Morgunblaðið - 06.01.1982, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1982
3
Bridgehátíð í marz:
Dallas-Ásarnir
meðal þátttakenda
UM MIÐJAN marz eru væntanleg hingað til lands þrjú af sterkustu bridge-
landsliðum heims en þau koma á vegum Bridgefélags Reykjavíkur, sem’á 40
ára afmæli 18. apríl nk„ og Flugleiða hf. Keppa liðin bæði í tvímennings- og
sveitakeppni. Heildarverðlaun verða 6000 dalir eða sem næst 50 þúsund kr.
|>ar af eru 4000 dala verðlaun fyrir afmælismót BR en 2000 dala verðlaun
fyrir Stórmót Flugleiða sem verður lokakeppnin á þessari Bridgehátíð.
Liðin eru frá Bretlandi, en
brezka landsliðið kom einnig á 30
ára afmæli BR fyrir 10 árum.
Sveitin varð í öðru sæti á Evrópu-
mótinu í Birmingham í sumar og
það veitti þeim rétt tii að spila í
undankeppni heimsmeistaramóts-
ins sem þeir leiddu lengst af.
Norðmenn urðu Norðurlanda-
meistarar 1981. Þeir hafa verið í
fremstu röð í heiminum í áraraðir.
Þriðja liðið og ekki það sísta eru
Dallas-Ásarnir, en þeir eru at-
vinnumenn. Meðal spilara í sveit-
inni eru Sontag og Weichsel en um
þá hefir verið sagt, að þeir væru
besta bandaríska parið sem ekki
hefir spilað í bandariska landslið-
inu. Þeir hafa unnið til flestra
þeirra verðlauna sem hægt er að
vinna til í Bandaríkjunum. Þeir
spila eigin útgáfu af „Precision"
Hvad er að ger-
ast um helgina
ÞEIR, SEM vilja koma að frétt-
um í þáttinn „Hvað er að gerast
um helgina", eru beðnir um að
skila þeim inn á ritstjórn Morg-
unblaðsins fyrir miðvikudags-
kvöld. Komi fréttirnar síðar er
ekki hægt að tryggja birtingu
þeirra í þættinum. Þátturinn
birtist í blaðinu á fóstudögum.
sem er þekktasta kerfið hér á
landi í dag. Hinn armur sveitar-
innar er Ron Rubin og Mike Beck-
er.
Brezka sveitin er, þótt ótrúlegt
sé, skipuð að % sömu mönnum og
fyrir 10 árum. Þeir eru Irwin
Rose, Rob Sheean, Willie Coyle og
Barnet Shenkin.
Norska sveitin er skipuð ungum
spilurum. Einn þeirra Leif Eric
Stabell spilaði hér á Norðurlanda-
móti unglinga 1977. Aðrir spilarar
eru Tor Helnes, Harald Nordby og
Jon Aaby.
Hugsa um að hætta
segir Arnmundur Backman
„JÚ, ÞAÐ er rétt að ég hef verið að
hugsa um að láta af störfum í ráðu-
neytinu," sagði Arnmundur Backman
aðstoðarmaður Svavars (íestssonar fé-
lagsmálaráðherra, þegar Morgunblað-
ið innti hann eftir því hvort hann ætl-
aði að snúa sér eingöngu að lög-
mennsku á næstunni.
„Því er ekki að neita að ég hef í
raun unnið á tveimur stöðum, í ráðu-
neytinu og síðan rekið lögfræði-
skrifstofuna, en þar hef ég reyndar
verið með lögfræðinga í vinnu. Þessu
öllu hefur fylgt mikið umstang, og
því hef ég meðal annars hugsað um
að láta af störfum í ráðuneytinu,"
sagði Arnmundur.
EM unglinga:
Jóhann í 7.-9. sæti
JÓHANN Hjartarson hafnaði í 7.-9. sæti á Evrópumeistaramóti unglinga, sem
lauk í (íroningen í Hollandi í gær. Hann vann Spánverjann ('orral Blanco í síðustu
umferð. Evrópumeistari unglinga varð Daninn Hansen með 10 vinninga. Hann
skaust upp fyrir ísraelsmanninn Greenfeld í síðustu umferð. Greenfeld tapaði
fyrir Salov í lokaumferðinni og varð því af sigrinum, en hann hafði lengst af
forustu í mótinu, hlaut 912 vinning. Þriðji var Sovétmaðurinn Sokilov með 9
vinninga, en hann tapaði fyrir Delaney
Jóhann tapaði fyrir Greenfeld í 12.
umferð. I 11. umferð gerði hann
jafntefli við Siegel, í 10. umferð ger-
ði hann jafntefli við Stohl og í 9.
umferð vann hann Sulava frá Júgó-
slavíu.
