Morgunblaðið - 08.11.1981, Page 14

Morgunblaðið - 08.11.1981, Page 14
62 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1981 Pottarím Umsjón: SIGRÚN DAVÍÐSDÓTTIR Ég er greinilega öll á kínversku línunni þessa dagana og hér fylgir kínverskur fískréttur, rétt eins og framhald af kínverska pottréttin- um um daginn. Góða skemmtun! Steiktur fiskur með sellerísalati (Handa fjórum) Kínverjar ýmist baka eða gufusjóða fisk sinn heilan, djúpsteikja hann eða snögg- steikja í litlum bitum á pönnu. Hér er þó eiginlega ekki gert neitt af þessu, heldur er fiskur- inn steiktur í olíu á pönnu, eftir að honum hefur verið velt upp úr eggi og hveiti. Eiginlega ætti að djúpsteikja hann, en þar sem það er töluvert umstang er látið nægja að steikja hann í olíu á pönnu eða í víðum potti. Árang- urinn verður góður. Notið góða olíu. Það er til vínberjasteinaolía frá Castus, sem fæst nokkuð víða í matvöruverzlunum og auk hennar frönsk tegund sömu ölíu í sumum SS-búðum. Sú olía hentar einkar vel til að steikja úr, og ekki hentar hún síður við djúpsteikingu. Annars notið þið það sem þið eruð vön. Með þessum rétti er bezt að bera fram soðin hýðishrísgrjón. Ég talaði um hrísgrjónasuðu og mikilvægi hennar í þættinum um pottréttinn og er því ekkert að endurtaka það strax, en vísa í fyrri leiðbeiningar. Framkvæmdin er einföld. Þið byrjið á því að setja upp hrís- grjónin. Á meðan þau sjóða und- láta hana hitna hægt og rólega. Þið hafið ykkar aðferð við hitun- ina. Þegar olían er orðin vel heit, er hægt að byrja að steikja. Steikið nokkra bita í einu. Þeir eiga að vera fallega gylltir að utan, þá eru þeir líka nægilega steiktir að innan. Takið þá var- lega upp með spaða eða tveimur göfflum. Kínverjar sjálfir nota prjóna við matseldina, en þið sjáið nú kannski til með það. Raðið steiktum bitunum á disk og haldið þeim heitum. 3. 1 stöngulselleríhöfuð sjóðandi vatn 2 msk. kínversk soja (ekki sósulitur) 1 tsk. chillisósa 1 msk. matarolía, t.d. sól- blóma- eða vínberjasteina- olía. Skerið stönglana í um 3 cm bita og hvern bita í fremur mjó- dropa, því hún er mun sterkari en sú kínverska. Grænmetisþankar á vetrarnóttum Nú er íslenzk grænmetisupp- skera um það bil að hverfa, eins og eðlilegt er. Það er því ekki úr vegi að staldra við og hugleiða grænmetismálin. Miðað við hvað margvíslegar tegundir grænmetis eru fluttar inn utan uppskerutíma íslenzks grænmetis, er það nokkurt undr- unarefni hve seint íslenzkir grænmetisbændur taka við sér í ræktun nýrra tegunda. Þeir hafa með sér öflug sölusamtök og því ætti að vera hægðarleikur að auglýsa og kynna nýjar tegund- ir. Þó e.t.v. hafi eitthvað verið reynt að kynna grænmeti fyrir Kínverskur fiskréttur irbúið þið réttinn, og hann verð- ur líkast til tilbúinn um líkt leyti og hrísgrjónin eru hæfilega soðin. 800 gr. beinlaus fiskur, flök eru þægilegust 1 egg 2 dl hveiti salt eftir smekk olía 1. Roðflettið fiskinn og skerið hann í um 5 cm langa og fremur • mjóa bita, um 3 cm á breidd. Veltið fiskinum upp úr eggi og síðan úr hveitinu. Éf eggið þrýt- ur er ekki um annað að ræða en bæta öðru við. 2. Hellið olíu í pott eða á pönnu, svo lagið verði um 1 cm á dýpt. Hitið olíuna. Ég læt nægja að stilla plötuna á 4 (af 6) og ar ræmur langsum. Ef stöngl- arnir eru orðnir slappir af geymslu, þá er bezt að láta nú ræmurnar liggja í ísköldu vatni í um 5—10 mín., t.d. meðan þið steikið fiskinn. 4. Setjið upp pott með vatni og látið suðuna koma upp. Þegar vatnið sýður, dembið þá sellerí- inu í pottinn og látið það sjóða í 30 mín. eftir að suðan kemur upp. Hellið svo selleríinu strax í sigti og látið vatnið renna af því. Blandið sósuna og hellið henni yfir selleríið. Kínverjar bera réttinn gjarn- an þannig fram, að þeir hella sellerísalatinu á fat og raða fiskinum þar á. Þið getið auðvit- að borið fisk og sellerí fram hvort í sínu lagi, og hrísgrjónin þar að auki. Vel á minnzt, athugið með chilisósuna. Það hefur sézt hér í búðum kínversk chilisósa, og hún er auðvitað sjálfsögð, ef þið náið í hana. Annars getið þið notað aðrar tegundir. Gætið þó þess að þær geta verið missterk- ar. Ef þið notið