Morgunblaðið - 08.11.1981, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 08.11.1981, Blaðsíða 16
64 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1981 Einn góðan veðurdag nú síðsumars fyllti Jón Óskar, rithöfundur, sjötta tug ára sinna — og var þá að heiman, eins og margra manna er siður á merkisafmælum. Jón Óskar er einn af forvígismönnum atómskáldskaparins hér á landi. Hann hefur og með Ijóðaþýðingum sínum og ritgerðum kynnt erlenda nútímaljóðagerð, einkum franska. Hann hefur gefíð út nokkrar frumsamdar Ijóðabækur, smásögur, skáldsögu, ferðabók og ritgerðasafn. Síðast en ekki síst ber að nefna minningabækur hans, sex bindi. Þær bækur hafa, auk almenns fróðleiks og bókmenntagild- is, að geyma miklar og merkar heimildir um nútímaljóðagerð. Hér eru birtir nokkrir kaflar úr þessum minningabókum, aðeins stutt sýnishorn. Þrípunktarnir merkja úrfell- ingar. Jón Óskar af því að ég hafi gleymt sumu af því sem orkaði á huga minn við bóklestur, blaða- lestur, fréttir og annað ... Eg orti í stóra þykka stílabók mörg ljóð í tilraunastíl, þar til bókin var fullskrifuð að kalla. Þetta var hvorki í ætt við Stein né Tómas né önnur íslenzk skáld, og sjálf- sagt einkennilegt uppátæki á árunum 1943 og 1944, en ég gat ekki fundið annað en ég væri að gera bókstaflega það sem ég ætti að gera. Sumt var undir áhrifum frá danslögum, til dæmis reyndi ég að ná rúmbutakti, en það tókst ekki sem skyldi. Ég orti kvæðabálk í mörgum köflum sem átti öðrum þræði að vera eins konar tákn um heimsástandið og það tímabil sem þá var lifað ... Ég fleygði að lokum bókinni með öllu sem í henni var. Eitt kvæði um auðvaldið varð þó eftir og eitt kvæði fékk ég birt í Þjóðviljanum og einn stuttur kafli, ég held stytzti kaflinn úr langa bálkinum hefur geymzt hjá mér vélritaður (úr bókar- vel og fóru smátt og smátt á kaf í ab- straktlistina eftir þeirri tízku sem uppi var í París, Jóhannes Jóhannesson með sérkennilega ílangt höfuð, hýrlegur til augnanna, nýkominn frá myndlistarnámi í Bandaríkjunum, Kjartan Guðjónsson, einnig hýrlegur til augnanna með fínlegt og drengslegt andlit, en Kristján Davíðs- son kom ekki oft á þann stað með sitt Ijónsandlit og sínar hvössu sjónir, enda byrjaði hann snemma að efast um komm- únismann. Ungu skáldin komu inn hvert á sinn hátt, Þorsteinn Valdimarsson bros- hýr, núandi saman fíngerðum höndum sín- um, byrjaði að tala með hlátri og glensi áður en hann settist við borð, var þá að verða mestá átrúnaðargoð Flokksins í skáldahópi, og raunar hvérs manns hug- ljúfi, Sigfús Daðason, alvarlegur og hvítur í framan eða með fyrirlitningarglott á vör eins og hann kærði sig kollóttan um heim- inn, þegjandalegur og talaði aldrei með virðingu um pólitík, Jónas Svafár sem leið komu ungir leikarar, Gísli Halldórsson sem ég hefði ekki trúað að yrði leikari, þegar ég sá hann fyrst í Utvarpstíðinda- vinnu hjá Jóni úr Vör, hæggerðan og feim- inn dreng, Kristín Anna Þórarinsdóttir, kornung og geislandi af fjöri, þá nefnd Anna Stína, og kannski voru einhverjir í tónlistinni, að minnsta kosti Jón Asgeirs- son, hávær í tali og hláturmikill. Sumir komu ekki fyrr en líða tók á áratuginn, en þeir komu. — Gangstéttir í rigningu 1971 — Ég sat inni í rökkvuðum salnum að Laugavegi 11 og allt var breytt. Ég hitti þar vini mína og horfði á ný andlit og sá menn sem komu frá París. Og þeir fóru aftur til Parísar. En aðrir komu frá Sví- þjóð og fóru aftur til Svíþjóðar. Sumir komu frá Danmörku og fóru aftur til Dan- merkur. Enn aðrir komu frá Þýskalandi og fóru aftur til Þýskalands. Hugur minn var í Frakklandi. SEXTUGUR MAÐUR MEÐ SEX MINNINGABÆKUR Það er upphaf þessa máls að ég var nem- andi í gagnfræðaskólanum Flensborg í Hafnarfirði og þekkti engin skáld