Þó Jóhann hafi ekki staðið sig eins
og vonir stóðu til, þá bætti hann það
upp að nokkru leyti með því að vinna
hraðskákmót, sem fram fór á sunnu-
dag.
síðustu umferð mótsins.
Arnór Björnsson tekur þátt í
sterku unglingamóti 1 Hallsberg í
Svíþjóð. Þar tefla unglingar 20 ára
og yngri. Arnór, sem er 15 ára, er
næstyngstur þátttakenda, en er vel
fyrir ofan miðju, með 4 vinninga að
loknum 8 umferðum, en ein umferð
er eftir. Efstir eru Svend og Franson
frá Svíþjóð með 6 vinninga, þá koma
Akeson, Svíþjóð, alþjóðlegur meist-
ari, og King, Englandi, FIDE-
meistari, með 5V4 vinning.
Skerdingarákvæði
Ólafslaga hafa
tekið gildi á ný
ÁKVVEÐI Ólafslaga um útreikning verðbóta, sem numin voru úr gildi tíma-
bundið á síðasta ári, tóku aftur gildi 1. janúar sl. í samningum ASÍ og
vinnuveitenda, sem gerður var í nóvember, var samið um, að verðbætur á
laun I. marz næstkomandi skuli greidd samkvæmt ákvæðum Olafslaga.
Skerðingarákvæði þessara laga taka því yfir tímabilið frá I. desember til 1.
febrúar, en verðupptaka fer fram fyrstu daga febrúarmánaðar. Útreikningur
vísitölu fer síðan fram síðari hluta mánaðarins og verðbæturnar koma á laun
I. marz.
Skerðingarákvæðin fela í sér, að
launaliðurinn í búvöruverðinu
veldur ekki hækkun á verðbótum.
Með öðrum orðum kemur sú
hækkun, sem verður á búvöruverði
vegna þess að laun bóndans
hækka til jafns við launahækkun
annarra launþega, til frádráttar
hækkun framfærsluvísitölu er
kemur til útreiknings á verðbót-
um. í öðru lagi kemur sú hækkun,
sem orðið hefur og kann að verða
á áfengi og tóbaki frá 1. nóvember
til 1. febrúar til frádráttar verð-
bótahækkuninni.
í þriðja lagi kemur breyting á
viðskiptakjörum á þessu tímabili
til álita. Versni viðskiptakjörin
kemur það til frádráttar, en batni
þau hins vegar, sem reyndar er
ekki útlit fyrir, þá myndi það
koma til viðbótar í verðbótum.
Viðskiptakjörin bötnuðu nokkuð á
síðasta ári, en óvíst er hvort það
verður til þess að auka verðbætur
vegna frádráttarliða Ólafslag-
anna.
Lántökurnar sem hlutfall af
heildarráðstöfunarfé fjárlaga
ZZ7I
6.9X
78
68/
10,2/
'79
10,4/
’80
135/
'81
'82
Lántökur ríkissjóðs
- ávísun á skattahækkanir
EINS og sést af súluritinu hafa
lántökur, sem hlutfall af heildar
ráðstöfunarfé fjárlaga, nær tvö-
faldast á valdatíma vinstri stjórn-
anna frá 1978. Þannig hafa umsvif
rfkissjóðs hækkað umfram skatta-
hækkanir á þessu tímabili. Nema
tekjur fjárlaga að viðbættum lán-
tökum um 10 milljörðum nýkróna
á þessu ári eða 1000 milljörðum
gamalla króna, en það jafngildir
37% af allri þjóðarframleiðslunni.
Tölurnar í súluritinu eru
fengnar úr áliti sjálfstæð-
ismanna í fjárveitinganefnd Al-
þingis, sem lagt var fram við
aðra umræðu um fjárlög ársins
1982. í álitinu sagði um þróunina
í lántökum ríkissjóðs: „Hér er
augljóslega hættuleg þróun á
ferðinni og er greinilegt að
skattahækkanir undanfarinna
ára hafa ekki nægt til þess að
auka ríkisumsvifin, heldur er sí-
fellt gripið til aukinnar lántöku,
sem er auðvitað ávísun á skatta-
hækkanir síðar."
