Morgunblaðið - 09.12.1981, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 09.12.1981, Blaðsíða 20
52 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1981 Votheysverkun trygg- ir bændum öryggi Eftir Þorvald Garóar Kristjánsson, alþingismann Hér fer á eftir framsaga I>orvald- ar Gardars Kristjánssonar (S) með tillögu til þingsályktunar um eflingu votheysverkunar. KÖSTIR VOTHEYSVERKUNAR Ég flyt þessa þingsályktunar- tillögu ásamt þingmönnunum Agli Jónssyni, Eyjólfi Konráð Jónssyni, Pétri Sigurðssyni, Steinþóri Gestssyni, Eggert Haukdal, Jósef H. Þorgeirssyni, Vigfúsi Jónssyni og Matthíasi Á. Mathiesen. Hér er lagt til, að Alþingi feli ríkisstjórn- inni að beita sér fyrir tilteknum ráðstöfunum til að stuðla að al- mennari votheysverkun en nú er. Ég ætla ekki hér að fara að tí- unda kosti votheysverkunar. Það er gert ítarlega í greinargerð með þingsályktunartillögu þessari. Ég geri ráð fyrir að þingmenn þekki almennt kosti votheysverkunar. Með votheysverkun fá bændur ör- yggi svo sem frekast er unnt gegn duttlungum tíðarfarsins. Votheys- verkun tryggir fóðuröflun í þurrkatíð. Votheysverkun firrir bændur áföllum og fjárhagstjóni, sem þeir verða fyrir á óþurrka- sumrum sem ekki hagnýta þessa aðferð. En votheysverkun er ekk- ert neyðarúrræði til þess að mæta óþurrkum, þvert á móti, auk ör- yggisins sem þessi heyverkun veit- ir um fóðuröflunina fylgja aðrir hinir mikilvægustu kostir. Vot- heysverkun tryggir fóðurgildi hey- fengsins hvað sem líður tíðarfar- inu. Þá krefst votheysverkun miklu minni vélakosts en þurr- heysverkunin. Þurrheysverkun fylgir miklu meiri umferð um tún- in auk þess sem galtar sitja tím- um saman á túnunum og valda skemmdum. Votheysverkun krefst minni vinnu en þurrheysverkun. Votheysverkun tryggir ekki ein- ungis búpeningi hollt fóður heldur eru og þeir menn, sem vinna við fóðrunina firrtir óhollustu þeirri, sem fylgir þurrheysfóðrun. Með tilliti til þessa er það ámæl- isvert, hversu treglega hefur geng- ið við að útbreiða votheysverkun í landinu. Ekki eiga þó allir bændur landsins sammerkt í þessu efni. Um langt árabil hafa sumir bænd- ur verið svo óháðir veðurfarinu um heyfeng sem verða má. ÖIl eða nær öll heyverkun þeirra hefur verið í vothey. Þess eru dæmi að allir bændur í heilum byggðarlög- um verki hey sín í vothey svo sem í Strandasýslu og á Ingjaldssandi í Vestur-ísafjarðarsýslu, en árið 1980 verkuðu Strandamenn 77,3% af heyfeng sínum í vothey. Samt sem áður er ástand þessara mála með öllu óviðunandi þegar litið er á landið í heild. En votheysverkun er ekki skil- yrðislaust öruggasta og ódýrasta og fyrirhafnarminnsta heyverk- unaraðferðin. Til þess að svo megi verða þurfa bændur að sérhæfa sig og aðstöðu sína í vélakosti og byggingu til votheysverkunar. Það þarf nægar, haganlegar votheys- geymslur, réttan tækjabúnað og rétta meðhöndlun. Til þess að stuðla að þessu bar 1. flutnings- maður þessarar tillögu, sem við nú ræðum, fram þingsályktunartil- lögu árið 1976 svipaðs eðlis og þessi er. Þessari tillögu var þá vel tekið og samþykkt sem ályktun Alþings. Stéttarsamband bænda lýsti þá yfir ákveðnum stuðningi við ályktun þessa og kom fram jákvæð afstaða frá Búnaðarfélagi Isiands. Ég