Morgunblaðið - 13.01.1982, Page 30

Morgunblaðið - 13.01.1982, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1982 Með smáheppni hefði allt getað gerst í leiknum - tveggja marka tap gegn Ol-meisturunum HIÐ GEYSISTERKA landslið AusturÞýskalands sigr aði íslenska landsliðið með tveggja marka mun, 19—17, í Laugardalshöllinni í gærkvöldi. Troðfullt hús áhorf- enda sá góðan leik og oft á tíðum mikla baráttu hjá íslensku leikmönnunum. Víst er, að með smá heppni hefði sigur getað unnist. Heilladísirnar voru ekki með íslenska liðinu að þessu sinni. Tvö vítaköst mistókust á örlagaríkum augnablikum í leiknum og góð marktæki- færi runnu út í sandinn. En tveggja marka tap gegn þessu sterka liði er ekkert til að skammast sín fyrir. Þetta er eitt af fimm bestu handknattleikslandsliðum heimsins og hefur frábæra handknattleiksmenn innan sinna raða. Vítakastið mistókst — Þegar aðeins 12 mínútur voru eftir af leiknum í gærkvöldi, skildi aðeins eitt mark liðin af. Staðan var 15—14, fyrir Þjóð- verja. Islenska liðið hafði breytt stöðunni úr 14—11 í 15—14. Og vítakast var dæmt á þýska liðið. Nú var gott tækifæri á að jafna leikinn og þá gat greinilega allt gerst. Þorbergur Aðalsteinsson framkvæmdi vítakastið, en skot hans, sem fór milli fóta markvarð- arins, var full fast, það fór í gólfið, upp og rétt yfir þverslá marksins. Eftir leikinn sagði Þorbergur: „Þessi markvörður er mjög erfiður við að eiga í vítaköstum. Hann hoppar upp, og fer vel út með fæt- ur og hendur og er mikið í boltan- um. Ég tók því þá áhættu að skjóta á milli fóta hans í gólfið og að sjálfsögðu átti skotið hvergi annars staðar að hafna en í mark- inu. En skot mitt var of fast, og boltinn fór yfir. Það var sárgræti- legt að þetta skyldi mistakast." Þýska liðið skoraði svo næstu þrjú mörk og sigur þeirra var ekki í hættu. Tvö síðustu mörk hálfleiksins voru íslensk, og lagaði það stöðuna verulega, en hún var orðin 19—15 þegar ein mínúta var eftir af leiknum. Óheppnir í fyrri hálfleiknum Jafnræði var með liðunum framan af fyrri hálfleiknum. Þeg- ar fyrri hálfleikur var hálfnaður var staðan 5—4. En allan leikinn höfðu Þjóðverjar frumkvæðið í leiknum. Síðari hluta hálfleiksins voru leikmenn íslenska liðsins mjög óheppnir með skot sín úr góðum færum. Ýmist fóru þau naumlega framhjá eða skotið var í stangirnar. Þá voru í það minnsta tvö vítaköst tekin af liðinu, en dönsku dómararnir sem leikinn dæmdu, voru ragir við að dæma á A-Þjóðverjana. Þrátt fyrir þetta, var nýting íslenska liðsins í fyrri hálfleik um 50%. Staðan í hálfleik var 11—7, fyrir Þjóðverja. Liðin Islenska liðið lék þennan leik vel á köflum. Sérstaklega í síðari hálfleiknum. Undir lok leiksins var þó eins og þreyta gerði vart við sig hjá leikmönnum. Kristján varði mjög vel í markinu lengst af og varði 12 skot í leiknum. Þor- björn Jensson var sterkur í varnarleiknum. Þá átti Guðmund- ur Guðmundsson mjög góðan leik og sýndi af sér mikla hörku og keppnisskap. Einn leikmaður fór á kostum í íslenska liðinu. Það var stórskyttan Þorbergur Aðal- steinsson. Hann var einn af bestu mönnum vallarins og gaf skyttum Þjóðverja ekkert eftir nema síður væri. Þorbergur sendi sjö þrumu- fleyga í markið hjá hinum heims- fræga Schmidt markverði, sem leikið hefur um 150 landsleiki. Flest voru skotin svo föst að varla ísland — A-Þjóðverjar 17—19 mátti eygja boltann fyrr en hann þandi út netið. Þá mega aðrir leikmenn taka Þorberg sér til fyrirmyndar hvað varðar keppn- isskap, hörku og ákveðni í leikjum. Hann gefur aldrei