Morgunblaðið - 06.01.1982, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1982
Reynir Sigurðsson við beituskurðarvélina
l.jósm. Mbl.: Kristján
íslenzkt fyrirtæki
med beituskurdar
vél á markaðinn
FYRIRT/EKIÐ Sjávarvélar sf. í
Garðabæ hefur hafið framleiðslu á
beituskurðarvélum og er ein slík
vél þegar farin til Kanada. I'að
voru Kanadamenn sem áttu hug-
myndina að framleiðslu slíkrar
vélar, og var hugmyndin síðan út-
færð hér á landi.
Reynir Sigurðsson hjá Sjávar-
vélum sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að vélin sem send hefði
verið til Kanada þverskæri að-
eins beituna t.d. síld. Nú væri
hins vegar lokið við smíði á ann-
arri vél sem langskæri fyrst og
síðan þverskæri. Beituskurðar-
vélin er það afkastamikil að hún
sker beitu á eitt bjóð á mínútu,
en í kringum 420 önglar eru nú
hafðir á bjóði.
Reynir sagði, að beituskurð-
arvélin væri hluti af stærra
verkefni sem fyrirtækið ynni að,
en það væri beitningarvél. Þegar
væri búið að reyna lagningsvél-
ina og hefði hún reynst mjög vel.
Þá væri hún það lítil, að hægt
yrði að nota hana um borð í
minnstu bátunum.
Stykkishólmur:
Friðsæl áramót
Stvkkishólmi, 2. janúar.
ÁRAMÓTIN voru hér eins og að
vanda friðsæl. Við fengum messur á
gamlaársdag í báðum kirkjunum og
á nýjársdag var messað í kaþólsku
kirkjunni. Brenna var hér um ára-
mótin og áramótaball eins og áður
hefir tíðkast og mikið var um flug-
elda og sprcngiefni.
Á gamlaársdag var símasam-
bandslaust milli Stykkishólms og
útnessins, þ.e. Grundarfjarðar,
Ólafsvíkur og Hellissands, vegna
bilunar í stöðinni i Grundarfirði
og til þess að þessir staðir fengju
samband fyrir áramót varð að fá
tæknimenn með flugvél úr
Reykjavík til að koma samband-
inu í lag og tókst það um kl. 4 svo
allt komst í besta lag. Um áramót-
in er mikið hringt milli vina og
kunningja og er álagið á símanum
þá gífurlega mikið og mörgum
gengur erfiðlega að ná sambandi.
Fréttaritari
Fleiri kvikmynda-
hús með hlidarsali?
FVRIR stuttu var sagt hér í Mbl. frá
umsókn Stjörnubíós til Korgarráðs um
að opna hliðarsal í húsinu við hliðina á
bíóinu. Fleiri kvikmyndahús eru ísvip-
uðum hugleiðingum.
Grétar lljartarson hjá Laugarásbíói
sagði að tillaga la-gi nú fyrir hjá Sjó-
mannadagsráði um byggingu slíks
hliðarsalar en allt væri enn á umræðu-
stigi og yrði líklega tekin ákvörðun um
framkvæmdir í vor.
Hann sagði að undirbúningur
hefði staðið í tvö ár, búið væri að
teikna salinn og gert ráð fyrir að
. ~ y| — >, ,r
hann verði samsíða bíóinu en taki
hinsvegar ekki nema um 200 manns
í sæti.
Grétar sagði að þetta fyrirkomu-
lag tíðkaðist víðast erlendis og væri
með notkun hliðarsala auknir
möguleikar til að nýta betur bæði
kvikmyndir og starfsfólk.
I Háskólabíói fengum við þær
upplýsingar að bygging nýs bíó-
húsnæðis í samvinnu við HI væri á
umræðustigi. Ekkert hefur þó verið
ákveðið í þeim efnum, en bygging
hliöarsalar þar er ekki talin hentug
vegna útlits hússins og umhverfis.
rv v n - r -
Norðlenzk trygging hf. hættir starfsemi:
Trygging hf. yfirtekur
eignir og skuldir félagsins
Á AÐAI.FUNDI Norðlenzkrar tryggingar hf. 27. des. sl. var samþykkt að
hætta rekstri sjálfstæðs tryggingafélags og slíta félaginu Norðlensk trygging
hf. Félagið hefur starfað sem alhliða tryggingafélag síðan 1971 og sem slíkt
verið eina tryggingafélagið utan Reykjavíkur.
Vegna stóraukinna krafna
Tryggingaeftirlits ríkisins um eig-
ið fé slíkra félaga var þess freistað
að auka hlutafé á yfirstandandi
ári, en slíkt tókst ekki í nægjan-
legum mæli. Varð því, til mikilla
vonbrigða fyrir hluthafa og
stjórnendur, að taka fyrrgreinda
ákvörðun.
Frá fyrstu tíð hefur Norðlensk
trygging hf. haft umboð fyrir
Tryggingu hf. í Reykjavík vegna
bifreiðatrygginga og gott sam-
starf verið milli félaganna. Hefur
fyrir velvilja síðarnefnda félags-
ins tekist að koma því til leiðar að
Trygging hf. taki að sér réttindi
og skyldur Norðlenzkrar trygg-
ingar hf. við tryggingataka og yf-
irtaki aðrar eignir og skuldir fé-
lagsins. Af hálfu Norðlenzkrar
tryggingar hf. hefur tryggingaeft-
irlitinu verið gerð grein fyrir
framangreindum breytingum og
það samþykkt þær.
