Morgunblaðið - 06.01.1982, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1982
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Sandgerði
Vantar blaðburðarfólk í Norðurbæinn.
Uppl. í síma 7790.
pliðirijpmM&foiifo
Eskifjörður
Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaöið. Uppl. hjá
umboösmanni í síma 6137 og hjá afgreiðslu-
manni í Reykjavík sími 83033.
fKpf&nsiMftfrifr
Selfoss
Blaöburðarfólk óskast.
Uppl. í síma 1966.
Ungur
tækniteiknari
óskar eftir atvinnu, helst við teiknistörf, en
margt kemur þó til greina.
Uppl. í síma 29989 eftir kl. 16.00 (Guðrún).
Óskum eftir að ráða
strax stúlku í mötuneyti okkar að Fosshálsi
27. Um er aö ræða hálft starf.
Uppl. á skrifstofunni, sími 85055.
KARNABÆR
Heilsugæslustöð
Suðurnesja
Keflavík
Hjúkrunarfræðinga vantar til starfa nú þegar.
Ritari óskast í hálft starf í heilsugæslustöð
Grindavíkur.
Skriflegar umsóknir sendist hjúkrunarfor-
stjóra.
Hjúkrunarforstjóri.
Vélritun —
símavarsla
Óskum að ráða strax stúlku til starfa við
vélritun og símavörzlu. Nánari uppl. gefur Elín
Gísladóttir.
Rolf Johansen & Co.
Laugavegi 178, sími 86700.
Q Óskum eftir
að ráða starfsstúlku til afgreiöslu í skódeild
Dómus, ekki yngri en 20 ára. Umsóknareyðu-
blöö fást á skrifst. Kron, Laugavegi 91.
Kaupfél. Reykjavíkur og nágr.
Forstöðumaður
Staða forstöðumanns við þvottahús Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri er laus til um-
sóknar. Umsóknarfrestur er til 30. janúar
1982 og æskilegt er, að viðkomandi geti haf-
iö störf 14. febrúar 1982.
Starfið er fólgið í verkstjórn og meðferð
þvottavéla og er starfsreynsla æskileg.
Reglusemi er áskilin.
Umsóknir sendist framkvæmdastjóra F.S.A.,
er veitir allar upplýsingar.
Trésmiðir
Trésmiöir óskast í mótauppslátt og þök.
Upplýsingar í síma 29990 að deginum og
74634 eftir kl. 7.
Saumastarf
Óskum eftir að ráða saumakonur til starfa
strax. Heilan eða hálfan daginn. Bónusvinna.
Fatapressun
Einnig vantar okkur starfsmann á fatapress-
ur til starfa strax.
Allar upplýsingar gefnar á staðnum.
DÚKUR HF
Skeifunni 13.
Starfsfólk
í gestamóttöku
Viljum ráða starfsfólk í gestamóttöku og
fleira. Viökomandi þarf að geta hafið störf
sem fyrst. Unnið er á vöktum. Tungumála-
kunnátta, t.d. enska og eitt Norðurlandamál-
anna nauðsynleg.
Uppl. veittar á staðnum kl. 16—18, ekki í
síma.
City hótel, Ránargötu 4.
Jafnréttisráð
óskar eftir starfsmanni í hálft starf. Starfið
krefst góörar vélritunarkunnáttu, sjálfstæðis
í starfi auk góðrar kunnáttu í íslensku og
helst ensku og noröurlandamáli.
Uppl. um menntun og fyrri störf óskast send-
ar Jafnréttisráði, Skólavöröustíg 12 fyrir 10.
jan. 1982.
Hagvangur hf.
RÁÐNINGAR-
BJÓNUSTA
ÓSKUM EFTIR AÐ RÁÐA:
einkaritara
fyrirtækið: er stórt þjónustufyrirtæki á góð-
um stað í Reykjavík.
í boöi er: staöa einkaritara markaðsdeildar,
sem hefur með höndum bréfaskriftir, skjala-
vörzlu o.fl.
Við leitum að: ritara, með haldgóða tungu-
málakunnáttu, starfsreynslu í uppsetningu
bréfa, vélritun og getur hafiö störf sem fyrst.
Vinsamlegast sendiö umsóknir á eyðublöð-
um sem liggja frammi á skrifstofu okkar.
Gagnkvæmur trúnaður.
Hagvangur hf.
RÁDNINGARÞJÓNUSTA
GRENSÁSVEG113, R.
Haukur Haraldsson,
Þórir Þorvarðarson,
SfMAR A347Z & B3483
REKSTRAR- OG
TÆKNIÞJÓNUSTA,
MARKAÐS- OG
SÖLURÁDGJÖF,
ÞJÓÐHAGSFRÆDI-
ÞJÓNUSTA,
TÖLVUÞJÓNUSTA,
SKODANA- OG
MARKADSKANNANIR.
NÁMSKEIDAHALD.
Framkvæmdastjóri: Ólafur Örn Haraldsson.
Keflavík
Blaöbera vantar í vesturbæ.
Uppl. í síma 1164.
Kjötafgreiðsla
Óskum að ráða mann eöa konu til starfa í
kjöt- og pökkunardeild. Um er að ræða
ábyrgöarstarf sem felur m.a. í sér nokkra
verkstjórn og innkaup svo og eftirlit meö
kjötvörum í búð. Þekking og reynsla á þessu
sviði áskilin. Uppl. um starfið veittar á skrif-
stofunni kl. 2—4 í dag og á morgun.
Vörumarkaðurinn hf.
Ármúla 1A.
Afgreiðslustörf
Stúlka óskast til afgreiðslustarfa hálfan eða
allan daginn.
Upplýsingar í síma 14376 eftir kl. 16.00.
Austurstræti 17.
Óskum eftir
umboðsmönnum
um land allt til aö annast sölu, uppsetningu
og þjónustu á símabúnaði, símtækjum og
símsvörum.
Hafnarstræti 18, sími 19840.
Laus staða
hjá Norska
sendiráðinu
Norska sendiráðiö óskar að ráða húsvörð
(vaktmester). Starfssvið húsvarðar er auk
húsvörzlu, akstur og erindrekstur fyrir sendi-
ráðið og dagleg móttaka í afgreiðslu.
Nauðsynlegt er, að viðkomandi skilji norsku.
Vinnuvikan er 30 klst. Góð launakjör. íbúð
getur fylgt starfinu. Æskilegt er, að starfs-
maöurinn geti hafið störf hinn 1. febrúar nk.
Umsóknir ásamt meðmælum og þeim upp-
lýsingum öðrum, sem máli skipta, óskast til
sendiráösins fyrir 20. janúar nk.
Frekari upplýsingar gefnar í sendiráðinu.
Kgl. Norsk Ambassade
Fjólugötu 17, Reykjavik.
Sími 13065.