Morgunblaðið - 08.11.1981, Side 24

Morgunblaðið - 08.11.1981, Side 24
72 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1981 Íflestargerðirbíla. Falleg - einföld - ódýr. Fást á bensínstöðvum Shell \n,I.VSIN(, \SIMIVS KR: 22480 Florflunfolntiifc HALFVAKANDI Þessir hringdu Duflað og dansað Reid húsmóðir í Vesturbænum hringdi: „Ég er alveg hætt að botna í æsk- unni. A mínum ungdómsárum var hangið á götunni öll kvöld. Um helgar skárum við niður þvotta- snúrur hjá ókunnugum, börðum austurbæinga, stútuðum rúðum hjá ellilífeyrisþegum, brutumst inn í sjoppur og svoleiðis. En núna virðist ekkert komast að hjá unga fólkinu nema Manhattan og aftur Manhattan. Strax kl. 19.00 er rok- ið í Manhattan til að borða veislu- mat á vægu verði. Síðan er dansað og duflað fram eftir öllu kvöldi. Morguninn eftir er ekki um annað talað en fjörið í Manhattan. Hvernig endar þetta eiginlega?" Afsakið Kjaftfor drengur hringdi. En hann hringdi víst í skakkt númer. Vilja bara sparibuxur Gallabuxnaframleiðandi hringdi: „Hvernig er það eiginlega með þennan vinsæla skemmtistað í Kópavogi? Af hverju hleypa þeir fólki ekki inn á gallabuxum? Unga fólkið er alveg hætt að kaupa af mér gallabuxur. það vill bara sparibuxur. Það segist ekki kom- ast inn á gallabuxum. Ég ráðlagði því að vera bara í gallabuxunum innanundir spari- buxunum. En þá spurðu þau mig að því hvort ég væri fífl. Ég horfði ákveðinn á þau og svaraði: „Nei.“ Maður verður nú að reyna að bera sig vel.“ AUGLÝSING s Fann gamla pylsu Svangur húsbóndi í Garðabænum hringdi: Ég er hættur að fá mat heima hjá mér. í gær fann ég t.d. bara eina gamla og skorpna pylsu í skápn- um. Og hún var víst handa hund- inum (þó hann hafi strokið að heiman snemma í vor). Krakkarn- ir og konan eru alveg hætt að hugsa um mig. Þau segja að það sé ekki ómaksins vert að sulla með hafragrautinn heima þegar hægt er að fá ódýran veislumat í Man- hattan og frábæra músík og dans- leik í kaupbæti. Ég sagði þeim nú barasta um síðustu helgi að ef þau ætluðu að vanrækja mig svona áfram, þá myndi ég hætta að segja þeim Hafnarfjarðarbrandarana sem ég kann. Og veistu hvað þau sögðu? Þau sögðu: „Bye, bye love/ Goodbye loneliness/ I’m gonna say goodbye" og dönsuðu út í bíl. Síðan hefi ég ekki séð þau. Blóm- in? Nei, við eigum bara plastblóm. En gullfiskarnir og páfagaukurinn dugðu í sitt hvora máltíðina. Skoskur innflytjandi hringdi. En hann þagði bara og skellti strax á, vegna skrefagjaldsins. Breskur „Pub” á Vínlandsbar. HÚTEL Verið velkomin! LOFTLEIÐIR í hjarta borgarinnar I kvöld hefjast undanriðlar íslands í heimsmeistara- keppninni í diskódansi með því að fimm manna dómnefnd keppninnar verður kynnt. Þá veröur skýrt frá tilhögun keppninnar og haldið áfram skráningu þátttakenda. lý\a p'at^i\ega kVnn eröur r8íS íöö 3unnarrllm^ötunnar Þrátt fyrir nafn keppninnar er þátttaka alls ekki bundin viö að dansaö sé við diskólög. Keppendur ráða því alfarið sjálfir hvaða lag þeir nota í keppninni. Öllum þeim sem náð hafa 18 ára aldri er heimil þátttaka. ^ world disco dancin'championship1981 ~The (fXeateit^TieeityLe L?ancín*£itent ín the lÁ/otLd Spakmæli dagsins: Þar má lengi dansinn stíga, þar sem laglega er kveðið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.