t.d. Tabascosósu skuluð þið aðeins nota nokkra margt löngu og það ekki þótt takast allt of vel, verður að hafa í huga að nú eru aðrir tímar. Við neytendur erum nú mun mót- tækilegri fyrir nýjum tegundum og nýjum uppskriftum. Við höf- um ferðazt til framandi landa og kynnzt matreiðslu þar. Þegar minnzt er á nýjar teg- undir, minni ég enn og aftur á kryddjurtaræktun. Ég vona innilega að við eigum eftir að sjá meira af kryddjurtum næsta sumar. Það var sannarlega ekki um auðugan garð að gresja í sumar. Það var þó gott framtak hjá a.m.k. Blómavali að selja jurtir í pottum. En við viljum líka sjá afskorin knippi í mat- vöruverzlunum. Það er varla hægt að skrifa um grænmeti án þess að minn- ast á frændjurtirnar tómata og kartöflur. Enn þurfti að koma til þess að tómötum væri hent. Það ku stafa af offramboði. Hvernig skyldi bændunum sjálfum liða að horfa á eftir vinnu sinni á haugana. Einhver kann að segja að þeir fái samt borgað fyrir þetta. En það er engin huggun. Það er búið að leggja vinnu og umönnun í ræktunina. En þetta er ekki aðeins tilfinningamál. Svona nokkuð hlýtur að stafa af gloppu í sölufyrirkomulaginu. Ég og fleiri neitum algjörlega að trúa að svona nokkuð þurfi að koma fyrir, ef betur er vakað yf- ir verðlagi og framboði. Það eru örugglega fleiri en ég sem vilja kaupa ódýra tómata, sem eru i u.þ.b. að verða ofþroskaðir. Von- | andi grípa grænmetisbændur til róttækra ráða og hugsa sitt mál vel fyrir næsta sumar. Svona að- farir bera vott um stjórnleysi og skipulagsskort. Og svo eru það kartöflurnar. Þar virðist vera sama íhalds- semin. Af hverju eru ekki rækt- aðar fleiri tegundir af kartöfl- um, sem henta í mismunandi matseld? Af hverju fáum við I ekki nýjar og nánast hýðislausar l kartöflur á haustin, rétt eins og þeir sem rækta sjálfir? Af hverju er ekki líka hægt að bjóða upp á kartöflur í lausri vikt, auk kartaflna í pokum, svo hver og einn geti valið sér eftir smekk? Það er varla sennilegt að nokkur vaði úr kartöfluhrúg- unni og fari að róta með berum höndum í kjötinu. Nú í sumar var meira um líf- rænt ræktað grænmeti en áður, og það er vel. Það er óneitanlega mjög traustvekjandi að fá slíkt grænmeti. Víða erlendis er að koma æ betur í ljós að það er ekki endalaust hægt að pína gróðurinn áfram með áburðar- gjöfum, eitri og hormónagjöf- um. Þá lætur ansi margt undan. Plönturnar verða veikari fyrir sjúkdómum, ávextirnir verða næringarlitlir og geymast illa. Þessi þróun ætti að vera okkur hér víti til varnaðar. Það er kominn tími til að framleiðendur átti sig á að við neytendur viljum fjölbreytt úr- val af góðu grænmeti og við er- um alveg til í að reyna nýjar tegundir og nýjar uppskriftir, ef okkur er gefinn kostur á slíku. Kynning og auglýsingar eru kannski dýrar, en það er líka dýrt spaug að henda uppsker- unni og óskemmtilegt að halda e.t.v. aftur af áhugasömum grænmetisbændum. Í(C^ ST. PETERSBURG BEACH ^gpúrvals staður FlORIDA Vikulegar brottfarir - Dvöl að vild. - Sér jóla- og nýjársferðir, 3 vikur: 17. des. - 8. jan. / 29. des. -19. jan. - Verð frá kr. 9.500.- V URVAL við Austurvöli S 26900. SKÍÐAIÐKENDUR Njótið hverrar mínútu á skíðum. Nú er rétti tíminn til að hefja þrekæfingar fyrir skíðaferðirnar í vetur. Aukið ánægjuna í fríinu erlendis og hér heima um leið og þið minnkið slysahættuna. Við bjóðum upp á langbestu æfingaaðstöðu hérlendis i sérhæfð- um tækjöm. /Efingaskrá er sérunnin fyrir þig í samræmi við óskir þínar og markmið. Gufubað, sólböð, nuddbelti og nuddkefli og hvild á eftir í glæsilegri setustofu, ásamt kaffi að sjálfsögðu, er innifalið í mánaðargjaldi sem er kr. 380.-. Steinunn Sæmundsdóttir semur æfingaskrár fyrir skíðafólkið og leiðbeinir á ákveðnum tímum. Þjálfarar eru ávallt til staðar. Nú er bara að drífa sig og mæta í næsta æfingatíma. Opnunartímar K0NUR KARLAR Mán. kl. 9-12 Þri. kl. 8-23 Mið. kl. 9-12 Fim. kl. 8-23 Fös. kl. 9-12 Lau. kl. 9-15 Sun. kl. 12-22 kl. 12-22 kl. 12-21 kl. 10-15 Komutími á æfingar er frjáls AI'OLLÓ si LIUASUKT Brautarholt 4, sími 22224 Þú nærö árangri í Apolló Steinunn Sæmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.