Morgunblaðið - 13.01.1982, Page 10

Morgunblaðið - 13.01.1982, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1982 Krefst þess ad stjórnvöld sinni frumkvæðisskyldu Moigunblaóinu hefur borist eftirfar- andi ályktun frá Verkamannasam- bandi íslands: „Framkvæmdastjórn VMSI lýsir þungum áhygiyum af því gei(fvæn- lega atvinnuleysi, sem nú ríkir hjá fiskvinnslufólki vegna verkbanns at- vinnurekenda og verkfalls sjó- manna. Fram hefur komið að ákvörðun fiskverðs er helsta hindrunin fyrir lausn á kjaradeilu sjómanna og út- vegsmanna. Fundurinn krefst þess að ríkisvaldið sinni frumkvæðis- skyldu sinni í Verðlagsráði, en raun- in hefur verið sú á undanförnum ár- um að frumkvæðisskylda ríkisvalds- ins hefur verið ótvíræð hvað varðar ákvörðun fiskverðs. Atvinnuleysi er böl sem er ís- lensku þjóðfélagi til vansæmdar og því hvetur framkvæmdastjórn VMSI til skjótrar viðunandi lausnar á yfir- standandi kjaradeilu". Fréttabréf úr Reykja- fjarðarhreppi Botni, Keykjafjarðarhreppi, II. janúar. IIKR VII) Djúp hefur rfkt einstak- lega erfitt tíðarfar í haust og það sem af er vetri. I>að var því öllum til óblandinnar gleði, er gerði hið feg- ursta veður á aðfangadag jóla og einnig jóladag, en þá var messað í Vatnsfjarðarkirkju. A annan dag jóla hélt Kvenfélagið Sunna jólatrésskemmtun í Reykja- nesskóla, öllum er sóttu hana til mikillar ánægju. Sjónvarpsmál Heldur voru börn hér vestra óánægð með útsendingu sjón- varpsins á jóladag, því að á meðan Stundin okkar var á dagskrá, datt mynd og tal út, hvað eftir annað, og varð fólk því aðeins aðnjótandi slitra úr þættinum. Reyndar eru sjónvarpsmál í miklum ólestri hér, svo að vart verður við unað. I Inn-Djúpshreppunum fjórum eru 44 býli auk Reykjanesskóla og eru á 15 bæjum alls engin sjón- varpsskilyrði og á öðrum bæjum afar léleg. Þetta er döpur stað- reynd hér í strjálbýli, a.m.k. í svartasta skammdeginu og fólk því orðið langeygt að bíða úrbóta. Samgöngur Það verða að teljast mörg spor fram á við í samgöngumálum okkar, að hingað gengur í fyrsta sinn mjólkurbíll að vetrinum, a.m.k. svo lengi sem fært verður, en snjómokstur er hér ekki á fjár- lögum og hvílir því á sveitar- stjórnum eða öllu heldur bændun- um sjálfum. Það eru því gífurleg þægingi fyrir mjólkurframleið- endur, að þurfa ekki að berjast við að koma mjólkinni á ferjubryggur allan veturinn, eins og hingað til hefur tíðkast. Því er von til að þetta fyrirkomulag auki áhuga bænda á mjólkurframleiðslu, en mjólkurskortur hefur verið und- anfarna vetur hjá Mjólkursamlagi Isfirðinga. Hér er stillt og fagurt vetrar- veður þessa dagana, en mikið frost hefur verið að undanförnu á snjó- litla og auða jörð og vatn hefur þrotið á einstaka bæ. Eru bændur nú farnir að óttast enn eitt harð- ærið hvað grassprettu og heyöflun snertir. Það er ekki sízt vegna fall- valtrar heyöflunar í Inn-Djúpi, að tveir bændur hér í Mjóafirði eru að koma sér upp aukabúgreinum, sem ekki krefjast heyfóðurs. Að Botni eru þegar komnir 56 refir, en að Eyri eru væntanleg svín um næstu mánaðamót, en það eru áð- ur óþekktar búgreinar hér. Nýju ári fylgja beztu óskir. Ágúst Gefa gerlarannsóknir rétta mynd af ástandi kjötvara? Samkvæmt niðurstöðum rannsókna sem lagðar voru fram á