Fiskverðsákvörðunin:
Ríkisstjórnin hefur
sofið Þyrnirósarsvefni
- segir Guðmundur Hallvarðsson, formaður sjómannafélags Reykjavíkur
FORMENN sjómannafélaga um allt land innan Sjómannasambands íslands
munu ásamt starfandi sjómönnum halda fund næstkomandi fimmtudag. Þar
munu þeir ræða stöðu mála, fiskverðsákvörðun og samningsmál, en sjómenn
eru nú orðnir langeygir eftir lausn mála að sögn Guðmundar Hallvarðssonar,
formanns Sjómannafélags Reykjavíkur.
Guðmundur sagði það skoðun
sína á stöðu mála í dag, að þeir,
sem væru í forsvari fyrir sjó-
mannafélögin, gerðu sér fyllilega
grein fyrir þeim afleiðingum, sem
verkfall sjómanna hefði í för með
sér. Afleiðingunum fyrir heimili
umbjóðenda sinna, þess fólks, sem
misst hefði vinnuna og þjóðfélagið
í heild, en nú virtist aðalmálið í
fjölmiðlum vera uppsagnir og at-
vinnuleysi verkafólks í fiskiðnað-
inum, en kjaramál sjómanna
hefðu alveg dottið upp fyrir. Jafn-
vel ríkisstjórnin og sjávarútvegs-
ráðherra ypptu bara öxlum og
segðu: Það eru þeir í verðlagsráði,
sem eru að deila innbyrðis og þess
vegna gerðist ekki neitt. Þetta
væri hreinasta fjarstæða og tæki
varla nokkru tali. Ríkisvaldið
hlyti að vera, beint og óbeint, sá
aðili, sem hefði úrslitavald í fisk-
verðsákvörðuninni. Fulltrúi og
oddamaður í verðlagsráði væri
fulltrúi ríkisstjórnarinnar, þess
vegna væri vægi ríkisstjórnarinn-
ar við fiskverðsákvörðun mjög
mikið.
Þá væri það staðreynd að sjó-
menn hefði dregist verulega aftur
úr hvað laun varðaði miðað við
landverkafólk, það viðurkenndu
allir. Nú þegar ætti að knýja fram
leiðréttingu á þessu, vildu menn
ekki kannast við þessa staðreynd.
Ráðamenn ríkisstjórnarinnar og
jafnvel helzt sjávarútvegsráð-
herra hefðu lýst því yfir að sjó-
menn ættu ekki að fá fiskverðs-
hækkun, samsvarandi launahækk-
unum landverkafólks, vegna þess
hve mikil aflaaukning hefði orðið
og það bætti þeim upp þennan
mismun. Nú virtist ekki eiga að
taka tillit til þess að á þessu ári
héldi innflutningur fiskiskipa
áfram og væntanlegir væru 13 ný-
ir skuttogarar til landsins. Það
væri nú ljóst að um frekari afla-
aukningu yrði ekki að ræða á ár-
inu og því þýddi þessi fjölgun tog-
ara aflaskerðingu, sem næmi um
7%, sem að sjálfsögðu þýddi
kjararýrnun. Ætlaði sjávarút-
vegsráðherra að vera sjálfum sér
samkvæmur við fiskverðsákvörð-
un, yrði hann að hækka fiskverð
umfrairi launahækkanir í landinu,
sem næmi þessari skerðingu.
Þá yrðu útgerðarmenn að gera
sér grein fyrir því, að þó brýnt
væri að ákveða fiskverð, væru ým-
is önnur kjaramál, sem sjómenn
vildu ræða og fiskverðið eitt dygði
ekki til að leysa þessa deilu. Því
yrðu sjómenn og útgerðarmenn að
hittast og sáttasemjari að taka
harðar á málinu, það væri því ekki
alveg rökrétt að vilja ekki tala við
sjómenn fyrr en fiskverð lægi
fyrir.
Þá sagðist Guðmundur vonast
til að sjómenn þjöppuðu sér betur
saman og línur skýrðust eftir
fundinn á fimmtudag. Þar kæmu
fulltrúar sjómanna um allt land
saman og endanleg afstaða yrði þá
væntanlega mótuð. Sjómenn vildu
gera sitt til að flýta fyrir lausn
deilunnar. Staða sáttasemjara
væri mjög erfið, en það væri helzt
seinagangur ríkisstjórnarinnar,
sem að væri, hún hefði sofið
þyrnirósarsvefni frá því um miðj-
an desember, þrátt fyrir að hún
hefði átt að vita betur að hverju
stefndi, henni hefði átt að vera
það fyllilega ljóst af því sem á
undan var gengið við síðustu fisk-
verðsákvörðun.