Morgunblaðið - 06.09.1981, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1981
78
Fundur Norræna myndlistarsambandsins í Reykjavík:
Ákveðið að heimila Söm-
um að ganga í sambandið
FUNDI Norræna myndlistar-
handalatfsins (Nordiska kostför-
bundet) lauk í Reykjavik á föstu-
dag en fundarhald hafði þá stað-
ið síðan á þriðjudatf. Fundinn
sátu um 30 manns. Mörg mál
voru tekin fyrir að þessu sinni.
Eitt af stærstu málunum sem
kom tii umræðu var umsókn
Sama um inntöku i Myndlistar-
bandaiafdð og varð niðurstaðan
sú að látið var að ósk þeirra og
þeim boðið að gerast þátttakend-
ur. beir verða þó ekki fullgildir
meðlimir fyrr en eftir eitt ár því
lítilsháttar lagabreytingar þarf
að gera svo þeir geti gengið i
bandalagið. Hingað til hefur
þátttaka verið bundin við Norð-
urlöndin fimm.
Norræna myndlistarbandalagið
er sjálfstæð stofnun sem rekin er
með framlagi frá Norræna menn-
ingarsjóðnum. Það var stofnað
1945 og snýr starfssvið þess ein-
vörðungu að myndlist — það
lætur til sín taka jöfnum höndum
myndlistarstarfsemi og skilyrði
myndlistar í aðildarlöndunum. Al-
mennt séð er aðaltilgangurinn
með starfsemi Myndlistarbanda-
lagsins að efla norræna samvinnu
á sviði myndlistar.
Myndlistarbandalagið saman-
stendur af fimm deildum sem eru
á íslandi, í Noregi, Svíþjóð, Finn-
landi og Danmörku. Skrifstofur
bandalagsins eru nú sem stendur í
Helsingfors.
Á hinum árlega fundi banda-
BÓKAHÚSID
laugavegi 178,5.86780.
Frá Akureyri.
„Drottningarbrautin“ malbikuð
Um síðustu helgi lauk malbik-
un þess hluta „Drottningar-
brautarinnar" á Akureyri, sem
liggur frá Höefnersbryggju að
Torfunesbryggju, en þar teng-
ist hún Skipagötu. Þá er að-
eins eftir að fullgera þann
hluta þjóðvegarins í gegnum
bæinn, sem liggur frá Torfu-
nesbryggjunni að Glerárgötu,
en til stóð að leggja þann
vegarspotta yfir Torfunes-
bryggjuna, en endanleg
ákvörðun um það hefur enn
ekki verið tekin.
Ljósmynd Snorri Snorrason.
lagsins er starfsemi þess næstu
tvö árin skipulögð. Að þessu sinni
voru boðaðir, auk formanns og
fulltrúa hinna fimm deilda, fjórir
áheyrnarfulltrúar frá Færeyjum,
Grænlandi, Samahéruðunum og
Álandi, tii þess að hægt væri að
kanna ýmsa hugsanlega kosti til
samvinnu. Auk þess sóttu fundinn
fulltrúar hagsmunasamtaka nor-
rænna myndlistarmanna (Nord-
fag).
mmmsemmmmmsmmemx
■
SKÓUWÖRUR
altt tít skólans !
Um nokkurt skeið hefur aðal-
verkefni Norræna myndlistarsam-
bandsins verið að sjá um norræn-
ar farandsýningar, en þetta verk-
efni er nú komið í hendur Nordisk
Kunstcentrum sem starfar í Svea-
borg í Finnlandi. Er það stofnun
sem Myndlistarbandalagið vann
að ásamt fleiri aðilum að komið
yrði á fót. Af helztu verkefnum
sem ákveðið var á fundinum að
starfað yrði að, í náinni framtíð á
vegum bandalagsins, má nefna
skipulagningu ráðstefnu er bera
mun heitið „Myndlist — sjón-
varp“, rætt var um skráningu
listrænna kvikmynda, myndlistar-
bóka og á segulbandsupptökum
með viðtölum við listamenn, og
skipulega litskyggnuraðagerð af
verkum myndlistarmanna.
Formenn deilda Norræna myndlistarbandalagsins ásamt áheyrnar-
fulltrúunum sem sátu fundinn. Á myndinni eru í efstu röð f.v. Seppo
Mattinen. Danmörku, Emil Rosing, Grænlandi, Guy Frisk, Álandi. Þá
Stig Fredriksson, Finnlandi, Sigrún Guðjónsdóttir, formaður íslands-
deildar Norræna myndlistarbandalagsins. Bárður Jakupsson, Finn-
landi, Thorstein Rittun. Noregi, Matti Nurmi, Svíþjóð, Synnöve
Persen, áheyrnarfulltrúi Sama. Fremst stendur Bodil Kaalund,
Danmörku, en hún er formaður Norræna myndlistarsambandsins.
Ljósm. Gudjón.
Sumarauki • Vellíðan • Anæqja • Skemmtun • Hvíld • Leikur
Borg sem býöur eítthvaö fyrir alla
Snögg ferð föstudag 18. sept. til mánudags 21. sept.
Sér ferð á sérverði. Einstakt tækifæri fyrir einstaklinga félags- og
starfshópa. Hafið samband strax. Við skipuleggjum ánægjudaga
algjörlega að yðar óskum. — Mjög hagstætt verð.
Beint 2 tíma flug — Brottför Kefiavík: 08.00 föstudag — Brottför Edinborg: 16.00 mánudag
Verslanir opnar: Allan föstud., laugard., 9.00—17.30. Mánud.: iokaö Edinborg en opiö í Glasgow
Sýning: Scottish Motor Show — Glasgow — Knattspyrna: laugard.: Rangers/Celtic
Golfunnendur. Sér ferö sömu daga, Afbragös hótel og golfvellir.
ÞAÐ BESTA ER ÁVALLT ÓDÝRAST URVAL Aus.urvöí.». 269oo