Alþýðublaðið - 08.09.1920, Blaðsíða 3
ALÞYÐUBLAÐIÐ
3
Stór útsala
verðu næstu daga í verzlun
Jóhönnu Olgeirsson,
Laugaveg 18.
Kýjungar i vegagerð
eru það, að nú er landssjóður
farinn að nota bifreiðar til þess
að aka í ofaníburði. Eru alls fimm
bifreiðar í þessari notkun í sumar,
og hafa unnið í Hafnarfjarðarvegi,
Svínahrauni, Ölvesvegi, Flóavegi,
Grímsnesvegi og víðar. Munar
stórmiklu hve vegagerðin gengur
fljótara með þessu móti, auk þess
sem hún er ódýrari á þennan hátt,
og tekur færra fólk frá annari
nauðsynlegri vinnu.
Önnur nýjung er það, að nú
eru notaðir tveir 5 smálesta þungir
vélþjapparar (valtarar) til þess að
þrýáta grjótinu niður í veginn, f
stað þess að það var áður barið
niður með sleggjum. Einnig er vél
tii þess að mylja niður með grjótið,
setn látið er í veginn, og sparast
fjöldi fólks við þessa aðferð.
Þessar stórmerku nýjungar í
íslenzkri vegagerð munu eingöngu
að þakka vegamálastjóranum,
Geir G. Zoega verkfræðingi.
Frá Noregi.
Flugferðir milli Starangurs og
Björgvinjar.
16. ágúst hófust fastar flugferðir
milii Björgvinjar, Haugasunds og
Stavangurs. Flogið er daglega og
eru notaðir flugbátar. Farseðlar
kosta 180 ltr. frá Björgvin' til
Stavangurs, 150 kr. frá Björgvin
til Haugasunds og 90 kr. frá
Haugasundi til Stavangurs. Póst-
flutningar eru einnig byrjaðir milli
sömu staða á flugvélum.
Berk kona látin.
Nýlega varð frú Augusta Aasen,
— ein af nefndarmönnum þeim er
alþýðuflokkurinn norski sendi á
alþjóðafund bolsivíka í Moskva, —
fyrir flugvél sem var að lenda, og
beið þegar bana. Kona þessi stóð
mjög framarlega f verklýðshreyf-
ingunni norsku, og var meðal
annars f stjórn verklýðsíélaganna
í Kristianíu, og vara-bæjarfulltrúi
þar. Síðastliðið ár var hún kosin
í miðstjórn verklýðssambands Nor-
egs, og mætti í Moskva sem full*
trúi þaðan. Hún var jarðsungin í
höfuðkirkjugarði bolsivíka í Moskvá.
Járnfnndnr.
Nýlega hefir það verið gert
kunnugt, að fuhdin séu geysistór
járnlög á um 5 mflna svæði í nánd
við Ofotbotn norðarlega f Noregi.
Lögin innihalda frá 33 til 70
hundra,ðshluta af járni. Fundur-
inn vekur gleði mikla í Noregi.
Karolina ekkja Björnsons,
sem nú er 85 ára að aldri, er í
þann veginn að leggja af stað f
langferð til útlanda. Björn leikari
sonur hennar verður samferðamað-
ur hennar í þessari ferð.
90 hermenn dæmdir fyrir að
hlnsta á Tranmæl.
Maríin Tranmæl heitir sá mað
ur, sem nú er talinn mestur ræðu
maður meðal Norðmanna. Hann
er aðalforingi verkalýðsins og af
mörgum kallaður Lenin Noregs.
Tranmæl fer um Noreg þveran og
endilangan og heldur ræður fyrir
verkalýðnum. Nýlega talaði hann
fyrir um um 100 hermönnum í
Bjerkvik. Fyrir þetta »tiltæki«
voru 30 hermanna dæmdir í 3 til
45 daga fangelsi, Hinir 70 fengu
áminningu eða voru dæmdir til
smá hegninga. Nærri má geta,
hve mikla gremju þetta hefir vak-
ið mðeal norska verkalýðsins.
Hræðileg sprenging og hrnai í
Drammen. 7 manns híða bana
11. ágúst varð ógurleg spreng-
ing í búð einni í Drammen (ein-
um af stórbæjum Noregs ekki
langt frá Kristianíu) Er ekki fylli-
lega upplýst hvernig slysið vildi
til, en haldið að púður og nokk-
uð af dynamiti, sem fara átti með
járnbrautarlest, hafi sprungið.
Sprengingin var svo mikil, að
hristingurinn fanst um allan bæinn,
og þeyttist framveggur hússins,
upp á aðra hæð, fram á götu, og
steinar, vörur og menn láu hvað
innan um annað. Eidur kviknaði
þegar og magnaðist svo, að slökkvi-
Nýkomin
fataefni, frakkaefni og
kvenkápuefni. — Efni
tekin til sauma.
Guðsteínn Eyjölfsson,
Laugaveg 32 B.
liðið, sem kom í skyndi á vettvang,
gat ekki stöðvað eldinn fyr en
stórhýsið, sem sprengingin varð í,
var brunnið til grunna. En á neðstu
hæð þess voru 4 stórverzlanir og
á annari hæð borðsalur, eldhús og
samkvæissalir gistihúss.
7 manns biðu bana við spreng-
inguna og 12 særðust, sumir hættu-
lega; er það tjón ómetanlegt, en
annar skaði metinn á eina miljón
króna.
Nýjir kolafandir á Svalbarða.
Mýlega hefir fundist nýtt kola-
lag við kolanámu Svía í Braganza-
firði á Svalbarða. Var verið að
rannsaka legu kolalaganna og fanst
þá þetta nýja lag, sem er 8—10
metrum neðar en þau lög, sem nú
eru unnin. Lagið er 1V* til 2 m.
þykt. Gömlu iögin voru svo þunn,
að verkamennirnir urðu að vinna
liggjandi, eða hálfbognir, í göng-
unum. Þetta lag er aftur á móti
svo þykt, að þeir geta unnið upp-
réttir, og gengur vinnan við það
miklu fljótar og er stórum hollari.
Erlend iKiynt.
Khöfn 7. sept.
Dollar (1) — 6,95
Pund sterling (1) — 24,68
Frankar (100) — 48 00
Þýzk mörk (100) — 13.85
Sænskar krónur (100) kr. 140,00
Norskar krónur (100) — 100,75