Morgunblaðið - 13.01.1982, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1982
Reykjavíkurskákmótið:
Korchnoi harmar að
geta ekki komið
- tveir júgóslavneskir stórmeistarar til viðbótar vilja koma
Tillaga Páls Gfelasonar í borgarstjórn:
Hefja undirbúning næsta áfanga
G-álmu Borgarspítalans á þessu ári
„BORGARSTJÓRN Reykjavíkur felur stjórn Sjúkrastofnana að hefja á
þessu ári undirbúning að byggingu næsta áfanga þjónustuálmu Borgarspítal-
ans (G-álmu), svo að hönnun þessarar byggingar geti hafist á næsta ári.
I'annig hljóðar tillaga sem Páll Gíslason borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins
lagði fram á síðasta fundi borgarstjórnar og var hún samþykkt samhljóða.
í greinargerð með tillögu Páls byggingu við fyrsta áfanga þjón-
segir að um þessar mundir sé ustuálmu Borgarspítalans að
Erfiðleikar í vænd-
um hjá bæjarfélögum
BÆJAR- og sveitarstjórnir víðs veg-
ar um land hafa af því áhyggjur, að
standi sjómannaverkfallið lengi yfir
úr þessu, muni það koma til með að
hafa mikil og neikvæð áhrif á rekst-
ur bæjarfélaganna. Fólk, sem ekki
hefur atvinnu vegna verkfallsins,
mun eiga í erfiðleikum með að
borga gjöld vegna peningaleysis, ef
lausn sjómannadeilunnar dregst úr
hófi fram og ýmsar framkvæmdir
bæjarfélaganna eiga á hættu að
stöðvast.
Morgunblaðið hafði í gær sam-
band við rúman tug bæjar- og
sveitarstjóra um allt land og innti
þá eftir, hver áhrif verkfall sjó-
manna hafi haft á rekstur bæjar-
félaganna og muni hafa í framtíð-
inni. Svörin voru flest á þá leið, að
það hefði óheillavænleg áhrif, ef
verkfallið drægist mikið lengur á
langinn. Þó áhrifin séu ekki enn
farin að gera vart við sig í miklum
mæli, þá óttast bæjarstjórnir að
fólk muni eiga í erfiðleikum með
að borga ýmis gjöld, tekjur bæjar-
félaganna muni minnka og fram-
Suðureyri:
íbúðarhús
eyðilagð-
ist í eldi
ÍBÚÐARHÍJS og áfóst skúrbygging
á Suðureyri við Súgandafjörð cyði-
lögðust af eldi í gærmorgun. Einn
maður bjó í húsinu, sem var í eigu
hreppsins.
Slökkviliðið var kallað út laust
eftir kl. 6 á þriðjudagsmorgun og
var þá eldur laus í vegg milli
skúrsins og íbúðarhússins.
Slökkvistarf gekk greiðlega, en
húsin eru talin ónýt og voru þau
komin nokkuð til ára sinna. Inn-
búi mannsins tókst að bjarga að
mestu leyti.
kvæmdir jafnt einstaklinga sem
bæjarfélaganna muni stöðvast.
Sjá nánar viðtöl við bæjar-
stjóra og sveitarstjóra á
bls. 16 og 17.
ljúka og að bygging B-álmu spítal-
ans verði langt komin árin
1983—’84. Segir að þjónusta við
sjúklinga á Borgarspítalanum
hafi aukist og hagkvæmt sé að
veita fjölbreytta þjónustu á
göngudeildum og spara með því
innlagnir, en slíkt krefjist aukins
húsnæðis. Þá muni, með tilkomu
B-álmu spítalans, verða þörf fyrir
aukna þjónustu.
Hins vegar muni undirbúningur
næsta áfanga þjónustudeildar
taka nokkurn tíma og því sé nauð-
synlegt að undirbúa málið vel og
rétt sé að nota þetta ár til að koma
málinu á rekspöl með samþykkt
borgarstjórnar.
VIKTOR Korchnoi, hinn landflótta
sovéski stórmeistari, hefur skrifað
Skáksambandi íslands bréf og
harmað að geta ekki tekið þátt í
Reykjavíkurskákmótinu. Hann seg-
ist hafa dregið úr hömlu að svara
bréfi Skáksambandsins vegna
„slælegrar frammistöðu í Meranó
svo undrum sætti“.
Viktor Korchnoi lýsti vilja sín-
um til að koma hingað til lands
þó síðar væri en vegna móts í
Róm gæti hann ekki tekið þátt í
Reykjavíkurskákmótinu.
