Morgunblaðið - 06.01.1982, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1982
Atvinnuástandið í vertíðarbyrjun
í gær hélt Morgunblaðið áfram að hafa samband við fólk við sjávarsíðuna víðs vegar um landið og leitaði umsagnar þess
varðandi ástandið í plássunum vegna sjómannaverkfallsins og uppsagna í frysthúsum í kjölfar þess.
ii ii m"il‘ilifaii mt r nftiiflii ‘
.IW111 ~ •
Ljósmynd. Sv.P.
Séð yíir höfnina á Akureyri þar sem fiskiskipaflotinn er allur í höfn. Jón Helgason, formaður Verkalýðsfélagsins Einingar á Akureyri, sagði í samtali
við Mbl. í fyrradag að búast mætti við að eitthvað yfir 500 manns yrðu atvinnulausir næstu daga ef ekki rætist úr.
Ólafsvík:
Fólk ekki
nógu hresst
FRYSTIHÚSIÐ er alveg stopp og
hefur sagt upp sínum mönnum hér á
Ólafsvík, en smávegis er unnið að
viðhaldi á vélum og snyrtingu og
málun hússins, sagði Helgi Krist-
jánsson fréttaritari Mbl. í Olafsvík.
Allur flotinn er í höfn en togarinn
Már er að leggja upp til Þýskalands
með álitlegan afla. Það eru 50 til 60
manns sem atvinnulausir eru.
Hér í bæ er dauft hljóðið í
mönnum og fólkið er ekki nógu
hresst með þetta allt saman. Sagð-
ist Helgi halda, að ansi langt væri
í land með að ráðamenn ákveði
fiskverðið, og heyrðist honum á
sjómönnum í gær að deilan gæti
staðið fram eftir mánuðinum.
VerkalýÖsfélagið
Fram, Sauðárkróki:
Fólk hefur þá
trú að þetta
vari ekki lengi
ÞETTA er hábölvað ástand. Frysti-
húsin lokuð, togarar við bryggju og
ailt í kaldakoli, sagði Jón Karlsson,
formaður Verkalýðsfélagsins Fram á
Sauðárkróki, í samtali við Mbl.
Hann sagði að það væri fast að 100
manns í báðum frystihúsunum sem
sagt hefur verið upp störfum, auk
þess sem áhafnir þriggja togara
hefðu ekkert að gera, fyrir utan svo
ýmsar atvinnugreinar sem snerta
sjávarútveginn og lamast eitthvað
vegna verkfallsins.
Fólk hér er dauft og drungalegt
og áhyggjufullt, en það hefur þá
trú að þettta ástand vari ekki
lengi, það er að segja þrefið um
fiskverðið. Það verði ákveðið
fljótlega. En þá á eftir að róa út og
fiska og því held ég að óhætt sé að
nefna vikur þangað til allt verði
komið á fullt aftur.
Fólk efast ekki um að allir leggi
sig fram við að leysa deiluna, en
því þykir ansi seint gripið til ráða.
Allir vissu að hverju stefndi en
ekkert er gert fyrr en nú allra síð-
ustu daga og það er uggvænlegt
ástand. Og svo er annað og það er
það óöryggi sem fólk í frystihús-
um á við að stríða þegar það allt í
einu einn daginn stendur á von-
arvöl. Öryggið er svo lítið að það
er hrikalegt.
Það er mikil atvinnuleysis-
skráning hér í bænum þessa dag-
ana.
Höfn í Hornafirði:
Hljóðið f
fólki ekki gott
ÞAÐ er vissulega ákaflega slæmt að
fólkið í frystihúsunum skuli þurfa að
búa við svona atvinnuóöryggi, sagði
Sigurður Hannesson formaður
Verkalýðsfélagsins Jökuls á Höfn í
Hoinafirði í samtali við Mbl. Hann
sagði að undanfarna tvo daga hefði
fólkið sem ynni í frystihúsunum ver
ið að fá sín uppsagnarbréf og er
hljóðið í því fólki ekki gott.
Sagðist Sigurður halda að fólkið
tryði því yfirhöfuð að sjómanna-
verkfallið standi ekki lengi yfir og
væru því allir rólegir yfir upp-
sögnunum ennþá. Öll fiskvinnsla
er stopp en einhverjir eru enn að
vinna í skreið og kringum síldina.