gerði mér vonir um, að þegar svo væri í pottinn búið myndi verða áþreifanlegur árang- ur af ályktun Alþingis. En ég verð að segja, að ég hef orðið fyrir miklum vonbrigðum í þeim efnum. Þrátt fyrir þessa samþykkt Al- þingis hefur lítið sem ekkert áunnist. Árið 1975 var vothey 8,4% af heildarheyfeng lands- manna, en árið 1980 8,6%. Tregðu- lögmálið um að taka upp bætta búskaparhætti hefur hér reynst sterkt. I’RÓUN SÍÐUSTU 5 ÁRA Það er fróðlegt að athuga nokkru nánar stöðu þessara mála á tímabilinu 1975—1980. Er þá rétt að lita á hina einstöku lands- hluta. Á Reykjanessvæðinu var hlutur votheys 6,6% árið 1975, en er kominn niður í 5,4% árið 1980. Á Vesturlandi var hlutur votheys 1975 11,4% en 11,9% árið 1980. Vestfirðir voru 1975 með 33% í vothey en höfðu náð árið 1980 42,2%. Norðurland vestra, var 1975 með 7,2% en 1980 með 7,5% í vothey. Norðurland eystra var 1975 með 3,7% en 1980 4,4% í vothey. Austurland var 1975 með 4,2% en 1980 5,2% í vothey. Suð- urland var 1975 með 8,2% í vothey en er með aðeins 6,3% árið 1980. Þetta er ömurieg upptalning. Það er naumast ljós glæta í þessum efnum nema á Vestfjörðum. Vest- firðingar bera af í þessum efnum eins og mörgum öðrum. Þó eiga ekki allir Vestfirðingar sammerkt í máii þessu. í raun og veru er það svo, að það er Strandasýsla fyrst og fremst, sem gerir hlut þeirra betri en annarra landsmanna. Strandamenn höfðu sótt langt fram í þessu efni þegar árið 1975 og verkuðu þá 54,6% af heyfeng sínum í vothey, en síðan hafa Strandamenn enn sótt svo fram, að 1980 var vothey þeirra 77;3% af heildarheyfengnum. EFNISATRIÐI TILLÖGUNNAR Með hliðsjón af þeim staðreynd- um sem ég hef hér vikið að, þóttu Þorvaldur Garðar Kristjánsson. okkur flutningsmönnum þessarar tillögu til þingsályktunar, sem við nú ræðum einsætt að flytja þyrfti á ný tillögu á Alþingi um ráðstaf- anir til að stuðla að almennari votheysverkun en nú er. Þessi til- laga til þingsályktunar sem við nú ræðum kveður ekki á um nefnd- arskipun til að athuga málið. Til- lagan byggir á þeirri forsendu, að málið liggi nógu ljóst fyrir til stefnumörkunar á þann veg, sem lagt er til. Með þessu er ekki verið að gera lítið úr rannsóknum. Al- mennar rannsóknir á heyverkun- araðferðum eru sjálfsagðar og raunar stöðugt verkefni Rann- sóknarstofnunar landbúnaðarins. En slík starfsemi má ekki koma í veg fyrir eða tefja eðlileg viðbrögð við reynslu sem þegar liggur fyrir. Flutningsmenn vilja aðgerðir eða framkvæmdir til þess að efla votheysverkun og benda á leiðir í því efni. KYNNINGÁ SNYRTIVÖRJJM FRÁ BOOTS REYKJAVIK, fimmtud. 10. des. GLÆSIBÆR KÓPAVOGUR, föstud. 11. des. BYLGJAN HAFNARFJÖRÐUR, laugard. 12. des. DÍSELLA • f fyrsta lagi er lagt til að bænd- um verði kynnt reynsla þeirra, sem um árabil hafa byggt heyöfl- un sína að öllu eða mestu leyti á votheysverkun. Hér kemur bæði til reynsla, sem fengist hefur hér á landi og reynsla sem er að fá er- lendis frá. Aðferðir til kynningar^ á þessari reynslu geta að sjálf- sögðu verið með margs konar hætti. Má þar nefna útgáfa upp- lýsingarita eða bæklinga og kynn- isferðir bænda. En að sjálfsögðu er mikilvægast aðstoð og ráðgjöf sérfræðinga og ráðunauta Bænda- samtakanna. Bændur sem