Morgunblaðið - 06.09.1981, Side 28

Morgunblaðið - 06.09.1981, Side 28
76 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1981 mnsm ‘ti 3 JAFNVEL É6 6ET MÁLAÐ BETUR EKl pETTA " love 7S... ... having someone to carry you over the gravel. TM Reg. U.S. Pat. Otf — all rlghts reserved ® 1979 Los Angeles Times Syndicate VT?« 6! Láttu vin minn sjá reikninKÍnn á meAan éfí fer í simann. Með morgunkaffinu StaÓa mín? EÍKÍnkona. móóir, þvottakona, fóstra. saumakona o>í kjaftavél! HÖGNI HREKKVÍSI © 1981 McNaught Synd . Inc V£#ru veyw.. &? Ajn/J 4 HÖF-D/A/t/.. " Gefið okkur góða mjólk Hjörtur Jónsson Þegar Reykvíkingar neituðu loksins að kaupa og drekka mjólkina og rjómann, þá var farið að athuga hvað að væri. Þá kom í ljós að smágöt voru á vélum Mjólkursamsölunnar, göt sem varla var hægt að finna, en fundust þó, segja fróðir menn. í ljós kom að mjólkin var orðin æði gömul, þegar hún kom frá bænd- um, og í ljós kom að ýmislegt fleira mætti betur fara í meðferð hennar. Þessi umræða dró einnig fram að fóður og lyfjagjöf kæmi þessu máli við, og sauðsvartur höfuðstaðarbúinn vissi ekki sitt rjúkandi ráð. Mjólkurfræðingar glaðvöknuðu og sögðu sitt álit, allir voru á þeirri skoðun að mjólkin ætti að vera sem ferskust, feitust og bezt. Þetta höfðu þeir auðvitað alltaf sagt, en án þess að öllum þætti þeirra predikun sjálfsögð til eftir- breytni. Nú kom þeim kærkomið tækifæri, að árétta sínar skoðanir, og sín áhrif á mjólkurframleiðsl- una, og bíða menn þess nú í ofvæni hvort þeir verða svæfðir á ný með nefndum og tilheyrandi masi, og hvort raunverulega hafi tekist að gera við götin. Hvað sem öllu þessu líður þá er nú mjólkuröldurnar að lægja, mjólkurstimplarnir eru nú settir nær sanni, og súra mjólkin er fágætari. Allt er þetta gott og blessað, svo langt sem það nær. En hvað um blessaða mjólkina sjálfa? Er hún betri en áður? Er rjóminn jafnbetri en áður? Er skyrið gott? Er smjörið gæðasmjör? Hinum pennaglaða Agnari, sem stuggar ágangsfé úr túnum bænda, kann að finnast þessar spurningar rætnar og árásar- kenndar, en nú skal ég segja honum og ykkur hinum hvers- vegna ég spyr. bíl í töfralandið Mývatnssveit. Við fengum okkur skyr og rjóma á Akureyri, og þetta var nú meira skyrið. Það var betra en fékkst í Reykjavík, miklu betra. Okkur fannst öllum að skyrið væri betra, og vorum við þó ekki komin til Akureyrar til þess að gera saman- burð á skyri þar og í Reykjavík. Svo ókum við í hina fögru Mývatnssveit. Þar var sól og hiti, fegurð, gróður og ferðalangar. Reykjarstrókarnir stóðu beint upp í loftið úr gufuflaginu fræga, vatnið speglaði Vindbelg og þeir fuglar, sem minkarnir og nælon- netin höfðu ekki ennþá kálað, syntu bjálfalega óhræddir hér og þar. Og enn gerðust menn svangir og þyrstir. En við Mývatn hafa menn búið sig undir gestakomur, þar fæst matur og greiði af öllu tagi. Við fórum á einn veitingastaðinn og fengum okkur mjólk og kökur. Kökurnar voru nú þessar hefð- bundnu sortir. Kökur breytast ekki á íslandi, nema þá helst rjómatertur. Vínarbrauð hafa lík- lega ekkert breyst í heila öld, eru kannske dálítið verri. Verðlagseft- irlits-bragðið þykir engum gott. En nýmjólkin, sem okkur var borin. Hún var stórkostleg. Við litum hvort á annað. Fannst þú þetta líka? stóð í spyrjandi augun- um. Já við fundum þetta öll, og við sáum þetta öll. Við helltum