Morgunblaðið - 08.11.1981, Qupperneq 10
58
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1981
Verðum að hafa í huga þarfir atvinnu-
veganna og hamingju einstaklinganna
Guðmundur Magnússon rektor Háskóla íslands:
HÁSKÓLI íslands vard 70 ára á þessu ári og
var afmælisins minnst með hátíðarhöldum.
Rektor háskólans er nú Guðmundur Magn-
ússon, en hann var áður prófessor við við-
skiptadeild háskólans. Hann tók við rektors-
embætti af Guðlaugi Þorvaldssyni, sem nú
gegnir störfum sáttasemjara ríkisins. Morg-
unblaðið átti samtal við Guðmund um há-
skólann, helsta menntasetur þjóðarinnar.
Stofnun háskólans tengd-
ist sjálfstæðisbaráttunni
„Háskólinn er ung stofnun þeg-
ar litið er til sögu þjóðarinnar, en
á þeim tíma sem iiðinn er frá
stofnun skólans hefur ef til vill
gerst meiri saga en á nokkru öðru
tímabili í sögu þjóðarinnar. Stofn-
un Háskóla Islands tengdist
sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar og
var skólinn ávöxtur af baráttu
þjóðvakningarmanna og var það
engin tilviljun að stofndagur skól-
ans var valinn 17. júní árið 1911, á
aldarafmæii Jóns Sigurðssonar
forseta, en Jón hafði laust fyrir
miðja 19. öld vakið máls á stofnun
þjóðskóla,“ sagði Guðmundur.
Fjölnismenn upphafs-
menn háskólamálsins
„Það má segja að Fjölnismenn
hafi verið upphafsmenn háskóla-
málsins og vakti Tómas Sæ-
mundsson máls á nauðsyn íslands
í þessu tilliti, í riti sem hann skrif-
aði árið 1832. Fjórum árum áður
hafði Baldvin Einarsson rætt um
það í ritgerð, hverra umbóta væri
þörf á Bessastaðaskóla — að hann
yrði gerður að einskonar yfirskóla
eða háskóla. Samkvæmt hug-
myndum Baldvins átti að kenna
þar læknisfræði, náttúrufræði,
hagfræði, verslunarfræði, guð-
fræði og heimspeki. I tillögum
Jóns Sigurðssonar var á svipaðan
hátt gert ráð fyrir kennslu í gagn-
fræðum, þeim til handa sem stund
lögðu á höfuðatvinnugreinarnar.
Þess utan átti að kenna lifandi
tungumál, söng, teikningu, fim-
leika, ræðuflutning og heimspeki.
Átti skólinn að verða í senn lyfti-
stöng fyrir almenna menntun og
dugnað þjóðarinnar."
Háskólamálió mál
almennings í landinu
„Arftaki Jóns Sigurðssonar for-
seta í baráttunni, Benedikt
Sveinsson sýslumaður og alþingis-
maður, hélt merki Jóns á lofti eft-
ir fráfall hans og flutti hann hvað
eftir annaö frumvörp á Alþingi
um stofnun háskóla. Frumvörpun-
um var ýmist synj^ð um staðfest-
ingu af konungi, voru felld á þingi,
eða svæfð í nefnd. En þar kom að
dr. Jón Þorkelsson bar upp frum-
varpið á Alþingi árið 1893 og var
það þá samþykkt sem lög, en kon-
ungur synjaði því staðfestingar.
En þá urðu þeir atburðir sem
sýndu glögglega hve mikinn
hljómgrunn háskólamálið átti
meðal þjóðarinnar. Systir Bene-
dikts Sveinssonar, Þorbjörg
ljósmóðir, var þá einn mesti
kvenskörungur i bænum. Tók hún
iðulega til máls á kosningafund-
um, þó konur hefðu ekki kosninga-
rétt á þeim tíma. Taldi hún konur
á að beita sér fyrir háskólamálinu
og voru rök hennar meðal annars
þau að um væri að tefla velferð
sona þeirra og dætra og framtíð-
arheill landsins. Þetta sýnir hve
háskólamálið var mikið baráttu-
mál um síðustu aldamót og sam-
einaðist fólk af öllum stéttum um
þetta mál. Þetta var mál almenn-
ings í landinu."
Breytingunum má
líkja viö byltingu
„Breytingarnar sem orðið hafa
frá því Háskóli íslands var stofn-
aður eru slíkar, að jafna má þeim
við byltingu. I upphafi hírðist há-
skólinn í nokkrum stofum í Al-
þingishúsinu og í gömlum kinda-
kofa þar hjá, en þar fóru líkkrufn-
ingar fram. Á þessum tíma hefur
þjóðinni fleygt fram og öll at-
vinnustarfsemi hefur fært út kví-
arnar, mannfjöldi aukist og stofn-
anir bólgnað út — stofnanir sem
ekki voru til þegar háskólinn var
stofnaður.
Háskólinn hefur þurft að taka
við miklum fjölda ungmenna sem
íslensk heimili hafa sent út á
menntabrautina, og í þeim til-
gangi að fullnægja kröfum aukins
fjölda nemenda hefur skólinn
þurft að taka upp fleiri náms-
brautir, því augljóst var að gömlu
embættismannaskólarnir og
heimspekideildin gátu ekki mætt
kröfum um nám við hæfi fjöl-
margra nýrra nemenda. Þá gerði
atvinnulífið líka sínar kröfur og
þegar námsleiðir erlendis lokuðust
vegna heimsstyrjaldarinnar síð-
ari, varð ekki undan því komist að
koma á fót kennslu í ýmsum
greinum, eins og til dæmis verk-
fræði, viðskiptafræði og náttúru-
fræði. Þrátt fyrir þetta batnaði
sáralítið aðstaðan til fræðilegrar
starfsemi og Háskólabókasafnið
var ætíð í fjárkröggum og er svo
enn, en sífellt hélt samt háskólinn
áfram að færa út kvíarnar. Stofn-
að var til nýrra námsbrauta og
háskóladeildum fjölgaði, án þess
að unnt væri að efla hinar," sagði
Guðmundur.