blaðamannafundi, sem Matvælarannsóknir ríkisins héldu í síðustu viku, reyndust aðeins um 42 prósent sýna, er tekin hafa verið af hráum kjötvörum árin 1976—1980, vera af söluhæfri vöru, um 77 prósent sýna af unninni og soðinni kjötvöru reyndust söluhæf vara, um 54 prósent sýna af áleggi og um 63 prósent sýna af samlokum. Morgunblaðið hafði samband við þrjá stærstu kjötframleiðendur landsins, Samband íslenzkra samvinnufélaga í Reykjavík, Sláturfé- lag Suðurlands og Kjötmiðstöð KEA á Akureyri og spurðist fyrir um álit þessara aðila á fyrrgreindum niðurstöðum. Tel ekki ástæðu til að taka þessar niðurstöður alvarlega - segir Óli Valdemarsson hjá Kjötiðnaðarstöð KEA „VIÐ vitum alveg hvar við stöndum í þessum málum og við stöndum miklu betur en þessar niðurstöður Matvælarannsókna ríkisins segja til um — við erum hér með cigin rann- sóknarstofu og fylgjumst með fram- lciðslunni frá degi til dags,“ sagði Óli Valdimarsson hjá Kjötiðn- MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Matvæla- rannsóknum ríkisins í framhaldi af blaðamannafundi stofnunarinnar sl. miðvikudag þar sem skýrt var frá niðurstöðum gerlarannsókna á mat- vælum, mjólk og mjólkurvörum og á neyslu- og baðvatni í Morgunblaðinu 6. janúar: Heilbrigðisnefndir sveitarfélag- anna annast eftirlit með matvæla- framleiðslu- og dreifingarstöðum og taka sýni af matvælum eftir því sem tilefni er til. Matvælarann- sóknir ríkisins annast gerla- fræðilegar prófanir á sýnum sem heilbrigðisnefndirnar vilja láta rannsaka, en stofnunin sjálf tekur ekki sýni. Þannig eru yfir 90% að- sendra sýna, sem rannsökuð voru á því fimm ára tímabili sem skýrslan fjallar um, frá heilbrigð- isnefndunum. Þegar matvælasýni berast til stofnunarinnar fylgja oft tak- markaðar upplýsingar um tilefni sýnatöku. í skýrslunni er því ekki hægt að greina á milli þess hvort sýni eru tekin vegna reglubundins eftirlits eða að um sé að ræða áframhaldandi sýnatöku af mat- vælum, sem reynst hafa gerla- fræðilega gölluð eða slæm í fyrri rannsóknum. Ætla má því, að verulegur hluti sýnanna sé tekinn hjá þeim aðilum, þar sem niður- stöður gerlarannsókna hafa áður reynst óhagstæðar. Einnig er hluti þessara sýna rannsakaður vegna gruns um skemmdir eða matar- eitranir. Þær niðurstöður sem birtar eru í skýrslunni og vitnað er í t Morg- unblaðinu, eru niðurstöður af aðarstöð Kaupfélags Eyfirðinga á Akureyri. „Ég hlýt að viðurkenna að ég er ekkert yfir mig hrifinn af þessum yfirlýsingum — samkvæmt þeim virðist Guðlaugur Hannesson, forstöðumaður Matvælarann- sókna, álíta að íslenzkir kjötiðn- heildarfjölda rannsakaðra sýna í fimm ár (1976—1980). Þessar niðurstöður sýna hlutfall sölu- hæfra sýna af heildarfjötda þeirra sýna sem rannsökuð hafa verið. Samkvæmt ofansögðu um tilefni sýnatöku er því ekki rétt að túlka þessar niðurstöður sem óbrigðulan mælikvarða á ástand þessara mat- væla, sem eru á boðstólum. Á það skal þó bent að matvæla- sýnin sem hafa verið rannsökuð eru oftast tekin á framleiðslu- eða dreifingarstöðum og hafa því væntanlega verið ætluð til sölu. Því verður að álykta, að séu niður- stöður af gerlarannsóknum ein- stakra matvælategunda bornar saman, gefi þær vísbendingu um mismunandi gerlafræðilegt ástand matvælanna. Þannig