eftir. Sterkur og ákveðinn leikmaður. Austur-þýska liðið er eins og ávallt gífurlega sterkt. Allir leikmenn liðsins eru fljótir og skotfastir. Þá ganga leikkerfin ótrúlega vel upp. Hraðaupphlaup- in eru framkvæmd af nákvæmni og varnarleikur og markvarsla falla vel saman. Það er mjög at- hyglisvert, að lítil breyting hefur orðið á liði Austur-Þjóðverja allt frá árinu 1977. Það segir meira en mörg orð. I stuttu máli: Landsleikur í handknattleik: Laugardalshöll. ís- land — Austur-Þýskaland: 17—19 í7-11*- . MÖRK Islands: Þorbergur Aðal- steinsson 7, Guðmundur Guð- mundsson 3, Steindór, Sigurður og Kristján 2 mörk hver, Þorgils 1. MÖRK Þjóðverja: Dreibodt 5, Krúger 4, 3 v., Wahl 5, Weigert 2, Pester 1, Rost 1, Schmidt 1. VARIN vítaköst: Kristján Sig- mundsson varði vítakast hjá Drei- bodt og Schmidt varði hjá Krist- jáni Arasyni á 26. mínútu. BROTTRÉKSTUR af velli: Fjór- um Þjóðverjum var vikið af velli í 2 mínútur, en þremur íslenskum leikmönnum, þeim Kristjáni, Þorbergi og Ólafi. DÓMARAR voru danskir, og voru þeir slakir. — ÞR. • Hér brýst Þorbergur Aðalsteinsson inn úr horninu og skorar framhjá þýska markverðinum. • Sigurður Sveinsson í baráttu við þýsku vörnina. Stórskyttan náði sér ekki á strik í gærkvöldi. Sagt efftir leikinn: „Heppnin þarf að vera með okkur“ Sigurður Sveinsson: — Ég byrjaði mjög illa og varð því hálfsmeykur í leikn- um. Of ragur og náði mér ekki á strik, því miður. Dómararnir komu mér líka úr jafnvægi með furðulegum dómum á mig. Ég legg mig allan fram í þeim leikjum sem eftir eru og von- andi hitti ég þá betur. En það er ekkert grín að skora fram- hjá svona vörn og markverði. Hilmar Björnsson: — Ef heppnin er með okkur getur allt gerst. Það þarf allt að ganga upp hjá okkur en þeir þurfa að vera óheppnir ef við eigum að sigra þá. Þetta er tví- mælalaust eitt alsterkasta lið í heiminum í dag. En samt sem áður eiga þeir mjög erfitt með að leika undir pressu ef þeir eru undir. Og það munaði ekki miklu í þessum leik að við kæmum þeim úr jafnvægi. Kristján Sigmundsson: — Við ætlum að sigra þá áð- ur en þeir fara heim. Það er vel hægt. Við vorum svo sannar- lega óheppnir í kvöld, og allir sáu að dómararnir voru okkur mjög óhagstæðir. Þctta lið er mjög svipað að styrkleika og önnur lið sem hér hafa komið frá AusturÞýskalandi. En það á varla að vera að tala um önn- ur lið, þetta er búið að vera sama liðið síðastliðin sjö ár. Þeir eru fastir fyrir og mjög hittnir. I’orbergur AAalsteinsson: — Þetta var nú bara hreint út sagt dómaraskandall. Hví- líkir dómarar, svei. Við nýttum ekki nægilega vel tækifæri okkar. En gleymum því ekki á móti hverjum er verið að leika. Þeir eru mjög sterkir og í gíf- urlega góðri þjálfun. En það getur allt gerst í þessum leikj- um sem eftir eru. Við verðum að ná minnst einum sigri. • Eins og Mbl. greindi frá fyrir skömmu, hefur úrvalsdcildarlið ÍS bæst liðsauki sem er í liði nýs Bandaríkjamanns. Nýi Kaninn heitir Pat Bock og má sjá hann á meðfylgjandi mynd ásamt Steini Sveinssyni, formanni körfu- knattleiksdeildar ÍS. Bock er 2,06 metrar á hæð og lék þrju síðustu árin með þýzka liðinu Munster, sem er í 2. deild þar í landi. í fyrra varð hann stigahæsti lcikmaður deildarinnar með 29 stig að meðaltali í leik. Áður lék Bock einnig með ('entral Michigan University og var þar í liði með köppum á borð við Dirk Dunhar, sem er íslendingum að góðu kunnur, og mun hann hafa verið þcim ÍS-mönnum mjög innan handar varðandi ráðningu Bocks.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.