Morgunblaðið - 08.11.1981, Síða 23

Morgunblaðið - 08.11.1981, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1981 71 Engir venjulegir trimmarar + Kristján Einarsson Ijósmynd- ari Mbl. náói þessari mynd af tveimur trimmurum að kvöldlagi í veóurblíðunni í síðustu viku. Ann- ars eru þetta engir venjulegir trimmarar, báðir landsliðsmenn í íþróttum; Agúst Asgeirsson, hlaupakóngur og I’órarinn Ragn- arsson, handboltakappi. Agúst, sem eins og allir vita er margfaldur methafi í hlaupum, sagði að l'orarinn héldi alveg í við •sig, enda væri hann svo sem ekki ókunnugur á hlaupabrautinni. Og mikið rétt, Imrarinn var einu sinni í íslenska landsliðinu í frjálsum íþróttum. í Mbl. 23. júlí 1964 segir meðal annars svo í frásögn af landskeppni við Norðmenn: „Ég veit ekki hvernig mér tókst að krækja í annað sætið. Ég gat það ekki þó ég gerði það. hetta sagði hinn kornungi, en bráðefni- legi 800 m hlaupari hórarinn Ragnarsson frá Hafnarfirði eftir að hafa nælt í silfurverðlaunin í hinu klassíska hlaupi. Og þar sýndi hann tilþrif sem voru næsta sjaldséð hjá íslenska liðinu ... hetta var afrek sem mun lengi í minnum haft og rós í hnappagati þessa unga hlaupara." Hámark jaftiréttis? Svo sem Mbl. hefur greint frá, gerðust þau merkilegu tíðindi á þessu hausti, að ung stúlka skráði sig á „frjótæknanámskeið" Búnaðarfélagsins. (Þetta skringilega orð „frjótæknir" er nýyrði og þýðir einfaldlega sæðingarmaður.) Það mun vera fyrsta kon- an, sem lærir til þessa starfs, og eru Búnað- arfélagsmenn að von- um undrandi á þessu uppátæki, en í sjöunda himni yfir þessum liðsfeng. Stúlkan heit- ir Stefanía Sigurðar- dóttir, og henni finnst það bara hlægilegt, að blöð séu að gera veður út af svona ómerki- legum hlut. En hvaðan kemur hún af landinu? — Ég er frá Neista- stöðum í Flóa, segir hún og bý þar hjá for- eldrum mínum. — Hvernig gerðist það svo, að þér kom til hugar að gerast „frjó- tæknir"? — Ja, það var fyrir þremur árum eða svo, segir Stefanía, sem mér datt þetta fyrst í hug. Ég nefndi það þá við einn af þessum köllum sem sér um þessi mál, en þá var ekkert vitað, hvenær næst yrði haldið nám- skeið. Svo var hringt í mig núna í haust, og mér sagt það yrði haldið námskeið í nóv- embermánuði. Mér fannst tilvalið að drífa mig í þetta, hafði verið að vinna í sláturhús- inu, en þeirri vinnu var nánast lokið og lít- ið að gera heima um þetta leyti árs. Ég hafði aldrei leitt hug- ann að því, að ég yrði fyrsta konan sem tæki þátt í slíku námskeiði. Svo var mér sagt, að Morgunblaðið hefði birt um þetta frétt, segir Stefanía og skellihlær. Námskeiðið stendur til 26ta nóvember og ef allt gengur að óskum er Stefanía fullnuma „frjótæknir" á þeim degi. Hún er búfræð- ingur frá Hvanneyri 1978, og segir það kom ekki annað til greina en leggja fyrir sig búskap. — Ég er svona öll í sveitinni, bætti hún við .. . ÁFÖRNUM VEGI Samantekt J.F.Á. r I heimsókn I»au sátu á veitingastofu í Reykjavík, bíðandi eftir expressó-kaffi, Jiegar Ijósmyndari Mbl. Olafur K. Magnússon kom að þeim. - ítalskt expressójkaffi? spurði Ólafur. - Auðvitað önsuðu þau, hvað annað! Þetta eru þau hjón Dorriet Kavanna og Kristján Jóhannsson frá Akureyri. I»au eru komin í stutta heimsókn, og ætla að syngja með Sinfóníu- hljómsveitinni í þessari viku, en síðan að halda norður og dvelja þar nokkurn tíma og syngja fyrir fólk ... bijj t ií/t’ii ,4 ijii insu'i:i í l Tveir alþingismenn „á förn- um vegi“ með fimm mínútna millibili á Austurvelli. — Er þetta ekki Eiður Guðnason? — Jú, sá er maðurinn. — Og hvað er hann að gera á förnum vegi í þessu leiðinda- veðri? — Ja, ég brá mér bara í versl- un, að kaupa mér ávexti. Ann- ars er ég á leiðinni heim í hérað. Ég verð alla helgina að sýsla í mínu kjördæmi og tek fjöl- skylduna með mér. Það er aðal- fundur Sambands sveitarfélaga í Vesturlandskjördæmi, Reyk- holtsskóli á 50 ára afmæli, og svo verður vígður barnaskóli á Hellissandi. Það er víða sem þingmennirnir koma, segir Eið- ur og hlær. Ég kann þessu prýðilega, þó þetta sé að mörgu leyti erilsamt starf. Maður hefur afskipti af mörgum hlutum og oft býsna ólíkum. Jú, maður lifandi, það er alltaf eitthvað skemmtilegt að gerast. Kúnstin er bara að sjá það og finna það ... Og þar með hvarf Eiður Guðnason inní Alþingishúsið. Pétur Á Austurvelli stikaði maður mikill á velli. Það var Pétur Sigurðsson. Það lá vel á honum, eins og endranær. — En hvernig er það Pétur, er það satt, að þú standir í bóka- útgáfu, ofan á allt annað? — Já, það geri ég milli klukk- an fimm og sex á morgnana, ansar Pétur. Þetta er bók, sem við gefum út í Sjómannadags- ráði til styrktar Hrafnistu í Hafnarfirði. Tuttugu og fjórir þekktir íslendingar skrifa í hana ritgerðir og minningar, og þeir hafa allir gefið vinnu sína. Aftanskin mun hún heita þessi bók. í henni eru líka 26 teikn- ingar Sigfúsar Halldórssonar og Atli Már teiknar kápu. Við biöjum núna til guðs, að þessi vinnudeila í prentiðnaðinum leysist svo bókin komist út fyrir jólin. Við bundum mikið fé í þessari útgáfu, sem að öðrum kosti kemur ekki gamla fólkinu til góða. — Og í þessu brasarðu milli klukkan fimm og sex á morgn- ana? — Já, segir Pétur. Svo er það Hrafnista í Hafnarfirði fram eftir morgni, og þá taka við ým- is góð mál; þingið, sjómannafé- lagið o.s.frv. fram á kvöld. En ég hef aldrei sungið í karlakór

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.