Sigurður sagði að uppsagnirnar
kæmu kannski ekki eins illa út á
Höfn í Hornafirði eins og annars
staðar. Þar væri mikið af farand-
verkafólki og enn væri einhvern
fisk að vinna. Mikil atvinna hefur
loðað við Höfn í gegnum tíðina og
liti fólk á þessa stöðvun sem nokk-
urskonar frí. Sagði Sigurður að
fóik væri í auknum mæli að snúa
sér til verkalýðsskrifstofunnar að
leita þar ráða og kanna sinn rétt
til bóta.
Ólafsfjörður:
Um 120 at-
vinnulausir
HRAÐFRYSTIHÚS Ólafsfjarðar
sagði upp sínu starfsfólki 28. des. sl.
og lendir það allt á atvinnuleys-
isskrá. Síðan segir hitt frystihúsið
starfsfólki sínu upp á morgun og
rennur uppsagnafresturinn út 13.
jan. Þetta sagði Ágúst Sigurlaugs-
son, formaður verkalýðsfélagsins
Einingar á Olafsfirði, en það er deild
í Einingu á Akureyri, í samtali við
Mbl. í gær.
Núna eru komnir á atvinnuleys-
isskrá 54 hér á Ólafsfirði, 10 karl-
menn og 44 konur, en með upp-
sögnunum á morgun bætast við 54
konur og 15 karlmenn, þannig að í
allt verða það 123 manns sem
verða á atvinnuleysisskrá. Hér
snýst allt um fiskinn og vinnsluna
á honum og verður því lítið um að
vera á Ólafsfirði næstu daga. En
það vona hér allir að deilan leysist
fljótlega. það er yfirleitt bjartsýnt
fólk hér á Ólafsfirði.
Það lagast þó ekkert strax og
sjómannaverkfallið leysist, því þá
á eftir að fara út og veiða og koma
með fiskinn að landi. Það getur
tekið þó nokkurn tíma og hef ég
trú á því að það líði alltaf hálfur
mánuður þangað til hér verði allt í
fullum gangi á ný.
Eg er hræddur um að erfiðlega
gangi að eiga við þetta allt, en ég
hef þá trú að ef um fiskverð semst
þá semji sjómenn eins og aðrir
launþegar hafa samið.
Eskifirði:
Öllum lausráðn-
um sagt upp
í Hraðfrystihúsi Eskifjarðar er
vinnu hætt en engum hefur verið
sagt upp enn af fastráðnum starfs-
mönnum, sagði Ævar Auðbjörnsson
fréttaritari Mbl. á Eskifirði.
Unnið er af fullum krafti við
skreiðarverkun og saltfiskvinnslu,
en allir lausráðnir hafa orðið að
hætta. Hve margir þeir eru er ekki
vitað enn.
Það er enn mikil vinna í síldar-
söltunarstöðvunum því enn er nóg
af síldinni. Það hefur aðeins einu
sinni verið skipað út síld héðan.
Siglufjörður:
Allt að 250
manns sagt upp
Hér er eflaust svipað ástand og í
öðrum sjávarplássum á landinu,
sagði Kolbeinn Friðbjarnarson,
formaður Verkalýðsfélagsins Vöku á
Siglufirði, í samtali við Mbl. Engin
fiskvinnsla er í gangi þessa dagana á
Siglufirði, er örfáir trillukarlar fara
út og gera að afla sínum sjálfir.
Við lifum þetta af, sagði Kol-
beinn, við höfum lent í verkfalli
fyrr. Kolbeinn hélt að 200 til 250
manns hefði verið sagt upp á
Siglufirði, fólk sem vinnur alfarið
í frystihúsum. Hér vonast allir
eftir því að sjómannaverkfallið
leysist sem fyrst, sagði Kolbeinn.
Kröfur sjómanna eiga fullan rétt
á sér, en það er annað hvernig eigi
að leysa vandann í efnahagsmál-
um landins, sem verkfallinu teng-
ist vitanlega, en er fyrir stærri
gripi en mig að leysa.
Það er mjög lítið um að vera
þessa dagana á Siglufirði.