gefa niðurstöður rannsókna á sölu- hæfni hrárra kjötvara á þessu fimm ára tímabili til kynna að hakk og fars (37,7% söluhæft) sé lélegra að gæðum en kjöt í heilum hlutum (60,6% söluhæft) án þess þó að túlka megi þessar tölur sem raunhæfa mynd af heildarástandi matvælanna. Eins og fram kemur í skýrslunni er fjöldi matvælasýna sem berst frá heilbrigðisnefndum mjög mis- munandi. Fram kemur að engar niðurstöður er að finna frá mörg- um heilbrigðisnefndum og því ekki vitað um ástand matvæla í þeim sveitarfélögum. Nokkrar heil- brigðisnefndir sveitarfélaganna hafa tekið sýni reglulega og má t.d. benda á að heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur sent á þessu tímabili 4.084 matvælasýni, sem aðarmenn séu alls ekki færir um sitt starf og hinir mestu sóðar. Ég veit ekki hvernig þessi sýni eru tekin sem þeir byggja niðurstöður sínar á. Nú er mjög líklegt að menn hafi sent Matvælaeftirlit- inu sýni af kjöti sem komið var fram yfir síðasta söludag til að eru 59,2% af öllum aðsendum matvælasýnum. Að lokum skal það tekið fram til að fyrirbyggja misskilning að orð- in gallaður eða ósöluhæfur, sem notuð eru við mat á gerlafræði- legum niðurstöðum á matvælum tákna að matvælin hafi takmark- að eða ekkert geymsluþol á rann- sóknardegi og/eða að hreinlæti við meðferð og framleiðslú matvæl- anna sé slæmt. Með þessum orðum er ekki tekin afstaða til hvort fólk geti sýkzt eða veikzt af neyzlu þessara matvæla, en þau eru notuð i aðvörunarskyni þar eð matvælin teljast þá orðin mjög menguð af gerlagróðri. „Hjá Sláturfélagi Suðurlands hefur verið starfrækt matvæla- rannsóknastofa undanfarin ár þar sem fylgst er mcð gæðum á vörum fyrirtækisins. Með því er reynt að ná fram sífellt betri vöru. Rann- sóknaniðurstöður okkar eru á allt annan veg en fram kemur í heild- arniðurstöðum Matvælarannsókna ríkisins", sagði Jón S. Friðjónsson hjá Sláturfélagi Suðurlands. Vert er að benda á, að Matvælarannsóknir ríkisins fái sýni til rannsókna frá ýmsum heilbrigðisnefndum og í flestum láta rannsaka það til að finna út geymsluþol. Sýnin hljóta að vera tekin úr framleiðslu sem eitthvað meira en lítið er að — öðruvísi gætu þeir ekki fengið svona geysi- lega háar tölur. Við hér í Kjötiðn- aðarstöðinni tökum um 6 hundruð sýni á ári af öllum framleiðslu- tegundum okkar en fáum ekki niðurstöður í líkingu við þær sem þarna er talað um. Ég tel því ekki ástæðu til að taka þessar niður- stöður alvarlega. I þessu máli lendum við sem að kjötiðnaði stöndum auðvitað milli steins og sleggju. Framleiðsla okkar verður að sjálfsögðu ekki betri en það hráefni sem til okkar kemur og við höfum enga stjórn á því hvernig farið er með kjötið í verslunum eftir að það er farið frá okkur. Þess vegna finnst mér gróflega að okkur vegið í þessu máli þar sem sérstaklega virðist sneitt að kjötvinnslunni en aðrir aðilar látnir liggja á milli hluta. Sú mengun vatns, sem talað er um, er mjög alvarlegt mál en kemur auðvitað meira niður á fiskiðnaði en kjötiðnaði. Við hér fyrir norðan erum betur staddir þar sem við höfum mjög gott vatn -og ætti það ekki að skaða fram- leiðslu okkar," sagði Óli. tilfellum eru einungis send sýni til rannsókna sem eru grunuð um að vera varhugaverð. Okkur hjá