Morgunblaðið - 13.01.1982, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1982
Báðir ofnarnir í framleiðslu
þegar nægjanleg raforka fæst
segir Jón Sigurðsson, forstjóri íslenzka járnblendifélagsins
„VIÐ HÖFl'M ekki uppi neinar ráðagerdir um að loka verksmiðjunni vegna
markaðsaðstæðna erlendis,“ sagði Jón Sigurðsson, forstjóri íslenzka járn-
blendifélagsins, í samtali við Mbl.
— Við byrgðum ofninn vfir hátíðarnar, en settum hann af stað á tilsettum
tíma eftir áramót og það gekk allt mjög vel, sagði Jón Sigurðsson ennfremur.
Jón Sigurðsson sagði, að aðeins Framleiðsla verksmiðjunnar er
annar ofn verksmiðjunnar væri nú
í gangi, þar sem ekki fengist næg
raforka. — Við fáum aðeins for-
gangsraforku, sem nægir ekki
einu sinni til að keyra annan
ofninn á fuilum afköstum, sagði
Jón ennfremur.
um þessar mundir á bilinu
400—450 tonn á viku.
Aðspurður sagði Jón Sigurðs-
son, að þess sæjust lítil merki, að
markaðurinn væri á uppleið. Að
vísu benti ýmislegt til þess, að
batnandi staða væri í Bretlandi,
en það þyrfti mun meira að koma
til, til þess að ástandið yrði gott.
Jón Sigurðsson sagði ennfrem-
ur, að hinn ofn verksmiðjunnar
yrði gangsettur um leið og raf-
magn fengist, en um það hvenær
það yrði, væri ekkert hægt að
segja á þessu stigi.
Tilnefning forstöðumanns
Borgarskipulags í dómnefnd:
Tillagan hlaut ekki
stuðning í borgarstjórn
Á FUNDI borgarstjórnar, sem hald-
inn var í síðustu viku, var lagt fram
bréf (Juðrúnar Jónsdóttur, forstöðu-
manns Borgarskipulags, varðandi
tillögu skipulagsnefndar um að til-
nefna forstöðumann Borgarskipu-
lags í dómnefnd vegna hugmynda-
samkeppni um skipulag Kvosarinn-
ar.
Ennfremur var fjallað um er-
indi Arkitektafélags íslands
vegna tilnefningar félagsins í
dómnefndina. Fyrri hluti erindis-
ins hlaut í borgarráði 3 atkvæði
gegn 1, og því samþykkt, en síðari
hlutanum var frestað.
I borgarstjórn taldi Davíð
Oddsson, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, í ræðu, að hann
teldi óeðlilegt að forstöðumaður
Borgarskipulags sæti í umræddri
dómnefnd. Slík seta forstöðu-
mannsins myndi binda hann í
báða skó, því þegar farið væri að
fjalla um hugmyndir þær sem
fram kæmu hjá borginni, þá þyrfti
forstöðumaður Borgarskipulags
að vera borginni til ráðgjafar. Því
væri óeðlilegt að hann væri einnig
í dómnefndinni.
Þegar mál þetta kom til at-
kvæða, greiddu sjö borgarfulltrú-
ar atkvæði með tillögunni en aðrir
sátu hjá og náði því tillagan ekki
fram að ganga vegna ónógs stuðn-
ings. Þeir sem sátu hjá voru borg-
arfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
og Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, borg-
arfulltrúi Alþýðuflokksins.
Nýja síðdegisblaðið:
Hlutafjársöfnun
stendur enn yfir
KNN KK unnið að söfnun hlutafjár
síðdegisblaðsins, sem fyrirhugað er
að gefa út í Reykjavík. Samkvæmt
þeim heimildum, sem Morgunblað-
ið hefur aflað sér, mun enn vanta
um I milljón upp á að nægilegt
hlutafé hafi safnazt.
Þrátt fyrir þetta búast að-
standendur blaðsins við því að af
útgáfu verði og hafa nú opnað
skrifstofu þar sem tekið verður á
móti hlutafé og undirbúningur
og hönnun blaðsins að einhverju
leyti hafin. Búizt er við því að
Ijóst verði eftir þessa viku hver'
endanleg framvinda hinnar
fyrirhuguðu útgáfu verði.