ekki hafa horfið að votheysverkun þurfa ekki að þreifa sig áfram eða renna blint í sjóinn. Þeir geta fræðst um þessi efni hjá þeim bændum, sem hafa kunnáttu og reynslu. • f öðru lagi er lagt til, að bændum séu kynntar nýjungar og tækni- framfarir í votheysverkun og vot- heysfóðrun. í þessum efnum sem öðrum hljóta alltaf að koma fram nýjungar og tæknilegar framfarir, sem hagnýta verður. Dæmi eru til um þetta bæði hér heima og er- lendis. Hér á landi hafa bændur á síðari árum tileinkað sér nýjungar og tækniframfarir við sjálfan heysláttinn og fóðurgjöf svo og gerð votheyshlaðnanna samanber flatgryfjurnar. Athyglisverðar eru tilraunir þær, sem Einar Guðjónsson í Bjargi hefur gert með votheys- verkun. Frá árinu 1968 hefur hann unnið að tilraunum til að gera gras geymsluhæft í lofttæmdum grasgeymslum. Þessi grasverkun- araðferð er ekki ný. Hún hefur verið framkvæmd bæði á Nýja- Sjálandi og Englandi og raunar víðar. Verkunaraðferð þessi er því viðurkennd og hefur gefist mjög vel, þar sem heppilegri tækni hef- ur verið við komið um hey- geymslur og aðferðir við lofttæm- inguna. Einar hefur unnið að því, að aðlaga þessa aðferð íslenskum aðstæðum. Nú hefur landbúnað- arráðuneytið viðurkennt það í verki með þvi að veita Einari styrk til tilrauna hans. • í þriðja lagi gerir þingsályktun- artillaga þessi ráð fyrir, að hærri stofnlán og framlög verði veitt til byggingar votheyshlaðna en þurr- heyshlaðna. Ég sagði áðan, að lít- ill árangur hefði orðið af sam- þykkt þingsályktunartillögu þeirr- ar, sem ég bar fram um votheys- verkun árið 1976. Frá árinu 1976 hafa lánveitingar úr Stofnlána- deild landbúnaðarins numið 55% af kostnaðarverði þurrheyshlaðna en 40% af kostnaðarverði votheys- hlaðna. Áður var lánshlutfallið 55% út á þurrheyshlöður, en 50% út á votheyshlöður en styrkir hækkuðu verulega út á votheys- hlöður á þessum árum. LÁNSFJÁRSTÝRINGIN Það er mjög fíoðlegt að líta á lánveitingar úr Stofnlánadeild Iandbúnaðarins út á heyhlöður. Annars vegar votheyshlöður og hins vegar þurrheyshlöður, hvað lánað hefur verið út á margar hlöður af hvorri tegund fyrir sig, hvað lánveitingar hafa numið hárri upphæð og hvaða hlutfall hvor tegundin fyrir sig hefur haft af heildarlánveitingum til hey- hlaðna. Þegar þetta er athugað kemur í ljós, að árið 1975 var lán- að út á 33 votheyshlöður samtals 33 millj. 196 þús. kr. eða 20,8% af heildarlánveitingum til heyhlaðna og lánað var út á 126 þurrheys- hlöður samtals 149 millj. 7 þús. kr., sem nam 79,2% af heildarút- lánum. 1976 voru samsvarandi töl- ur 27 votheyshlöður 40 millj. 866 þús. kr. 25,2% til votheyshlaðna, en 80 þurrheyshlöður 154 millj. 441 þús. kr. og hlutfallið 74,8%. Árið 1977 eru um að ræða 58 vot- heyshlöður samtals 135 millj. 290 þús. kr. að hlutfalli 33,7% til vot- heyshlaðna, en 114 þurrheyshlöð- ur, samtals 261 millj. 980 þús. kr. að hlutfalli 66,3%. Árið 1978 eru um að ræða 56 votheyshlöður með samtals 123 millj. 907 þús. kr. og 39,4% til votheyshlaðna, en 86 þurrheyshlöður með samtals 263 millj. 17. þús. kr., er nam 60,6% af heildarlánveitingum. Fyrir árið 1979 eru samsvarandi tölur 24 votheyshlöður samtals 88 millj.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.