Morgunblaðið - 13.01.1982, Qupperneq 1
32 SÍÐUR
8. tbl. 69. árg.
MIÐVIKUDAGUR 13. JANUAR 1982
Prontsmiðja Morgunblaðsins.
Danmörk:
Herferð gegn at-
vinnuleysi efst á
blaði hjá Anker
Kaupmannahofn, 12. janúar. Al*.
DANSKA Þjóðþingið kom í
dag saman að nýju, en síðan
þing var rofið og efnt til
Wk M\ ■Hll *
Anker Jörgensen
Genfarviðræð-
ur hafnar á ný
(•enf, 12. janúar. AP.
Samninganefndir stjórn-
anna í Moskvu og Wash-
ington héldu í dag fyrsta
fundinn eftir að Reagan
tilkynnti um efnahagsleg-
ar refsiaðgerðir gegn Sov-
ét. Fundirnir eru enn sem
fyrr í Genf, en í dag stóðu
viðræðurnar á þriðju
klukkustund.
Eftir því var tekið er
nefndirnar hittust að
heilsast var venju frem-
ur kuldalega. í gær lét
Haig utanríkisráðherra
Bandaríkjanna svo um
mælt að yrðu viðræðurn-
ar árangurslausar væri
það Sovétmönnum að
kenna.
kosninga, er fimmta ríkis-
stjórnin undir forsæti Anker
Jorgensen komin til valda. í
stefnuræðu sinni lagði Anker
mesta áherzlu á herferð gegn
atvinnuleysi og kvað hann
það ætlun stjórnarinnar að
fyrir árslok 1983 hefðu öll
dönsk ungmenni fengið við-
fangsefni, annaðhvort úti í
atvinnulífinu eða á skóla-
bekk.
Frumvörp sem minni-
hlutastjórnin nýja hyggst
leggja fram á næstunni
miða að því að fá ýmsa
sjálfstæða lífeyissjóði og
tryggingasjóði til að leggja
fram fé til að auka atvinnu,
auka byggingaframkvæmd-
ir, veita bændum marg-
háttaða fjárhagsaðstoð,
auka ríkisábyrgð vegna út-
flutningslána og að auka
lántökuheimildir vegna
framkvæmda í þróunar-
löndunum.
Pólland: '
Ingmar Stenmark sigraði í heimsmeistarakeppni í svigi í Bad Wiesse í V-I>ýzkalandi
dag. Hér fer hann léttilega í gegnum eitt hliðið.
AP-símarmnd.
Viðræður um klausturför
Walesa farnar út um þúfur
Varsjá, Lundúnum, 12. janúar. AP.
SLITNAÐ hefur upp úr samninga-
viðræðum herstjórnarinnar í Pól-
landi og kaþólsku kirkjunnar um
að koma Samstöðu-leiðtoganum
Lech Walesa fyrir í klaustri, að því
er haft er eftir Alexander Tomsky í
Bretlandi, en hann hefur áður
komið á framfæri upplýsingum frá
kirkjunni í Póllandi. Er víst talið,
að árásir Glemps erkibiskups á
herforingjastjórnina að undan-
förnu séu ástæðan fyrir því að við-
ræður þessar hafa farið út um þúf-
ur.
Aðstoðarforsætisráðherra
pólsku herstjórnarinnar, Jerzy
Ozdowski, lét svo um mælt við er
lenda fréttamenn í Varsjá í dag, að
yfirvöld landsins „vildu binda
enda á“ herlögin sem tóku gildi í
Póllandi 13. desember fyrir 1.
febrúar nk. Ozdowski lagði
áherzlu á, að slík ráðstöfun væri
háð ástandinu í landinu.
Frá því að herlögin voru sett,
hafa Jaruzelski og aðrir helztu
Pólska þjóðin horfir í vestur
látum ekki sitja við orðin tóm
- segir Haig að loknum NATO-fundi
BrúsKel, 12. janúar. AP.
ALEXANDER Haig, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, fylgdi í dag
fast eftir samþykkt utanríkisráð-
herrafundar NATO um harðnandi
aðgerðir) gegn Sovétríkjunum, ef
kúguninni gegn Pólverjum linnti
ekki. Krafðist Haig þess, að tekið
yrði á málinu af fulikominni festu og
ekki látið sitja við orðin tóm.
„Pólska þjóðin horfir nú í vestur.
Við verðum að gefa þeim skýra og
óumdeilanlega sönnun þess að við
stöndum með þeim. En stefna okkar
verður um leið að vera raunhæf, við
verðum að taka tillit til aðstæðna í
Póllandi og Sovétríkjunum," sagði
ráðherrann í ræðu sinni, sem hann
flutti á fundi Alþjóðablaða-
mannasamtakanna í Briissel í dag.
Viðbrögð við samþykkt NATO-
fundarins í gær hafa orðið harka-
leg í Kreml og meðal valdhafa í
Póllandi. Utanríkisráðherrar ríkj-
anna sem voru á fundi í Moskvu í
dag sendu frá sér orðsendingu þar
sem afstaða NATO er kölluð „gróf
íhlutun í pólsk innanríkismál".
Var niðurstöðum NATO-fundar-
ins vísað ákveðið á bug, eins og
sagði í orðsendingunni, en við
brottför sina frá Moskvu kvaðst
pólski ráðherrann, Jozef Czyrek að
nafni, „fordæma harðlega hat-
ursherferð vestrænna ríkja á
hendur Póiverjum".
Fulltrúar NATO-ríkjanna hafa
þegar hafið viðræður um hvernig
stefna utanríkisráðherranna frá
því á fundinum í gær skuli fram-
kvæmd. Talið er að enn eigi
stjórnir þessara ríkja langt í land
með að ná samkomulagi um
markvissar refsiaðgerðir gegn
Sovétstjórninni og pólsku valdhöf-
ráðamenn landsins margendur-
tekið, að herlögin yrðu ekki í gildi
deginum lengur en nauðsyn bæri
til, en enginn þeirra hefur hingað
til nefnt ákveðna dagsetningu í
því sambandi. Annar málsvari
herstjórnarinnar lýsti því yfir á
fréttamannafundinum að stjórn
landsins vonaðist til að geta feng-
ið Lech Walesa hlutverk innan
framtíðarskipulags óháðu verka-
lýðssamtakanna í landinu.
Jóhannesi Páli páfa II hafa bor-
izt bréf, bæði frá Jaruzelski og
Walesa, en efni þeirra hefur ekki
verið gert opinbert
Það bar til tíðinda í Varsjá í
gær, að dómstóll sýknaði tvo Sam-
stöðu-menn af ákæru um að efna
til ólöglegs verkfalls í Warszawa-
stáliðjuverinu. Þriðji sakborning-
urinn hlaut skilorðsbundinn dóm.
Háttsettur starfsmaður pólska
kommúnistaflokksins krafðist
þess í dag, að óhæfir og siðlausir
verksmiðjustjórar og pólitískir
hrossakaupmenn sem hafi svikið
flokkinn á síðustu þremur misser-
um, yrðu reknir úr honum. í mál-
gagni flokksins, Tribuna Ludu,
varð einnig vart harðnandi af-
stöðu gegn óæskilegum öflum í
flokknum.