Morgunblaðið - 08.11.1981, Side 2
50
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1981
Gullgrafarabærinn Deadwood
1876, þremur árum áður en hann
brann til grunna. Um þennan bæ
var sagt eins og Tombstone, sem
var frægur fyrir silfur, aö hann
væri of harður af sér til aö deyja.
Wyatt Earp, óvinur Clanton-
bræðranna í Tombstone, var um
tíma í Deadwood í peningaleit, en
hvarf þaðan þar sem honum
fannst samkeppnin of hörð, og í
Deadwood var Wild Bill Hickock
skotinn til bana. Deadwood var í
Svörtuhæðum og gullæöið þar,
eitt hið síðasta í Bandaríkjunum,
leiddi til fjöldamorðanna á Si-
oux-indíánum við Litla-Stórhorn.
að eyða bænum. Eftir 30 daga
réttarhöld féll úrskurður dómara
sakborningum í vil, þ.e. mönnum
Earps.
HEFNDIRNAR
Tilraunir til að koma fram
hefndum hófust þegar Clanton-
fjölskyldan hafði reist minnis-
merki á gröf Billy Clantons á Boot
Hill í útjaðri Tombstone: „Billy
Clanton, myrtur á götum Tomb-
stone." Sá sem fyrstur var skotinn
var Virgil. Ráðizt var á hann úr
launsátri og hann fékk tvær kúlur
í annan handlegginn. Hann lifði,
illa farinn, til 1905.
Sá sem næstur var skotinn var
Morgan. Hann var drepinn 1882
þegar hann beygði sig yfir billj-
ard-borð. Skömmu síðar reyndi
Frank Stilwell að ráða Wyatt
Earp af dögum, en viðureign
þeirra lauk með því að Stilweil var
skilinn eftir örendur við járn-
brautarteina nálægt Tucson.
Hefndum var einnig komið fram
við Ike Clanton, sem leitarflokkur
skaut þegar honum var veitt eftir-
för vegna gruns um nautgripa-
þjófnað. Billy Claibourne var skot-
inn á mótum Fimmtu götu og
Allen-götu í Tombstone og bana-
maður hans var Buckskin Frank
Leslie.
Þótt furðulegt megi teljast lifði
Doc Holliday sex ár í viðbót unz
hann lézt af berklaveiki og
ofdrykkju á heilsuhæli. Þannig
tapaði hann veðmáli um að hann
mundi deyja með voveiflegum
hætti. Wyatt Earp, sem fékk ekki
eina einustu skrámu í bardagan-
um við OK-réttina, lifði til átt-
ræðs.
GOÐSÖGN OG
VERULEIKI
Bardaginn hefur æ siðan verið
mikið hitamál og valdið miklum
deilum. Síðasta framlagið til deil-
unnar kom fram á hundrað ára
afmælinu á dögunum frá prófess-
or við háskólann í Arizona, James
Harkin, sem segir að mönnum
hafi skjátlazt hrapallega í dómum
sínum um bardagann. „Þetta var
ekki,“ segir hann, viðureign „góðu
strákanna" og „vondu strák-
anna“.“
Wyatt Earp og bræður hans
réðust ekki gegn fimm þorpurum
til þess að reyna að koma á lögum
og reglu í „Villta vestrinu", segir
prófessor Harkin, eins og þeir og
stuðningsmenn þeirra létu í veðri
vaka (samkvæmt sumum heimild-
um voru nokkrir úr hópi Clanton-
bræðra óvopnaðir). Nei, hér voru
einfaldlega pólitík og græðgi á
ferð, segir Harkin, sem vinnur að
bók um sögu Tombstone. Hann er
sannfærður um að Earp-bræðurn-
ir hafi verið aiveg eins siðlausir og
Clanton-bræðurnir og McLaury-
bræðurnir (sem er naumast nokk-
urt vafamál því að Earp var kunn-
ur svikahrappur í mörgum bæjum
í vesturríkjunum).
DOC HOLLIDAY — berklasjúkl-
ingur, aö dauða kominn, en skaut
mönnum skelk i bringu.
„Allir íbúarnir á þessu svæði
voru þangað komnir til að hrifsa
til sín auðæfi, sem urðu til þegar
WYATT EARP — „Tombstone-
ógnvaldurinn“.
silfur fannst þarna," segir Harkin,
„en það gerðist nokkrum árum áð-
ur. Það sem aðskildi þá sem börð-
ust við OK-réttina var sama póli-
tíska togstreitan og ríkir í Banda-
ríkjunum enn þann dag í dag —
milli repúblikana og demókrata.
Earp-bræðurnir voru utan-
garðsmenn og aðkomumenn, repú-
blikanar og norðanmenn, sem
reyndu að komast yfir silfur-
milljónirnar er ráðsettir landnem-
ar og heimamenn, sunnanmenn og
demókratar, töldu að þeir ættu að
sitja að einir. Clanton-bræðurnir
og McLaury-bræðurnir voru í síð-
ari hópnum.
Earp-bræðurnir voru raunsæ-
ismenn, sem töldu að hagkvæmn-
issjónarmið ættu að ráða. Þeir
vildu nota sér allan þann ávinn-
ing, sem þeir töldu sig geta haft af
bókstaf laganna, og höfðu enga
tilfinningu fyrir réttíæti, því sjón-
armiði að réttlætið ætti að ráða,“
segir próf. Harkin.
Sú goðsögn, sem varð til um
skotbardagann, varð í samræmi
við þær hugmyndir, sem Banda-
ríkjamenn nútímans vilja gera sér
um réttlæti, rétt og rangt, í
„gamla vestrinu". En Harkin seg-
ir: „Skýring goðsagnarinnar á því
sem raunverulega gerðist gæti
ekki verið vitlausari."
íbúar Tombstone voru 30.000
áður fyrr, en þeim fækkaði svo
mjög að um tíma voru þeir aðeins
nokkur hundruð. Jafnvel nú eru
íbúarnir aðeins 1600 og margir
þeirra lifa á minningum bæjarins
og byggingunum, sem standa enn.
Boot Hill er ennþá til. Þar hafa
verið gerðar endurbætur eins og á
byggingum í bænum og nú er Boot
Hil) þjóðargrafreitur. Þarna hvíla
Clanton-bræður og McLaury-
bræður, Billy the Kid og George
Johnson, sem var „hengdur af
misgáningi". Það var ekki að
ástæðulausu að kvikmyndin „The
Magnificent Seven“ var látin hefj-
ast á Boot Hill.
Fógetinn í Tombstone, John H.
Bchan, sem jafnframt var dómari,
hafði skrifstofu sína vió hliöina ó
bar, sem hann átti einnig og
skíröi í höfuöiö á leikkonunni Lily
Langtry. Hann situr hér á kvartili
með mexíkanahatt, skambyssu í
slíðri og lagadoörant fyrir framan
sig. Behan átti í útistööum viö
Wyatt Earp, en var furöu vinsam-
legur viö aðra meinta útlaga í
Tombstone.