Morgunblaðið - 08.11.1981, Side 8
56
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1981
Háþrýsti’ lakk- og
málningasprautur
H
F
Smiðjuvegi 30, Kópavogi,
símar 76444 og 76100.
Afmœlisboð
í tilefni af 5 ára afmœli
sínu um þessar mundir býður
SKÍFAN
LAUGAVEGI 33
viðskiptavinum sinum upp á hljóm-
plötukaup á sérstöku afmælisverði i
nokkra daga.
Hljómplötur
á kr. 49
□ Simsalabimm
□ Saumastofan
□ Hana nú
□ Rut Reginalds
□ Fyrr má nú aldeilis fyrrvera
□ Bara það bezta
□ Llr öskunni í eldinn
□ Hlunkur er þetta
□ Furðuverk
□ Börn og dagar
□ Kór Öldutúnsskóla
□ ‘HLH-flokkurinn
□ Einn á ferð
□ Utkall
□ í sjöunda himni
□ Bráðabirgðabúgí
□ Hvers vegna varst’ ekki kyrr
□ Umhverfis jörðina á 45 mín.
Hljómplötur
á 99 kr.
□ Guðmundur Guðjónsson
□ Jólastrengir
□ Dagar og nætur
□ í leit aö lífsgæðum
□ Glímt við þjóðveginn
□ Basso Erectus
□ Magnús og Jóhann
□ Manni
Af öllum öðrum
vörum er veittur
10% afsláttur
Ampex-kassettur og kassettutöskur einn-
ig á sérstöku afmælisveröi.
Sendum í póstkröfu
Samhygð
hvað er það?
- rætt vid Pétur Guðjónsson sem stofn-
aði félagsskapinn Samhygð á Islandi
„Samhygð — félag sem vinnur ad jafnVasgi í þróun mannsins“, nefnir sig
félagsskapur nokkur sem stofnaður var hér á landi fyrir um þad bil ári síðan.
Tilgangurinn með félagsstarfinu ér að frelsa itjanninn úr ánauð streitunnar
— og takist að frelsa nógu marga einstaklinga tekst að frelsa heiminn frá
ragnarökum offjölgunar, mengunar og kjarnorkustríðs, eða þannig skildist
blm. Mbl. að Samhygð hygðist koma ár sinni fyrir borð og gera strik í
reikninginn á komandi árum.
En Samhygð er ekki fyrsti fé-
lagsskapurinn sem stofnaður er til
að ráða bót á volæði heimsins því
mígrútur er af alls konar hreyf-
ingum og hópum sem ætla sér að
koma þessu til leiðar með ýmis
konar hugmyndakerfum og meðul-
um. Eflaust eiga nokkrar slíkar
hreyfingar í viðbót eftir að berast
hingað til íslands því hópar af
þessu tagi eru oft hvað virkastir í
útbreiðslustarfsemi sinni.
Segja má að kenningakerfi
Samhygðar varðandi mann og
heim byggi á svonefndum síló-
isma. Upphafsmaður þeirrar
heimsskoðunar er eiginlega arg-
entínumaðurinn Mario Rodrigues
Cobos sem nefnir sig Síló. Hann er
43 ára og sat um tíma í fangelsi
fyrir kenningar sínar sem hann
byggir að verulegu leyti á dul-
rænni reynslu. Síló sá að heimur-
inn var vondur — ofbeldi, grimmd
og neyð setti svip sinn á umhverfi
hans, og hann fann sig knúinn til
að opinbera fólki reynslu sína og
beina því þannig á braut til meiri
fegurðar, hamingju og lífsfyll-
ingar. Síló skrifaði bók sem nefn-
ist „Innri ró“ og er hún einskonar
Biblía sílóismans. Ýmsir minni
spámenn hafa síðan skrifað aðrar
bækur sem útskýra hinar óræðu
hugleiðingar Sílós í „Innri ró“ og
byggir Samhygð starfsemi sína á
þessum fræðum að verulegu leyti.
Upphafsmaður og stofnandi
Samhygðar hér á landi er Pétur
Guðjónsson félagsfræðingur en
hann er búsettur erlendis. Fyrir
skömmu komu ýmsir af helstu for-
kólfum Samhygðar hingað til
lands og voru þeir Pétur og Síló
báðir með í þeirri för. Var heim-
sóknin liður í mikilli útbreiðslu-
herferð Samhygðar sem stefnt var
víða um lönd. Þar sem blm. Mbl.
hafði nokkuð kynnt sér gögn og
bækur Samhygðar fór hann fram
á stutt viðtal við Pétur um mál-
efni félagsskaparins og var það
ljúflega látið eftir. Var Pétur fyrst
að því spurður hvernig það hefði
atvikast að hann ákvað að leggja
félagsskapnum Samhygð lið.
— Ég veit ekki hvort ég var að
leita að neinum sérstökum félags-
skap til að starfa með, sagði Pét-
ur. Ég var 24 ára gamall og var
búinn að ljúka nokkrum háskóla-
prófum, var búinn að prófa hvað
það var að hafa peninga, var bú-
inn að ferðast talsvert og var bú-
inn að reyna það að verða ástfang-
inn. Ég hafði mikinn áhuga á því
að vita hvort einhver aðferð væri
ekki til sem nota mætti til að bæta
heiminn og jafnvel bjarga honum
við — ekki þarf nú mikla hugsun
til að sjá að mikil þörf er á slíkri
aðferð.
Um þetta leyti var ég á ferð í
Chile til að kynna mér feril Ali-
endes og var þá öðrum þræði að
rannsaka ýmsar lausnir sem hugs-
anlega gætu breytt heiminum og
bætt hann. Nú, margar lausnir
voru á boðstólum, ekki vantaði
það.