nema fáein skólaskáld úr öðrum skóla ... Ég hafði litið upp til skáldanna í héraðsskól- anum, en það hafði aldrei hvarflað að mér að ég gæti sjálfur ort. Nú var ég sautján ára. Og þá var það einn dag, að ég frétti af því að frændi minn, sem var nokkrum ár- um yngri en ég, gæti ort svo ljómandi góð- ar vísur. Hvað er þetta! hugsaði ég og sagði við sjálfan mig: Úr því hann getur ort, þá ætti ég að geta það líka. Þetta var ekki gáfuleg ályktun, en þannig urðu nú samt tildrög þess að ég byrjaði — fyrir alvöru — að yrkja kvæði og skrifa sögur. Ég hafði á barnsaldri samið eina sögu, en mér var bent á að hún væri vanhugsuð. Þar við sat. Ég hafði aldrei verið samferða fólki sem orti eða talaði um skáldskap. Að sönnu átti móðir mín þykkar skrifbækur fullar af kvæðum sem hún hafði ort um tvítugt, en ég vissi það ekki, því móðir mín talaði aldrei um þessar bækur og sýndi mér þær ekki fyrr en ég var sjálfur kom- inn með skáldagrillur, og þegar ég ætlaði að fá að glugga í þær aftur seinna, kvaðst hún hafa fleygt þeim í eldinn. Engar ljóðabækur voru til heima hjá mér, þegar ég var á barnsaldri, og yfirleitt engar fagurbókmenntir, engar Islend- ingasögur, litlar eða engar þjóðsögur. Ég kynntist þó á barnsaldri kvæðinu Gunn- arshólma eftir Jónas Hallgrímsson. Þá var ég snúningastrákur hjá Birni Blöndal í Laugarholti í Bæjarsveit, en tengdamóðir hans, Halldóra Pétursdóttir, móðir Þor- geirs Sveinbjarnarsonar skálds, lét mig hafa eftir sér, þar til ég kunni utan að: Skein yfir landi sól á sumarvegi og silfurhláan Eyjafjallatind gullrauðum loga glæsti seint á degi. Þetta hefur allt til þessa dags verið mér einhver dýrlegasti skáldskapur sem ís- lenzk tunga geymir, og þegar ég nú rifja upp kvæðið, vekur það sízt undrun mína að finna þar svipaða hrynjandi og í sumum atómkvæðum mínum, sem menn hafa heizt viljað setja í samband við tónlist- armenntun mína, til dæmis: Þú vaknar morgun einn og sérð til veðurs og hak við þig er heimsins mikli draumur o.s.frv. — Fundnir snillingar 1969 — ... Það var eins og yfir mig kæmi spá- sagnarandi eða einhver væri að yrkja í gegnum mig. Ég get ekki sjálfur fyllilega skilið hvers vegna sum kvæði mín urðu eins og þau urðu, en það getur líka stafað handriti) og getur hann ef til vill verið skemmtilegur til fróðleiks: Góðan daginn, fólk. Ég stend í dyrunum og horfi á ykkur. Já, þið eruð fólkið. Og ég halla mér upp að dyrastafnum. Ó, fólk. í dag er mánudagur. I dag er þriðjudagur. Til hamingju með afmælisdaginn. Má ég biðja um einn Lucky Strike? Margar aldir hafa runnið. Margar aldir eiga eftir að renna. Eða hvað? Menn eru þreyttir, og er það ekki líka von ? 0, fólk, ég horfi á ykkur. Já, þið eruð fólkið. Konur! Nú standa garðarnir í blóma. Hversu veikt er ekki holdið ... Ó, soldið. Meðan garðarnir standa í blóma. Ó, fólk. Ég er meðal ykkar. Óg ég horfi á mig, þar sem ég stend í dyrunum. Einkennilegt að sjá hvernig ég halla mér upp að dyrastafnum. — Hernámsáraskáld 1970 — Listamenn, rithöfundar og alis konar menningarforkólfar hafa jafnan verið þaulsætnir á kaffistöðum, þar sem blánk- heitamenn geta setið yfir molakaffi tím- unum saman án þess að amast sé við þeim. Slíkur staður var Hressingarskálinn við Austurstræti þangað til þar fór að verða fjölmennt af hermönnum og íslenzkum fylgikonum þeirra og innréttingum húss- ins breytt, svo allir töfrar voru á burt. Ýmsir góðir gestir og svipmiklir, svo sem Ólafur Friðriksson og Jón Árnason stjörnuspámaður og fleiri, leituðu þá á aðra staði sem nú voru nýir, eins og til dæmis Giidaskálann við Aðalstræti. Sá kaffistaður, nýr af nálinni, sem dró hins- vegar mest að sér listafólk og mennta-, einkum ungt fólk, þegar stríðsárin voru að baki, var kaffistofan Miðgarður eða