Morgunblaðið - 13.01.1982, Side 14

Morgunblaðið - 13.01.1982, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1982 BÍLDSHÖFÐA 20 - 110 REYKJAVÍK ESSsSeH SÍMAR: 91 81199-81410 Bretland: Jenkins fer fram í aukakosningum ('lasi’ow, I2. janúar. \l*. TALSMENN kosningabandalags Frjálslynda flokksins og hins nýja jafnadarmannaflokks á Bretlandi tilkynntu í gær, mánudag, að Koy Jenkins, einn helsti frammámaður jafnað- armanna, yrði í framboði í aukakosningunum í Hillhead- kjördæmi í Glasgow, sem haldnar verða á næstunni. A blaðamannafundi í Glas- Kow í gær sagði Jenkins, að hann væri mjög þakklátur bandamönnum sínum í Frjáls- lynda flokknum fyrir tilhliðrun- arsemina, en ákvörðunin um framboð hans var tekin eftir að tekist hafði að setja niður deil- ur flokkanna um framboðsmál- in. I skoðanakönnunum í Hillhead í síðustu viku reyndist .kosningabandalagið með Jenk- ins í fararbroddi hafa fylgi 6—11% fleiri en Verkamanna- flokkurinn og bera höfuð og herðar yfir Ihaldsflokkinn, sem rak lestina. Þó að horfurnar séu sem sagt bjartar fyrir Jenkins er talið, að það geti haft nokkur áhrif, að hann er ekki Skoti heldur frá Wales, og stjórnmálafræðingur einn segir, að ólíkar tilfinningar kunni að bærast í brjósti fólks þegar að kjördegi kemur. Ann- ars vegar, að það líti á Jenkins sem framagosa að sunnan, og hins vegar, að því finnist upp- hefð í því að fá svo kunnan mann sem talsmann sinn. Enn hefur ekki verið ákveðið hvenær kosningarnar fara fram en það er stjórnarflokkurinn, sem því ræður. Hallast margir að því, að þær verði ekki fyrr en í marslok, þ.e.a.s. ef Thatcher hefur eitthvað í pokahorninu fyrir kjósendur þegar hún legg- ur fram fjárlögin í vor. Tyrkland: Góð húsgögn á lægsta verði og bestu kjörum sem hugsast geta. Úrval á 5000 fm. „Innrás- inni“ á Haiti hrundið Porl d(* l’aix, llaili, 12. janúar. Al\ TALSMAÐUR stjórnarinnar á Haiti sagði í dag, ad þrír menn hefðu verið handteknir á Tortuga-eyju en þeir höfðu gengið þar á land ásamt öðr um fimm til þess að velta úr sessi lífstíðarforsetanum Jean-Claude Duvalier. Sagt var, að fimmmenninganna væri nú ákaft leitað. I fyrri tilkynningum stjórn- valda var sagt, að hermenn og íbú- ar eyjarinnar, sem er um 25 km fyrir norðan Haiti, hefðu rekið af höndum sér vopnaða innrásar- menn, en útlægur Haiti-maður í Florida sagði hins vegar að „inn- rásinni" væri alls ekki lokið. Foringi innrásarmannanna er Bernard Sansaricq, bensínaf- greiðslumaður á Flórída, en að undanförnu hefur hann kynnt væntanlega valdatöku sína á Haiti ailrækilega í fjölmiðlum, þannig að Haiti-stjórn var við öllu búin þegar til „innrásarinnar" kom. Veður víða um heirn Akureyri 5 skýjað Amsterdam -4 léttskýjað Aþena 18 skýjað Barcelona 14 mistur Berlín +7 skýjað Brussel í-3 heiðskirt Chicago -15 snjókoma Dyflinni ■r1 heiðskírt Feneyjar 2 þokumóða Frankfurt -5 snjókoma Færeyjar 