Morgunblaðið - 06.01.1982, Síða 1
3. tbl. 69. árg.
MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Herinn dreifir mannfjölda í
Gdansk með táragasi, eftir að
andstæðingar herstjórnarinnar
efndu til mótmæla, veltu lög-
reglubíl og kveiktu í honum, í
námunda við Lenin-skipa-
smíðastöðina. Myndin var tek-
in þremur dögum eftir að her-
lögin gengu í gildi, en barst
ekki vestur yfir járntjald fyrr
en í gær. Sjá fleiri myndir á
miðopnu og bls. 18.
Pólland:
Viðræður í stjórnarherbúðum
- hreinsanir innan flokksins
Lundúnum, Varsjá, 5. januar. AP.
RÓMVKRSK kaþólska kirkjan í
Póllandi hefur fallizt á þá tillogu her
stjórnarinnar að taka Lech Walesa í
varðveizlu sina í klaustri einu og
tryggja að hann komist ekki í sam-
band við félaga sína utan klaustur
múranna, að því er haft er eftir leyni-
lcgum, en að því er talið er mjög
áreiðanlegum heimildarmanni í Pól-
landi í dag.
Þá tjáði Jaruzelski, æðsti maður
herstjórnarinnar, sendiherrum
EBE-ríkjanna í Varsjá í dag, að
hann kynni að sleppa úr fangelsi og
vísa síðan úr landi ýmsum leiðtog-
um Samstöðu, að því tilskildu að
Eru ýmsir þeirrar skoðunar að
þessi aðferð herstjórnarinnar til að
losa sig við áberandi andstæðinga,
án þess að gera úr þeim meiri písl-
arvotta en þegar er orðið, sé líklegt
til að verða henni til framdráttar.
Þá er á það bent að sami háttur
hafi verið á hafður þegar Wysz-
ynski kardínáli lýsti yfir andstöðu
við kommúnistastjórnina 1953.
Hafi kardínálinn þá dvalizt í
klaustri í þrjú ár án þess að nokkur
vissi hvar hann væri niðurkominn,
enda hafi ekkert frá honum heyrzt
á meðan.
l.undúnum — Varsjá, 5. janúar. Al*.
VARSJÁR-útvarpið kunngjörði í
kvöld að hafnar væru viðræður
milli fulltrúa Samstöðu, fulltrúa
hinna ýmsu verkalýðssamtaka í
landinu og stjórnar Jaruzelskis.
Væru viðræðurnar á vegum
stjórnarinnar og snerust um það
hvernig unnt væri að sjá fyrir
félagslegum þörfum verkalýðs-
ins á meðan herlög væru í gildi,
en samkvæmt þeim hefði verið
hundinn endi á starfsemi verka-
lýðssamtaka.
Borba, eitt af stjórnarmálgögn-
unum í Júgóslavíu, sagði frá því í
dag að umfangsmiklar hreinsanir
væru hafnar innan pólska komm-
únistaflokksins, enda þótt yfirlýs-
ingar herstjórnarinnar í landinu
kvæðu á um hið gagnstæða. Blaðið
sagði að áreiðanlegar heimildir
væru um að pólski kommúnista-
flokkurinn hefði glatað virðingu
sinni með setningu herlaganna og
hefðu þúsundir Pólverja sagt sig úr
flokknum síðan 13. desember, enda
benti fátt til þess að unnt yrði að
endurskipuleggja flokkinn á næst-
unni þannig að hann yrði helzta
stjórnmálaaflið í landinu. önnur
vísbending um hreinsanir innan
pólska kommúnistaflokksins er sú
að flokksdeild í Polmo-málmiðnað-
arstöðinni í Krasno var leyst upp
um leið og öllum starfsmönnum
þar, 2.500 að tölu, var sagt upp
störfum.
Samkvæmt ritskoðuðum fregnum
frá Póllandi í dag hefur pólska
kirkjan hafið dreifingu matvæla og
lyfja, sem útlendar hjálparstofnan-
ir hafa sent til landsins. Fer þessi
starfsemi fram í þökk herstjórnar-
innar, að því er virðist, og segja
leiðtogar kirkjunnar að matvæli og
lyf hafi streymt til landsins frá því
að herlögin tóku gildi og séu
starfsmenn kirkjunnar ekki í nein-
um vandræðum með að dreifa þess-
ari búbót meðal almennings.