Sumir boðuðu hægri stefnu,
aðrir vinstri stefnu og svo voru
þeir sem gerðust hippar og fóru
niður á strönd og horfðu á naflann
á sér. Sumir sögðu að það þýddi
ekkert að hugsa um að breyta
heiminum — best væri að fá sér
jörð og rækta garðinn sinn eða
koma sér upp fyrirtæki og reyna
að komast vel af sjálfur. Ekki
skorti heldur að ýmsir spekingar
þóttust hafa lausnir á öllum
vandamálum heimsins — en ekk-
ert af þessu þótti mér virkilega
sannfærandi. Én þegar ég komst í
kynni við Samhygð var mér orðið
ljóst að það er ekki hægt að breyta
þjóðfélaginu nema með því að
hugarfarsbreyting verði hjá þjóð-
félagsþegnunum.
Hafðirðu ekki efasemdir um
Samhygð fyrst þegar þú
kynntist félagsskapnum —
að þarna væri kominn einn
hópurinn enn sem boðaði
hcimsfrelsun?
— Auðvitað hafði ég efasemdir.
Ég hafði kynnst ýmsu af þessu
tagi og bjóst ekki við miklu en var
nógu skynsamur til að segja við
sjálfan mig: „Ég er ekki alveg klár
á hvað þetta er en ég veit eitt —
það eina sem skiptir mig máli er
að reyna að breyta sjálfum mér og
reyna að breyta heiminum. Hvort
það tekst eða ekki — það skiptir
engu máli.“ Ég man að þegar ég
kom heim til konunnar minnar
eftir að hafa setið fyrsta fund
minn með félögum Samhygðar
sagði ég við hana: „I dag hef ég
fundið eitthvað sem hefur gjör-
breytt lífi rnínu." Ég fann það ein-
hvern veginn á mér að sú reynsla
er ég varð fyrir myndi hafa var-
anleg áhrif á mig án þess að ég
gæti rökstutt það.
En ef þessi orð Sílós á að
skilja þannig — hvers vegna
er þá í bók Samhygðar vísað
á rit sem öll fjalla um hvernig
maður á að deyja slysalaust
s.s. Dauðrabókina egypsku,
tíbetsku Dauðrabókina o.fl.?
Þessar bækur fjalla um ferð
eftir dauðann og hvernig
maður komist hana klakk-
laust.
Mario Rodriguez Cobos, eða Sfló,
eins og hann nefnir sig, höfundur
sflóismans.
— Já, það er vísað til þessara
bóka. En það gæti hins vegar verið
að þær fjalli raunverulega ekki
um ferð eftir dauðann heldur hafi
þær aðeins verið skildar þannig —
ef til vill fjalla þessar bækur um
það hvernig maður eigi að lifa en
ekki um það hvernig maður eigi að
deyja. Mig minnir að vitnað sé til
þess í kaflanum sem fjallar um
æfinguna „Dauðann" í bók Sam-
hygðar. Þú getur farið í þessa
reynslu — sest niður, lokað aug-
unum og upplifað hvernig er að
deyja. Svo vaknarðu og færð þér
kaffi.
En þetta væri bara ímyndun
mín — og að öllum líkindum
fjarri raunverulegri reynslu.
— Að sjálfsögðu, en þessi
reynsla gæti engu að síður haft
gífurleg áhrif á þig. Ég heyrði ný-
lega um dæmi sem sannar þetta
um náunga í Boston sem var hálf-
fertugur og vann á ríkisskrifstofu.
Hann var áhugalaus fyrir um-
hverfi sínu, blóðlatur, fúll og leið-
inlegur. Einn daginn verður hann
svo fyrir því að fá hjartaslag og
deyja „klíniskum" dauða. En þeg-
ar hann raknar úr dauðadáinu er
þetta orðinn bráðskemmtilegur,
duglegur, hjálpfús og glaður mað-
ur.
Það getur meira en verið að það
hafi bara verið hugarórar og
ímyndun sem þessi maður varð
fyrir í dauðadái sínu — en það
sem ekki eru hugarórar er að
hegðun mannsins hefur breyst
verulega til batnaðar bæði fyrir
hann sjálfan og aðra.
Það er aðalatriðið og það rétt-
lætir æfinguna um dauðann og
aðrar æfingar sem Samhygð kenn-
ir og ráðleggur fólki að stunda.
Hverskonar hamingja er það
sem fólk telur sig öðlast við
það að vera í Samhygð?
— Það er einkennileg tilhneig-
ing sem kemur fram hjá fólki til
að líta neikvæðum augum á ham-
Framfarafélag Breiðholts III:
Borgarafundur um skipulagsmál
FRAMFARAFÉLAG Breiðholts III
gengst fyrir almennum borgarafundi
þann 10. nóvember og verður hann í
Hólabrekkuskóla kl. 20.30. Á
dagskrá eru tvö mál sem snerta
hverfisbúa. Annað er skipulagsmál
og þá sérstaklega nýi vegurinn sem
fyrirhugað er að gera í framhaldi af
Suðurhólum og tengja þannig Breið-
holt við nýja Seláshverfið. Er gert
ráð fyrir að vegurinn liggi yfir Elliða-
árdalinn og geti tekið við miklum
umferðarþunga. Hitt málið er heilsu-
gæslumál hverflsins og þá sérstak-
lega staða heilsugæslustöðvarinnar
nú og framtíðaráform, ef einhver
eru.
Guðrún Jónsdóttir, forstöðu-
maður borgarskipulagsins, mun
halda framsögu um fyrra málið en
Leifur Dungal, læknir, um það síð-
ara. Borgarfulltrúum og öðrum
þeim sem hafa með þessi mál að
gera hefur verið boðið sérstaklega
á fundinn.