Morgunblaðið - 13.01.1982, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 13.01.1982, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1982 29 I Velvakanda fyrir 30 árum Vandamál sem fylgir vetri Fyrir nokkru var í Daglega lífinu minnzt eins þess vanda sem jafnan fylgir vetri. Hálk- an á götunni verður ekki frá honum skilin. Hestar eru skaflajárnaðir á vetrum, þó að við verðum þess lítið vör í bæjunum. Þeim mun meir kynnumst við bílunum og keðjunum, sem eru þeirra vörn við hálkunni. Fáir hafa líklega séð menn á keðjum, enda óalgengt. Og hvers vegna skyldi mannskap- urinn ekki geta notazt við keðjurnar eins og farartækin? Menn á keðjum Eg hefi sjálfur átt þess kost að ganga á keðjum, sem fram- leiddar hafa verið í þýzkri verksmiðju, og þær voru af- bragðsgóðar. Óvíst er, hvort fótakeðjur eru á boðstólum í verzlunum, en vafalítið eiga þær eftir að eignast marga formælendur. Ef ykkur þykir þetta fá- fengilegt, þá er það sennilega af því, að um nýmæli er að ræða. Arlega brýtur fólk limi sína og skaddazt á annan hátt, af því að það fótar sig ekki á gljánni. Veðurspár með almennum fréttum Hvernig stendur á, að ekki er í almennum fréttum út- varpsins getið veðurspárinnar, þegar hún er ískyggileg? í því fælist þó frekari viðvörun til almennings, þegar illt er nærri, og næði auk þess til enn fleiri manna en sjálf veðurspá- in. Við eigum líka svo mikið undir veðráttunni komið, að uggvænleg veðurspá ætti að skipa öndvegissess innlendra frétta. Þetta fyrirkomulag er vel þekkt erlendis. I Morgunblaðinu fyrir 50 árum — Þegar þjer eruð búinn að stinga upp þessa skák hjerna, þá skuluð þjer athuga rósabeð- ið, sópa ganginn, bæta vatns- slönguna, bera koks upp í eld- hús og — Daglaunamaðurinn: Fyrir- gefið — ætlist þjer til að jeg geri þetta alt í dag? eða er það fimm ára áætlun? Dómari: Kannist þjer við að hafa drýgt þennan þjófnað? Ákærði (gramur): Nei. Dómari: Hafið þjer lent und- ir mannahöndum áður? Ákærði (enn gramari): Nei, herra dómari, jeg hefi aldrei stolið áður. Brúarfoss kom hingað frá útlöndum á mánudaginn. Far- þegar voru: Kragh von Stein- hauer, Olfert Naabye, Ludvig Cornelius, Will Hoescht, Di- rektör Eldon, N. Möller, ungfrú Kristín Guðmundsdótt- ir, Halldór Runólfsson, Ólafur Þorbjörnsson, Mr. Weil, Mr. Wager, Helge Derver. Þessir hringdu . . . Þakkir til Al- þýðuleikhússins Haukur Friðriksson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mig langar til að þakka Alþýðuleik- húsinu skemmtilega stund fyrir hönd okkar hér í Hátúninu. Okkur var boðið í leikhúsferð á sunnu- daginn var, til að sjá leikritið Sterkari en Súpermann. Fólki sem sér leikritið ætti að skiljast betur eftir en áður, hvernig það er að vera í hjólastól. Innilegar þakkir fyrir góða sýningu og hugulsemi í okkar garð. Þá vil ég nota þetta tækifæri og þakka fyrir ágæta jólaskemmtun sem haldin var hér í samkomusalnum okkar eftir ára- mótin. Hún lukkaðist ágætlega, en mér fannst allt of fáir úr húsinu koma eins pg þarna var skemmti- legt. Séra Árelíus talaði þarna og mæltist sérlega vel. Þá komu tveir jólasveinar í heimsókn og spiluðu Fugladansinn við mikinn fögnuð eins og vant er. Mér finnst að fatl- aðir ættu að gera þetta lag að sínu. Allt fer í fum Óli Björgvin Jónsson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Ósköp er það eitthvað klaufalegt hjá sjónvarpinu þegar þeir skipta yfir á veðurfræðinginn eftir að fréttalestri lýkur, án þess að segja aukatekið orð — og hann oftast óviðbúinn — og allt fer í fum. Maður hefur samúð með mönnun- um, þegar þeir fara í skrall frammi fyrir alþjóð. Það kemur líka oft fyrir, þegar um beinar út- sendingar er að ræða, að frétta- þulurinn situr vandræðalegur frammi fyrir sjónvarpsvélunum og losnar ekki hvað sem tautar, af því að skiptingarnar ganga eitt- hvað brösótt. Einn þeirra var orð- inn svo