Morgunblaðið - 08.11.1981, Side 1

Morgunblaðið - 08.11.1981, Side 1
Sunnudagur 8. nóvember Bls. 49-80 Aldarafmæli goðsagnar úr „gamla vestrinu“ sem enn vekur deilur Eins og allir aðdáendur „Villta vestursins" vita stóð skotbardag- inn milli Clanton-klíkunnar og Wyatt Earps er naut stuðnings tannlæknisins „Doc“ Holliday, sem engu minna frægðarorð fór af en Earp. Raunar naut Earp einnig stuðnings bræðra sinna, Virgils, sem hafði verið skipaður lögreglu- stjóri í Tombstone aðeins einu ári áður, og Morgans, sem var leigu- skytta hjá járnbrautarfélaginu Wells Fargot. í Clanton-klíkunni voru tveir af sonum „gamla mannsins" Clantons, Ike og Billy, McLaury-bræðurnir Frank og Tom, og Biily Claibourne. Þegar bardaganum lauk lágu Tom og Frank McLaury og Billy Clanton í valnum. Ike Clanton og Billy Claibourne flúðu. í liði and- stæðinga þeirra lágu bræðurnir Virgil og Morgan Earp hættulega særðir. Doc Holliday brákaðist á mjöðm, en virðist lítið hafa fundið fyrir því, þar sem hann var drukk- inn. Wyatt Earp stóð einn upp- réttur — hann einan sakaði ekki. GAMLAR ILLDEILUR Bardaginn var raunar ekki háð- ur í OK-réttinni, heldur á horni Þriðju götu og Fremont-götu, á stað sem var um 50 metra frá rétt- inni. Þegar fylkingunum laust saman þurftu þær að gera upp nokkra gamla reikninga. Einu ári áður hafði póstvagninum verið veitt fyrirsát og ekillinn, Bud Philpot, og einn farþegi voru skotnir til bana. Vinir Clanton- bræðra og sjálfs Doc Hollidays höfðu verið sakaðir um árásina. Seinna viðurkenndi maður nokk- ur, Luther King, að hann hefði hesta stigamannanna í sinni vörzlu og Earp-bræður létu hand- taka hann og afhentu hann næsta lögreglustjóra, John Behan, þótt tregir væru. Síðan hafði King komizt undan þegar lögreglustjórinn og annar maður voru að ræða um sölu hest- anna. Þessi atburður magnaði fjandskapinnn er ríkti milli Earp-bræðra og Behans, sem FLUÐI AF HÓLMI Andartaki síðar hljóp Ike C.lant- on, sem hafði áður sagt að hann ætlaði að drepa alla Earp-bræð- urna einn síns liðs, hrópandi fram hjá Wyatt Earp til að leita hælis í gistihúsi Camillus S. Flys, sem var brautryðjandi í ljósmyndagerð. Þar hafði Behan lögreglustjóri þegar falið sig og fljótlega bættist í hóp þeirra Billy Claibourne, sem nýlega hafði verið látinn laus úr fangelsi þar sem hann hafði setið inni fyrir að myrða mann sem bað hann um vínsopa. Sá sem fyrstur féll í valinn var Frank McLaury, sem Wyatt Earp skaut í kviðinn. Fljótlega báettist við bróðir hans Tom, sem Doc Holliday drap. Þriðji maðurinn sem féll var Billy Clanton, sem skaut Morgan Earp í kviðinn áður en kúla úlnliðsbraut hann. Hann hæfði því næst Virgil Earp í fót- inn með því að skjóta með vinstri höndinni. En málið var ekki þar með úr sögunni. Behan lögreglustjóri ákærði Earp-bræður fyrir morð og hélt því fram að Clanton-klíkan hefði ekki hafið skothríðina. Wy- att Earp svaraði þessu með því að reyndi að stöðva átökin við OK- réttina rétt áður en lokauppgjörið fór fram. Loks hafði þegar slegið í brýnu milli Earp-bræðra og Cianton- klíkunnar. Ike Clanton hafði verið barinn niður með byssuhlaupi af Virgil Earp og síðan sektaður um 25 dollara fyrir að bera byssu ólöglega innan bæjarmarkanna og Wyatt Earp hafði veitt Tom McLaury sömu meðferð eftir orða- hnippingar fyrir utan dómshúsið. Það sem síðan gerðist virðist því hafa verið óhjákvæmilegt. Skotbardaginn fór fram siðdeg- is 26. október 1881 í hlýju veðri eftir enn eina þrætu Clantons- og Earps-manna fyrir utan dómshús- ið. Nokkrum mínútum áður en bardaginn hafði hafizt hafði Clanton-klíkan farið inn í byssu- verzlun Sprangenbergs, og á með- an hafði Wyatt Earp lagt hald á hest Frank McLaurys, sem hafði verið skilinn eftir á gangstéttinni, og þannig gerzt brotlegur við lög. Síðan sagði maður að nafni Cole- man Earp-bræðrum að Clanton- og McLaury-bræðurnir væru að leggja á ráðin um illindi á bak við OK-réttina. Earp-bræðurnir fengu Doc Holliday í lið með sér, virtu Behan lögreglustjóra að vettugi og gengu niður götuna til að mæta Clant- on-klíkunni, sem stóð upp við hús- vegg vestan við OK-réttina. Þegar Virgil lyfti upp staf Doc Hollidays og skoraði á Clanton-klíkuna að fleygja frá sér byssunum kváðu við skothljóð. Colt-skammbyssa sem Wyatt Earp notaði. Hann notaði slíka byssu í neyðartilfellum, en ann- ars notaði hann skammbyssuna „Buntline Special", sem var með lengra hlaupi, gegn óvinum sín- um. segja að lögreglustjórinn hefði sagt sér að Clanton- bræðurnir væru óvopnaðir, að Earp-bræðurnir hefðu vitað betur og þeir hefðu aðeins ætlað að gera skyldu sína og reyna að afvopna þá. Bæjarblöðin studdu þessar tvær skýringar á atburðinum. „The Tombstone Nugget" hélt því fram að Clanton-bræðurnir hefðu verið meinlausir kúrekar, sem Earp- óþokkarnir hefðu hundelt, en „The Epitaph" lýsti Clanton- og McLaury-bræðrum þannig að þeir hefðu verið miskunnarlausir út- lagar, sem hefðu verið staðráðnir í SJÁ NÆSTU SÍÐU VIKULÖNG hátíðarhöld hafa farið fram í bænum Tombstone í Arizona til að minnast þeirra sem féllu fyrir einni öld f skotbardaganum við OK-réttina og lifðu hann af — skotbardaganum sem Hal Wallis gerði ódauðlegan á hvíta tjaldinu með kvikmyndinni þar sem Burt Lancaster og Kirk Douglas fóru með aðalhlutverkin. Bæjarblaðið „Tombstone Epitaph“ komst þannig að orði um bardagann að aðeins hefði tekið hálfa mínútu að „binda endi á líf þriggja manna með voveiflegum hætti, koma af stað blóðbaði, sem næstum því leiddi til þess að lýst var yfir herlögum í Tombstone-sveitinni, og valda bitrum deilum, sem hafa staðið allt fram á þennan dag“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.