Sláturfélagi Suðurlands finnst, að það sem birst hefur í fjölmiðlum um þetta mál sé vill- andi, og mætti líkja því við að rannsóknastofa sem fram- kvæmdi alkóhólmælingar í blóð- sýnishornum ökumanna fyrir lögreglu, birti heildarniðurstöð- ur rannsóknanna en síðan væru útfrá því dregnar ályktanir um ölvunarástand ökumanna al- mennt." Yfirlýsing Matvælarannsókna Niðurstöður villandi eins og þær eru settar fram - segir Jón S. Friðjónsson hjá Sláturfélagi Suðurlands Könnumst ekki við að ástandið sé svona slæmt - segir Steinþór Þorsteinsson hjá Afurðasölu Sambandsins „ÉINS og fram kemur í niðurstöðum Matvælarannsókna ríkisins er ástand þessara mála í beztu lagi hér í Reykjavík en einnig koma fram upplýsingar um að eftirlit á þessu sviði er misjafnt og út um land er það víða oí£lítið,“ sagði Steinþór Þorsteinsson, deildarstjóri Afurðasölu og Kjötiðnaðarstöðvar Sambandsins. „Hvað okkur snertir hér í Kjötiðnaðarstöðinni, þá erum við með eigin rannsóknarstofu og tökum reglulega sýni til at- hugunar af öllum framleiðslu- vörum. Þegar eitthvað athuga- vert reynist við framleiðsluna, sem auðvitað kemur fyrir, tök- um við strax til hendinni við að bæta úr. Ég held að það sé ekki hægt að komast nærri því að fá góða vöru heldur en með þeim aðferðum sem við beitum. í skýrslu matvælarannsókna er einnig fjallað um merkingar en hér hjá Kjötiðnaðarstöð Sam- bandsins höfum við nýlega breytt okkar merkingum og bætt við þær, og eru þær nú fullkomn- ari og gefa meiri upplýsingar en áður. I þessu sambandi hefur orðið mikil framför og ég held að hjá okkur séu merkingar í eins góðu lagi og þær geta verið við þessar aðstæður. I þessu sambandi verður að hafa í huga að gæði vörunnar fara síður en svo eingöngu eftir meðferð í kjötiðnaðarstöð heldur líka eftir hráefninu. Hér fer mestöll slátrun fram að hausti og er kjötið oft orðið margra mánaða gamalt er það kemur til vinnslu. Frystigeymslur eru mis- jafr.ar, sumar nýjar og vel úr garði gerðar aðrar eldri og lé- legri — þetta hefur áhrif á hvernig það hráefni verður sem við vinnum úr. Þá hefur meðferðin á kjötvör- um í verslunum mikið að segja. Ég held að þær verslanir sem skipta við okkur séu allar með góðan geymslubúnað og kaup- menn séu almennt mjög vel á verði um góða meðferð á kjöt- vörum. Það er hins vegar rétt að það komi fram að ástandið væri trúlega ennþá betra í matvöru- verslunum ef innflutningsgjöld og tollar á kæliborðum og frysti- tækjum hefðu fengist lækkaðir eins og verslunarmenn hafa far- ið fram á. Ég veit til þess að kaupmenn hafa dregið að endur- nýja kælibúnað vegna þess hve þessi tæki eru dýr. Þessar niðurstöður Matvæla- eftirlitsins koma mér mjög á óvart og könnumst við alls ekki við að ástandið sé svona slæmt — niðurstöður rannsóknastofu okkar benda til að það sé miklu mun betra. Það er hins vegar vissulega nauðsynlegt að neyt- endur séu vel á verði og skapi öllum aðilum, bæði framleiðend- um, dreifingaraðilum og söluað- ilum, aðhald, því aldrei má slaka til um meðferð matvæla. Slíkt aðhald neytenda skapar smátt og smátt betri vöru, og vissulega erum við sem í þessu stöndum allir af vilja gerðir til að gera okkar besta,“ sagði Steinþór.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.