Morgunblaðið - 13.01.1982, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 13.01.1982, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANUAR 1982 15 Eyrarsund er ísi lagt og lítil skip og bátar verða að sigla í kjölfar þeirra stærri til að komast leiðar sinnar. Þessi mynd var tekin í Koge-flóa í Danmörku sl. laugardag, en þann daginn hafði ögn hlýnað. Danskir veðurfræðingar spáðu þó öðru kuldakasti strax um helgina og eftir hana. * Aframhaldandi kuldar austan hafs og vestan: Gífurlegar skemmdir á ávaxtaekrum í Florida New í ork, uinnon, 12. januar. Al*. VETRARKULDARNIR í Randaríkjunum, þeir, mestu í mannaminnum, eru taldir hafa valdið dauða 72 manna um helgina aðeins og í dag náðu þeir langt suður á Flórída og ollu gífurlegum skemmdum á appelsínu- og sítrónuuppsker unni þar. A Rretlandi, einkum í Wales, unnu þúsundir manna úr varaliði hersins við að opna þjóðvegi og leiðir að bæjum og þorpum, sem hafa verið einangruð í fimm daga. Við Mexíkóflóa, þar sem Miss- issippi rennur til sjávar, var í dag grimmdarkuldi og frost og einnig um þvert og endilangt Texas. I Buffalo í New York-fylki hefur ekki fyrr mælst jafn mikil snjó- koma á einum sólarhring, eða tæpur metri, og í öllum Norður- ríkjunum eru samgöngur meira eða minna úr lagi gengnar. Strandaglópar á vegum úti leita gjarna hælis í bensínstöðvum og í kirkjum og sums staðar hefur ver- ið skotið skjólshúsi yfir fólk í opinberum byggingum. Á Flórída var í dag nokkurra stiga frost og hafa þegar orðið gíf- urlegar skemmdir á ávaxtaekrun- um. Skólar og verksmiðjur voru víða lokuð í Miðvesturríkjunum og rafmagnsskortur mikill vegna ís- ingar og of mikils álags. í Wales á Bretlandi unnu her- menn að því hörðum höndum að opna þjóðvegi og leiðir til þorpa og bæja, sem hafa verið einangruð dögum saman. Varpað var niður matarbirgðum til einangraðra bændabýla og fóðri fyrir búfénað- inn, sem víða er innlyksa í högun- um. Kuldarnir hafa valdið Bretum miklum búsifjum, bændur segjast nú þegar hafa tapað milljónum punda og vonir Breska stálfélags- ins um hallalausan rekstur á þessu ári eru nú sagðar að engu orðnar. I Norður-Evrópu eru áfram- haldandi frost og í fréttum frá Varsjá segir, að flóðin af völdum klakastíflunnar í Vislu versni stöðugt. Þar eru 80.000 ekrur lands undir vatni og hefur orðið að flytja á brott 12.000 manns af þeim sökum. Pyntingar í Pakistan liondon, 12. janúar. Al*. TALSMENN Amnesty International í London skýrdu frá því í dag, að kerfisbundnar misþyrmingar á iongum og önnur mannréttindabrot hefðu aukist í Rakistan síðan herstjórnin afnam borgaralega dómstóla í landinu á síðasta ári. I skýrslu, sem AI gaf út í Lond- að í einum mánuði aðeins, í mars í on í dag, segir, að „þúsundir fyrra, hafi 6000 manns verið hand- manna" hafi verið fangelsaðar teknir og sumir dæmdir til heng- fyrir skoðanir sínar og margir dá- ingar eða húðstrýkingar. ið í höndum lögreglunnar. Sagt er, Fimm sjálfsmorð á dag í Danmörku Kaupmannahofn, II . januar. Al\ DONSK heilbrigðisynrvöld skýrðu frá því í dag, að sjálfsmorðum og tilraunum til sjálfsmorða færi fjölg- andi þar í landi, og þykir mönnum nóg um, því Danir voru taldir eiga heimsmet í þessum efnum. Á árinu 1980 voru framin 1.618 sjálfsmorð í Danmörku og var þar um 20% fjölgun að ræða frá árinu áður. Bráðabirgðatölur fyrir 1981 benda til þess að um 1800 Danir hafi framið sjálfs- morð á því ári. Þetta þýðir að fimm Danir fremji sjálfsmorð á degi hverjum, en embættismenn fullyrtu að daglega gerðu tíu sinnum fleiri Danir tilraun til að stytta sér aldur, eða 50 talsins. Þar sem Danir eru fimm millj- ónir, þýða þessar tölur að 0,36% þjóðarinnar gera tilraun til sjálfsmorðs á ári. Prófessor Niels Juul Nielsen geðlæknir heldur því fram, að fjölgun sjálfsmorða og sjálfsmorðstilrauna eigi rætur að rekja til vaxandi efnahags- og fé- lagslegrar kreppu i Danmörku. Langmestur hluti þeirra sem stytta sér aldur er á aldrinum 20 til 40 ára. verðlækkun leikið á verðbólguna!!! Vegna hagstæðra samninga veitum við 15% afslátt af öllum innréttingum frá Ballíngslöv út janúar. Við bjóðum yfir 30 mismunandi gerðir eldhús- og baðinn- réttinga. Auk þess gott úrval fata- skápa. Til að kynna hina ótal möguleika Ballingslöv innréttinga höfum við ráðið innan- hússhönnuð, sem jafnframt er við- skiptavinum okkar til ráðuneytis. ínnréttringaval hf. Sundaborg 1 (austurendi — inng. frá Kleppsvegí) Símar: 84333 — 84660.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.