Morgunblaðið - 08.11.1981, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1981
57
Pétur Guðjónsson talar á samkomu
Samhygðar í Madrid.
ingjuhugtakið — að hamingju-
samur maður sé óvirkur og sauð-
arlegur og vilji helst ekkert annað
gera en horfa á naflann á sér. í
þessu tilefni sem öðrum held ég að
hverjum og einum væri best að
líta á eigin reynsiu. Hvernig varst
þú á hamingjusömustu tímabilum
lífs þíns? Ég held að allir muni sjá
að þegar þeir voru hamingjusamir
þá voru j)eir einnig þróttmiklir og
virkir. I raun og veru er ham-
ingjutilfinningin ekki annað en
svörun líkamans um það að til-
finningar, hugsanir og gjörðir séu
í samræmi. Óhamingja er hins
vegar viðvörun um að þetta sam-
ræmi sé ekki til staðar — ná-
kvæmlega eins og líkamlegur
sársauki er viðvörunarmerki um
að eitthvað sé að. Því hefur jafn-
vel verið haldið fram að óham-
ingja sé þroskandi fyrir persónu-
leikann en það held ég að sé hin
mesta firra. Óhamingjan getur
varað mann við ákveðnum til-
hneigingum og þroskað hann
þannig — eins og brennt barn
forðast eldinn — en óhamingja
eða þunglyndi getur aldrei verið
þroskandi í sjálfu sér.
En nú getur óhamingja alveg
eins komið að utan.
— Óhamingja held ég að komi
aldrei að utan, líkamlegur sárs-
auki kemur að utan en óhamingj-
an að innan.
En ef einhver verður fyrir
ástvinamissi.
— Það fer eftir því hvernig
hann lítur á dauðann. Vandinn í
því tilfelli er að sleppa. Ef þú t.d.
átt dóttur sem fer að heiman til
annarra landa, þá geturðu valið
um tvennt — þú getur saknað
hennar eða verið ánægður vegna
þess að hún fær tækifæri til að
þroskast og skoða heiminn.
Telurðu þá að svona sé hægt
að afgreiða öll tilfelli?
— Það er í rauninni ekki aðal-
atriðið — aðalatriðið er að maður
sé jákvæður í afstöðu sinni gagn-
vart sem flestu og þar með yfir-
leitt hamingjusamur. Það er ekk-
ert nema gott um það að segja að
fólk syrgi ástvini sína í nokkra
daga eða vikur. En fari maður að
syrgja mánuðum eða árum saman
og þorir ekki út í lífið aftur — þá
vandast málið. í slíkum tilfellum
geta æfingarnar sem við höfum í
Samhygð hjálpað fólki að losna
við þrúgandi fortíð og snúið því til
lífsins aftur.
Hvað er það sem réttlætir til-
veru Samhygðar fyrst og
fremst?
— Við sem að Samhygð stönd-
um lítum svo á að allar lausnir
sem fram hafa komið á vandamál-
um mannsins og heimsins hafi
brugðist með einum eða öðrum
hætti — eða að þær séu að bregð-
ast. Sumar eru e.t.v. réttar og góð-
ar í sjálfum sér en ná einfaldlega
ekki til fólks. Þetta sést hvarvetna
í heiminum núna, einnig í svoköll-
uðum velferðarþjóðfélögum fer
ofbeldi í vöxt og samskipti manna
verða sífellt ópersónulegri. Ef
lausnirnar hefðu ekki brugðist
ætti að vera um stöðuga framför
að ræða — en þannig er því ekki
farið.
Einstaklingur sem kemur á
kynningarfund hjá okkur í Sam-
hygð er hvattur til að spyrja sig
þriggja spurninga sem eru:
a. Hvort hann finni hjá sér þörf
til að breyta um lífsstefnu.
b. Hvort hann vilji það.
c. Hvort hann hafi trú á því að
hann geti það.
Það hefur oft ótrúlega mikil
áhrif á menn að hugleiða þessar
spurningar — og ef svörin við
þeim öllum þrem eru játandi er
viðbúið að einkalíf manna taki
stakkaskiptum til hins betra.
