Alþýðublaðið - 08.09.1920, Side 2
s
ALÞYÐUBLAÐIÐ
blaðsins er í Aiþýðuhúsinu við
Ifigólfsstræti og Hverfisgötu.
Síml 988.
Auglýsingum sé skilað þangað
-aða í Gutenberg í síðasta lagi kl.
30, þann dag, sem þær eiga að
koma í blaðið.
€rlenð siœskeytl
Khöfn, 7. sept.
örumlvallaiiögin samþykt.
Grundvallarlögin voru samþykt
með 613,471 atkvæði gegn 19,490
atkvæðum- Blaðið Politiken full-
yrðir að verkalýðurinn hafi svo
að segja alls ekki tekið þátt f at-
kvæðagreiðslunni.
Sjálfsmorð.
Tveir nýskipaðir suður-józkir
póstmeistarar hafa framið sjálfs-
morð. Orsök ókunn.
JÆerk frep.
Brezku verklýðsfélögin hafa
myndað yíirforráðanefnd (gene-
ralstab) fyrir brezka iðnaðinn.
Skeyti frá Khöfn segir þessa
merku fregn, sem vel má skoða
eins og fyrsta skrefið til mynd-
unar verklýðs-veldis (bolsivíka-rík-
is) í Bretlandi.
Pólverjar og Lit-
háar í stríð?
Khöfn, 7. sept.
Frá Berlín er símað, að Pól-
verjar hafi sent Litháum síðustu
sáttaboð og boðið þeim að verða
burtu úr landahlutum, er þeir sitja
í nú, er æðsta ráð bandamanna
hafi úthlutað Pólverjum, en Lithá-
ar neita boðum þessum, en bjóða
að samninga sé leitað.
0m daginn 09 Tegim,
Kveikja ber á hjólreiða- og
bifreiðaljóskerum eigi síðar en kl.
8 í kvöld.
Bíóin. Gamla Bio sýnir: .Dótt-
ir Jafeths". Nýja Biosýnir: „Pen-
ingar herra Árna“, eftir sögu Selmu
Lagerlöf.
Veðrið í morgnn.
Vestm.eyjar . . . SA, hiti 7.9-
Reykjavfk . . . . A, hiti 7,i-
ísafjörður .... logn, hiti 7,3-
Akureyri .... logn, hiti 7,o.
Grfmsstaðir . . . SA, hiti 6,0.
Seyðisfjörður . . logn, hiti 5.2.
Þórsh., Færeyjar logn, hiti 9.3.
Stóru stafirnir merkja áttina.
Loftvægislægð fyrir suðvestan
land; Ioftvog fallandi. Utlit fyrir
norðlæga átt á Norðvesturlandi,
suðaustlæga annarsstaðar.
Sagt er, að eitthvað af íslenzku
togurunum komist ekki burt frá
Englandi, aðallega vegna þess, að
þeir fái ekki kol til heimferðarinn-
ar. Vilja kolakaupmenn ekki láta
kolin, ef til verkfalls skyldi koma.
Þrír togarar sem komu af síldveið-
um, fara ekki á fiskiveiðar fyrst
um sinn, þeir hafa verið bundnir
út við garð.
Knattspyrnan í gærkvöldi fór
svo, að leikurinn varð jafn, x : i
bæði í síðari hálfleik. Er óhætt
að þakka markverði Vestmanna-
eyinga það, að ekki urðu fleiri
mörk hjá þeim. Hann sýndi í fyrsta
skifti í gær, að hann er ágætt
markvarðarefni. Víkingar voru ó-
venju linir og iá knötturinn til-
tölulega miklu meira á þeim, þó
gerðu þeir mörg snörp áhlaup og
skoruðu þetta eina mark á síðustu
mínútunum. Vörn Vestmannaey-
inga var ágæt, en sóknin ekki í
lagi. Áhlaupsliðið sótti^ of mjög
aftur, og var því ekki til taks er
varðliðið skaut knettinum langt
fram á völlinn.
Fnlltrúaráðsfnnd»r verður
haldinn annað kvöld á venjuleg-
um stað kl. 8.
ísflrðingnm neitað nm hol*
Morgunblaðið flytur þá fregn eftjr
bréfi af ísafirði, að Landsverzlunim
hafi neitað ísfirðingum um kol, en
eigi segist blaðið vita hvort fregn
þessi sé sönn. Af því Alþbl. þótti
fregnin merkileg, ef sönn værir
leitaði það upplýsinga í Lands-
verzluninni og fékk það svar þar,
að hún væri tiihæfulaus.
S. P. og spnrningarmerhið.
Vegna þess, að Sigurður Þórólfs-
son hefir verið skólastjóri, gefst
eg upp á því, að deila við hann
um þýðingu spurningarmerkis.
Hann vill sýnilega ekki kannast
við, að lestrarmerki eru fullgild
tákn, er séstaka, ákveðna merk-
ingu hafa, engu síður en bókstafir,
orð og setningar. En kann ske
hann ætli að gera doktorsritgerð
um það, að lestrarmerki hafi enga
þýðingu ?
Um mjólkurverðið ræði eg síðar.
/. 7.
Kóra fer norður um land tif
Noregs á föstudaginn.
PrentYÍlIur slimargar voru f
nokkru af upplagi blaðsins í gær„
Aftan af málsgreininni um 5000
metra hlaupið hafði fallið: „asta>
hringinn". I klausunni „Ekkert
frost“ kemur komman ekki út
milli 2 og 7, og er það f sjálfu
sér auðséð, en þó réttara að leið-
rétta það, svo það valdi eigi síð-
ar misskilningi.
Ódýr sala. Athygli manna skaE
vakin á »útsöluc Jóhönnu Olgeirs-
son, sem stendur þessa daga. Er
oss tjáðf að þar sé margt mjög'
ódýrt að fá, eftir núverandi verði.
Úrslitahapploihur verður t
kvöld milii Fram og K. R. Fram
hefir enn sem komið er á þessu
móti sigrað. Gaman að sjá hvernig
fer í kvöld.
/ ■ ■ '-■
Islandsbanhaseilar ehhi tehn-
ir. Afgreiðsla gufuskipsins „Kora"
upplýsir, að farseðlar verði að
borgast í Iandi, þar eð skipið takt
ekki íslandsbankaseðla.
Alþýðublaðid
er ódýrasta, íjölbreyttasta og
bezta dagblað landsins.
Kanpið það og lesið, þá
getið þið aldrei án þess verið-