Morgunblaðið - 13.01.1982, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1982
23
Hjónaminning:
Guðríður Gunnlaugs-
dóttir - Eggert
Engilbertsson
Loksins aetla ég að láta verða af
því að minnast þeirra mætu hjóna
Guðríðar Gunnlaugsdóttur og
Eggerts Engilbertssonar, Sunnu-
hvoli, Hveragerði, sem bæði létust
á sl. ári. Eggert andaðist 24. febr.
en Guðríður 12. nóv., og voru þau
bæði lögð til hinstu hvílu í Kot-
strandarkirkjugarði.
Það verða vandfyllt þeirra
skörð, bæði valmenni í orðsins
fyllstu merkingu. Atvikin höguðu
því svo til að ég kynntist þeim ekki
fyrr en á fullorðins árum og ég á
svipuðum aldri fluttist í Hvera-
gerði öllum ókunnug, þá veit mað-
ur best hvað að manni snýr, en
Eggert og maður minn voru forn-
vinir og þannig myndaðist sam-
bandið milli heimilanna, sem aldr-
ei bar skugga á. Eggert, eða Kalli
eins og hann var kallaður af kunn-
ugum, var sem segja mátti heima-
gangur hjá okkur, og ekki vorum
við sátt við þá daga sem Kalli leit
ekki inn, honum fylgdi góð-
mennska og prúðmannleg fram-
koma, hann hafði bætandi áhrif
þar sem hann kom, var ráðhollur
og greiðvikinn. Bókamaður var
Kalli og undi oft við lestur í frí-
stundum. Söngelskur var hann og
kirkjurækinn, enda í kirkjukór
sveitar sinnar meðan honum ent-
ust kraftar, trúmaður var hann og
ánægjulegt var að eiga við hann
samræður um þau efni. Guð launi
Þýzkur, tvítugur piltur óskar eftir
bréfasambandi við íslendinga á
aldrinum 17—20 ára. Ilann skrifar á
ensku og þýzku:
Daniel Gethmann,
Hauptstrasse 40,
D-4322 Sprockhövel 1,
Germany.
Brezkur piltur óskar eftir ís-
lenzkum pennavinum. Hann gefur
ekki upp aldur í bréfi sínu:
Joseph Kearns,
2 Gordon Ave,
Newtown,
Birminghám 19,
England.
Tvítugur japanskur piltur er
stundar tónlistarnám og hefur
borðtennis og tónlist sem helztu
áhugamál:
Kaksuhiko Sawazaki,
Chokyu-so T-go,
177 Asagayaminami 3-chome,
Suginami-ku Tokyo,
166 Japan.
honum tryggð og hollustu er hann
sýndi okkur hjónunum. Blessuð sé
minning hans.
Guðríður bar sterkan persónu-
leika, þekkt fyrir myndarskap að
hverju sm hún gekk, frábær
handavinnukona, hvort heldur var
við prjón, hekl eða ísaum, allt var
þetta svo vel unnið að erfitt hefði
reynst að betrumbæta enda var
hún oft önnum kafin við kvabb-
vinnu, það mátti sjá hana sitja
með hlaðann á báðar síður, tímun-
um saman. Guðríður var hógvær
kona, laus við kröfur sjálfri sér til
handa, heldur var henni tamara
að segja: „Hvað get ég gert fyrir
þig?“ Mig langar að minnast á lít-
ið atvik sem lýsir henni svo vel. Ég
var eitthvað einu sinni búin að
koma þarna til þeirra hjóna á
Sunnuhvoli, og því enn ókunnug,
en sá nóg til þess að það hvarflaði
að mér að hitta þessa konu aftur,
sem átti svo mikið af prjóna-
mynstrum, en svo stóð á að ég var
með peysu í verki á stelpuna mína,
en var óánægð með fatið, fannst
hún eitthvað svo heiðin og svip-
laus, og datt nú í mig að hitta
þessa konu, ef hún kæmi kannski
vitinu fyrir mig, en fannst það þó
frekt. Þó fór ég. Og mér var sagt
að ganga alla leið innfyrir ófeim-
in. Þar sat hún blessunin sem fyrr
við handavinnu sína. Eftir stund-
arkorn sagði ég eitthvað á þessa
leið: „Ég kom eiginlega hingað til
þess að fá vit,“ því að svo fannst
mér vandi 'mikill. Hún tók af sér
gleraugun, leit svo góðlega á mig,
og sagði: „Og kemurðu hingað til
þess?“ og alltaf breikkaði brosið.
„Já, einmitt," svaraði ég. Hún hló
svo hjartanlega að ég var viss um
endalokin á því erindi, svona var
hún. Guðríður var glaðlynd kona,
skemmtileg í viðræðum. Þau hjón
áttu barnaláni að fagna, en börnin
eru 4 talsins, Hulda, Engilbert,
Guðrún og Jón. Þau sýndu best af
hvaða stofni þau voru vaxin, á
þessu erfiða veikindatímabili,
stóðu sem einn maður að létta for-
eldrum sínum sjúkdómsbyrðina.
Við hjónin vottum syrgjendum
dýpstu samúð.