Meðfylgjandi mynd er frá afhendingu gjafarinnar, talið f.v.: Sigurður Magn-
ússon, framkvæmdastjóri félagsins, Jónína Guðmundsdóttir, forstöðukona
Kndurhæfingarstöðvarinnar að Háaleitisbraut og auk hennar úr stjórn fé-
lagsins Hólmfríður Guðjónsdóttir, Halldór S. Kafnar og Óttar Kjartansson.
Þá Salome Þorkelsdóttir, alþingismaður og formaður samtaka sveitarfélag-
anna, Guðmundur Oddsson, form. bæjarráðs Kópavogs, Magnús Erlends-
son, forseti bæjarstjórnar Seltjarnarness, Sigurður Sigurjónsson, bæjar
fulltrúi í Garðabæ og Björn Ólafsson, bæjarfulltrúi í Kópavogi.
Reykjaneskjördæmi:
Sveitarfélögin gefa
styrktarfélagi lamaðra
og fatlaðra 100 þús. kr.
©
INNLENT
STJÓRN samtaka sveitarfélaga í
Kcykjaneskjördæmi (SASÍR) kom á
fund stjórnar Styrktarfélags lam-
aðra og fatlaðra 30. desember sl. og
afhenti félaginu að gjöf kr. 100.000
— eitt hundrað þúsund krónur —
samkvæmt ákvörðun aðalfundar
samtakanna fyrr í mánuðinum.
í frétt frá Styrktarfélagi lam-
aðra og fatlaðra segir, að við af-
hendingu gjafarinnar hafi Salome
Þorkelsdóttir tekið það fram, að
þessi gjöf væri viðurkenningar- og
þakklætisvottur fyrir það merki-
lega starf, sem unnið væri í þágu
fatlaðra barna, sem dvelja í
Reykjadal á sumrin á vegum
Styrktarfélagsins. Jafnframt
ítrekaði hún blessunaróskir sam-
taka sveitarfélaganna til Styrkt-
arfélagsins fyrir starfsemi þess.
Óttar Kjartansson, form.
Styrktarfélagsins, þakkaði þessa
höfðinglegu gjöf og lét þess getið
m.a. í því sambandi, að væntan-
lega sæi félagið áður en langt um
liði fyrir endann á þeim fram-
kvæmdum sem nú stæðu yfir
vegna stækkunar Endurhæf-
ingarstöðvarinnar að Háaleitis-
braut 11—13 í Reykjavík, en síðan
væri einmitt á stefnuskrá félags-
ins að snúa sér að endurbótum og
frekari uppbyggingu í Reykjadal,
því þar væri mikið og þarft verk
að vinna, en aðstaða hins vegar að
mörgu leyti ófullnægjandi.
Fóru á vél-
sleðum í
Herðu-
breiðarlindir
Mývalnssveit, II. janúar.
SÍÐASTLIÐINN laugardag lögðu
fímm Mývetningar af stað í leiðang-
ur á vélsleðum suður á öræfí allt til
Herðubreiðarlinda. Þeir, sem þátt
tóku í þessari ferð, voru Hörður Sig-
urbjarnarson, Sigríður Einarsdóttir,
Gunnar Ingi Gunnarsson, Hinrik
Arni Bóasson og Þorsteinn Arthúrs-
son.
Lagt var af stað héðan úr sveit-
inni f.h. á laugardag. Farið var um
Heilagsdal, Ketildyngju, að
Bræðrafelli og gist þar í ágætum
skála um nóttina. Þessi skáli var
innréttaður sl. sumar og tekur 12
manns. Átti ferðafólkið ágæta
nótt í þessum skála. í gærmorgun
var svo ferðinni haldið áfram og
ekið austur, norðan Herðubreiðar,
og að Þorsteinsskála. Þar var
stoppað um stund. Frekar var
tafsamt að komast yfir Lindána á
vaðinu, en áin var alauð. Tókst það
þó að lokum, en eitthvað blotnuðu
sumir. Síðan var ekið norður með
Jökulsá að þjóðvegi og heim síð-
degis. Töldu þeir ferðafélagar
þetta hafa verið mjög ánægjulega
ferð og rómuðu fegurð og mikilleik
öræfanna. Kristján
Fyrirlestur
STEFÁN Aðalsteinsson flytur
fyrirlestur á vegum íslenzka
mannfræðifélagsins á fimmtudag-
inn um uppruna húsdýra á íslandi.
Fyrirlesturinn hefst klukkan 20.30
í stofu 301 Árnagarði.