Morgunblaðið - 06.09.1981, Page 21
I
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1981
69
Skref
framávið
Það verður að sexjast að Bob Dylan er loksins farinn að fikra sig
áfram eftir tvö skref aftur á bak (Slow Train Coming og Saved). Þó er
enn þó nokkuð i land, ef hann ætlar að ná gæðum bestu platnanna,
eins og „Blood on The Tracks“, „John Wesley Harding", „Freewheel-
in'“, „Street Legal", „Blonde on BIonde“ o.s.frv. „Gospel“-hljómurinn
er enn sterkur, enda orgel og svartar söngpíur mikið notaðar í
kallkórum.
Fyrsta lagið, titillagið, byrjar
einmitt þannig. En í öðru laginu,
„Heart of Mine“, rennir Dylan sér
yfir í „New Morning“-stílinn en
lagið vinnur mjög á með aukinni
spilun.
Dylan svarar þeim sem gagn-
rýndu hann fyrir „endurfæðing-
una“ með beinskeyttum texta líkt
og í gamla daga í laginu „Property
of Jesus“ sem er nokkuð gott.
„Lenny Bruce“ heitir ballaða um
háðfuglinn Lenny Bruce, sem
Dustin Hoffman lék um árið.
Lagið er ljúft og þægilegt en
verður varla eitt af hans klassísku
lögum.
„Watered-Down Love“ er með
þungum Dylan-takti og vinnur á.
„Deadman, Deadman" er með
svipuðum takti og „Hurricane".
Nokkur reggae-keimur er af lag-
inu, sem er eitt hið líflegasta á
plötunni. Dylan vekur upp gamlar
minningar þegar hann byrjar með
munnhörpuleik lagið „In The
Summertime". Hann syngur lagið
í sínum gamla góða „nefstíflustíl"
og undirleikurinn er sparlegur.
Kassagítarinn, munnharpan og
söngur Dylans í þessu lagi væri
nóg ástæða til að fá sér þessa
plötu!
„Trouble" er „rafmagnsblús"
eins og Dylan hefur oft gert vel og
gerir hér líka, en lokalagið er samt
betra.
„Every Grain of Sand“ er í
þessum gamla góða sögustíl Dyl-
ans með sparlegu en smekklegu
undirspili.
„Shot of Love“ er skrefi framar
en „Slow Train Coming" og
„Saved". Jim Keltner og Tim
Drummond eru enn til staðar,
tveir frábærir hljóðfæraleikarar.
Söngkonurnar fjórar, Clydie King,
Regina McCrary, Carolyn Dennis
og Madelyn Quebec standa fyrir
sínu, en það eru þær fyrst og
fremst sem skapa anda plötunnar.
Aðrir hljóðfæraleikarar eru Ben-
mont Tench (Tom Petty & The
Heartbreakers) á orgel, Steve
Ripley (gtr), Fred Tackett (gtr),
Steve Douglas (sxs), Carl Pick-
hardt (pnó), Danny Kortchmar
(gtr), William Smith (orgel),
Ringo Starr (trm), Duck Dunn
(bs) og Ronnie Wood (gtr).
Ástarsöngvar
Cliff Richard
„Love Songs“ fyrsta sætis
breiðskífa Cliff Richards, hefur
verið gefin út hérlendis af Fálkan-
um.
Eins og nafnið bendir til eru
þetta Ijúfustu lög Cliffs, eins og
„Carrie“, „12th Of Never“, „The
Next Time“, „We Don't Talk Any-
more", „When The Girl In Your
Arms Is Thc Girl In Your Ileart".
„Constantly", „Visions" og „Thc
Minute You’re Gone“ sem eru bara
8 af 20 lögum á plötunni sem
geymir Ijúfustu lögin hans frá „A
Voice In The Wilderncss" sem kom
út í janúar 1900 til „A Little In
Love“ sem kom út í nóvembcr 1980.
Þess má geta að ný lítil og ný stór
plata eru væntanlegar frá Cliff á
næstu vikum sem heita báðar
„Wired For Sound“:
Fálkinn hcfur lika gcfið út fyrstu
plötu „Duran Duran“ sem hefur
verið í cfstu sætum breska listans
síðustu vikur.
Innan tíðar er svo nýjasta plata
Rolling Stones, „Tattoo You“, vænt-
anleg.
„Bestu kveðjur”
„Bestu kveðjur" með Leo Sayer er nokkuð sérstök plata að því leyti til,
að ísland er eina landið þar sem þessi plata er opinberlega gefin út.
„Bestu kveðjur" inniheldur 24 vinsælustu lög Sayers á tveim plötum, í
einu albúmi.
Ferill Leo Sayers á vinsældalistunum hófst með „The Show Must Go
On“ í desember 1973. Næsta lag sem gerði lukku var lagið „One Man
Band“ sem náði 6. sæti í Bretlandi í júlí 1974 og síðar sama ár kom
„Long Tall Glasses", og Roger Daltrey gerði annað lag eftir hann
vinsælt, „Giving It All Away“, sem Leo tók upp ’74. „Moonlightin’" kom
síðan 1975. 1976 kom „You Make Me Feel Like Dancing" sem náði
toppnum í Ameríku, en öðru sæti í Bretlandi.
1977 slógu lögin „When I Need You“ (1. sæti bæði í Ameríku og
Bretlandi), „How Much Love“ og „Thunder in My Heart“ í gegn. 1978
kom „Raining in My Heart“, 1979 „Train“ og 1980 „More Than I Can
Say“. Auk allra þessara laga eru lög sem slógu ekki í gegn en eru sum
engu að síður í sama gæðaflokki.
Tónlist Leo Sayers er þægileg poppmúsík eins og hún gerist hvað best og
mörg laga hans perlur.
Jakob spilar
með Þursunum
Jakob Magnússon er staddur á
landinu þessa dagana ásamt hljóm-
borðsleikara að nafni Alan Howarth.
Munu þeir vera á leið til Evrópu
að spila, en dvelja hér í tvær vikur
og spila a.m.k. á þrennum hljómleik-
um ásamt Þursunum. Á hljómleik-
um þessum kemur Bubbi Morthens
fram ásamt þeim Jakobi og Alan og
flytja þeir efni eftir Bubba, við
undirleik tveggja hljómborða og
kassagítars sem Bubbi leikur á, og ef
til vill mun Tómas Tómasson leika á
bassa og hljómborð. Jakob mun
einnig taka upp nýja hljómborðs-
plötu hér og verða allir textar á
henni sungnir í gegn um „Vocoder".
Svipmyndir úr Skemmunni á Akureyri
Það hefur sárasjaldan gerst að vtöhöfum verið með myndir utan af landi í Slagbrandi, en hér eru þó þrjár skemmtilegar
sem teknar voru á hljómleikum í íþróttaskemmunni á Akureyri fyrir nokkru. Eru myndirnar af þrem af framsæknari
hljómsveitunum í dag, Þursunum, Þey og Bara Flokknum.