aftur úr könnunni í glösin. Mjólkin var vel kæld, feit og dásamlega bragð- góð. Þeir sem alist höfðu upp í sveit flugu á andartaki til baka. Mundu nú skýrt eftir því, þegar móðir þeirra gaf þeim mjólk að drekka. Sú mjólk hafði verið kæld í búrinu, nærri gluggalausu búri með metersþykkum moldarveggj- um. Þetta var sama bragðið. Við spurðum stúlkuna: „Setjið þið rjóma saman við nýmjólkina"? Afgreiðslustúlkan leit á okkur dálítið undrandi á svipinn og svaraði: „Nei, þessi mjólk er frá Húsavík." Að fríinu loknu tókum við flugvélina til baka frá Akureyri. Um verzlunarmannahelgina brá ég mér norður í land. Við flugum til Akureyrar, og ætluðum þaðan í Þessir hringdu . . . Benzínhækkun - fer mestallt í ríkishítina Ökumaður hringdi og gerði síð- ustu benzínhækkun að umtalsefni. „Ég get ekki annað sagt að benzin hafi verið nógu dýrt fyrir þó þessi hækkun kæmi ekki til“, sagði hann. „Hefði nú ekki verið hægt að láta þessa hækkun niður falla og ríkið hefði fellt niður eitthvað af þeim sköttum og skattasköttum sem það leggur á benzín. Það hefur verið sýnt framá, bæði af FÍB og fjölmörgum öðrum aðilum, að ríkishítin fær miklu meiri fjárhæðir af benzínsölunni en notaðar eru til vegagerðar og vegabóta. En svona er það með alla skatta — þegar þeir eru einu sinni komnir á er eins og við fj ... sjálfan að eiga að fá þeim aflétt. Það er heldur engin furða þó ríkisbáknið þurfi á töluverðum peningum að halda til að halda uppi þeim kauðum sem þar hafa raðað sér á jötuna óg gera svo sem ekki neitt. En í þessu tilfelli kemur það sér illa. Allir geta að minnsta kosti verið sammála um að íslenzka vegakerfið er ekki merkilegra en svo að það má ekki við að þær fjárhæðir sem greiddar eru til að bæta það renni í annað. Mér finnst að ef okrað er svona á benzíni ætti það að minnsta kosti að verða til þess, að við fengjum hér almenni- lega vegi og eyðilegðum ekki bílana á því að skreppa smá spöl út á land. Ég veit að þetta kvabb mitt hefur ekki mikla þýðingu — en vonandi verður það þó til að ýta við mönnum, að gegn ófremdar- ástandi þessu verði skorin upp herör af þeim sem vitleysan bitn- ar á og ríkinu líðist ekki endalaust að seilast í vasa þeirra sem aka bílum, til þess að fita kúluvamba sína. Fékk borgar- stjórn flugu í höfuðið Vegfarandi hafði samband og gerði gangstéttina við Hverfis- götu, Arnarhólsmegin, að um- talsefni. „Ég á þarna leið um nær daglega og skil ekki hvers vegna borgaryfirvöld láta ekki gera við hana“, sagði hann. „Það skiidi þó aldrei vera að þeir hafi sett þá peninga sem áttu að fara í viðhald gangstétta í taflómynd- ina við Lækjargötu, sem varð þegar upp var staðið þrefalt dýrari en sérfræðingarnir höfðu áætlað í upphafi. Svo skilst manni að borgaryf- irvöld hafi mörg þýðingarmeiri verkefni á prjónunum en gang- stéttarlagningar eða strætis- vagnabiðskýli, sem svo mikið hefur verið skrifað um í Velvak- anda að undanförnu. Mér er sagt að það eigi að fara að setja bryggur á tjörnina — til hvers veit ég ekki enda er ég ekki sérfræðingur. En mig langar til að bera fram þessar fyrirspurnir varðandi þessar fyrirhuguðu bryggjur. Hvaða skip eiga að liggja við þær? Fyrir hvern eru þær? og síðast en ekki síst: Hver í ósköpunum fékk þá flugu í höfuðuð að byggja bryggjur við Reykjavíkurtjörn?"

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.