Morgunblaðið - 06.09.1981, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1981
71
Fylgist þiö ekki meö eða hvað ...
+ Þið fylgist lítið með, ef þið vitið ekki að þetta er tíska unga fólksins. Leðurjakkar
þéttsetnir alls konar merkjum, stutt hár sem stendur strítt út í loftið eða jafnvel
krúnurakaðir kollar. Það hjálpar líka upp á sakinar að vera með nælu í eyranu og
hundahálsband um hálsinn.
Erlendur Einarsson forstjóri SlS o» Ingveldur Hjaltested óperusöng-
kona taka hér lagió saman.
Óvenjulegur
dúett
+ Á árshátið Félags starfsmanna
SamvinnutryKginga or Andvöku í
vetur vakti harla óvenjulegur dú-
ett mikla athygli en það voru þau
Erlendur Einarsson forstjóri SÍS
ok InKveldur Hjaltested óperu-
söngkona. sem skipuðu þennan
dúett.
Voru þau klöppuð upp ok þurftu
að taka aukalag enda bæði hinir
ágætustu söngvarar. Þessi mynd.
var í blaðinu Hlyn sem er blað
samvinnustarfsmanna.
ffclk í
fréttum
Blómadrottningin
er Hvergerðingur
í húð og hár
Hveragerði. 4. september.
+ Árlegt blómaball i HveraKerði var haldið síðastliðinn laugardag að
Hótel Hveragerði. Á miðnætti var blómadrottninK kjörin og varð Ásta
Björg Ásgeirsdóttir hlutskörpust en átta stúlkur kepptu um þennan
titil. Jenny Wium, sem varð blómadrottning í fyrrasumar, krýndi
Ástu Björgu.
Ásta Björg er Hvergerðingur í húð og hár. Hún vinnur i
versluninni Blómaborg en hyggst stunda nám á viðskiptasviöi i
Fjölbrautaskólanum á Selfossi i vetur.
Ásta Björg segir aðaláhugamál sin vera iþróttir, sérstaklega sund,
og hefur hún náð góðum árangri i þvi.
Það var Knattspyrnudeild Ungmennafélags Hveragerðis og Ölfus
sem hélt ballið og voru um f jögurhundruð samkomugestir.
Hótel Hveragerði var sérstaklega skemmtilega skreytt með blómum
fyrir dansleikinn en því miður var mikil ölvun á hallinu og þvi litill
menningarbragur yfir samkomunni. — Sigrún.
Blómadrottning þeirra Hvergerðinga, Ásta Björg Ásgeirsdóttir.
„Ástin rekur mig áfram“
Rætt við Gunnar Ingiberg Guðjónsson, sem sýnir málverk sin í Menningarstofnun Bandaríkjanna
+ „Ér lifi af því að mála en á vorin fer éj; á sjóinn, til
þess að halda andlegu or líkamlegu þreki,“ sagði
Gunnar Inj;iberj;ur Guðjónsson, sem sýnir vatnslita-
myndir sínar í boði Menninj;arstofnunar Bandaríkj-
anna. „Hér er um að ræða 40 verk eða 1 verk fyrir
hvert ár, sem éj; hef lifað, því ég verð fertuj;ur
lauj;ardaj;inn 5. september, daj;inn sem sýninj;in
opnar,“ saj;ði Gunnar Inj;iberj;ur ennfremur.
„Það var vinur minn Tomas
Martin, sem er forstöðumaður
Menningarstofnunarinnar, sem
bauð mér að sýna hér. Ég er afar
glaður yfir þessu boði og er það
mér mikil uppörvun.
Myndirnar mínar eru „fígura-
tívar“ og hef ég gaman að því að
mála mannamyndir. Ég mála
ekki „abstract" verk því það er
mér ekki eðlilegt.
Ég hef aðallega orðið fyrir
áhrifum frá Picasso og Jóhann-
esi Geir, annars aðhyllist ég
enga isma og er hálfgert nátt-
úrubarn," sagði Gunnar Ingi-
bergur.
„Ég hef alltaf verið heppinn að
eiga peninga þannig að ég hef
getað haldið mig við listina. Ég
hef líka átt ríka velgjörðarmenn,
sem hafa hjálpað upp á sakirnar.
Áhugi minn á málaralist byrj-
aði, sem hrifning á myndabók-
um. Ég á ekki langt myndlist-
arnám að baki. Ég var þó um
tíma í Barcelona á Spáni og
lærði þar teikningu. Ég fæst þó
ekki eingöngu við að vinna með
liti heldur vinn ég líka myndir í
mosaik og tré, því ég hef gaman
að því að vinna með mismunandi
efni.
+ Til hagri er listamaðurinn Gunnar Ingibergur Guðjónsson og
virðir hann hér fyrir sér eina af myndum sinum ásamt
forstöðumanni Menningarstofnunar Bandaríkjanna, Tomas Mart-
in.
Ég hef haldið 7 einkasýningar
og hefur ein og ein mynd sloppið
inn á samsýningar hjá FIM.
Fólk pantar líka hjá mér verk,
til dæmis af gæðingum eða
ákveðnum fjöllum, en ég er
óskaplega slappur að vinna
myndir eftir pöntun."
Þetta samtal við Gunnar Ingi-
berg fór fram á blaðamanna-
fundi, sem haldinn var á svölum
Menningarstofnunar Bandaríkj-
anna og var veðrið afar gott og
fallegt útsýnið.
„Ég tel að ísland sé besti
staður í heimi fyrir málara, það
gerir birtan sem er móðir lit-
anna. Ég hef ferðast töluvert,
allt frá Grænlandi til Spánar og
hvergi hefur mér þótt eins
skemmtilegt að mála og hér.
Annars er það ástin sem rekur
mig áfram bæði í daglega lífinu
og í list minni, sagði Gunnar
Ingibergur.