Tveir júgóslavneskir stórmeist-
arar hafa lýst vilja sínum til að
koma hingað til lands og tefla á
Reykjavíkurskákmótinu. Þeir eru
Matulovic, sem hefur áður teflt á
Reykjavíkurskákmótinu, og Rejs-
evic. Stjórn Skáksambandsins
mun taka afstöðu til beiðni þess-
ara stórmeistara síðar í vikunni,
Már seldi fyr-
ir 1835 þús. kr.
í V-Þýzkalandi
TÍKIARINN Már frá Ólafsvík fékk í
gær hæsta heildarverð, sem íslenzk-
ur togari af minni gerðinni hefur
fengið fyrir fisk í Þýzkalandi. Már
seldi alls 207,6 tonn fyrir 1835,6 þús-
und krónur og var meðalverð á kfló
kr. 8,84.
Togarinn Ársæll Sigurðsson frá
Hafnarfirði seldi síðan 173 tonn í
Grimsby í gær fyrir 1.433,7 þús-
und kr. og var meðalverð á kíló kr.
8,51. Menn áttu von á hærra verði
í Grimsby fyrir aflann, en sökum
ófærðar á vegum í Bretlandi, gekk
illa að dreifa fisknum og því
fékkst ekki hærra meðalverð.
en frestur til að tilkynna þátt-
töku rann út þann 15. desember
síðastliðinn.
Elvar í 4.—9.
sæti í Hamar
ELVAR Guðmundsson vann Norð-
manninn Richard Bjerke í áttundu
umferð alþjóðlega skákmótsins í
Hamar í Noregi og er nú í 4.-9.
sæti með 4' 2 vinning. Sigurskák Elv-
ars í gær var stutt, hann yflrspilaði
andstæðing sinn og vann í 29 leikj-
um.
Þorsteinn Þorsteinsson, sem
einnig tekur þátt í mótinu, á væn-
lega biðskák gegn Norðmanninum
Heiberg, en hann hefur hlotið 3
vinninga. Þegar einni umferð er
ólokið eru King, Englandi, og
Tisdall, Bandaríkjunum, efstir og
jafnir með 5‘/2 vinning. Federow-
ice, Bandaríkjunum og Bernd-
stein, V-Þýzkalandi hafa 5 vinn-
inga. Ásamt Elvari hafa Cox,
Englandi, Davies, Englandi, Myr-
eng, Noregi, og D’Lange, Noregi,
4'/2 vinning.
Karl vann í
9. umferð
KARL Þorsteins, sem nú teflir á al-
þjóðlegu unglingaskákmóti í Ríó de
Janeiro í Brazilíu, vann Júgóslavann
Zakit í 9. umferð og er efstur ásamt
Wells frá Englandi og D’Lugy,
Bandaríkjunum, með 7 vinninga.
Karl vann Júgóslavann nokkuð
örugglega í 40 leikjum, jók jafnt
og þétt stöðuyfirburði sína. „Að-
stæður hér í Ríó eru mjög góðar
og ég hef telft nokkuð vel, en er
hálfveikur í maganum," sagði
Karl í samtali við Mbl.
Stoftiuð sérstök hljóm-
sveit fyrir Listahátíð
Stofnun íslensku kammersveitarinnar í undirbúningi
GUÐMUNDUR EMILSSON hljómsveitarstjóri hefur að beiðni Listahátíðar í Reykjavík safnað saman 40 tónlistar
mönnum til þátttöku í hljómsveit, er halda á eina tónleika á Listahátíð í vor. Tónleikarnir verða 13. júní og er
hljómsveitin eingöngu skipuð ungum íslenskum hljóðfæraleikurum og einleikurum, en Guðmundur Emilsson mun
stjórna henni.
Morgunblaðið ræddi stuttlega
við Guðmund í tilefni þessa og
greindi hann nánar frá hinum
fyrirhuguðu tónleikum, en honum
var auk þess að velja fólkið falið
að skipuleggja og sjá um fram-
kvæmd tónleikanna:
— Forráðamenn Listahátíðar
báðu mig að gangast fyrir útveg-
un tónlistarmanna til að leika á
einum hljómleikum og hef ég nú
fengið 40 íslenska hljóðfæraleik-
ara í lið með mér og ætla má að
það sé í fyrsta sinn sem svo stór
hljómsveit er eingöngu skipuð ís-
lenskum hljóðfæraleikurum. Vil
ég nota þetta tækifæri til að
þakka forráðamönnum Listahá-
tíðar fyrir það traust sem þeir
hafa sýnt okkur öllum og er ég
ekki í neinum vafa um að við
munum gera okkar ýtrasta til að
reynast traustsins verð. Á efn-
isskrá er nýtt verk eftir ungt ís-
lenskt tónskáld, Þorstein Hauks-
son, og einleikarar eru allir ís-
lenskir. Auk verks Þorsteins
verða flutt verkin Duo Concertino
eftir R. Strauss, einleikarar Sig-
urður I. Snorrason á klarinett og
Hafsteinn Guðmundsson á fagott,
Sinfonia Concertante eftir Moz-
art, einleikarar Sigurlaug Eð-
valdsdóttir fiðluleikari og Ásdís
Valdimarsdóttir lágfiðluleikari og
síðasta verkið verður konsert
fyrir hljómsveit eftir suðuramer-
íska tónskáldið Ginastera.