Þetta er oft ákaflega stór stund
fyrir fóík og veldur hvörfum í lífi
þess. Svari menn hins vegar
spurningunum neitandi — þeim
tveim fyrstu — hefur Sámhygð
ekki uppá neitt að bjóða fyrir þá.
Frumkvæðið verður að koma frá
einstaklingnum sjálfum — það er
þema sem gengur í gegn um allt
starf Samhygðar.
En vill ekki móðurinn renna
fljótlega af mönnum aftur
jafnvel þó þessar Spurningar
hafi komið róti á hugi þeirra
og fengið þá til að endurmeta
líf sitt?
— Jú, sú vill verða raunin að
draugar úr fortíðinni ieitast við að
draga menn aftur ofaní sama far-
ið. Æfingarnar sem farið er í gegn
um á vikufundum Samhygðar
miða einmitt að því að frelsa
menn frá eigin fortíð — rótgrón-
um tilfinningaviðbrögðum, for-
dómum o.fl. sem heldur aftur af
þeim. Menn verða ekki hamingju-
samir á svipstundu með því að
starfa með Samhygð, því fer
fjarri. En hamingja þeirra fer
vaxandi — við getum orðað þetta
þannig að hinar góðu stundir
þeirra verði betri og vondu stund-
irnar ekki eins slæmar.
Samhygð er síður en svo stór
félagsskapur — hér á landi eru
virkir félagar um 70 en í heimin-
um um 50 þúsund alls. Þetta er
ungt félag sem hefur ekkert slæmt
í sögu sinni og tekur enga afstöðu
til skoðana eða trúarbragða félag-
anna. Framtíðin er alltaf óráðin
en ég held að Samhygð bjóði okkur
upp á aðferð sem við getum haft
verulegt gagn af. Það er augljóst
að ef við viljum bæta umhverfi
okkar verðum við fyrst að bæta
okkur sjálf. Samhygð býður uppá
æfingar — svonefnda innri vinnu
— sem gefa okkur kost á að
þroska það besta í okkur og ná
meiri lífsfyllingu — og þannig
komum við sjálfum okkur og öðr-
um að meiri notum. — bó.
Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar — 30 ára
Afmælishóf
veröur haldiö í lönaöarmannahúsinu laugardaginn
14. nóv. og hefst kl. 19 meö lystauka.
Hátíðarmatseöill.
Skemmtiatriöi og dans.
Sarríkvæmisklæönaöur.
Aögöngumiöar veröa seldir í Bókabúö Olivers Steins
frá 9. —12. nóv. 1981.
ARFUR KELTA
eftir Einar Pálsson
er kominn út. Þetta er mikið rit í fallegu bandi, 486 blaösíður aö stærö meö
tilvitnana- og nafnaskrá. 50 myndir prýöa bókina. í riti þessu eru krufin tengsl
íslendinga aö fornu viö Bretlandseyjar og þekkingu Kelta. Skýröar eru hug-
myndirnar aö baki helztu fornsögum, og greint frá íslenzkum hliðstæöum viö
mannvirki Evrópu frá steinöld. Þekktustu sagnastefin eru rakin um Bretlands-
eyjar til Grikklands og þaöan til enn eldri samfélaga fornaldar. Fjallaö er um
leit miöaldahugsuöa aö veig þeirri er Keltar nefndu Graal og sýnt fram á hvar
þeirrar leitar sér staö í arfi Islendinga.
Áskrifendur að bókum Einars eru beðnir að hafa samband við
skrifstofu Mímis sem allra fyrst í síma 10004 (kl. 1—5 e.h.).
Þó aö Bobby Fischer sé hættur aö
tefla þá erum við ekki hættir aö sérsauma
herraföt.
Orval af enskum alullar- og mohairefnum.
Klæðskerinn verður í verzlun okkar, mánudaga og fimmtudaga kl.
4—6.
Skemmtinefndin.