Kommakaffi, eins og sumir nefndu það, á horninu á Þórsgötu og Týsgötu. Nú heitir Brauðbær, þar sem kaffistofan var. Ástæðan fyrir því að staðurinn dró að sér ungt, bókmenntasinnað fólk, lista- menn, rithöfunda, skáld, var sú að Sósíal- istaflokkurinn stóð á bak við reksturinn, en flestir listamenn, skáld og rithöfundar, einkum þeir sem ungir voru á þeim tíma, sósíalistar eða vinstri sinnaðir í hugsun. Á þennan stað komu ungir myndlistar- menn sem voru lítt við alþýðuskap af því að þeir stældu ekki fyrirmyndirnar nógu inn á gólfið hægt eins og í draumi, augun dálítið starandi, grannvaxinn og minnti á lítinn dreng, Kristján frá Djúpalæk sem slengdist inn, ef hann var staddur í bæn- um, langur og svipmikill og var sem höfuð hans næmi við loft, sérkennilega lagað og laust við samræmi, hefðbundinn í ljóðum sínum, alltof hefðbundinn fyrir mig, var held ég að gefa út aðra bók sína í þayn- arskóy þegar ég sá hann fyrst, og ég kynntist honum ekki fyrr en hann var í Hveragerði, í skáldanýlendunni. Stundum kom Hannes Sigfússon inn í fylgd með öðrum, efunargjarn, vissi ekki hvort hann ætti að halla sér til hægri eða vinstri, hélt áfram að efast um það út áratuginn, var annað kastið í útlöndum. Skáldsagnahöf- undurinn ungi, Elías Mar, var einnig mikið í útlöndum, kom varlega og fremur tign- arlega inn úr dyrunum á Miðgarði, þegar hann var ekki í útlöndum, hafði verið í Kaupmannahöfn „við nám og ritstörf um það bil eitt ár“ eins og stóð í Þjóðviljanum í ágúst 1947 ... Stundum var hann í Svíþjóð, þar sem hann skrifaði smásögu um skáld á hvítu torgi, slengdi okkur kunningjum sínum saman ásamt sér sjálfum og minntist okkar í fjarlægðinni. Jónas Árnason kom inn úr dyrunum þyngslalegur í fasi, breið- ur um herðar og teinréttur, var blaðamað- ur hjá Þjóðviljanum eða ritstjóri Land- nemans eða eitthvað annað, Ásmundur Sigurjónsson kom heldur gustmikill inn og byrjaði að tala um leið og hann settist við borð, ef einhver var til að tala við, lítill, svartleitur og gáfulegur til augnanna, hafði verið við nám í útlöndum, síðan blaðamaður hjá Þjóðviljanum. Þarna JÓN ÓSOR FUNDNIR SNILLING7IR IÐUNN Andrúmsloftið að Laugavegi 11 var eins frábrugðið andrúmsloftinu á Miðgarði og andrúmsloftið á Miðgarði var frábrugðið þeim blæ sem ríkt hafði á Hressingarskál- anum. Þessir staðir voru einnig hver öðr- um ólíkir að innviðum og öllum búnaði. Það var nýtt að Laugavegi 11, sem að vísu var einnig nýtt á svonefndum Adlonbar í Aðalstræti, sem sumir nefndu járnbraut- arvagninn, sumir Orminn langa, að innvið- ir voru dökkir og plasthúðuð borðin, en engir dúkar. Allstórt anddyri var að Laugavegi 11, þar var sælgætissala við skeifulaga borð vinstra megin þegar inn var komið, en gegnt inngöngudyrunum voru stórar opnar dyr inn í sjálfan kaffi- salinn, þar sem birtan var horfin. Hress- ingarskálinn var bjartastur og skemmti- legastur kaffistaða áður en honum var breytt samkvæmt amerískum áhrifum sem sumir halda að hafi engin verið hér. Kringum 1950 var ekki enn búið að breyta honum í það horf sem nú er. Þá var enn ofurlítið afmarkað borðasvæði hægra megin við dyrnar, þegar inn var komið, þar sem nú er köku- og tóbakssala. Þar sat Steinn Steinarr oft og tíðum við glugga- borð síðari árin. Kaffihúsið Miðgarður var þrengri staður og heldur dimmari og þar fóru menn úr yfirhöfnum í þröngri for- stofu. Laugavegur 11 var dimmastur allra kaffistaða. Þróunin í kaffihúsamenningu bæjarins var frá ljósi til myrkurs, frá hvítum eða bláköflóttum dúkum í dökk- brúnleitt plast með kaldar borðrendur úr málmi ... Eitt fyrirbæri frá Laugavegi 11 verður áleitið, þegar ég horfi um öxl. Það er Steingrímur Sigurðsson. Hann kom inn í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.