Ekki hefur verið auðvelt að
velja menn til að skipa þessa
Listahátíðarhljómsveit og nokkr-
ir hafa óhjákvæmilega orðið út-
undan að þessu sinni, en ég tel að
þarna sé um að ræða mjög góða
tónlistarmenn. Yfirleitt er þetta
fólk í námi eða starfi við tónlist,
sumt í öðrum hljómsveitum hér-
lendis eða erlendis. Eg hef haft
samband við allt þetta fólk og æf-
ingar munu síðan hefjast í vor
viku fyrir tónleikana.
í framhaldi af þessu var Guð-
mundur Emilsson spurður hvort
framhald yrði á starfsemi þessar-
ar hljómsveitar, en tónleikarnir
verða aðeins einu sinni. Sagði
hann að frá því sl. sumar hefði
staðið yfir undirbúningur að
stofnun nýrrar hljómsveitar, sem
yrði óbeint framhald af þessari og
kvað hann kærkomið að greina
nánar frá því máli, sem oft væri
ruglað saman við þessa einu tón-
leika hjá Listahátíð:
— Sl. sumar hittumst við nokk-
ur til að kanna starfsgrundvöll
hljómsveitar og skipa 8 manns nú
undirbúningsstjórn. Samin hafa
verið drög að lögum og starfs-
áætlun fyrir íslensku kammer-
sveitina og er ráðgert að hljóð-
færaleikarar í sveitina, 40 talsins,
verði ráðnir að loknu prófspili.
Sérstök dómnefnd mun velja í
hljómsveitina ásamt undirbún
ingsstjórn inni, en hana skipa:
Þorkell Jóelsson hornleikari, Guð-
ný Guðmundsdóttir konsertmeist-
ari, dr. Ingjaldur Hannibalsson
iðnaðarverkfræðingur, Jón örn
Marinósson lögfræðingur og tón-
listarstjóri, Hafsteinn Guð-
mundsson fagottleikari, Sigurður
I. Snorrason klarinettleikari og
Ásgeir Sigurgestsson sálfræðing-
ur, auk mín. Þessa stjórn skipar
fólk með ýmsa sérþekkingu, sér-
staklega á stjórnunarsviði, auk
tónlistar, sem hagnýta þarf í þágu
tónlistarinnar, en geta má þess í
sambandi við Jón Örn Marinósson
að hann var fenginn áður en hann
varð tónlistarstjóri og hefur
óhjákvæmilega orðið að draga sig
nokkuð í hlé þótt hann sitji enn í
stjórninni. Hann situr nú í yfir-
stjórn Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands.
Hugmynd okkar er sú að safna
styrktarmeðlimum, halda reglu-
lega tónleika, kannski á móti tón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands, en við ætlum ekki að keppa
við hana, heldur að fylla upp í þau
tónbókmenntalegu skörð, sem
Sinfóníuhljómsveit íslands eðlis
síns vegna hefur ekki komist yfir
að sinna. íslenska kammersveitin
er stofnuð til að gefa ungum ís-
lenskum hljóðfæraleikurum, tón-
skáldum og væntanlegum
hljómsveitarstjórum tækifæri,
sem allir eru sammála um að þeir
eigi fyllilega skilið. Það komast
ekki allir fyrir á sviðinu í Há-
skólabíói í einu. Ef marka má
undirtektir hljóðfæraleikaranna,
sem falast var eftir vegna Lista-
hátíðartónleikanna, þykist ég vita
að íslenskir tónlistarmenn og tón-
listarunnendur bíði spenntir eftir
þessu tækifæri, en hljómsveitin
gæti mjög auðveldlega flutt, auk
venjulegra verka, ballettónlist,
óperur í konsertuppfærslu, og yf-
irleitt ýmis tónverk frá gömlum
og nýjum tíma.