Morgunblaðið - 13.01.1982, Síða 28

Morgunblaðið - 13.01.1982, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1982 ÍÍCGAAIItt 'Getur&u ekkí sctifc kyrr.1' ást er... z 2- ___ ad halda franskt kvöld saman. Með morgnnkafiinu TM R«a U.S. Pat Oft — all rights reserved © 1981 Los Angetes Tlmes Synólcate TiL hvers tannbursta þegar nóg er af brennivíni? Ég vil fá áhættuþóknun, því þú ert svo andfúll! HÖGNI HREKKVÍSI íslensk „Nóbelsverðlaun44 - fyrir háttvísi í umferðinni? Eftirfarandi barst þættinum frá Islendingi sem búsettur er í New York: „Það er víðar en í henni Reykjavík sem bílastæðavanda- mál hrjáir ökumenn. Þau eru t.d. daglegur höfuðverkur hjá New York-búum. Hér í borg, sem annars staðar, eru diplómatar undanþegnir sektum fyrir ólög- legar bílastöður og fer það illi- lega í taugarnar á almenningi, sem engin grið eru gefin í því efni. Það vekur líka alltaf athygli, þegar blöðin birta skýrslur um þessi brot diplómatanna, en þau skipta þúsundum á ári hverju hjá sumum sendisveitum, sem starfa fyrir lönd sín hjá Samein- uðu þjóðunum. Islenskir dipló- matar hafa hins vegar ávallt verið þar neðstir á blaði, og nú síðast þegar syndaregistrið birt- ist, voru þeir með hreinan skjöld. Þetta vakti athygli og varð m.a. tilefni til bréfaskipta milli borgara hér og ívars Guð- mundssonar, aðalræðismanns íslands í New York-borg. Bréfin birtust síðar í hinu víðlesna blaði New York Daily News. Kunningi minn, sem fær blaðið, benti mér á þetta og sendi ég úrklippuna hér með, svona til gamans." Það er slegið á létta strengi í báðum bréfunum og fara þau hér á eftir í lauslegri þýðingu: „Til aðalræðismanns Islands: Innilegar hamingjuóskir. Ég var að frétta að íslenska sendi- sveitin hefði fengið fæsta sekt- armiða allra sendisveita í New York. Já, og ég las það líka að kúbanska sendisveitin hefði fengið 5000 sektarmiða á síðast- liðnu ári, en hin islenska engan, segi og skrifa alls engan. Þér skuluð ekki ímynda yður að þetta fari fram hjá okkur borg- urunum. A.m.k. veitti ég því at- hygli og þakka kærlega fyrir háttvísina. Það er eindregin skoðun mín, að þessi frábæra frammistaða hljóti að færa Islendingum stórkostlegt tækifæri upp í hendurnar. Yður er áreiðanlega kunnugt um Nóbelsverðlaunin sem Svíar veita á ári hverju. Gætu Islendingar ekki stofnað til svipaðra verðlauna fyrir hátt- vísi í umferðinni? Hvað segið þér um það? Munduð þér vilja gjöra svo vel að koma þessari tillögu á fram- færi við ríkisstjórn yðar? Til sannindamerkis um að mér er full alvara með þessum orðum sendi ég hér með þessu bréfi einn dollara — í von um að það megi verða til þess að greiða fyrir því að málið nái fram að ganga. Yðar Randy Uohen.“ ,,Kæra fr. ('ohen. Ég þakka kærlega vinsamlegt bréf yðar. Ég get nú ekki sagt að við séum tiltakanlega upp með okkur af því að hafa ekki gert það sem má ekki gera. Við lítum fremur á þessi forréttindi sem vott um gestrisni, sem ekki sé við hæfi að misnota, en sem sér- stök „réttindi". Á hinn bóginn líst mér prýðilega á tillögu yðar um íslensk „Nóbelsverðlaun" fyrir góða háttsemi I umferð- inni. Við kunnum líka svo sann- arlega vel að meta framlag yðar til verðlaunanna, en verðum því miður að endursenda það, þar sem það mundi að öðrum kosti rugla allt reikningshaldið hjá okkur. Bréf yðar gladdi okkur mikið og ekki síður sá góði hugur sem fylgdi. Yðar einlægur ívar Guðmundsson, Aðalræðismaður." Langdreginn fréttalestur Kinn sem hefur ekki of mik- inn tíma skrifar: „Þess er að vænta að út- varpsmenn þiggi með þökkum vinsamlegar ábendingar Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur les- endur til að skrifa þætt- inum um hvaðeina sem þeim liggur á hjarta — eða hringja milli kl. 10 og 12 mánudaga til föstudaga. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð. Þeir sem ekki koma því við að skrifa slá þá bara á þráðinn og Velvakandi kemur orðum þeirra áleiðis. Nöfn, nafnnúmer og heimilisföng þurfa að fylgja öllu efni til þátt- arins, þó að höfundar þess óski nafnleyndar. hlustenda sinna. Hér er ein slík: Fréttalesturinn í hádeg- inu er orðinn allt of mikill á langveginn. Eg hef, eins og svo margir fleiri, stuttan matartíma, en verð þó, starfs míns vegna, að þreyja lesturinn. En nú er þetta orðið svo langdregið, með öllum þessum formálum og fyrirsögnum, innskotum og I grein Stefáns Jóns Hafstein fréttamanns hér í dálkunum í gær féll niður stór hluti úr tveimur málsgreinum og úr varð merking- arleysa. Er Stefán beðinn vel- virðingar á þessu. Hér á eftir fer sá kafli greinarinnar sem varð fyrir raski af þessum orsökum: „Það er svo, að oft halda út- varpshlustendur að þeir heyri annað en það sem í rauninni er sagt og heyra meira en sagt er, eða minna, eftir aðstæðum. Eigin hugsun og skynjun hleypur undir bagga með hlustendum við tækin. Og mikið rétt — oft hjálpar út- varpsmaðurinn fólki til þess að komast að rangri niðurstöðu með heilu viðtalsþáttunum, að við borð liggur að hlaupast verði frá því í miðjum klíðum. Má ég heldur biðja um frétt- irnar vafningalaust, áður en sambandið er gefið málglöðum tíðindamönnum „hist og her“. Þeir sem hafa matartíma í knappara lagi mega ekki vera að því að taka þátt í þessari orðaveislu." ófullnægjandi efnismeðferð. Nú var efnismeðferð mín í fréttapistli frá ísafirði áreiðan- lega ekki fullkominn. En þar sem „Sjómaður" hefur bæði heyrt meira og minna en þar kom fram vil ég gera grein fyrir því sem þar var sagt og varðaði kjör sjómanna sérstaklega. Aðalatriðið er það að þar kom ekki fram, eins og „Sjó- maður“ heldur, að laun skipstjóra á einu fengsælasta skipi íslend- inga jafngildi meðaltekjum sjó- manna í heild. Slíkt er l«tergi gefið í skyn, heldur þvert á móti áréttað tvisv- ar að hér væri um allt annað að ræða.“ Hefur ekki lagt við eyrun sem skyldi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.