Þrátt fyrir þau vonbrigði sem
það veldur að verða að hætta
starfsrækslu sjálfstæðs alhliða
tryggingafélags utan höfuðborg-
arsvæðisins, vonar stjórn félags-
ins að viðskiptavinir þess virði
góðar undirtektir Tryggingar hf.
varðandi yfirtöku tryggingastofna
og láti umboð þess á Ákureyri
njóta viðskipta sinna framvegis.
Fréttatilkynning frá stjórn
Norðlenskrar tryggingar hf.
Stykkishólmur:
Færð um jól og áramót
ágæt á Snæfellsnesi
Stykkishólmi 3. janúar.
Færð á vegum hér á Snæfells-
nesi um jói og áramót var ágæt.
Að vísu snjóaði talsvert á Þorláks-
messu en það stóð ekki lengi og
strax á annan í jólum var komin
þýða og snjórinn horfinn að
mestu, en við fengum þó hvít jól
og setti það sinn svip á hátíðina.
Samsöngur tepptust því ekki og
milli staða hér á norðanverðu nes-
inu er færðin góð og í tilefni þess
munu sumarfcrðir áætlunar-
bifreiða halda áfram svo lengi
sem hægt er. Það eru ferðir á
hverjum degi og er þetta í fyrsta
sinn sem svo horfir við um ára-
mót.
Vegir þeir sem ég hefi ekið um
þessi tímamót eru flestir góðir,
nema í nágrenni Stykkishólms,
þar eru þeir bæði holóttir,
ósléttir og leiðinlegir.
Rafmagn til upphitunar er
komin í mörg hús hér. Þó ferð
Sveinn Björnsson
verður formaður
Verðlagsráðs
SVEINN Björnsson, nýskipaður
skrifstofustjóri viðskiptaráðu-
neytisins, tekur innan tíðar við
formennsku í Verðlagsráði, en
formaður þess var forveri Sveins í
viðskiptaráðuneytinu, Björgvin
Guðmundsson, sem tekið hefur við
framkvæmdastjórastarfi hjá Bæj-
arútgerð Reykjavíkur.
Næsti fundur í Verðlagsráði
verður í næstu viku og þá undir
stjórn hins nýja formanns.
þessi þróun hægt enda er víst
lítill verðmunur á að kynda með
rafmagni eða olíu. Olían hefir
verið blandin nú á þessum tím-
um og ýmsa hefi ég hitt sem
RAFBOÐI hf. hefur opnað nýtt
rafmagnsverkstæði og verzlun að
Eyjagötu 9 í Reykjavík. Húsnæðið er
550 fermetrar að stærð og er þar
iager, teiknistofa og skrifstofa auk
verzlunarinnar og verkstæðisins.
Yerkstæðisformaður er Haraldur
Konráðsson, sem starfað hefur hjá
fyrirtækinu sl. 8 ár.
Rafboði hf. hefur rekið raf-
magnsverkstæði í Garðabæ um 11
ára skeið en fyrirtækið hefur
kvartað hafa yfir að hún hafi
frosið á nóttunni og þeir þurft
að byrja daginn með að þýða
olíuna til að fá hita í húsin.
Fréttaritari
sérhæft sig í skiparaflögnum.
Hefur það m.a. annast allar ný-
smíðar á þessu sviði fyrir Stálvík
hf. á þessum tíma en jafnframt
annast viðgerðir á raflögnum tog-
ara í Hafnarfirði og hin síðari ár í
Reykjavík. Fyrirtækið fæst einnig
við smíði og uppsetningu raf-
eindabúnaðar í skip. Þá hefur
Rafboði sérhæft sig í smíði raf-
taflna fyrir skip og hefur á sínum
vegum járnsmíðaverkstæði þar
sem töflurnar eru smíðaðar.
Stjórnendur Rafboða hf. ásamt verkstæðisformanni á hinu nýja verkstæði
fyrirtækisins að Eyjargötu 9. F.v. Jón Á. Hjörlcifsson stjórnarformaður,
Smári Hermannsson framkvæmdastjóri og Haraldur Konráðsson verkstæð-
isformaður.
Rafboði hf. opnar
verkstæði í Reykjavík
Vita Andersen les
upp úr verkum sínum
DANSKA skáldkonan Vita Andersen gistir ísland dagana 7,—11. jan.
Vita Andersen er íslendingum góðkunn af verkum sínum. Ljóðabókin í
klóm öryggisins kom út 1980 og smásagnasafnið Haltu kjafti og vertu sæt
núna fyrir jólin (Lystræninginn). f Alþýðulcikhúsinu standa yfir sýningar
á leikritinu Klskaðu mig.
Skáldskapur Vitu Andersen
lýsir duttlungum ástarinnar,
sýnir barnið í heimi fullorðinna,
konuna í karlasamfélaginu og er
málsvari hinna málsvarslausu.
Föstudaginn 8. jan. er hádeg-
isverðarfundur á vegum Kven-
réttindafélags íslands í Norræna
húsinu kl. 12.15, þar sem Vita
Andersen mun lesa upp og svara
spurningum. Fundurinn er öllum
opinn.
Á laugardag 9. jan. kl. 16.00 er
dagskrá í Norræna húsinu. Vita
Andersen, Nína Björk Árnadótt-
ir og Kristín Bjarnadóttir lesa
upp úr verkum skáldkonunnar.
Á sunnudagskvöld 10. jan. kl.
20.30 verður sýning á leikritinu
Elskaðu mig í Alþýðuleikhúsinu
Á eftir verða umræður þar sem
höfundur situr fyrir svörum um
verk sín.
.iitui'(in/5iM jnui/ío tn iy, tr.ujtiiio num a».ooi/nq