Morgunblaðið - 08.11.1981, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1981
69
Ekki þurfa allar nýlendur að vera sívainingar. Sumar gætu
verið hjól, og þessi mynd sýnir hvernig umhorfs- yrði inni í
slíku hjóli. Næst okkur er iítil borg, en fjær er landbúnaðar-
svæði. Byggingarnar yrðu úr múrsteini, stáli, áli og gleri.
Að búa
i geimnýlendu
í hverri nýlendu myndu búa
allt að nokkrar milljónir
manna. Þar yrði því eðlilega
nokkuö þröngt á þingi, en
ýmsir kostir nýlendnanna
myndu vega upp á móti
þrengslunum. Veðurfari yrði
algerlega stjórnað af nýlendu-
búum. Hitastigi og birtu yrði
stjórnað meö sérstöku
speglakerfi utan á nýlendun-
um, sem varpaði sólarljósi
gegnum glugga á ný-
lendunum. O’Neill gerir ráð
fyrir að fyrsta nýlendan hafi
Hawaii-loftslag, en einnig má
hugsa sér sérstakar ferða-
mannanýlendur, svo sem fyrir
vetraríþróttir. í nýlendunum
veröur landslag: tilbúin fjöll og
dalir, ár og vötn. Flestar ný-
lendurnar verða sjálfum sér
nógar í fæðuframleiðslu, og
þar sem gróðurtíöin verður
samfelld, jörðin mjög frjósöm
og engir sjúkdómar, þá mun
þurfa lítið land til að afla fæðu
fyrir milljón manna. Nautgripir
yrðu of dýrir og óhentugir til
ræktunar í nýlendum, en kjöt
fengist af kanínum og hænum,
mjólk úr geitum, og einnig yrði
mikil fiskirækt.
Milljónanýlendurnar yrðu
fyrir alla þá sem vildu setjast
að í geimnum — landnema.
En að auki yröi nokkuö um
smáar nýlendur, þar sem unn-
iö yrði að sérhæfðum, oft
hættulegum verkefnum; svo
sem hættulegum vísindatil-
raunum. í slíkum nýlendum
yrði engin fæöuframleiösla,
enda væru þær aðeins vinnu-
staðir manna sem ættu heimili
sín í stórum nýlendum.
En hvað með hætturnar? í
raun yröi hættuminna að búa í
geimnýlendu en á jörðu.
Veggir nýlendnanna yrðu ein-
angraðir með 2 m þykku jarð-
vegslagi, þannig að geimgeisl-
ar kæmust yfirleitt ekki í gegn.
Að auki myndi lofthjúpurinn
gleypa geisla, líkt og á jörðu.
Meginhættan yrði fólgin í
árekstrum við loftsteina.
Flestir loftsteinar eru aðeins
litlar rykörður, og ef þeir
kæmust gegnum málmsívaln-
inginn sjálfan, myndi jarð-
vegslagið stöðva þá. Á nokk-
urra ára fresti rækjust þó það
stórir loftsteinar á einhvern
glugga nýlendunnar að hann
myndi brotna. En gatiö sem
myndaðist yrði það lítiö aö
nýlendan yrði mörg ár að
tæmast af lofti, og því gæfist
nógur tími til viðgerðar. Veru-
lega stórir loftsteinar, yfir
1000 kg, rækjust á tiltekna
nýlendu á nokkurra milljón
ára fresti, og líkurnar á slíkum
árekstri verða minni en líkurn-
ar á árekstri sambærilegs
loftsteins við stórborg á jörðu.
Framtíöin
Ljóst er, að geimnýlendur
verða ekki byggðar fyrr en
frekari reynsla er fengin af
veru manna í litlum geim-
stöðvum, eins og Skylab.
Einnig eru þær geimferjur sem
nú eru í notkun (Columbia)
ekki þess megnugar að flytja
menn í stórum stíl tii tunglsins
og geimverksmiðjunnar. Upp
úr næstu aldamótum, ætti þó
nægileg reynsla og tækni-
þekking að vera fyrir hendi til
smíði fyrstu nýlendunnar. Um
leið og smíði fyrstu nýlend-
unnar er lokið, veröa sjálf-
krafa smíöaðar fleiri nýlendur.
Þá munu menn ekki binda sig
við efni frá tunglinu, heldur
verða heilu smástirnin flutt að
þeim stað þar sem reisa á ný-
lendur, og efni þeirra notuð til
smíðinnar. Úr smástirnunum
fæst nægilegt vetni, koiefni og
köfnunarefni, þannig að þá
gerist ekki lengur þörf að
flytja þessi efni frá jörðu
(tunglbergiö skortir þessi
efni). Þannig verða nýlendurn-
ar endanlega algerlega óháð-
ar jörðu um aðföng.
í framtíðinni verða nýlendur
um allt sólkerfið, út að braut
Plútós. Fjarlægar nýlendur
munu að sjálfsögðu ekki selja
orku til jarðar, heldur reka al-
geran sjálfsþurftarbúskap.
Þegar svo er komið, veröur
þess skammt að bíða að
geimnýlendur, búnar kjarn-
orkustöðvum, haldi út úr sól-
kerfinu — í átt til annarra sól-
stjarna.
Tunglstöð. Við smiði fyrstu nýlendunnar verður notað efni frá tunglinu. Langa brautin er
slöngvivélin, sem notuð verður til að þeyta efni til þess staðar, þar sem nýlendan verður reist.
Hafnfirðingar,
Garðbæingar
Hef opnaö lækningastofu aö Strandgötu 34 Hf. 2.
hæð (Apótekshúsið).
Sérgrein: augnlækningar.
Tímapöntunum veitt móttaka í síma 54556 kl. 13—15
mánudaga til fimmtudaga.
Björn Már Ólafsson
augnlæknir.
Sýnum fjölbreytt úrval af
vönduöum sófasettum, ásamt
mörgum öörum eigulegum
húsgögnum.
Veriö velkomin.
• SENDUM GEGN POSTKROFU
VALHÚSGÖGN
ÁRMÚLI4 SÍMI82275