeyttan
rjóma fram með búðingnum, eða
mjúkan rjómaís.
Þið sjáið að margt má gera
gott úr bláberjum, auk þess sem
ykkur dettur sjálfúm í hug.
Flestar uppskriftir fyrir önnur
ber en bláber má einnig nota
með góðum árangri fyrir bláber.
Það er þá helzt sykurmagnið
sem e.t.v. þarf að breyta, en
bragðlaukarnir segja ykkur til
um það ...
Sulta
Það er gömul og góð aðferð að
sulta bláber. Það þarf um 4 dl af
sykri á hvern lítra. Hér fylgir
ekki uppskrift, enda eru þær
víða til. En munið að gæta
fyllsta hreinlætis, rétt eins og
endranær í eldhúsinu, því ann-
ars geymist sultan illa. Því meiri
sykur sem er í sultunni því betur
geymist hún. Og því kaldara sem
er í kringum hana þv: betur
géymist hún.
EIGUM TIL STORGLÆSILEGT EINTAKAF
Oadge
2jadyra, árgerð 1981
Perluhvítur með hvítt vinyl þak. Rauð leðurklæðning að innan
og há sætisbök. Vélin er 8cyl. -318 cub., sjálfskiptur,
stokkur á milli sæta, vökva- og veltistýri, aflhemlar, Electronisk Digital klukka.
Sjálfvirkur hraðastillir (Automatic Speed Control). Rafmagns- sæti,
rúður, dyraiæsingar og skottlæsing. Krómaðar felgur.
ðl/ökull hff.
Ármúla 36 Sími: 84366
Til sölu
eru 2 raðhús að Saebóli 37 og 39, Grundarfirði. Húain eru 173
fm hvort meö bílskúr. Húsin eru með fullfrágengnu þaki gleri
í gluggum, lausafögum og útihurðum. Söluverö 275 þús.
Utborgun á 6—8 mán. 105 þús.
Nánari upplýsingar í síma 93-8808 og á kvöldin 93-8678.
Músikleikfimin
Hefst fimmtudaginn 17. september.
Styrkjandi og liðkandi æfingar fyrir konur
á öllum aldri. Byrjenda og framhaldstímar.
Tímar í húsi Jóns Þorsteinssonar, Lindar-
götu 7. Kennari Gígja Hermannsdóttir.
Upplýsingar og innritun í síma 13022, um
helgina.