aðþrengdur að hann sagði: „Ég hélt að Helgi hefði átt að taka við hérna." Þetta er alveg óþarfi. Einfaldlega mátti þarna segja: „Nú tekur Helgi við, eða nú tekur veðurfræðingurinn við o.s.frv. Ég hef dvalist nokkuð í Bandaríkjun- um og þar hafa þeir það þannig, að fréttaþulurinn snýr sér að veður- fræðingnum og segir t.d.: Hvað segirðu um veðrið? heldurðu að það verði svona áfram? Eða eitthvað í þeim dúr. Okkar menn virðast þurfa að vera með hvert einasta orð skrifað, ella fer allt í hnút. Þarna er greinilega um þjálfunargalla að ræða hjá fólk- Gæti ekki hugs- að til þess að hann hætti D.Th. hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: — Ég sá að það var verið að skammast í honum Páli Heiðari í dálkunum þínum. Ég er nú ein af þessum húsmæðrum sem nefndar eru og sagt er að séu orðnar svo leiðar á þessu. Ég hef alla mína ævi verið morgunsvæf, en síðan Páll Heiðar byrjaði hef ég alltaf vaknað kl. 7 til þess að hlusta á þáttinn og ég gæti ekki hugsað til þess að hann hætti. Ég hef svo gaman af rabbi eins og tíðkast í Morgunvökunni, um allt mögulegt, að ég læt mig aldrei vanta við tækið. Gunnlaugur Stefánsson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mig langar til að vita það, Velvakandi, hvort þú getur orðið mér að liði í ákveðnu máli. Um mánaðamótin nóvember-desember fór ég út að skemmta mér, en átti svo ekki fyrir leigubílnum þegar heim var komið og að var gáð. Leigubíl- stjórinn tók við styttu sem ég á og er mér mjög dýrmæt sem trygg- ingu fyrir greiðslunni, en mér láð- ist hins vegar að fá kvittun hjá honum til þess að hafa allt á hreinu. Nú er ég búin að hringja á allar bílastöðvarnar og reynt mik- ið til að endurheimta styttuna en enginn kannast við málið. Ef við- komandi bílstjóri les þessar línur, þætti mér vænt um að hann hefði samband við mig í síma 39626, annað hvort í hádeginu eða eftir kl. 20 á kvöldin. Mál er að linni Ragnheiður hringdi og hafði eft- irfarandi að segja: — Ég tek heils hugar undir orð þess sem segist vera orðinn dauðleiður á Morg- unvöku útvarpsins. Mér finnst hún beinlínis sálardrepandi og mál sé að linni. Þeir ættu sem að henni standa að hrista svolítið upp í sálartetrinu og sjá hver árangurinn yrði. Tæplega getur þetta versnað. 03^ SIG6A V/öGá fi AfLVtgAU BlKm^átfNW'íiL VE'fr fifO M VMNA ‘hiúóö áaósaí ALl3 GcNSQH A^MWTOUOYl; W ‘bíÚNÓU, Starfsemi ÁTAKS er hafin h Ailir afgreiðslustaðir Útvegsbanka íslands § taka nú við beiðnum i um opnun viðskiptareiknings þeirra sem vilja veita málstaðnum lið.. JHMK UTVECSBAHKIISLANDS J Tilkynning til ~ fasteignaeigenda í Hafnarfirði Álagningu fasteignagjalda í Hafnarfiröi 1982 er lokiö og hafa álagningarseölar verið sendir út. Gjalddagar eru 15. janúar og 15. maí og ber aö greiöa gjöldin að hálfu á hvorum gjalddaga. Meö álagningarseðlum fylgir gíróseöill vegna gjalddagans 15. janúar, og eru gjaldendur hvattir til aö notfæra sér hagræöi gírókerfisins og greiöa gjöldin á gjald- daga á næsta greiöslustað. Gíróseöill vegna síöari gjalddagans veröur sendur gjaldendum fyrir síðari gjalddagann. Innheimta Hafnarfjarðarbæjar. liraöréttir í hádeginu mánudaga til föstudaga. HRAÐRÉTTASEÐILL viKunriAR Súpa fylgir með öllum réttunum. Tómatsúpa Innbakaður skötuselur m/hrísgrjónum og karrýsósu kr. 79 Karfi, steiktur í krjddsmjöri m/rækjum og smjördeigshálfmánum kr. 78 Hvítvínssoðin smálúðuflök m/kræklingasósu kr. 79 Blandaðir sfldarréttir kr. 60 Léttsaltað uxabrjóst m/piparrótarsósu kr. 90 Lambabuff m/sherrýsósu kr. 85 Reyktur grísageiri „Au gratin" kr. 115 íslensk kjötsúpa kr. 80 Svartfuglsbringa m/madeirasósu kr. 85 Söluskattur og þjónustugjald innifalid. ARMARHÓLL Hverfisgötu 8—10, sími 18833. — ...............—.... . \Wfy n 'ö , w m .. , 'Bmw \ \ow ['iBtim, w„ ^rro* \\ \ ot&bm ^USTo vim- moMvfcí mrrtf)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.