7 skýjaö Genl 6 skýjað Helsinki ^10 heiðskíN Hong Kong 22 skýjaö Jerúsalem 15 heiöskirt Jóhannesarborg 28 heiðskírt Kaupmannahöfn 1 heiöskírt Kairó 20 skýjað Las Palmas 21 skýjaö Lissabon 12 rigning London 2 skýjaö Los Angeles 20 heiðskirt Madrid 10 skýjað Málaga 15 skýjað Mallorka 17 hálfskýjaö Mexikóborg 20 heiðskirt Miami 17 skýjað Moskva 5 skýjað Nev* York -8 heiðskírt Ný|a Delhí 20 ský|að Osló -2 heiðskírt París 1 heiöskirt Reykiavík 7 rigning Ríó de Janeiro 35 rigning Rómaborg 16 skýjaö San Francisco 14 heiðskirt Stokkhólmur -6 heiðskirt Sydney 29 heiðskirt Tel Aviv 20 heiöskírt Tókýó 16 skýjaö Vancouver 3 rigning Vínarborg -8 heiöskírt Fjöldaréttarhöld yfír öfgamönnum Roy Jenkins Isianhul, 12. janúar. Al\ HERSTJÓRNIN í Tyrklandi hefur búið til mál á hendur 4000 vinstri- og hægrisinnuð- um öfgamönnum, og eru þeir sakaðir um samsæri gegn ríkinu. Eru þessar fréttir hafðar eftir opinberum emb- ættismönnum, sem jafnframt Kupreichik vann á Hastingsmótinu llasiings, 12. janúar. Al\ VIKTOR Kupreichik, 32 ára gamall sovéskur stórmeistari, vann í dag skákmótið í Hastings og er það í fyrsta sinn í fimm ár, að Rússar eiga þar efsta mann. Kupreichik hlaut níu vinninga af 13 mögulegum og fékk að laun- um tæpar 20.000 kr. ísl., en í öðru sæti urðu þeir Jonathan Speel- man, Bretlandi, og Vassily Smys- lov, Sovétríkjunum, með átta vinninga hvor. Lokastaðan er á mótinu var þessi: 1) Kupreichik 9 v., 2) Speelman og Smyslov 8 v., 4) Mestel og And- ersson 7V4 v., 6) Lein, Rivas, Short 7 v., 9) Taulbut 6'A v., 10) Little- wood 6 v., 11) Chandler 5 v., 12) Christiansen 414 v., 13) Szabo og Ree 4 v. segja, að 20.000 aðrir bíði málshöfðunar í yfirfullum fangclsum. Eftir opinberum heimildum er haft, að 40.000 manns, vinstri- og hægrisinnaðir öfgamenn, hafi ver- ið handteknir í Tyrklandi frá því að herinn tók þar völdin fyrir 16 mánuðum. Fangelsin eru því yfir- full og eru stjórnvöld að auki sök- uð um að beita pyntingum og mis- þyrmingum við yfirheyrslur. Áður en herinn tók völdin, féllu að jafnaði 20 manns dag hvern í vígaferlum alls kyns öfgahópa og á herstjórnin fylgi sitt meðal al- mennings því að þakka, að henni tókst að koma í veg fyrir það blóðbað. Haft er fyrir satt, að til fjöldaréttarhaldanna sé efnt til að minnka „pappírsvinnuna", en rétt- arkerfið í landinu er með eindæm- um seinvirkt. Koivisto kjörinn „Madur ársins“ IIHsinki, janúar. Al\ MAUNO Koivisto forsætisráðherra Finnlands var kjörinn maður ársins í Finnlandi í könnun sem síðdegis- blaðið llta-Sanomat gekkst fyrir í byrjun ársins. Koivisto þykir líklegasti eftir- maður Urho Kekkonens forseta e forsetakosningar verða haldnar Finnlandi 26. janúar. Koivisto hlaut 9.425 atkvæði könnuninni en Ari Vatanen kapi aksturshetja hlaut 4.835 atkvæð Kekkonen hlaut 3.980 atkvæði. ERLENT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.