Kennsla hófst í pólskum skólum,
öðrum en háskólum, í dag. Skóla-
starfið var þó allt annað en með
venjulegum hætti, þar sem lærifeð-
urnir voru hermenn, sem komnir
voru til að upplýsa börn og kennara
um inntak herlaganna.
Reagan og Schmidt í forsetaskrifstofunni ( Hvíta húsinu. M‘-aím»mynd.
Brestur í miðjubandalaginu
Reagan þjarm-
ar að Schmidt
M ashinglon, 5. januar. AP.
„Varnarnefnd-
um“ komið á
fót í Ghana
KílabeinsNtröndinni, 5. janúar. AP.
HKRKORINGJASTJÓRNIN, sem
sölsaði undir sig völd í Ghana á
gamlársdag, gaf til kynna í dag að
fyrsta mál á dagskrá væri að koma
á fót „varnarnefndum" um allt
landið.
Er þetta fyrsta vísbendingin
um hvers konar stjórnarfar verði
ríkjandi í landinu síðan valda-
ránið fór fram.
„Varnarnefndir" af þessu tagi
settu mjög svip sinn á stjórnar-
hætti byltingarstjórnanna á
Kúbu og í Nicaragua, en Rawl-
ings byltingarforingi í Ghana
lagði á það áherzlu í útvarps-
ávarpi sínu í dag, að agi í hernum
væri nauðsynlegur og brýnt væri
að stemma stigu við fjárfesting-
um útlendinga í landinu.
Lundúnum, 5. janúar. AP.
BRKSTIIR er kominn í samstarf hins
nýja miðjubandalags í Bretlandi vegna
ágreinings um framboðsmál fyrir
næstu þingkosningar. William Rogers,
fyrir hönd hins nýja flokks sósíal-
dcmókrata, og Uavid Steel frá Krjáls-
lynda flokknum mistókst að setja
niður deilurnar á skyndifundi í dag, en
að honum loknum neituðu þeir að tak-
ast (hendur.
Hvorugur vildi skýra frá efni við-
ræðnanna, en Rogers líkti deilunni
við hiksta og tók fram um leið að
yrði hiksti langvinnur leiddi hann til
dauða. Steel sagðist hins vegar
ákveðinn i að sjá til þess að samstarf
flokkanna entist og vænti hann þess
að frjálslyndir í landinu veittu því
stuðning.
REAGAN Bandaríkjaforseti tjáði
Helmut Schmidt, kanslara V-I»ýzka-
lands, í kvöld að vestræn ríki ættu um
tvennt að velja — að svara með sam-
eiginlegu, áþreifanlegu átaki því
ófremdarástandi sem orðið væri í Pól-
landi eða taka alvarlegum afleiðingum
sem hefðu mjög víðtæk áhrif.
Schmidt svaraði þessum ummæl-
um ekki beint í heyranda hljóði, en
fyrr um daginn hafði hann ásakað
Reagan um að grípa til refsiaðgerða
gegn Sovétríkjunum án þess að hafa
fyrst samráð við bandamenn sína.
Tregða EBE-ríkjanna til að styðja
Bandaríkjastjórn í því að refsa Sov-
étstjórninni og herstjórninni í Pól-
landi með efnahagsaðgerðum var að-
alumræðuefni á fundi leiðtoganna í
Washington, en á utanríkisráðherra-
fundi EBE í Briissel í dag voru uppi
ráðagerðir um að hefta innflutning á
sovézkum vörum til EBE-ríkjanna,
ýmist með tollaálögum eða ströng-
um kvótareglum.
1 viðræðum forsetans og kanslar-
ans tóku þátt utanríkisráðherrar
þeirra, Haig og Genscher, en auk
Póllandsmála var rætt um vopna-
takmarkanir og málefni NATO. Að
viðræðum loknum í kvöld birti
Schmidt orðsendingu, þar sem hann
lýsti áhyggjum sínum af versnandi
efnahagsástandi í veröldinni. Kvað
kanslarinn nauðsynlegt að grípa til
samræmdra aðgerða til að færa
þessi mál til betri vegar, en til að
koma í veg fyrir heimskreppu lagði
hann til að horfið yrði frá hávaxta-
stefnu.