Byggingar risu
„Á fyrsta skeiði háskólans var
hann að mestu leyti kennslustofn-
un, en á næsta tímaskeiði hans,
frá fjórða áratugnum til hins
sjöunda, var mikið uppgangstíma-
bil í sögu hans. Margir menn
komu við sögu á þessum tíma, og
var Alexander Jóhannesson próf-
essor einn mesti frumkvöðull
nýrrar uppbyggingar í rannsókn-
um og kennslu. Þótt á erfiðum
tímum kreppuáranna væri, reis
hver byggingin á fætur annarri á
háskólasvæðinu. Undirstaða þess-
arar miklu uppbyggingar var sú
að árið 1933 fékk skólinn einka-
leyfi á rekstri peningahappdrættis
á íslandi."
Nýjar kennslugreinar
„Árið 1940 var tekin upp
kennsla í-verkfræði og verkfræði-
deild var stofnuð árið 1945, en árið
1942 var tekin upp kennsla til
BA-prófs í ýmsum greinum. Nýir
kennslustólar voru stofnaðir í ís-
lenskum fræðum og kennsla i
heimspekideild var aukin og stóð
aukningin í 3 áratugi, þar til
nokkrar greinar voru sniðnar af
deildinni og félagsvísindadeild var
stofnuð árið 1976. í viðskiptafræði
hófst kennsla árið 1941 innan
lagadeildar, en viðskiptadeild var
stofnuð árið 1962. Kennsla í tann-
lækningum var tekin upp innan
læknadeildar árið 1945 og árið
1957 var efnt til kennslu í lyíja-
fræði innan læknadeildar. Árið
1970 var tekin upp kennsla í verk-
fræði og er það eitt stærsta skref-
ið í sögu háskólans. Ekki má held-
ur gleyma Orðabók háskólans og
hafa hátt á aðra milljón orðaseðla
verið skrifaðir."
Gjafabréf Reykjavíkurborgar
„Forsenda byggingafram-
kvæmda á háskólalóðinni síðast-
liðin 20 ár er gjafabréf Reykjavík-
urborgar, sem dagsett var á hálfr-
ar aldar afmælinu og var bréfið
undirritað af Geir Hallgrímssyni
borgarstjóra. Minnir það bréf á
annað bréf, frá 29. mars árið 1930,
en það skrifaði Knud Ziemsen
borgarstjóri undir, og færði skól-
anum að gjöf „svæðið austan við
Suðurgötu, gegnt íþróttavellinum
á Melunum, en sunnan við
Hringbraut". Það er ánægjulegt
að minnast þess hve Reykjavík-
urborg hefur látið sér annt um
Háskóla íslands, eins og fram
kemur í gjafabréfunum. Saga há-
skólans hefði orðið önnur ef hon-
um hefði verið holað niður á að-
þrengdu svæði, innan um aðra
byggð bæjarins, eins og til stóð
um tíma. Þá hefði skólinn ekki
notið hinna miklu stækkunar-
möguleika sem í gjöfum Reykja-
víkurborgar fólust."
Samansafn háskóla
„Það má segja að Háskóli Is-
lands sé samansafn háskóla, að
því leytinu til að margar þeirra
greina sem kenndar eru við há-
skólann eru kenndar við sérskóla
erlendis. Fáir háskólar bjóða upp
á allar þær kennslugreinar sem
Háskóli íslands býður upp á. Og
með aukinni sérhæfingu í svona
litlu þjóðfélagi verður í ríkari
mæli að líta til manna utan skól-
ans, einkum við kennslu í læknis-
fræði og verkfræði, sérhæfingin er
að verða meiri og meiri, enda er
háskólinn eini aðilinn í landinu
sem stundar grunnrannsóknir,"
sagði Guðmundur.
Fjárhagslegt sjálfstæði
„Þá má nefna annað atriði sem
er sérstætt við háskólann, en það
eru fjármál hans og rekstur. Há-
skólinn hefur ákveðinn tekjustofn,
sem er happdrættið. Fyrir pen-
inga sem komið hafa í gegnum
happdrætti háskólans hafa nær
allar byggingar háskólans verið
kostaðar og þýðir þetta í reynd, að
í veigamiklum atriðum er háskól-
Lituö boröstofuhúsgögn úr massívri
furu, 3 geröir af borðstofuboröum, 2
geröir af stólum, 4 geröir af skápum,
skatthol o.fl.
Útborgun Vz eftirstöövar á 6 mán.
Húsgagnasýning í dag kl. 2—5.
SENDUM GEGN PÓSTKRÖFU
ARMULI 4 SIMI82275
Bazar - - Bazar
Kökubazar veröur í Heymleysingjaskólanum við
Öskjuhlíö í dag, sunnudaginn 8. nóv. kl. 14.00.
Foreldrar og styrktarfélag heyrnardaufra.
Furulímtrés
-stigar
Eigum pallastiga í ýmsum stæröum
og nokkrar aðrar gerðir stiga til af-
greiðslu strax.
Allir stigar unnir úr 2“ furu
límtré.
GðdðJ-
Gásar, Ármúla 7. Sími 30500.
Heimasímar Ólafur: 50208. Hreinn: 85368.