Morgunblaðið - 06.01.1982, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1982
17
Verða björgunarnet Markúsar seld í Noregi?
Sundurlyndið fór með sigur af
hólmi. Húsnæðismálin hafa verið í
hnút frá ofanverðu ári 1979. En
aðsókn að Menntaskólanum í
Kópavogi eykst og erfiðleikarnir
magnast. Því sættu nemendur,
kennarar, skólameistari og for-
eldrar sig ekki við aðgerðaleysið.
Þeir héldu fjölmennan fund í
Kópavogskirkju 18. júní 1981,
kröfðust úrlausnar og samþykktu
einróma áskorun á bæjarstjórn og
Menntamálaráðuneytið að leysa
húsnæðisvanda skólans.
Eftir þennan fund komst hreyf-
ing á málið. Menntamálaráðherra
tók upp tillögu framhaldsskóla-
nefndar og óskaði eftir því í bréfi
til bæjarstjórnar, dags. 17. ágúst
sl., að Menntaskólinn fengi hús-
næði Þinghólsskóla til umráða
haustiö 1982. Fulltrúar sjálfstæð-
ismanna og óháðra borgara báru
síðan fram í bæjarstjórn tillögu
um þessa lausn málsins og full-
trúar framsóknarmanna lýstu yfir
stuðningi við tillöguna.
Þegar hér var komið sögu,
mögnuðust deilurnar sem kunnugt
er. Andstæðingar áðurnefndrar
tillögu höfðu mjög hátt og þyrluðu
upp miklu moldviðri. Ég hygg, að
sjaldan hafi jafnfáir menn sagt
jafnmikla vitleysu á jafnskömm-
um tíma og hinir æpandi orðkapp-
ar á liðnum haustdögum, óvild-
armenn Menntaskólans í Kópa-
vogi.
Úmrædd tillaga hefur ekki verið
borin undir atkvæði í bæjarstjórn.
Tillaga mín, er kynnt var í bæjar-
stjórn í ofanverðum september-
mánuði sl., þess efnis að byggja
yfir fjölbrautaskólann, er líka í
salti. Aðrar tillögur liggja ekki
fyrir um lausn málsins. Og enn
stendur húsnæðisvandinn í vegi
fyrir því, að unnt sé að koma á fót
fjölbrautaskóla í Kópavogi.
Lokaorð
Eins og segir í formála, skrifa
ég þessar greinar til að hnekkja
ósannindum, leiðrétta missagnir,
girða fyrir misskilning og veita
nánari upplýsingar um fram-
haldsskólamáliö í Kópavogi. Ég
kaus að kalla þennan greinaflokk
„Menntaskóli í Kópavogi", af því
að ég greini frá aðdraganda að
stofnun Menntaskólans og stofnun
hans, svo og frá tillögugerð bygg-
ingarnefndar um framtíðarskipu-
lag skólans. Sömuleiðis segi ég þar
frá baráttunni fyrir byggingu yfir
starfsemi skólans. Þá tíunda ég
tillögur framhaldsskólanefndar og
viðbrögð við þeim. Ég hef lagt
plöggin á borðið, birt mörg bréf og
önnur óvefengjanleg gögn, er
styðja mál mitt og taka af öll
tvímæli um það hvað rétt er í
þessu framhaldsskólamáli. Við lok
þessa greinaflokks er mér efst í
huga þakklæti til hinna mörgu
vina skólans, — nemenda, kenn-
ara, foreldra og annarra velunn-
ara, er studdu málstað hans í
orrahríðinni á öndverðum þessum
vetri með blaðagreinum, funda-
höldum, símtölum og hlýjum
kveðjum. Innviðir skóians reynd-
ust traustir, er á reyndi.
Kópavogi á jólaföstu.
þessum málaferlum fyrst og
fremst vegna þess að við viljum fá
réttlæti. Okkur finnst það blettur
á minningu föður okkar að hann
hafi með fölsuðum samningi gert
börn sín arflaus. Allir sem þekktu
Einar Benediktsson vita að það
hefði hann aldrei gert.
Hrefna Benediktsson,
Los Angeles, 28. desember
1981.
Nýkomín vatteruð
bómullarefni og
áprentuð barna-
vattteppi.
VIRKAÚ
Klappatslig 25—27, Ájjvk
sími 24747. r 'C
! 1 I ,T' ! I I 1 1 ! .’! ■)' ■ " !" "
Siglingamálstjóri, Hjálmar R.
Bárðarson, hefur veitt leyfi til
þess að setja lögmæt Ijós viður
kennd af Siglingamálstofnuninni
á björgunarhringi Markúsar B.
Þorgeirssonar og einnig má nota
lögmæta endurskinsborða, sem
settir eru á alla bjarghringi um
borð í skipum og á bryggjum. Seg-
ir í fréttatilkynningu frá Markúsi
B. Þorgeirssyni björgunarneta-
hönnuði að cftirleiðis verði engin
björgunarnet afhent nema með
lögmætum Ijósum og endur
skinsborðum. Mælist Markús til
þess að útgerðarmenn, skipstjórar
og skipafélög sem hafa fengið hjá
honum net hafí samband við sig,
sem allra fyrst, svo hann geti pant-
að Ijósin handa þeim.
Segir ennfremur í fréttatil-
kynningunni að verið sé að at-
huga á erlendri grund, hvort
ekki sé hægt að útvega kork,
sem sé sjálflýsandi í myrkri og
einnig handhægar línubyssur,
sem tengdar væru hverju neti
með 100 til 150 metra líftaug frá
skipi.
í fréttatilkynningunni kemur
einnig fram að Sölve Steinhovd-
en, sem er starfsmaður í norska
sendiráðinu, sé að vinna að því
að Markús komist á björgunar-
æfingu í Þrándheimi, sem hald-
in verður 9.—15. ágúst næst-
komandi á vegum slysavarna-
samtaka í Noregi. Þetta er
björgunarvika, sem haldin er í
samvinnu við landhelgisgæslu
og sjóher. Þar verða ýmsar nýj-
ungar kynntar. Eftir að Markús
hefur tekið þátt í þessari viku,
er fyrirhugað að hann kynni
björgunarnet sitt á norskum
borpöllum. Sendiráðið er jafn-
framt að útvega Markúsi sölu-
aðila í Noregi sem mun þá selja
björgunarnetið Markús.