Blessuð sé minning þessara
mætu hjóna.
S.Þ. Hveragerði.
t
Fóstursystir mín,
SIGURLAUG ÞÓRÐARDÓTTIR,
andaöist i Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, 11. janúar.
Hallur Kristjónsaon
+
Móðir okkar, tengdamóöir og amma,
INGIBJÓRG KRISTJÁNSDÓTTIR FLYGENRING,
lést á Hrafnistu mánudaginn 11. janúar. Jaröarförin auglýst síöar.
Ólafur Flygenring,
Kristján Flygenring,
Þórarinn Flygenring,
Edda Flygenring,
tengdabörn og barnabörn.
t
Móöir mín, tengdamóöir oa amma,
MARGRET STEFÁNSDÓTTIR,
er látin. Jaröarförin hefur fariö fram í kyrrþey. Þökkum auösýnda
samúö.
Renate og Haukur Heiöar
og barnabörn.
t
Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
ÞÓR SKAFTASON,
yfírvélstjóri,
Blönduhlíö 11, Reykjavík,
verður jarösunginn fimmtudaginn 14. janúar, kl. 10.30 frá Foss-
vogskirkju. Blóm eru vinsamlega afþökkuö, en þeim sem vildu
minnast hins látna, er bent á Slysavarnafélag íslands.
Hulda Helgadóttir,
Guörún K. Þórsdóttir, Páll Þorsteinsson,
Hildigunnur Þórsdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson
og barnabörn.
Maöurinn minn. t
EGILL HALLGRÍMSSON,
fyrrverandi kennari,
Bárugötu 3,
verður jarösunginn frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 14. janúar.
kl. 13.30.
Elín Pálsdóttir
Maöurinn minn.
lézt 11. janúar.
t
GUNNAR KRISTINSSON,
Sunnuvegi 15,
Svanhildur Guömundsdóttir
Eiginmaöur minn,
JENNI KRISTINN JÓNSSON,
Álfheimum 44,
andaöist í Landspitalanum, 11. janúar.
Svava Sveínsdóttir
t
Móöir mín og systir okkar,
SIGRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR,
er lést 31. des., veröur jarösungin frá Nýju kapellunni viö Foss-
vogskirkju, fimmtudagínn 14. jan., kl. 10.30.
Herdís Gróa Elísdóttir,
Valur Guömundsson,
Jónas Guömundsson,
Hallfriður Guömundsdóttir,
isafold Guðmundsdóttir,
Leifur Guömundsson.
t
Hjartkær sonur okkar og bróöir,
SÆMUNDUR Þ. SIGV ALDASON,
Faxabraut 36 C, Keflavík,
andaöist 1. janúar 1982. Jaröarförin hefur farið fram. Þökkum
auösýnda samúö.
Guðlaug Bergmann, Sigvaldi Jónsson,
Hreggviður Bergmann, Jóhann Sigvaldason.
t
Faöir okkar,
SVEINN JÓNASSON,
fyrrum bóndi að Efrirotum, Vestur-Eyjafjöllum,
sem lést annan dag jóla að vistheimilinu Kumbaravogi, veröur
jarösunginn frá Eyrarbakkakirkju, laugardaginn 16. janúar kl.
13.30.
Guðfinna Sveinsdóttir,
Sigurður Sveinsson,
Jóhann Sveinsson,
Nína Sveinsdóttir,
Jónas Sveinsson,
Víkingur Sveinsson,
Hrafnhildur Sveinsdóttir.
t
Faöir okkar og tengdafaöir,
KRISTINN VIGFÚSSON,
trésmíöameistari,
Bankavegi 4, Selfossi,
sem lézt 5. janúar sl. veröur jarösunginn frá Selfosskirkju laugar
daginn 16. janúar kl. 14.00.
Bílferð veröur frá Umferöarmiöstööinni kl. 12.00.
Guömundur Kristinsson, Ásdís Ingvarsdóttir,
Sigfús Kristinsson, Sólveig Þóröardóttir,
Hafsteinn Kristinsson, Laufey Valdimarsdóttir.
t
Útför mannsins míns, föður okkar og sonar,
SVANS LAURENCE HERBERTSSONAR,
(fæddur Word),
Hraunbæ 10,
fer fram frá Kristskirkju, Landakoti, fimmtudaginn 14. janúar kl.
15.00.
Margrát Síguröardóttir,
Patrick Svansson,
Sigriöur Jenny Svansdóttir,
Eva Lísa Svansdóttir,
Jenny Clausen, Herbert Albertsson.
t
Þökkum hlýjar kveðjur og viröingu viö minningu móður minnar,
tengdamóöur og ömmu,
SVANLAUGAR EINARSDÓTTUR.
Anna Margrét Þorsteinsdóttir, Hörður Jónsson, v»,
Jón Ragnar Haröarson, Svanlaug Elín Haröardóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför
ARNBJARGAR ASBJORNSDÓTTUR
frá Noröur-Vík.
Ragnar F. Jónsson, Aöalbjörg Sigtryggsdóttir,
Ásbjörn Jónsson, Margrét Einarsdóttir,
börn og barnabörn.